Morgunblaðið - 24.12.1923, Síða 7

Morgunblaðið - 24.12.1923, Síða 7
JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐIÐ SigualdiKaldalóns og lögin hans. Jafnaðarmaðurinn. Skáldsagci cftir Það er talað mikið um list hjer í Reykjavík. Hjer eiga heima marg- ir listelskir menn. Þeir eru ekki fáir, sem leggja fram skerf t.il þess, að þjóðin eigi stærra og stærra safn af fögrum myndum og ljúfum lögum, er segja frá göf- ugum hugsunum listamannanna cg túlka um leið þær tilfinningar, sem búa hjá þeim. er listarinnar njóta. Pramarlega í hópi íslenskra listamanna er Sigv. S. Kaldalóns iæknir. Lögin hans eru rík af göfgi og fegurð. Domur minn er sá, að í tónum hans sje hin lifandi sál. jeg byggi auðvitað þenna dóm minn á eigin tilfinningu, en jeg lít SVO á, að tilfinningin eigi rjett til að kveða upp dóm sinn. Jeg man það vel, hve góð áhrif það hafði á mig, Ir Sigvaldi S. Kaldalóns Ijek á harmóníum í gamla daga. Bfni söngsins fjekk svo vel að njóta sín. er hann ljek lu.gið- Honum nægði ekki að leika rjett, samkvæmt öllum „teknisk- um“ reglum; hann ljek þannig a hljóðfærið, að efnið varð svo skýrt og skiljanlegt þeim, er á hlvddu. 'Það var svo auðvelt að aðgreina o-Jeði og sorg, vonbrigði og há- tíðarfögnuð. Sigv. Kaldalóns hugs- aði svo vel um efnið, að fingurnir tafarlaust hlýddu skipuninni og tónarnir skýrðu efnið fvrir áhevr- endunum. Hinu sama veitti jeg eftirtekt, er Sigvaldi Kaldalóns og Bggert, bróðir hans hjeldu samsönginn í fyrra og lög Kaldalóns voru leik- in af honum sjálfum og sungin af bróður hans. ?á hlutsaði jeg eftir þessu, hvernig orðið og lagið fói saman. pegar þessi setning heyr- i:-t: „Því fagni gjörvöll Adams ætf“, þá heyra menn fögnuðtnn. Þannig mætti nefna mörg dæmi. Nýlega eru prentuð tvö lög eft- ir gigv. Kaldalóns, en þau eru ,.Betlikerlingin“ og „Ásareiðin“. Þegar jeg heyri lagið „Betlikerl- ii:gin“. þá verða tónarnir að mynd um. -Teg sje svo greinilega gömlu konuna, sem hniprar sig saman og situr fyrir dyrum úti í hörku- frosti- Lagið sýnir mjer margar myndir af neyð og baráttu, og jeg sje um leið fvrir mjer marga písl- arvotta gæfunnar. pegar jeg heyrði lagið, þá datt mjer í hug sagan eftir H. C. Andersen um ,litlu stúlkuna með eldspýturnar . Lagið hafði svipuð áhrif á mig, eins og sú gullfagra saga. „Ásareiðin“ er vel til þess fall- in að vekja menn af skammdegis- drunganum; í þv> higi er þróttur cg líf, og á lagið vel við hin þrótt- miklu orð skaldsins. I fjöldamörgum húsum hjer í bæ eru hljóðfæri og' syngjandi karlar og konur. Jeg vil ráða, mönnum til að kaupa hin ný- prentuðu lög, og skemta þannig sjálfum sjer og öðrum. Þá má heldur ekki gleyma lag- inu „Jólasveinar 1 og 8“ ; jeg hefi sjeð, að það la.g hefir vakið gleði hjá börnunum. Eins og mönnum er kunnug't, hefir Sigv. S. KaldalónS gegnt læknisstörfum um nokkur ár í erfiðu hjeraði, en varð að láta af Prarnh. á næstu síðu. Jón Björnsson. i. Reykjavíkurbúar risu óvenjulega árla rekkju sunnudagsmorgun einn í júníjmánuði. Rúmelskar svefnpurkur voru komnar á kreik klukkan 8. En þær höfðu gildar og góðar ástæð- ur til þessarar árvekni. Hin fvrsta gat verið sú, að veðrið var dá- samlega fagurt þennan morgun. Bn dagana áð- ur haföi verið sífeld súld og stundum jafnvel stór-rigning. Menn voru farnir að þrá heiðskír- an, heitan og næðingalausan dag, eftir alt sólar- levsiS. Nú var hann kominn í allri sinni miklu dýfð — og kom með á fangi sínu skýlausan, hreinbláan himin, grænkandi gróðurþyrsta jörð og spegilsljettan, sólglitrandi sjó það sem augað eygði. Yfir bænum hvíldi blámistruð móða. I suðri, austri og norðri blánaði víður fjallahringur. En Bsjan stóð skrýdd marglitum möttli, föst og al varleg á svip, í þessari morgungeisladýrð. Veörið hafði áreiðanlega lokkað marga út. Bn þeir, sem ekki liöfðu farið á fætur þess vegna, þeir risu úr rekkju til að vera viðstaddir komu skips frá útlöndum. Á þessu skipi var von fjölda manns úr bænum og víðsvegar að af landinu. Það sást til þess, Á meðan það seig inn fyrir eyjarnar, streymdu flokkar manna úr öllum áttum að höfninni. Þegar það kast- aði landfestum, \'íii' hafnarbakkinn þjettskipað ur fólki. Það t.róðst áfergjulega, sem næst, skips- hliðinni; tnenn gáfu olnbogaskot, ruddust um fast og hlífðu engu. Þeir fimustu stuklm upp á kassa og tunnur til þess að sjá sem best. Bn þeir vissu ekki til fulls, hvað þeir vildu sja. Úti við öldustokk skipsins höfðu farþegar raðað sjer og horfðu löngunaraugum upp í mannþyrpinguna eftir vinum og ættingjum. Bros ljek um varir þeirra, sem komu auga á ættm'enn sína, og fögnuður heimkominna manna lýsti sjer í hreyfingum þeirra, er þeii lyftu liandleggnum og gafu merki upp í mannþ\ rp- inguna eða kinkuðu kolli til ástvina. Meðal farþeganna var ungur maður Ijós- klæddur, hár og grannur, skarpleitur og fast- eygður, brúnamikill og alvarlegur. Hann horfði leitandi augum eins og allir hinir. en brosti ekki og kinkaði aldrei kolli. ______ XJtarlega í manngrúanum á uppfyll- ingunni stóð maður um fimtugsaldur, þjettvax- inn og feitlaginn heldur, og hjelt undir hand- legg konu sinnar. Það var Egill ritstjóri. Þau hjónin höfðu verið með þeim fyrstu niður að höfninni, og tóku nú ekki augun af farþegunum meðan skipið var aö leggja að landi. __GeturSu sjeð hann? spurði ritstjórinn konu sína. — Ekki enn — og retti jeg þó að þekkja hann. Konan hvesti augun á farþegahópinn. — Hann er að líkindum að þvælast einhvers- staðar niðri, strálmrinn, sagði ritstjórinn bæði í gamni og alvöru. — Jeg vona, að hann sitji þó ekki að sumbli, hann Þorbjörn! TTm leið og konan slepti orðinu, varð Ijós- klædda manninum litið á þau. Og jafnskjótt varð bjartara yfir svip hans. Hann hóf hand- legg sinn til kveðju svo snögglega og ákaft, að það var eins og hann ætlaði að kasta sjer ÖlÍum til þeirra. Þau sáu hann ekki enn. Þá Veifaði liann hiifunni, óþolinmóðlega. Alt í einu hrópaði ritstjórinn: — Þarna er hann, Hildur! Þarna er hann! Hildur sá hann og brosti ástúðlega til hans og kinkaði kolli. En maður hennar tók ofan harða hattinn og veifaði til ljósklædda manns- ins oft og lengi. — Iíann hefir stælckað þessi síðustu 3 ár, sýnist mjer. sagði Hildur og leit framan í mann sinn. — Lesturinn hefir teygt úr honum, drengn- um! Skipið var nú orðið landfast. Fólk ruddist upp á þilfarið. Aðrir brunuðu niður af skip- inu. Alt lenti í einni kös — enginn komst upp og enginn niður, og ekki varð auðið aö sjá, hvort þessi eða hinn ætlaði upp eða niður. Lögreglu- þjónarnir reyndu að koma einhverri stjórn á fólkið og skipuðu í valdsmannlegum róm. En irn’iin virtust ekki vita eða sjá, að þeir væru til. Bftir nokkra stund stökk ljósklæddi maður- inn út af öldustokk skipsins niður á uppfylling- una, og hirti ekkert um landgöngubrúna. Hann skundaði gegnum manngrúann þangað sem hann U1 hafði sjeð ritstjórann og konu hans standa — stjakaði frá sjer með olnbogum og herðum og ljetst ekki heyra. þó aS honum væri blótað í hljóði fyrir troðninginn. Loks náði hann fundi þeirra. — Komið þið bæSi blessuð og sæl! — Komdu sæll, Þoorbjörn, og marg-velkom- inn heim. Ritstjórinn tók þjett og fast í hönd lians með- an Hildur Msti hann á kinnina. —- Loksins ertu kominn, sagði hún brosandi og horfði á hann með gleðiglampa í augum. Þau skiftust á nokkrum fleiri orðum, þá sagði Þorbjörn: — Nú verð jeg að yfirgefa vkkur, meðan jeg næ í farangur minn. Jeg verð eldfljótur. — Láttu hann bíða. Jeg skal senda eftir hon- um strax. Nfi skulum við hafa okkur heim og spjalla í næði. Þorbjörn ljet sjer þetta lynda og þau lögðu á stað. — En hvað það er dásamlegt að vera kominn heim aftur, sagði Þorbjörn á lefSinni suður Aðalstrætið. Hildur leit á 'hann og sagði : — Yar þig farið að langa heim? Þorbjörn var skjótur til svars: — Já — hvað haldið þið! Bf jeg hefði ekki verið að keppa úrslitabardagann, ljúka þessu vitlausa hagfræðisprófi þennan vetur, mundi jeg hafa stokkið heim með einhverju skipinu. Mig er farið að þyrsta í starf hjer heima. Jeg vil fara að vinna — vinna ! Ritstjórinn leit niður í Kirkjustrætið og sagði um leið: blaðinu af mjer. Jeg er farinn að þreytast að — Einhvern veginn ætti að vera hægt að svala þeim þorsta þínum, Þorbjörn. t i>au beygðu fyrir Herkastalann og suður í Suðurgötuna. -— Einhvern veginn! Fyrir mjer vakir ekki nema ein leið til þess, sagði Þorbjöm alvarlegur. — Og hver er hún? spurði ritstjórinn með auðheyröri forvitni. — Það færðu ekM að vita í bráð. Þorbjöm brosti svo sem til þess að milda þessa neitun. En hann varö jafnskjótt alvarlegxir. Hann hafði verið að athuga umliverfið á leiðinni suður frá höfninni. Alt, sem hann sá, var svo þægilega gamalkunnugt. Hann tók eftir lágum, sviplitlum en aðlaðandi húsunum, mjó- um, ósljettum götunum, fáeinum ha-gfara ró- lyndíslegum mönnum. Á einum stað drengja- hóp, sem rak á undan sjer smáknött, Á öðrum ölvaðan mann með skinandi sólskinsandlit og flösku í buxnaVasanum, Hann tók eftir mörgu en engu eins vel og þögninni. Hjer var svo dauðalega hljótt, Um leið og þau gengu upp að húsi ritstjór- ans i Suðurgotunni, spurði Hildur alt í einu: — En Þorbjörn færirðu okkur ekki brjef frá Freyju ? Það kom snögt leiftur i augit tjorbjarnar um leið Og hann svaraði: — Nei — ekkert brjef. En auðvitað bað hún mig að skila ástúðarkveöju. Henni leið ágætiega. Þau settust að kaffiborði. Þorbjörn sagði frá veru sinni í Höfn þessi síðustu þrjú ár, sem hann hafði ekki komið heim. Þau spuröu eins og forvitin börn um allan feril hans þann tíma. Siðan vildi ritstjórinn fá að hevra um gamla kunningja í Danmörku, um helstu drættina í Stúdentalífinu í Höfn, um G-arð. Hildur varð seinast svo leið á þessu umræðuefni, að hún lýsti því yfir, að þeir væru með afbrigðum þreytandi, og fór síðan frá þeim og kvaðst þurfa að sýsla um matinn. Þeir stóðu upp frá borðinu litlu siðar ITm- i*æöuefnið var tæmt að þtessu sinni. Þorbjörn til ein- borðaði. Og ef til vill liti hann inn hverra kunningja, ef tími yrði til. Hann reikaði suður Suðurgötuna og svo sem óafvitandi upp í kirkjugarð. Hann leit á nokkra legsteina, sem honum höfðu áður þótt fagrir, og las áletranirnar á sumum þeim, sem nýlega voru komnir þarna. Garöurinn var enn ekki gró- inn, leiðin drúptu hálfnakin og dapurleg í hin ii miklu ljósdýrð sunnudagsmorgunsins Þorbjörn staldraði við um stund við aðalhlið- ið og leit niður vfir Tjörnina og austur yfir bæinn. Tjörnin var lygn og speglaöi húsin langt upp í Þingholt. Fagnaðaralda streymdi um Þorbjörn. Nú var hann heima. Svo varð honum litið austur og suður til fjallanna og augun staðnæmdust viö Keilir, misturbláan og einstakan í fjallaþyrpingunni. Fagna,ðaraldan reis á ný, hærri en áður. Hann fann, aö fjöllin kölluðu fram í honum enn dýpri og sannari til- finningar en bærinn. Bærinn var skapaður af mannahöndum, var enn ungur og átti sjer fá- tæka fortíð. Fjöllin voru æfaforn, fjöllin voru landið. Þau áttu sjer margra þúsunda alda sögu, skráða eld- og ísletri. Það var kominn miðdegisverðartími áður en hann vissi af. Ekkert mundi veröa af því, að hann liti inn til kunningjanna í þetta sinn. Svo hann skundaði heim. Fram að kvöldveröi var hann á sífeldum hlaupum um bæinn. Einhverskonar skyldutil- finning knúöi hann til þess að ganga um sem flestar götur, sjá hvert hús, telja þau, sem bætst liöfðu við. Hann staldraöi við, ef hann mætti gömlum verkamanni, sem hann þekti, og spurði um atvinnu hans og efnahag. — Sama skylduhvötin og áður skipaði honum aö heilsa öllum þessum fátæku mönnum með handabandi og af glaðri alúð. Um og eftir hádegiö liafði honum þótt furö- anlega mannmargt á götunum. Honum datt í hug, að allir bæjarbúar væru orðnir að götulýð. En samt Sem áöur varð honum mjög starsýnt á þetta fólk. Hann hafði ekki sjeð það í 3 ár, og taldi sjer skylt að taka vel eftir hverjum manni. Og hann fjekk nóg verkefni. Sólskinið og blíð- an seiddu menn út. Þorbjörn mætti gömlum al- varlegum og ráösettum heföarfrúm, feitum og föstum í rásinni. Þær voru flestar með loðkraga og vetrarhúfur á glóðhteitum stímardeginum. Hann hnyklaði brýrnar framan í þessar skref- stuttu skjóður — eins og hann lýsti þeim með sjálfum sjer. Svo komu ungar meyjar í alls- konar erlendum búningi, í kápum, sem gerðu þær líkastar leöurblökum, með hatta, sem mintu á höfuðskraut Indíánaforingja. Þorbirni gat ekki fundist, að þessi búningur samsvaraði ís- lensku fólki. Loks voru það ungu mennirnir. Efltir þeim tók Þorbjörn best. Ilann sá ekM betur en að þeir væru blessunarlega ánægöir meö sjálfa sig og tilveruna. Þeir stikuðu stór- um, veifuðu stöfunum, litu sigri lirósandi í kringum sig eins og þeir vildu segja: Hjer kom- um við! Þorbirni gat ekki skilist, að bænum mætti ekki standa nokkurn veginn á sama, hvort þeir kæmu eða ekki. Hann var orðinn þreyttur, þegar hann borð- aði, og settist því um kyrt heima lijá Agli rit- stjóra eft-ir kvöldverðinn. Þeir settust inn í skrifstofu ritstjórans. Þor- björn fann strax, að honum lá eitthvaö á hjarta. Hann settist ýmist við skrifboröið eða gekk út að glugganum og horfði niður yfir Tjörnina. Sjálfur liafði hann setst í hægindastól og blað- aði í dönsku jafnaðarmiannablaði Loks sneri ritstjórinn sjer að Þorbirni og sagði: — Hvað hefuröu hugsað þjer að hafa fyrir stafni, Þorbjörn? Þorbjörn leit upp úr blaðinu eftir stutta þögn. — Það er aðeins um eitt starf að ræöa, sem jeg mundi geta lagt mig að allan og óskiftan. Ritstjórinn sneri sjer aftur út að glugganum. Eftir nokkura þögn sagði hann svo sem umhugs- unarlítið: — Mjer hefir dottiö í hug, að þú tækir við standa i erjum og illdeilum blaöamenskunnar og þarfnast hvíldar. — Það getur víst aldrei oröið. Þorbjörn sagði þetta óvenjulega festulega, breiddi út blaðiö fyrir framan sig en leit ekM Mmðst ætla að reika út í bæinn áður en hann upp úr því.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.