Morgunblaðið - 28.01.1934, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.01.1934, Qupperneq 12
12 MQRGUNBLAÐIÐ Nvana- in vítan smjörlíki er bragð gott og næríngar meíra en vítamínlatíst smjöríítii. Blaöakóngurinn útsalan * heldur áfram í fullum gangi. Manchester. Rothermere lávarður gengur í lið með fasc- istum. Sími 3894. Rothermere lávarður. Það ltom mörgum á óvart er blaðakóngurinn enski, Rother- mere lávarður, birti grein í „Daily Mail“ hinn 15. janúar þar sem hann hvetur æskulýð Englands til þess að fylkja sjer undir merki fascismans. Greinin heitir „Húrra fyrir svartliðum‘‘ og í henni stend- ur m. a.: — Pascisminn kom upp í ítalíu og stefnan er stefna æskulýðsins í öllum löndum. Hún sýnir að nýja kynslóðin hefir fundið leið til þess að berjast gegn úreltu fyrirkomu- lagi o gsetja annað nýtt í staðinn. Pram til þessa hefir starfskröftum æskulýðsins í Englandi verið spilt. Á dögum Victoríu drotningar voru það sextugir öldungar, sem höfðu völdin. Meðan alt var með kyrrum kjörum og góðæri helst, gat þetta gengið, en til þess að sigrast á þeim erfiðleikum, sem vjer eigum nú við að stríða, þarf kraft æsk- unnar og ótrauðleik. Eins og nú er komið hefir stjóm gamalla manna ekkert veru legt fylgi í landinu, og út á við skortir hana álit. í öðrum löndum hafa menn hönd í bagga með ■ framþróuninni og skipulagningu framleiðslunnar, en vjer Englend- ingar höfum látið reka á reiðan- um. Á sama hátt höfum vjer farið að í Indlandi, og búum oss undir að missa yfirráðin þar og á Ceyl- on, og á sama hátt eigum vjer það á hættunni að missa írland. Svartliðahreyfingin í Englandi er gerð til þess að leysa af hólmi aldurhnigna stjórnmálamenn. Um skipulag og starfstilhögun er hún alensk, og hefir ekkert meira saman að sælda við ítalska fase- ismann heldur en ítalski flotinn hefir saman við breska flotann að sælda. Hin furðulega aukning flokksins í Englandi, sjerstaklega í iðnaðarborgunum, sýnir það hvað þessi hreyfing er nauðsynleg. 500 fundir eru haldnir í viku hverri í landinu. Svartliðar skiftast aðallega í tvær deildir, þá, sem eru svo gamlir að þeir muna eftir hörm- ungum stríðsins og hafa orðið fyr- ir eftirköstum þess, og hina, sem eru of ungir til þess að muna eftir stríðinu mikla, en hafa fund- ið til köllunar sinnar og þola ekki hvað hinir gömlu stjórnmálamenn eru óákveðnir. Nýi tíminn krefst nýrra ráða og nýrra manna. Síðan minnist Rothermere lá- varður af hrifningu á ítalíu og Þýskaland, og segir að það sje enginn minsti vafi á því, að þeim ríkjum sje nú best stjórnað. Hinn mikli meirihluti, sem nú- verandi stjórn fekk við kosning- arnar 1931, er seinasta traustsyfir- lýsingin til hinnar öldruðu sveitar. Eftir 2 ár göngum vjer til kosn- inga aftur og undir þeim kosn-1 ingum er framtíð Englands komin. j Það virðist útilokað, að núverandi ^ stjórn sitji áfram við völd. Það i er ekki nema um tvent að gera —1 sigur vinstri manna, eða sigur hægri manna. Sigur jafnaðar- manna mundi leiða til sigurs kom- múnista, fyr eða síðar. Starf í stað athafnaleysis er kjörorð fram tíðarinnar í enskum stjórnmálum, og þess vegna hrópa jeg húrra fyrir hinum ensku fascistum. Hin aukna sala á Foringi fascistaflokksins í Eng- landi er Sir Oswald Mosley. Enskir fascistar á flokksgöngu. Fremst til hægri Sir Oswald Mosley. Rósól-tanncrem sannar, að það eru fleiri og f'Ieiri, sem læra að meta gæði þess. Hf. Efnagerð Reykjavíkur kemisk-teknisk verksmiðja. Ruðugler og Saumur ávalt fyrirliggjandi í JÁRNVÖRUDEILD Jes Zimsen. Munið Þjófnaðartryggingarnar. Upplýsingar á V átryggingarskrif stof n Sígfúsar Slghvatssonar Lækjargötn 2. Sími 3171. Mnnftð A.S L Grand-Hótel. 25. bergjum gistihússins, og því miður væri ekki hægt að gera neina undantekningu. ,,Já, en, guð minn góður, þetta er ekki nein heim- sókn, heldur skrifarinn minn, sem ætlar að fara að vinna með mér; það getið þér vonandi skilið sjálf- ur“, sagði Preysing með óþolinmæði. Símabros greifans færðist í aukana. Hann bað forstjórann ómaka sig niður í bréfritunarstofuna, sem væri ein- mitt til afnota til slíkra hluta. Preysing hringdi af og skellti heymartólinu niður. Hann var illa til reika andlega, og að honum fannst, líkamlega. Hann þvoði hendur sínar, skolaði munninn, barð- ist við flibbann og hálsbindið og fór svo niður í lyftunni. í forsalnum sat litla Flamm, ungfrú Flamm nr. 2, systir Flamm nr. 1. Ólíkari systur var ekki hægt að hugsa sér á guðsgrænni jörðunni. Preysing rifjaði hina upp fyrir sér sem roskna konu með litlaust hár, skrifstofuermi á hægra handlegg og pappírssmokk á vinstri, það var hún sem var svo góð til þess að halda óæskilegum gestum frá skrifstofu dr. Zinno- witz, heð einhverjum ósýnilegum svip, sem á henni var. Aftur á móti var litla Flamm gjörsneydd þess- um eiginleikum skrifstofuþjónsins. Hún hallaði sér aftur á bak í hægindastól, rétt eins og hún væri heima hjá sér, vippaði gljáskónum upp og niður og svo leit út sem hún skemmti sér ágætlega, og hún var fráleitt yfir tvítugt. „Doktor Zinnowitz hefir sent mig hingað til að afrita. Eg er, sem sé litla Flamm, sem hann var bú- inn að lofa yður“, sagði hún hátíðlega. Á miðjum vörunum var ofurlítil litarklessa, sem hafði verið slett þar af handahófi, af því það var móðins. Þegar hún reis úr sæti sínu, kom það í ljós, að hún var hærri vexti en yfirforstjórinn, með langa fótleggi, þröngt leðurbelti um mjóa mittið og glæsilega vax- in, hvernig sem á hana var litið. Preysing varð æf- ur við Zinnovitz fyrir að hafa gert honum þennan bölvaðan grikk. Nú gat hann vel skilið mótmæli móttökustjórans. Og auk þess ilmaði hún eins og heil sápubúð. Hann langaði mest til að senda hana lei§ar sinnar tafarlaust. „Eg er hrædd um, að við verðum að flýta okkur“, sagði hún með djúpri, ofurlítið hásri rödd, eins og litlar stúlkur hafa oft. Pepsin, dóttir yfirforstjórans, hafði einmitt haft svona rödd, þegar hún var lítil. „Svo þér eruð systir ungfrú Flamm? Eg þekki hana vel“, sagði hann — og fremur gróft og undr- andi. Flamm teygði neðri vörina fram og blés burt lokk, sem hékk niður undan litlu flókahúfunni, niður á ennið. Gullna hárið lyftist ofurlítið upp og féll síðan hægt aftur niður á ennið. Preysing vildi ekki sjá það, en sá það samt. ,,Hálfsystir“, sagði litla Flamm. JrEg er seinni konu barn. En okkur kemur ágætlega saman, allt um það“. „Ja-á“, sagði Preysing, og leit á hana með döpru augnaráði. Þá voru það bréfin, sem hún átti að skrifa, allt til einskis og út í bláinn. I marga mán- uði hafði hann verið að reyna að semja við Bur- leigh & Son og beitt allra handa brögðum í því tilefni — honum var ekki unnt að losa sig við þá umhugsun, svona í fljótum hasti. Hann gat blátt áfram ekki látið það eins o!g vind um eyrun þjóta. Strandað fyrir fullt og allt. Brösemann. Fullt og allt. Hann ætlaði líka að lesa fyrir bréf til Bröse- manns, og það skyldi verða kjarnyrt. Og svo til gamla mannsins um fjörutíu þúsundin. Ef nú Chem- nitz forðaði sér á morgun, var það sama sem þess- um þúsundum væri fleygt í sjóinn. „Jæja, við skulum fara inn í bréfritunarstofuna”, sagði Preysing í illu skapi og gekk á undan eftir ganginum. Litla Flamm brosti að hnakkakúlunni, sem forstjórinn var með. Það mátti þegar heyra á ritvélunum eins og það væri smá vélbyssuhríð, litla bjallan hringdi með reglulegum millibilum. Þegar Preysing opnaði dyrnar, kom vindlareykurinn á móti honum og lið- aði sig eins og höggormur. „Hér heyrist vel“, sagði litla Flamm og fitjaði upp á litla trýnið. Þarna inni æddi maður um gólf- ið og las fyrir á amerísku. Það var forstjóri kvik- myndafélags eins, og hann íleit auga kunnáttu- mannsins á litlu Flamm og vaxtarlag hennar og las. áfram. „Nei“, sagði Preysing og skellti aftur hurðinni, „hér dettur mér ekki í hug að vera. Eg vil fá her- bergi út af fyrir mig. Það eru líka bölvaðir ófriðar- staðir, þetta hótel“. Nú gekk hann á eftir litlu Flamm eftir gangin- um. Hann var bálvondur, en einmitt í vonzku sinni varð hann auðveldlega fyrir áhrifum af vaggandi mjöðmum litlu Flamm. Og úti í forsalnum störðu allir á litlu Flamm. Hún var heldur ekki slorlegt sýnishorn af konunni — það var víst og satt. Preys- ing kunni hálfilla við sig að ganga gegn um sil- inn með svona áberandi persónu, svo hann lét hana bara bíða og talaði við Rohna um að fá ritvélaher- bergið fyrir sig og fá að vera þar í friði. LitlaFlamm sem kærði sig kollótta um eftirtekt þá, er hún vakti — það var ekki nema daglegt brauð — var, eins. og ekkert hefði í skorist að dufta á sér nefið, dró síðan vindlingaveski upp úr vasa sínum, eins og strákur, og fór að reykja. Preysing gekk að henni eins og hún væri brenninetla. „Við verðum að bíða í tíu mínútur", sagði hann.. „Bon“, sagði litla Flamm. „En þá verðum við líka að halda á spöðunum á eftir. Eg þarf að fara til Zinnowitz kl. 5. '

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.