Morgunblaðið - 23.10.1943, Síða 11

Morgunblaðið - 23.10.1943, Síða 11
Laugardagur 23. okt. 1943. MORGUNBLAÐIÐ 11 Kvennagullið afbrýðissamur í garð Kitaro, ]jví hann gat komið henni til |>ess að hlæja upphátt, og ']>au áttu ýmislegt sam- eiginlegt, sem Yoshio ekki átti neina hlutdeild í. Yngri bróðir hans kom aldrei svo inn-í stof- una að hann dáðist ekki lítil- lega að niðurröðun blómanna í veggskotinu. Hún brosti þakk lát-lega, þegar hann spurði hvernig henni liði af kvefinu og tók eftir að hún var í nýj- um tignarlegum kyrtli, stund- itm kom hann einnig með smá- ■gjðf lianda henni, sem bundið var utan um með gyltri og silfr aðri snúru. Stundum fjekk .ha.nn hana meira að segja til að leika fyrir hann á hljóð- færið „Kato“. Mjóróma hreim ur hins. stðrgerða strengja- hljóðfæris, sem móðir hans kraup við hátíðlega og alvÖru- gefin hljómaði tómlátlega og næstum óþægilega í eyrurn Yoshio. Hann var vanur sterk- um samhljórnum Evrópisku symfoniuhljómsveitanna og hljómfalli ameríska „jasshls“, Kitaro var meiri sonur móður hans en hann sjálfur, enda l)ótt önnur kona hefði fætt harin. En endirinn varð sá að það var Yoshio en ekki Kitai^, sem 'fór í stríðið. Yoshio var send- ur á vegúm blaðs síns til Man- nchuríu, en herdeild sú er Ivitaro var í sat kyrr í Tokyo. Það var vetur, þegar Yoshio kom til Chinchow, sem ný- búið var að taka, vetur svo kaldur og grimmúðugur að hersveitunum var það liulin ráð gáta hvernig þær ættu að lifa hann af. Yoshio fyllti nú floltk stríðsfrjettaritara, sem þarna voru, alþjóðlegur, glaðvær, kaldhæðinn, harðgeðja, skjót- ráður og gamansamur hópur illa rakaðra manna, sem ppil- uðu fjárhættuspil, drukku bjór, vissu allt, tókir ekkert hátíð- lega, og kendi Yshio að greina frjettir frá lygum og hvernig hann gat náð í þær með ein- hverju móti, talshna, ritsíma eða brjefdúfu. ITann gekk um meðal þeirra hógvær og alvöru gefinn, án þess að skilja spaugs yrði þeirra, og brosti kurteis- lega, þegar þeir hlógu að hon- um. Meðan þeir spiluðu poker eða sendu æsandi og ýktar frjettir í símskeytum, sat hann við ritvjelina og vann að ýtar- leguni greinum um ástandið. ITami hjelt sig alltaf í nám- unda við víglínuna, til að sjá allt sjálfur (frásögn sjónar- vottar). Þar var mikið um æf- ingar en lítið um bardaga. —- Mennirnir voru dauðupp- gefnir eftir endalausar her- göngur, og tttbúnaður þeirra hæfði engan veginn loftslag- inu. Yoshiö uppgötvaði sjer t.il mikillar undrunar að japönsku hermennirnir voru engu hug- rakkari en þeir Kínversku. — Trú, sem hafði verið rótgróin honum frá barnæsku brást hon um nú fyrir fulit og allt. Kín- verskar hersveitir áttu að vísa til að flýja eftir að vera búnar að skjóta. einu til tveim skot- um úr byssum sínum, en það voru herforingjarnir, en ekki óbreyttu herinennirnir, sem höfðu enga tilhneigingu til að berjast, enda hafði sumum þeirra auðsjáanlega verið mút að. Þegar Kínverjarnir börð- ust, þá börðust þeir eins vel og andstæðingar þeirra og ef -til vill betur, þegar tillit var tek- ið til að þeir voru.ver útbúnir og höfðu ijelega forystu. Einu sinni sá Yoshio þrjá- tíu japanska liðhlaupa rekna inn í herbúðirnar, þeir sögðu og gátu ekki tára bundist, að þeir hefðu ekki getað þolað kuldann lengur og örvænting- in' hefði knúð þá til að leita heim á leið. Þeir óttuðust ekki dauðann en treystu sjer. ekki til/að sjá fyrir endann á her- förinni. Þeir rjettu frarn frost’ bólgna, horaða handleggi og fætur, bentu á ljelegan klæðn- aað sinn og eyðilögð lungu og grátbáðu um að verða skotnir. Yoshio skildi vel þessa tegund hetjúlégs bleyðiskapar, hann átti hana einnig til að bera. — Kynslóðir Búddatrúarmanna höfðu áskapað þjóðinni þetta kæruleysi gagnvart dauðanum en hÖfðu jafnframt gert lífið lítilsvirði í augum þeirra og veikt mótstöðúafl þeirra í mannraunum. ITerförin fjaraði út eftir langa mánuði, en hætti aldrei til fulls eins og úðaregn. Yoshio sneri aftur heim á leið. Hann hafði sjeö stirnuð og útblásin lík manna og hesta og andað að sjer ódaun yfir- gefins orustuvallar. Ást hans á friði hafði að eins verið hug- sjón en hatur hans á ófriði-Yar nú orðið að raunveruleika. — Þótt hann gerði sjer það ekki ljóst sjálfur var aðalástæðan fyrir því að hann fór til Man- churíu afbrýðisenmi í garð Kitaros. Það var sú afbrýði- semi sem gaf honum þrek til að standast allar eldraunir stríðsins, Kitaro talaði :— en það var Yoshio sem hafði verið í stríðinu. Engu að síður komst hann að raun um, er hann kom heim með frostsprungnar varir, blóðkreppusótt, sem þjáði hann lengi eftir, gagntekinn kaldhæönislegri svartsýni og dálæti á poker, að ævintýra- ljóminn umlukti enn þá hinu einkennisklædda bróður hans, en enginn hlýddi á orð Yoshio. Ilann kvæntist fám mánuð- um eftir heimkomu sína. Hanri var orðinn það sem í* Tokyo kallast Ginbura, eyddi mestu af tíma sínum á Ginza, þar sem mikið var um drykkjuskap og ljósadýrð og fagrar stúlkur dönsuðu. Faðir hans brosti að eins að þessum ferðum hans. Oðru hvoru heimsótti hann einnig' næturklúbbana og drakk japanska eftirlíkingu af skosku viský og eyddi því, sem eftir var næturinnar með jap- anskri eftirlíkingu á amerískri dansmær. ITann hafði einungis upp úr þeim leiðangrum sínum höfuðverk og óbragð í munn- inum. Einu sinni fjekk hann Kitaro til að kynna sig fyrir glæsilegri geisku, en einasti árangur af því var dýpsta þunglyndi og leiðindi. Ilonum var hugsað til Jelenu og gagn- tekinn þrá eftir henni. Það sem hann þarfnaðist, og hann vissi þgð vel sjálfur, var eiginkona. Ilann gekst því umsvifalaust inn á að kvænast stúlkunni, sem foreldrar hans höfðu fund ið handa homun. Tilvonandi eiginkona hans var átjári ára að aldri, faðir hennar var eigandi frjálslynds dagblaðs og það var þegjandi samkomulag, að Yoshio fengi framtíðaratvinnu við það. Hin háborna Hideko, var það sem kallað var Moga, nýtísku stúlka. „Hún leikur vel tennis og kann einnig á skíðum“, sagði móðtr Yoshio við öll húgsarileg tækifæri. Þau hitt- ust í fyrsta skipti á tennisvell- inum, en Yo'shio leit altaf und- an, því að honum virtist ókurt- eisi að starblína á hana eins og hún væri sýnishorn i búðar- glugga. Ilixn var minni en haun og snotúr á syfjandalegan og yfirlætislausan hátt. Skömmu síðar fóru þau í ökuferð út fyr- ir borgina og í leikhúsið. — ITideko hafði einnig yndi af symfóníutónleikum. Ilún ljek á píanó og las franskar bækur. Hún talaði með áhuga nm André Gide. ITún var fullkom- in í flestu tilliti. Hún var Æfintýri eftir Jörgen Moe. 6. drambsamir“, sogðu varðmennirnir. Einn af varðmönn- unum hafði líka komist á snoðir um það, að pilturinn sá nýkomni ætti einhver undraskæri, sem hann hefði sniðið skrautklæðin með. „Hann þarf ekki annað en að klippa út í loftið með skærunum þeim, þá sníða þau undir eins silki og flauel“, sagði hann. Þegar prinsessan frjetti þetta, var hún ekki í rónni fyr en hún fengi að sjá piltinn með skærin sem gætu töfrað fram silki og flauel, og það væri gaman að eiga þessi skæri, hugsaði hún, því með þeim væri hægt að fá öll skrautklæði, sem mann langaði í. Hún fór því til konungs- ins föður síns, og var þangað til að, að hann ljet senda eftir piltinum, sem átti skærin, og þegar hann kom til konungshallar, spurði prinsessan, hvort það væri satt, að hann ætti svona skæri, og hvort hann vildi selja þau. ,,Ojú, skæri á jeg til“, sagði pilturinn, ,,en þau eru ekki til sölu“. Svo tók hann skærin og klipti og klipti, svo silki og flauel hrundi í flyksum niður yfir höfuðið á konungs- dóttur. „Æ, þú verður að selja mjer skærin“, sagði konungs- dóttir. „Þú skalt fá fyrir þau hvað sem þú vilt, en jeg verð að fá þau“. Nei, ekki vildi hann selja þau, ekki ntpð nokkru móti, því svona skærT gæti hann aldrei fengið aftur, sagði hann, og meðan þau stóðu þarna og þráttuðu um skærin, leist konungsdóttur altaf betur og betur á piltinri. Henni fanst eins og gestgjafakonunum, að svona fallegan pilt hefði hún aldrei á æfi sinni sjeð. Svo hjelt hún áfram að nauða um skærin, og grátbað piltinn um að selja sjer þau; hann gæti sett upp eins mörg þúsund dali fyrir þau og hann vildi, sjer væri sama um það, bara ef hún fengi skærin. „Nei, jeg sel ekki skærin“, sagði piltur og var hinn þrá- asti. „En ef jeg fæ að sofa á gólfinu í svefnherbergi yðar í nótt, konungsdóttir, skuluð þjer fá skærin. Jeg skal ekkert mein gera yður, en ef þjer eruð hræddar, þá skul- uð þjer láta halda vörð í herberginu“. „Jú, ekkert væri á móti þessu“, sagði könungsdóttir. „Bara ef jeg fæ skærin, þá er jeg ánægð“, qg piltur svaf á gólfinu í herbergi hennar næstu nótt, en tveir hermenn stóðu vörð, en konungsdóttir svaf ekki mikið fyrir því, því henni fanst hún altaf þurfa að vera að opna augun og líta á piltinn, og svona leið nóttin. Ekki hafði hún fyr lokað augunum, en hún þurfti endilega að opna þau aft- jnú^umAa.líi Gilbert Stuart, ameríski inál arinn, mætti eitt sinn ungri konu á götu í Boston, sem heils aði honum með, „Ö,'Mr. Stu- art, jeg var einmitt rjett áð- an að sjá andlitsmynd yðar, og kysti haná a£ því að hún var svo ltk yður“. „Og kysti hún yður á móti“. „Nei, auðvitað ekki“, svar- aði stúlkan hlægjandi. „Þá hefir hún ekki líkst mjer mikið“, svaraði Stuart. ★ „Gershwin", sagði Oscar Levant, „var hamingjusamasti maðurinn á jarðríki. Hann elskaði sjálfan sig og átti eng- an keppinaut“. ★ Einn sonur Theodorc Roose- velts, sagði eitt sinn um föðj ut’ sinn: „Pabbi vill allstaðar vera miðdepillinn. Ef hann fer í brúðkaupsveislu vill hann lielst vera brúðguminn, og ef hann er við jarðarför vill hann helst vera liinn framliðni“. Það er sögð góð saga af því, hvernig Disraeli losaði sig eitt sinn við óþægilegan ttmsækj- anda um borónstign. En um- sækjandi þessi var, inargra hluta vegna, ófær að bera þá tign. „Þjer vitið, að jeg get alls ekki veitt yðttr barónstign", sagði Disraeli, „en þjer getið sagt vinuin yðar, að jeg hafi boðið yður þá tign, en þjer hafið neitað að taka á móti henni. Það er miklú betra“. ★ Þegar D’Annunzio var stadd ur í Frakklandi, var honttm eitt sinn fært. brjefspjald, sent aðeins stóðu á þessi orð: „Til mesta. skálds Ítalíu“. — ITann neitaði að taka við því með þeini forsemdum, að liann væri ekki einuugis mesta skáld Ita- líu — heldttr alls heimsins. ★ D’Annunzio, ítalska skáldið, spurði lögregluþjón í London til vegar og sagði aðeins: „Jeg er D’Annunzio“. En lögreglu- þjónninn skyldi ekki hvað við var átt. Snillingurinn gat ekki varist blótsyrðum og skipaði einkaritara sínttm að láta þenn an fáfróða pilt hafa eitt ein- tak af öllum verkttnt hans. Nefnd nokkur bað eitt sinn Lincoln um lausn frá störfum, þar sem verki hennar væri lok- ið. Lincoln neitaði að verða við beiðni nefndarmanna og rökstuddi það þannig: „Hve margar fætur hefir sattðkindin, ef þið kallið dind- ilinn fót“? spurði Lincoln. „Fimm“, svöruðu þeir. „Það er algjör misskilning- ur“, svaraði Lincoln, „með því að kalla dindilinn fót getið þið ekki gera hann að fæti“. Stonewall Jacltson sendi hcr- stjórninni í Richmond eftir- farandi skevti: „Sendið fleiri menn, en minna af spurning- um“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.