Alþýðublaðið - 17.05.1958, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 17.05.1958, Blaðsíða 7
Laugardagur 17. maí 1958. AlþýðublaSið ÞANN 28. ágúst hefst alþjóð legt þing dýrafræðinga og dýragarðst.ióra í Frankfurt og er það háð í sambandi við ald- arafmæli dýragarðsins þar, sem hóf starfsemi sína 1858 og hefur æ síðan verið talinn í fremstu röð þýzkra dýragarða. Hinsvegar voru það fyrst og fremst hinar örðugu aðstæður fyrst eftir stjmjöldina, — eða öllu heldur hinir f.iölbrevttu hæfileikar nuverandi forst.ióra, ,dr. Bernhard Grzimek, — sem gerðu garðinn að einhver.ium vinsælasta og fjölsóttasta sam- komustað borgarinnar við Main. Það eru nefnilega engar ýk.i- Ur þótt sagt sé að dýragarður- inn hafi verið helzta miðstöð 'alls skemmtanalífs í Frankfurt á árunum eftir 1945. Frá því í janúarmánuði 1946 og fram á þennan dag hefur það ekki brugðizt að borgarbúar ættu þar völ góðrar dægrastvtting- ar. Raunar mátti garðurinn teljast dýralaus með öllu fyrstu árin eftir styr.iöldina, en dr. Grzimek var staðráðinn í að foorgarbúar skyldu ekki gleyma garðinum og ' leiksýningum, lefndi þar til dansskemmtana fyrir borgarbúa og leitaði allra fougsanlegra skemmtiatriða til þess að missa ekki af viðskipta- vinunum þangað til dýrin &æmu og ljónin og fílarnir gætu gengið fram á sjónarsvið- íð. Vera má að dýrafræðingum finnist þetta dálítið kæruleys- ísleg túlkun á því fræðilega Mutverkí, sem dýragörðum um víða veröld er falið að rækja. En þessi viðbrögð Grzimeks mótuðust fvrst og fremst af þeirri skoðun hans að dýra- gaðurinn eigi einnig félagslegu Mutverki að gegna í nútíma þjóðfélagi. Á fyrstu mánuðunum eftir styrjöldina varð dr. Grzimek að beita öllum ráðum til að fá leyfi. hemámsyfirvaldanna til enduropnunar dýragarðsins. X,oks var honum veitt það, og gerði hann þá samning við fjölleikastofnun um daglegar sýni'ngar þar. Þær sýningar stóðu í þrjú ár samfleytt og var breytt um atriði á þriggja víkna fresti!. Þá var tjaldáð yfir þá einu fjóra veggi sem enn stóðu uppi í dýragarðin- um, og undir þessu tjaldi fóru jfram einhverjar þær glæsileg-' ■ ustu sýningar sem um getur í jÞýzkalandi eftir styrjöldina, — þeirra á meðal sýningar er- lendra úrvalsflokka, sem þang- að voru boðnir. Undir tjaldi þessu fóru líka fram kvik- myndasýningar og hljómleikar. jMeðal annars voru haldnír bar jfyrstu jazzhljómleikar á Þýzka llandi; þar voru á ferðinni ^bandarískir tónlistamenn og sumir af þeim frægir mjög. I grennd við tjaldbúð bessa var brátt komið upp v-aitingasölu og danssal, og fyrstu sex-sjö árin eftir styrjöldina var þarna helzti skemmtistaður Frank- furtbúa á öllum aldri. Tekjun- um af allri þessari starfsemi var svo varið til að endur- b.yggja garðinn og kaupa á dýr- um. A BAK VIÐ GLER. Nú eru vfir 3200 dýr í garð- inum, sum þeirra afar sjald- gæf í dýragörðum. Þessi dýr hafast við í 40 skýlum og svo innan girðinga eða á afmörkuð- um reitum, og hafa allar þess- ar framkvæmdir verið gerðar eftir árið 1945, svo að í hví- vetna er farið eftir nýjustu kenningum og þekkingu varð- andi meðhöndlun villtra dýra á slíkum stöðum. Á garðsvæð- inu rniðju hefur veriðgforðtjörn srór, í námunda við hana er sá staðu sem flestum gestum vlerð ur staldrað við, og á hann sér enga hliðstæðu í evrópskum dýragörðum. Þar er um að ræða byggingu eina mikla, þar sem getur að líta ýmist hafís- jaka og heimskautshjarn eða hitabeltisjurtir og frumskóga- gróður á bak við gler, sægeyma með frostköldum sjó eða yl- heitum og fiska-, jurta- og dýralífið efti- því. Þarna geta ^ gestirnir skoðað lifaðarhætti þessara dýra eins og þeir eru í þeirra venju.lega umhverfi; t horfzt í augu við eitursnáka í I gegn um hina'r risastó'ru og þykku rúður, eða því sem næst nuddað nefjum við tröllstórar djúpskjaldbökur og skoðað kóngsálkurnar, jafnt uppi á ísnum og í kafi, og fjölda ann- arra furðuskepna. í klefunum bar sem heimsskautsdýrunum er komið fyrir eru stöðugt frost hörkur svo kóngsálkunum byk- ir hin bezta skemmtun að taka Mjólkurkæling Eftirfarandi tafla sýnir glöggt, hve nauðsynlegt er að kæla mjólk vel, ef koma á í veg fvrir, að gerlar nái1 að au-kast í henni. 1. Sé mjólk kæld niður í 5° C. helzt gerlafjöld- inn nofckurn veginn hinn sami fyrstu 12 klst. 2. í lö stiga heitri mjólk fimmfaldast gerlafjöld- inn á 12 klst. 3. I 15 stiga heitri mjólk 15-faldast gerlafjöldinn á 12 klst. 4. í 20 síiga heitri mjólk 700-faldast gerlafjöldinn á 12 klst. 5. I 25 stiíra heitri mjólk 3000-faldast gerlafjöldinn á 12 klst. Skuílu því allir, sem hlut eiga að máli, hvattir til að kæla miólkina vel og iafnframt að veria hana vand- lega fyrir sól. Reykjavík, 16. maí 1958. MJÓLKUREFTIRLIT RÍKISINS. kafsundsspretti í sjónum, sem er hin skemmtilegasta sjón. í næsta klefa getur að líta stórar vatnseðlur í ylhlýju vatni en í frumskógaviði sitja fagurlitir fuglar, hafa hátt um sig og virðast kunna dvöl sinni hið bezta. Miklar vélar þarf til að halda sífellt réttum hita í hverjum klefa, stilla rennsli sjávar og vatns í gevmunum. — meira að segja koma af stað þrumuveðri í frumskógnum, svo alit sé eins eðlilegt og hugs ast getur og skepnunum finn- ist þær vera heima hjá sér, hvort heldur sem þær búa hlið við hlið við miðjarðarbaug eða á heimsskautasvæðunum. EN EKKI ER ÞAR MEÐ NÓG. Fyrir utan- allt þetta er veit- ingahús irleð sætum fyrir 1,300 gesti starfrækt í sambandi við dýragarðinn. auk þriggja minni Veitingahúsa, vandað leikhús, ýmiss salarkynni fyrir fyrir- lestra og til kennslu og kvik- myndahus fyrir unglinga. Árið 1957 sótti 1,4 milljón gesta dýra garðinn, — eða um 400.000 fleiri en sóttu alla íþróttakápp leiki' í borginni það sama ár. Þetta sýnir ekki aðeins hve slerk er löngun borgarbúans til að komast í sem nánust tengsl við náttúruna, heldur hversu víðtæk starfsemi dýragarðsins er í þágu almennings í borg- inni. Kvikmyndasýningar fyrir unglinga hafa verið starfrækt- ar þar undanfarin tíu ár og kvikmyndirnar valdar með sérstöku tilliti til aldursflokka, en nefnd nemenda úr skólum í borginni annast reksturinn. ! Leikhús garðsins er ekki síður 1 } til fyrirmyndar, en þar hafa lyerið sýndir sjónleikir eftir ■ , Tennessee Williams, Shaw, Molnar, Coward, Curt Goetz og fleiri af helztu leikritahöf- undum nútímans. j Arlega er efnt til ýmisskon- ' ar samkeppni á vegum garðs- ,ins f.yrir skólabörn í ríkinu, og nú er hafin alþjóðleg starfsemi á því sváð'i., þar sem opnuð verður þar á næstunni sýning dýrateikninga eftir japönsk , skólabörn en hliðstæð sýning mynda valin úr myndum eítir , 2,500 þýzk börn verður opnuð í Tokíó um líkt leyti. Vikulega ler efnt til fyrirlestra í dýra-! jfræði og eru sérfræðingar til jþess fengnir og stöðugt er efnt itil menntandi sýninga um ó- líklegustu efni. Þá er stofnun- in og miðstöð fyrir vísindalega og læknisfræðilega rannsókna starfsemi í Hessen og þjálfun- arstöð ^rir unga visindamenn. DAÐUR FORSTJORI. Dr. Bernhard Grzimek er víðkunnur sem sérfræðingur varðandi líf villidýra, og ár- lega stjórnar hann leiðöngrum til Afríku og víðar, bæði í vís- indalegu skvni og til að svip- ast um eftir _ nýjum dýrum í garð sinn. Árið 1957 fengu Bretar hann til ferðar um friðaða svæðið á Serengetslétt- unni í Tangayika í Austur-Af- ríku til að áætla fjölda villtra dýra þar. Bók hans, „Hvergi staður fyrir villidýr“, hefur vakið alþjóða athygli. Hann gengst fyrir reglúlegum sjón- varpssendingum, þar sem hann kynnir dýr garðsins og bæði hann sjálfur og mörg af dýrum hans njóta svo mikils dálætis sjónvarpsskoðara, að þeir koma víðsvegar að til að sjá „stjörn- urnar“ í búrunum eigin aug- um. (.The Bulletin, Bonn, 6. maí). Þetta er njrjasta tízka úti i heimj um þessar mundir Oi' sjálfsagt á leiðinni hingað. MENNTAMÁLARÁÐ ÍS- LANDS htefir nýlega úthlutað styrkjum úr náttúrufræðideild Menningarsjóðs til rannsókna á þessu ári og stvrkjum til vís- inda- og fræðimanna sam- kvæmt fyrirmælum fjárlaga 1958. Úthlutun náttúrufræðistyrkj anna er sem hér segir: 5000 fcr, hlutu: Finnur Guðmundsson, safnvörður. Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur. Jóhannes Áskelsson, jarðfræðingur. Jón Eyþórsson, veðurfræðingur. Jöklarannsóknafélag Islands. Sigurður Þórarinsson, jarðf.ræðingur. Steindór Steindórsson, grasafræðingur. Trausti Einarsson, prófessor. Þorbjörn Sigurgeirsson, prófessor. 3000 kr. hlutu: Aðalsteinn Sigurðsson* ■ fiskifræðingur. Eysteinn Tryggvason, veðurfræðingur. Eyþór Einarsson, grasafr. Geir Gígja, skordýrafr. Hermann Einarsson, fiskifr. 1 Ingimar Óskarsson, grasafr. Ingólfur Davíðsson, grasaf". Ingvar Hallgrímsson, fiskifr. Jakob Jakobsson, fiskifr. Jakob Magnússon, fiskifr. Jón Jónsson, fiskifræðingur. Jónas Jakobsson. veðurfr. Sigurður Pétursson, gerlafr. Unnsteinn Stefánsson, sjófr. Þór Guðjónsson, veiðimálast. Þórunn Þórðardóttir, mag, scient. 2000 kr. hlutu: Árni Waag, mjólkurfr. Einar H. Einarsson, fræðim. Guðbrandu- Magnússon, kennari. Guðmundur F’. Sigvaldason, eand. re.r. nat. Hálfdán Björnsson frá Kvískerjum. Jón Jónsson, jarðfræðingur. Kristján Geirmundsson, taxidermist. Ólafur B. Jónsson, ráðunautur. Þorleifur Einarsson, stud. geol. Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi. Úthlutun fræðimannastyrkj- anna er svo sem hér segir: 3000 kr. hlutu: Aðalgeir Kristjánsson, cand. mag. Árni Böðvarsson, cand. mag. Ásgeip Blöndal Magnússon, cand. mag. Bjarni Einarsson, fræðim. Bjarni Guðnason, lektor. Bjarni Vilhjálmsson. kennari. Björn Th. Bjö'nsson, listfræðingur. Björn Þorsteinsson, cand. mag. Björn K. Þórólfsson, bókav. Finnur Sigmundsson, landsbókavöirður. Guðni Jónsson, prófessor. Jakob Benediktsson, orðabókarritstj óri. Jón Gíslason, dr. phil. Jón Guðnason, skjalavörðux. Jónas Kristjánsson, magister. Lúðvík K,ristjánsson, ritstj. Ólafur Halldórsson, cand. mag. Ólafur B. Jónsson, fræðim. Steingrímu- J. Þorsteinsson, prófessor. Sverrir Kristjánsson, sagnfc Þórðu.r Tómasson, fræðim. 2000 kr. hlutu. Árni G. Eylands, stjórnarráðsfulltrúi. Árni Óla, blaðamaður. Ásgeir Hjartarson, eai'tí. mag. Baldur Bjarnason, mag. æ-t, Framhald á 8. síðu. ,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.