Morgunblaðið - 03.10.1943, Side 7
tt-l
Sunnudagur 3j qV*<, X&tStu%»f>unnu&
MORGUKBLAÐI
ríkissjóður.
í dýrtíðarlögunum frá í
vor fekk ríkisstjórnin heim-
ild til þess að greiða niður
dýrtíðina. Gekk nokkuð
stirðlega að fá þessa heim-
ild samþykta í þinginu. —
Höfuðtilgangur þeirra, sem
heimild þessa samþyktu var
sá, að hún næði fram til
þess tíma, er sexmanna-
nefndin, er reikna skyldi
vísitölu búnaðarvara og
kaupgjalds, hefði lokið
starfi sínu. Þá átti þing að
koma saman þ. 1. sept. sem
og varð, til þess að ákveða
hvað gera skyldi í þessum
málum til frambúðar.
Þegar þingið kom saman,
leitaði ríkisstjómin heim-
ildar þingsins, til þess að
verja tekjuauka af tóbaks-
og vínsölu í sama skyni,
vegna þess að ríkisstjórnin
leit svo á, að þá væri eytt
því fje, er vorþingið ætlaði
til þessara útgjalda og inn
kæmi með verðlækkunar-
skattinum.
Heimildin. tíl þess að
verja hinum auknu vín- og
tóbakstekjum, veitti þingí
ið með því skiíyrði, að fje 1
til þessara útgjalda yrði
ekki tekið úr ríkissjóði, án
samþykkis Alþingis-
Björn Ólafsson fjármála-
ráðherra færðist undan því,
að gefa þinginu loforð um
þetta. En hann komst þó
ekki hjá því. ,
i i
Flokkunum
skrifað.
VEGNA þessa loforðs ráð
herrans skrifaði ríkisstjórn-
in þingflokkunum, þar sem
stjórnin fer fram á að fá
óbundnar hendur um að
verja þessum aulínu tekjum
til að borga niður dýrtíð-
ina.
Tveir flokkamir svöruðu
neitandi fyrir sitt leyti, Al-
þýðuflokkurinn og komm-
únistar. Framsóknarflokk-
urinn gaf loðin svör í þessu
máli, sem fleirum. Sjálf-
stæðisflokkurinn svaraði
því, að hann væri slíkum
greiðslum samþykkur, með-
an leitað væri formlegs
samþykkis Alþingis, enda
skyldi stjórnin leita þess
tafarlaust. Vjefengt væri,
hvort heimild væri fyrir
hendi frá eldri lögum. Og
þó svo væri, kæmi ekki til
mála að nota hana meðan
þingið situr.
Svar ríkis-
stjómarinnar.
þessa heimild. Hefði hún
allsherjar heimild til að
greiða fje úr ríkissjóði í
þessu skyni, þá þurfti hún
ekki sjerstaka heimild til
að nota hinar auknu tóbaks-
og víntekjur. En auk þess
er hjer um að ræða brot á
því loforði, er fjármálaráð-
herrann gaf, er hann fjekk
heimild til að hækka tóbak-
ið í því skyni, að borga nið-
ur dýrtíðina, og lofaði þá,
að nota ekki fjeð, nema
heimild þingsins kæmi til.
Eftir þetta er það óum-
flýjanlegt að fá endanlega
og skýlaust úr því skorið,
hvort fjárveitingavaldið er
raunverulega í höndum
þingsins, ellegar það er
þaðan horfið, og komið í
hendur utanþingsstjórnar-
innar.
Hvaða leið
verði farin.
SENNILEGA eru það
margir menn, sem enn í dag
vilja loka augunum fyrir
hinu raunverulega ástandi
atvinnu- og fjármálum
þjóðarinnar og láta borga
niður dýrtíðina með ríkis-
fje.
Björn Ólafsson ráðherra
komst þannig að orði í ræðu,
að hann líkti þjóðlíkaman-
um við sjúkling, er þvrfti
blóðgjafir, þangað til hann
gæti bjargað sjer sjálfur.
Ólafur Thors vakti athygli
á, að ef líkja ætti þjóðinni
við sjúkling, þá hefði það
mikið til síns máls. En vit-
að er, segir hann, að sá sjúk
lingur þarf gagngerðrar
læknisaðgerðir við. Því óum
flýjanlega átaki er slegið á
frest, en haldið áfram að
krukka í sjúklinginn. Gæti
ekki svo farið, að einmitt
með þessu móti verði hann
orðinn svo lasburða, þegar
til alvörunnar kemur, að
hann þoli ekki hina gagn-
gerðu læknisaðgerð.
Nú er alt reitt, sem hægt
er í skatta og fjenu dreift
út, til þess að fresta því, er
fram á að koma. Þetta leið-
ir til þess, að ríkissjóður
tæmist, atvinnuvegir van-
megnast, svo hvorki ríkið
nje einstaklingar geta klof-
ið erfiðleika atvinnulífsins,
þegar frá líður.
Tilfinningamál.
SJÁLFSTÆÐISMÁL okk-
ar íslendinga hefir alltaf,
sem eðlilegt er og sjálfsagt
RÍKISSTJORNIN, eða j verið mikið tilfinningamál.
fjármálaráðh. fyrir hennar! Mörgum hefir sá þáttur
hönd, hefir síðan. að gefnu:þess verið hugstæður. Þeir
tilefni, gefið sitt svar í; hafa gert sjer minni grein
þessu máli. Segir hún nú, ' fyrir þeim hagrænu afieið-
að hún hafi heimild til að ingum af fullu þjóðarsjálf-
ráðstafa ríkisfje til að borga | stæði. Svona hefir þetta yer
niður dýrtíðina, og það enda ið, og er enn.
þótt þing sitji* og hún ætli j En það er eipkennilegur
sjer að nota þessa heimilcL: lokaþáttur í þessú langa
Með þessu svari hefir rík- baráttumáli okkar. íslend-
isstjórnin lýst þvi yfir, að inga, að tilfinningar nanna,
hún hafi, að ástæðulausu sem áður urðu til þess að
leitað til flokkanna um herða menn og stæla í bar-
áttunni fyrir þjóðrjettind-
um, skuli snúast upp í við-
kvæmni gagnvart okkar
elskulegu bræðraþjóð í
raunum hennar, rjett eins
oð það væri einhver kær-
komin raunabót fyrir Dani,
ef við ættum enn nokkur
skref ófarin til hins lang-
þráða lokatakmarks.
Dráttur á lýðveldisstofn-
un Islendinga, eftir að samn
ingstíminn er útrunninn,
getur, eins og marg oft hef-
ir verið tekið fram, orðið
okkur Islendingum óþægi-
legur, svo ekki sje dýpra
tekið í árinni. En þó við
byðum hættunum heim í
þessu máli, með óþarfa
drætti, er dönsku þjóðinni
enginn greiði gerður, eng-
um manni þar í landi, nema
þeim, ef nokkur er, sem
kynni að vilja að við fengj-
um ekki endurheimt sjálf-
stæði okkar.
Er það ekki alveg óþörf
viðkvæmni ef við Islend-
ingar ættum að fara að geð-
þótta þessara manna, sem
þannig hugsa í okkar garð,
ef þeir þá eru nokkurir til,
sem er alveg óvíst.
Þeir 270 undirskriftamenn
sem Alþýðublaðið telur alla
meðal áhrifamanna þjóðar-
innar og skal það ekki dreg-
ið í efa að svo sje, hafa skap
að sjer ákaflega einkenni-
lega aðstöðu í hjartfólgn-
asta máli okkar íslendinga.
Alþýðublaðið vill að nöfn
þeirra sjeu birt sem víðast.
Skyldu þeir kæra sig um
það allir? Ætli þau gevm-
ist ekki nægilega vel, þó
þau sjeu ekki birt annars-
staðar en í Alþýðublaðinu
og Þjóðólfi. ,
Minkarnir lifa.
MEIRI HLUTI landbún-
aðarnefndar vill ekki að
lagt verði niður minkaeldi,
telur að skaðsemi villi-
minka sje ekki sönnuð, en
arður af eldinu sje vís.
Það kann líka að vera,
að villiminkar sjeu orðnir
svo margir í landinu, að
þeim verði ekki útrýmt
hjeðan af, svo við hefðum
ekkert eftir nema skaðann,
ef eldinu væri slept.
En kæmi ekki til mála að
láta hjeraðasamþyktir ná til
minkaeldis? Að t. d. sýslu-
nefndir fengju því ráðið
hver um sig, hvort minka-
eldi yrði leyft?
Hitaveituvinnan.
Þjóðviljinn birti nýlega
fólskulega grein um húg
Morgunblaðsins til verka-
manna, út af því, að minst
'hefir verið á það hjer í blað
iriu, að bæjarmönnum hafi
fundrst misjafnlega vel unn
iði hitaveituvinnunni. Ætl-
ar greinarnöfundur að telja
lesendum sínum trú um, að
þessar aðfinnslur, sem hjer
hafa heyrst, sjeu sprottnar
af illvilja og illkvitni í garð
verkamanna í landinu. Sjá
allir viti bornir menn. að
slíkt er hin mesta firra. '
Þjóðviljamaðurinn ætti
þá að minnast þess, að það
var í því blaði, sem þessu
hitaveitumáli fyrst var
hreyft og alveg rjettiléga.
En þegar Þjóðviljamehn
slysast til að taka skynsam-
lega í eitthvert málefni, þá
eru þeir altaf vísir til þess,
áður en langt líður, að snúa
alveg við blaðinu, og kann-
ast ekki við sinn eigin mál-
stað.
Útskæklaritstjórinn.
Þegar aðalritstjóri Tím-
ans hefir talað sig þreyttan
um eitthvert mál, þá er út-
skæklaritstjórinn stundum
látinn taka við og jótra upp
hið margtuggna fóður.
Harmagrátur Tímamanna
út af valdamissi og þing-
manna fækkun hefir verið
hávær í aðaldálkum blaðs-
ins í sumar. Kenna þeir
Ólafi Thors um ófarir Fram
sóknar. Það sje honum að
kenna, að heita má einum
samar^, að Framsókn misti
þingmennina í fyrrahaust,
en Alþýðuflokkurinn kjós-
endurna. — Framsóknar-
menn og Alþýðuflokkur ætl
uðu sjer að reka hina mestu
,,klókinda“ pólitík, sem
<-------------------------
kunnugt er, og væntu þess
að alt færi þetta á annan
veg. Framsókn hjeldi höfða
tölu sinni á þingbekkjum og
Alþýðuflokkurinn við kjör-
borðið, en fylgismönnum
Sjálfstæðisflokksins og þing
mönnum hans fækkaði.
Sjálfstæðisflokkurinn varð
stærsti flokkur þingsins,
eins og hann lengi hafði ver-
ið stærsti flokkur þjóðar-
innar.
Þetta hefir hinum fyrri
bandamönnum við Tímann
og Alþýðublaðið sviðið svo
sárt, að þeir geta að heita
má ekki ógrátandi á það
rr|:nst. Þetta er alt Ólafi
Thors að kenna, segja þeir,
og spinna um þetta hvern
langhundinn af öðrum, með
ívafi rógs, lyga og gróu-
sagná eftir hinu gamal-
kunna Hriflu-recepti.
En nú er sem sagt Þórar-
inn hættur, og maðurinn
sem skrifar smáskítlegheit-
in tekinn við í bili.
Bókasala Mentaskólans verð
ur opin á mánudag 6—7. St ú.
dentar og eldri nemendur eru
sjerstaklega beðnir að koma
með eftirtaldar bækur: Dansk
Litterætur et’tir Agerskov og
Rördaur. Fornaldarsögu (fyrir
lædómsdeild) Miðaldarsögu (C
lærdómsdeild) Allar latínubæk
ur, sem kendar eru. Kemi, eft-
ir Ring. Fysiologi, Biologi og
Kennslubók í frakknesku.
WWVVVVVVVV*.M-“,%*V
:>
%
i
I
I
TiEkynning til
hluthafa
Gegn framvísun slefna frá hluta-
brjefum í h.f. Eimskipafjelagi íslands
fá hlufhafar afhentar nýjar arðmiSa-
arfcir á skrifsfofu fjelagsins í Reykja-
vík. - Hlufhafar búsetfir úfi á landi
eru beðnir að afhenda stofna frá
I
hlufabrjefum sínum á næstu af-
greiðslu fjelagsins, sem mun annasi
úfvegun nýrra arðmiðaarka frá að-
alskrifstofunni íýReykjavík.
H.f. Eimskipafjelag Islands