Morgunblaðið - 03.10.1943, Síða 1
30. áig.
223. tbl. — Sunnudagur 3. október 1943.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
gj»b
VÖRN ÞJÓÐVERJA HARDNANDI í RÚS^ANDI
Leiðin til Þvskalands
Bandamenn hafa oftsinnis lýst því yfir, að markmið þeirra væri að sækja inn í
Þýskaland sjálft og berjast við Þjóðverja og sigra þá í þeirra eigin landi. Myndin
hjer að ofan sýnir eina leiðina til Þýskalands. Hún er tekin í hinu fræga Brenn-
erskarði, sem svo mjög hefir komið við sögu Evrópu undanfarin ár, en gegnum
skarðið liggur járnbraut og vegur frá Ítalíu til Þýskalands.
Bandamenn sækja fram
fyrir norðan Napoli
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
Framsveitir fimta hersins eru komnar um 4 km. norð-
urfyrir Napoli, en áttundi herinn hefir tekið bæina Lucera
og San Severo fyrir norðan Foggia og ennfremur hefir
nú áttundi herinn Garganoskagann á valdi sínu.
henni á fimti herinn enn
CLARK KOMINN
TIL NAPOLI
Bardagar fyrir norðan
Napoli eru allharðir, og
leitast Þjóðverjar af alefli
við að tefja framsókn fimta
hersins á þessum slóðum.
Beita þeir bæði vjelbyssu-
sveitum íallbyssum og jafn
vel skriðdrekum til varnar.
Fregnir frá Napoli segja
frá því, að allmikið af birgð-
um Þjóðverja hafi fallið
bandamönnum þar í hend-
ur, meðal annars okkuð af
flugvjelaútbúnaði, svo sem
skotfæri í vjelbyssur og
einnig allmikið af vjelbyssu
útbúnaði í flugvjelar af gerð
inni Junkers 88.
Víglína bandamanna ligg-
ur nú því nær beint frá Na-
poli og yfir Ítalíuskagann.
Enn er búist við því, að
Keselring freisti að verjast
við Volturnoána, en að
nokkra leið ófarna.
Verkfræðingar banda-
manna eru þegar farnir að
athuga möguleika á því að
gera við hafnarmannvirki í
Napoli. Annars segja banda-
menri, að ástandið sje þann-
ig nú í Napoli, að breskar
og amerískar hersveitir,
sem þar eru, hafi þar vald
á öllu sem fram fer.
ÞÝSKUM KAFBÁTI
SÖKKT
London í gærkvéldi.
Þýskuin kafbáti hefir voriö
sökkt af tveim tundúrspillum
bandainanna. (Jerðist þetta í
nánd við Pantellaria. 48 menn
af áhöfninni voru teknir hönd-
um. Annar lundurspillirinn
var enskur en hinn grískur.
-t- Reuter.
London í gærkveldi
Mark W. Clark, hershöfðingi
frá Bandaríkjunum, er stjórn-
ar fimta hernum, og stjórnaði
landgöngunni við Salerno, er
nú kominn til Napoli. Konv
hershöfðinginn þangað í dag.
Sagði hershöfðinginn blaða-
mönniun, að hann væri ánægð-
ur með gang bardaganna.
— Reuter.
Mikil gagnáhlaup
fyrir vestan Gomel
og Mogilev
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
AUÐSÆTT ER NÚ, AÐ ÞJÓÐVERJAR REYNA AF
MEGNI AÐ STÖÐVA FRAMSÓKN RÚSSA HVAR-
VETNA Á AUSTURVÍGSTÖÐVUNUM. Gera þeir hörð
gagnáhlaup á vígstöðvum Hvíta-Rússlands, en Rússum
er óhægt um vik í sóknirini, vegna þess að vegir gerast
nú mjög slæmir af völdum haustrigninga.
Rússar segjast hafa unnið allmikilvæga sigra á Tam-
anskaga í gær. Kveðast þeir hafa tekið þar þrjár mikil-
vægar varnarstöðvar Þjóðverja og segjast nú vera að-
eins um 32 km. frá Taman-tanganum, og er landrými
Þjóðverja þarna orðið mjög lítið.
Ráðist
á Miinchen
og Wiener
IMeustadt
London í gærkveldi.
Fljúgandi virki frá Norð
ur-Afríku gerðu í gær loft-
árásir á Munchen höfuð-
aðsetur nasista og Wiener
Neustadt, útborg Vínar,
þar sem eru mikllar flug-
vjelasmiðjur. Á þenna stað
rj eðust Libe*|ator-f lugv j eÞ
ar í sumar.
Mikil mótspyrna v|ar af
hálfu þýskra orustuflug-
vjela og kom til bardaga
í hája lofti. Barst leikurinn
inn yfir svissneskt land, og
var skotið á flugvjeliarnar
af svissneskum loftvarna-
byssum. Þýskar fregnir
herma, að svissneskjar or-!
ustuflugvjelar hafi einnig
verið á sveimi og skotið
niður þrjú flugvirki.
Ekki eru enn komnþr
nákvæmar fregnir af árás-
unum, en talið er að tjón
hafi orðið æði mikið. 1
Wiener Neustadt er sagt,
að framleiddar h(afi vérið
600 Messerschmitt-orustu-^
vjelar á mánuði að undan-
förnu. Reuter.
Síðustu frjettir:
Bandamenn hafa
tekið Finshafen
Þjóðverjar gera áköf
gagnáhlaup með skriðdrek-
um og flugliði fyrir vestan
Mogilev, en Rússar eru um
80 km. frá þeirri mikilvægu
borg. Hafa Rússar enn sem
komið er getað hrundið á-
hlaupum þessum, og einnig
áhlaupum, sem Þjóðverjar
gerðu austuraf Gomel. Frá
Vítebskvígstöðvunum hafa
engar fregnir borist í dag.
Þýskar fregnir skýra frá
hörðum bardögum fyrir aust
an Melitopol og á öllum víg-
stöðvunum þaðan suður að
Azovshafi Ekki er í þessum
fregnum getið um hvorir eru
í sókn, og kalla Þjóðverjar
þetta ekki varnarbardaga,
sem er þó vani þeirra nú í
Austurvegi.
Frá Dniepervígstöðvun-
um berast enn fregnir um
stórskotaliðsviðureignir. —
Þjóðverjar greina þar frá
stöðugum bardögum um
brúarsporða, en segja Rússa
hvergi hafa gert ákveðnar
tilraunir í gær. til þess að
komast yfir fljótið. Rússar
sjálfir geta ekkert um bai-
daga á þessum slóðum.
Nýlega hafa orustur bloss
að upp á Volkov-vígstöðv-
unum norður undir Lenin-
grad, og hafa Rússar reynt
að sækja þar fram að sögn
Þjóðverja. Segja Þjóðverjar
að þessar árásir hafi mis-
, tekist með íllu.
Úrkomur eru nú yfirleitt
miklar í Rússlandi, haust-
rigningar byrjaðar. Herma
fregnritarar, að engir vegir
sjeu færir bifreiðum, aðrir
en þeir, er bygðir sjeu úr
bjálkum.