Mosfellsblaðið - 01.12.1999, Side 5

Mosfellsblaðið - 01.12.1999, Side 5
Ekkja skáldsins, fru Auður Sveinsdóttir heimsótt að Gljúfrasteini: „Mér líður afar vel og hefnóg að sýsla“ Itilefni af kosningu Mosfellsblaðsins á manni aldarinnar lagði blaðamaður blaðsins leið sína að Gljúfrasteini til viðtals við frú Auði Sveinsdóttur. Þar beið rjúkandi heitt kafft ásamt afar hlýlegum mót- tökum sem ávallt hafa verið einkenni þessarar góðu konu. Hún fæddist 30. júlí 1918 í leikhúsinu Fjölni á Eyrar- bakka, dóttir hjónanna Halldóru Jónsdóttur og Sveins Guðmundssonar jámsmiðs. Faðir hennar smíðaði síðan mikið inni í nýja húsinu að Gljúfrasteini meðan það var 1 byggingu, enda var ekkert til í verslunum og varð að sérsmíða marga hluti t.d. höldur á skápa og öll ljósa- stæði, svo eitthvað sé nefnt, en hann var mjög hagur maður. Auði líður afar vel að Gljúfrasteini. er við góða heilsu og heldur sitt heimili þar, hún vill dvelja þar svo lengi sem verða má. Hún sinnir mikið bamabömunum, sem em nú fnnm talsins, ennfremur hefur hún mikið sam- band við dvalarheimili aldraðara að Hlaðhömrum, bak- ar fyrir kökubasar og ferðast með fólkinu, en þó aðeins innanlands, því hún kveðst hafa fengið nóg af ferðum til útlanda um tíðina. - Auður ekur um á síðustu bifreið þeirra Halldórs, sem er tíu ára gamall Saab í góðu lagi. Hún kveðst hafa átt afar góða sambúð með Halldóri. - Frá byrjun í mörg ár höfðu þau tónleika að Gljúfra- steini annað slagið og buðu fólki heim, allt upp í 80 manns. Hins vegar eftir að hann veiktist og fór á Reykjalund fór hún nánast ekkeit þau ár nema til að vera hjá honum í veikindum hans. Nú er hún boðin í ýmis samkvæmi sem hún sækir eftir því sem hægt er. Varðandi hina miklu velgengni Guðnýjar dóttur sinnar á kvikmyndasviðinu segist Auður hafa verið þess fullviss frá upphafi er undirbúningur hófst að Ung- frúnni góðu og húsinu að þar mundi hún vinna gott verk og hljóta lof fyrir. Auður kvaðst halda jólin að Gljúfrasteini með dætrum sínum og fjölskyldum Fru Auður að heimili símt að Gljúfrasteini nu í !ok nóvember. þeirra og rjúpur væru venjulega á aðfangadagskvöld. Á jóladag er síðan eftirmið- dagsboð fyrir ættingja og vini úr Reykjavík. Að þessu viðtali loknu er Gljúfrasteinn kvaddur, með alla sína gestrisni og merku sögu. Við hér í Mosfellsbæ óskum Auði og hennar fjölskyldu svo og lands- mönnum öllum til hamingju með mann aldarinnar í Mosfellssveit og sendum bestu jólaóskir að Gljúfrasteini. Gylfi Guðjónsson. Þann 20. október 1969 var fyrir- tækið Mosraf stofn- að í Mosfellssveit og hefur það starfað hér síðan. Mosraf hefur þjónustað bæjarbúa og fyrirtæki, rekið raftækjavinnustofu og rafmagnsvöru- verslun í Urðarholti í eigin húsnæði. Fyrir um það bil tíu árum hóf Mosraf að þjónusta svína- og alifuglabændur með innflutningi á innréttingum og fóð- ur- og loftræstikerf- um. 1 tilefni afmælisins gáfu eigendur Mosrafs öllum börnum Varmárskóla, frá 6-11 ára aldri, endurskinsmerki. Ennfrem- ur gaf fyrirtækið sjúkraþjálfun Reykjalundar talstöðvar til notkunar í gönguhópum og annarrar útiþjálfunar. Ingólfur Ámason stofnaði Handknattleiksdeild Aftureld- ingar 1973 og var formaður í aðalstjóm Aftureldingar um fimm ára skeið. Hann var formaður Landssambands ís- lenskra rafverktaka í tíu ár. Á þessum tímamótum sendir Mosfellsblaðið fyrirtækinu ámaðaróskir. Táknrœn mynd við Varmárskóla, f.v. Silja, Iris Hólm, Signý og Þórir Hólm taka við endurskinsmerkjum frá Ingólfi Arnasyni í Mosraf. Mosrqf30 ára lngólfur Arnason og Kristjana Friðþjófsdóttir, eigendur Mosrafs, ásamt dóttur sinni Ingibjörgu, sem erfast- ur starfsmaður í versluninni, sem nú er komin í jólabúning. Moslcllsblaðlð Q

x

Mosfellsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.