Morgunblaðið - 28.01.1934, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Reykjavíkurbrjef.
27. janúar.
Fiskútflutningurimi.
Fjögur fisktökuskip frá Sölu-
aambandinu leggja frá landi full-
fermd tit markaðslandanna nú um
úelgina, en verið er að skipa
farmi í 2 í viðbót. Búist er við ’
talsverðum fiskútflutningi í febrú-
ar, og fiskbirgðir verði að mestu
seldar, á næstu tveim mánuðum,
eða þegar nýi fiskurinn kemur á
markað. Bn fyrir fiskverð og fisk-
▼erslunina er það, sem kunnugt er
tálið mjög mikilsvarðandi, að
fyrra árs fiskur sje ekki óseldur,
þegar afurðir hinnar nýju vertíðar
ioma á markaðinn.
Sölusambandið.
Með hverju ári koma betur og
betur í ljós kostir þess skipulags,
sem sölusamþandið hefir á fiskút-
flutningnum og fisksölunni. Aðal-
atriðið er þetta: Sölusambandið
hefir sífelt vakandi auga með því,
hvar markaður er fyrir fiskinn,
hvar birgðir eru svo litlar í mark-
aðslöndunum, að óhætt er að bæta
▼ið, án þess um sje að ræða óeðli-
legt framboð vörunnar er lækkar
▼erðið, og að viðskiftamennina
▼anti aldrei fisk, svo salan geti
laldist stöðugt og truflanalaus. A
fjárkrepputímum eins og nú, þeg-
ar framleiðendur knýjast til að
fleygja framleiðslu sinni á mark-
að sem fyrst, til þess að koma
henni í verð, er alveg fyrirsjáan-
legt, að óstöðugt og óskipulagt
framboð hlyti að verðfella fiskinn
*vo. að brátt leiddi til fullkomins
ófarnaðar fyrir aðalatvinnuveg
▼orn.
ísfiskur.
Alveg óvenjulega hátt verð á
íslenskum ísfiski í Englandi í janú
ar, hefir bætt nokkuð halla þann
sem verið hefir á ísfiskveiðum tog-
aranna á þessum vetri. Hefir feng-
ist tvöfalt og þrefalt meðalverð
fyrir fiskinn.
Þetta háa verðlag stafar af því,
hve lítill fiskur hefir borist á hinn
enska markað, sakir ógæfta óg ill-
▼iðra við Bjarnareyju, Noregs-
strönd og í Norðursjónum. Þegar
▼eðrátta breytist dettur verðlagið
niður aftur.
En allmikið hefir það hækkað
meðalverð ísfiskjarins að talsvert
hefir verið flutt af bátafiski til
Englands, sem reynist vel á hinum
enska markaði.
Síldveiði er nú byrjuð aftur
fyrir austan. einkum á Norðfirði.
Hafa einir þrír farmar farið út af
ísaðri síld. Per hún til Þýskalands.
Er hjer um að ræða nýja vetrar-
atvinnú fyrir Austfjarðakaupstað-
ina, sem á þessum vetri hefir til-
tölulega fyrirhafnarlítið gefið
tugi þúsunda í aðra hönd.
Skipulagsmál.
I Lesbók Morgunblaðsins í dag
er mjög eftirtektarverð grein eftir
Sigurð Guðmundsson húsameistara
um skipulag Reykjavíkur, einkum
miðbæjarins, og fylgir uppdráttur,
þar sem Sigurður gerir grein fyrir
tillögum sínum. í mjög verulegum
atriðum leggur hann til að breytt
▼erði um skipulag þessa bæjar-
hluta frá tillögum þeim, er skipu-
lagsnefnd gerði á sínum tíma. En
tillögur, eða skipulagsuppdráttur
nefndarinnar náði aldrei staðfest-
ingu, sem kunnugt er.
Tillögur Sigurðar um breytta
húsaskipun í Miðbænum miða
fyrst og fremst að því, að gera
bæinn greiðfærari fyrir mikla um-
ferð, götur í beinna áframhaldi, en
nú er, t. d. að framlengja Amt-
mannsstíg í beinu áframhaldi til
Kirkjustrætis, gera gott og ein-
lægt götusamband milli hafnarinn-
jar.og Lækjartorgs, o. fl. o. fl.
Mjög er það mikilsvarðandi fyr-
ir Reykjavík hvernig tekst með
skipulagsmálin. Það dylst engum,
að húsaskipun í elsta hluta bæjar-
ins þarf að breyta í verulegum at-
riðum. Er mikisvirði að fá um
þetta tillögur hugkvæmra smekk-
manna, eins og Sigurðar Guð-
múndssonar. Reykvíkingar munu
veita till.ögum hans athygli.
Bæjarstjóri á Akureyri.
A fundi í bæjarstjórn Akureyr-
ar á fÖstudagskvöld var sú á-
kvörðun tekin, að veita Steini
Steinsen verkfræðing bæjarstjóra-
stöðuna, en um það efni hefir
staðið talsverður styr, sem kunn-
ugt er.
Síðan bæjarstjórastaðan var
stofnuð á Akureyri, hefir Jón
Sveinssön gegnt því embætti.
Samkv. fregn frá Akureyri er
eigi talið víst, að endirinn verði
sá, að Steinn Steinsen taki við
stöðunni, því hann hefir sótt um
hana með því skilyrði, að launa-
kjör hans yrðu hin sömu og kjör
Jóns hafa verið, en staðan var
auglýst með byrjunarlaunum án
þeirfa uppbótá, er Jón hefir haft,
og þannig samþykti bæjarstjórn
að veita hana.
Dýr fulltrúi.
Pramsóknarmaður einn lagði
fsaman, og táldi á fingrum sjer
kostnað flokksins við að koma
Hermauní Jónassyni í bæjarstjórn,
og þótti upphæðin orðin há.
Til blaðaútgáfu skutu Pram-
sóknarmenn samán 80 þúsundum
í haust, sem kunnugt er. Ofan á
þetta bæt.ist alt kosningaúmstang
og kostnaður.
Komst flokksmaður Hermanns
að þeirri niðurstöðu að kílóið í
þessum eina fulltrúa Pramsóknar
í bæjarstjórn Reýkjavíkur sjé kom
ið á 2. þúsmid krónur.
Rjett athugað.
Aldrei hafa sósíalistar hjer í
bænum lagt eins mikið að sjer við
kosningar, eins og við hinar ný-
afstöðnu bæjarstjórnarkosningar.
Aldrei hafa þeir tékið eins til orða
um sigurvissu sína. Dag eftir dag
talaði Alþýðublaðið um. að eftir
20. janúar færu sósíalistar með
völdin hjer í bæuum. Bæjarbúum
lofuðu þeir öllum þeim fríðindum,
sem þeim húgkvæmdist að setja á
prent, án nokkurs tillits til þess,
hvort efndir væru mögulegar. At-
vinnuleysi þóttust þeir ætla að
afnema svo til samdægurs með
einu handbragði, eins og numin
eru úr gildi lög eða reglugerðir.
Og alt eftir þessu.
Því sósíalistar hjer í bænum
litu svo á, sem alveg laukrjett er,
að þetta var síðasta mögulega
tækifæri fyrir þá að fá meirihluta
hjer í bænum. Næstu 4 árin verða
þjóðinni svo lærdómsrík um ó-
stjórn og ónytjungshátt sósíalista,
að fylgi þeirra hlýtur að þverra
frá því sem nú er.
Loforðin.
í kosningahitanum leiddi Al-
5=5=55
í
Fjelagve^naðarvörukaupmamw^^^kjavík.^
1:;
F u ii d upr
verður haldinn í Fjelagi vefnaðarvörukaupmanna mánudaginn 29. þessa mánaðar
klukkan 4 síðdegis, að Hótel Borg.
Umræðuefni: Iiinfliilningsleyfipi.
Það er áríðandi að allir fjelagsmenn sæki fundílln.
.................................—rt-í--------------------------
þýðublaðið talið að ýmsum fram-
faramálum höfuðstaðarins. Blaðið
talaði um, að umbótastarfið yrði
þá int af hendi, ef sósíalistar færu
með völdin.
En þar misskildi blaðið afstöðu
kjósendanna. Hinn blossandi áhugi
Alþýðublaðsins rjett fyrir kosn-
ingar, á ýmsum nytjamálum bæj-
arins jók sama og ekki fylgi sósí-
alista. Menn gátu viðurkennt ýmis-
legt, sém blaðið sagði um það,
hvað gera þarf og gera skal fyrir
atvinnu og daglegt líf bæjar-
manna. En á 8. þúsund kjósenda,
er kusu hjer-20. janúar litu svo á,
að málefnum þeim, sem jafnvel
Alþýðublaðið þóttist bera fyrir
brjósti, væri best borgið undir
stjórn og forsjá Sjálfstæðismanna.
Blaðagjafir.
Pramsóknarmenn hafa tekið upp
sömu aðferð við blaðaútgáfu sína
hjer í bænum, eins og útgáfu Tim-
ans, að gefa bæjarbúum dagblað
sitt. Undanfarnar vikur hefir kosn
ingablað þeirra Framsóknarmanna
verið borið hjer um bæinn, og
smeygt inn á heimili manna, venju
lega í slumpum, þetta fyrir viku
í einu. Hafa menn, eins og kosn-
ingaúrslitin best sanna, lítinn
gaum gefið þessum blaðagjöfum
Hriflunga. En ekki er laust við
að bæ.jarbúar hafi hent að því
gaman, er Hriflungar, með gleið-
um fyrirsögnum gorta af „auk-
inni útbreiðslu" kosningablaðs
síns, þegar „útbreiðslan‘‘ er þann-
ig tilkomin, að blaðinu er dreift
ókeypis um bæinn.
Seinfær kosningasmali.
Á kosningadaginn 20. janúar
týgjaði Jónas Jónsson sig snemma
dags til þess að flytja fylgismenn
Framsóknar á kjörstað. Ætlaði
hann að nota sjer bíl þann, er
flokksfnenn hans skenktu honum
er hann flosnaði ,upp tir ráðherra-
dómi.
En bíllinn var stirður þann
morgun, og varð eigi ekið úr stað.
Fekk J. J. þá annan bíl til lið-
veislu sjer, og var bíl hans hnýtt
aftan í hinn ferðafæra bíl, og átti
með því að liðka hinn staða.
En nú keyrði brátt um þver-
bak. Því ekki hafði bíll J. J. verið
togaður nema fáar lengdir sínar,
með eiganda við stýrið, er tog-
bandið flæktist í bílinn, og bíllinn
rakst þvert úr leið og á ljóskers-
stólpa. Stólpinn hrökk í sundur og
bíllinn laskaðist allmikið, en úti
var kosningaakstur J. J. Var þetta
þegar skoðaður sem fyrirboði fyr-
ir hrakförum Framsóknar við
kosningarnar.
Bíla höfðu þeir Framsóknar-
itíenn þó 24 um daginn, er þessi
var genginn úr skaftinu, til að aka.
sínum 1000 kjósendum á kjörstað.
OððtelIcMJuhúsið
Eftirmiðöagshliómleikar
rmn
• 4 :iáag Kltfeg-5.
Strauss: T ; Jie<| Déú r‘Rosen Kayaliet Walzer
Gaudolfo: Aúbade
Boieldien: Gálif voh Bagdad ýJuverture
Kálmán: Die > t&árdásfúrstin potpourri.
Dvorák: Hmnfúeske Qello-Solo
• iidíi Ramon Bataller
Verdi: H^-ðíhtto Potpourri
Castor Vila: %ffi§4rian Fantaisie
Tschakoff: CÖlsa^ft Revels Danse russe
Ganne: Maréhe des Malclots ■le
'JIItlH i ; ■’
<!rr.
Stðr ðtsala
hefst á mánudaginn og voréa þar seldar vörur fyr-
ir ótrúlega lágt ver.ð p. dl :löj
Ballkjólar, sem kostuðu ^kr. j fíþOO kosta nú kr. 18,00
Kápuefni sem kostuðu kr, %50 kósta nú kr. 5,75.
do. sem kostuðu kr. AJV kostá nú kr. 1,75.
Ullarkjólaefni sem kostuðú'kr. 4*.95 kosta nú kr. 2.75.
do. sem kostuðu kr' 9,5u kosta nú kr. 5,75.
Barnakjólar sem kostúðu kr. 10,50 kosta nú kr. 5,00
do. sem kostuðu 6,75, þpsta nú kr. 3,00.
Silkisvuntuefni sem kostucjg kr. 18,50 kosta nú kr. 10,00.
do. sem kostuðu kr.-12,00, kosta nú kr. 7,00.
Slifsi sem kostuðu kr. 9’ðd kosta nú kr. 5,00
do. sem kostuðu kr. 7;50 kosta nú kr. 3,00.
inod
Flauel, tvíbreitt ás2,95.
Mikið af Kvemsloþþum og Morgunkjólum.
Kvenna og Barn'ápeysur. Kvenna- og Barna-
sokkar seljast íýrir hálf virði.
Silkiklæði, sjerstaklega fallegt kr. 13,00 mtr.
Alklæði á 8,90 mtr.
Allar aðrar vörur, sem ekki eru sjerstaklega
niðursettar, verða seldár með 10%—20% afslætti.
Notið tækifærið, útsalan Stendur aðeins yfir
í nokkra daga.nlbt....(d fi
mr
Gulblargar Beiebarsdbttur
Laugaveg 11.
Athugið!
Jeg undirritaður tek að mjer fisk til verkunar á komandi sumri,
helst í maí og júní.
U i
Akureyri 15. jgnúar 1934.
Sími 277.
Sig. V. Guðmundsson.
Hafnarstræti 103.