Morgunblaðið - 24.11.1943, Síða 1
30. árgangur
267. tbl. — Miðvikudakur 24. nóvember 1943.
Isafoldarprentsmiðja h.f,
ÚRSLITAORUSTAN UM GOMEL
IIRÐIST NÚ HAFIN
Sfórárás á Rerlín
í nótt sem leið
Rússar hörfa enii
austan Zitomir
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Svo virðist, sem úrslita-
átökin um Gomel sjeu nú
loks hafin. Þjóðverjar við-
urkenna, að þeir hafi neyðst
til að horfa nokkuð fyrir
suðvestan borgina, en Rúss
ar segja í herstjórnartil-
kynningu sinni í kvöld, að
þeir hafi unnið talsvert á
norðan hennar. Ástandið er
þó fremur óljóst.
Þá tilkynna Rússar áð
þeir hafi enn orðið að hörfa
nokkuð á Zitomirsvæðinu,
og eru nú háðir harðir bar-
dagar á Chernigov og Brus-
ilovsvæðunum, en þeir bæir
báðir eru alllangt fyrir aust-
an Zitomir. Segjast Rússar
hafa orðið að yfirgefa
nokkra staði þarna, vegna
harðra áhlaupa Þjóðverja,
en sjálfir segja Þjóðverjar
að þeim hafi tekist að
hrynda Rússum úr nokkr-
um vel víggirtum stöðvum,
og. ná af þeim nokkru lands-
svæði.
í Dnieperbugðunni voru
, miklir bardagar háðir í gær
, að því er hernaðartilkynn-
ingar beggja aðila bera með
■sjer. Segjast Rússar hafa
tekið nokkrar varnarstöðvar
við Kremenchug. Er jörð nú
tekin að frjósa á þessum slóð
um og því auðveldara að
beita skriðdrekum en áður
var.
Þjóðverjar segjast hafa
hrundið árásum Rússa hjá
Kerch á Krímskaganum, en
bæta við að þær hafi verið
fremur smávægilegar. Rúss
ar geta ekki um nein átök
þar. Þá segja Þjóðverjar frá
•staðbundnum viðureignum
fj^rir suðvestan Nevel og
vestan Smolensk, og tala um
hörð áhlaup Rússa sumstað-
ar, en staðbundnar viður-
eignir annarsstaðar. — Fyr-
ir sunnan Kricthev segja
Þjóðverjar Rússa hafa brot-
ist í gegn á einum stað, en
verið hrakta til baka aftur.
Rússar segjast berjast af
mikilli hörku við að hrinda
áhlaupum Þjóðverja á Zito-
mirsvæðinu, en þau eru nú
gerð af skriðdrekaliði og fót
gönguliðssveitum á um 50
km. víglínu. Þjóðvei'jar
segja einnig vörn Rússa
þarna vera mjög snarpa. —
Fffamh. á Hls. 10.
Frá Berlín
Myndin hjer að ofan er tekin í Lustgarten í Berlín við 1. mai hátíðahöld fyrir nokkrum árum.
Dómkirkjan er í baksýn.
Knox flofa-
málaráðh. boð
ar nýja sókn
á Kyrrahafi
London í gærkveldi.
Knox flotamálaráðh. Banda-
fíkjanna ljet svo um mælt* í
dag, að sókn sú, sem Banda-
ríkjamenn hefðu nú hafið á
Gilbertseyjum, væri upphaf að
allsherjartilraun til þess að ná
þeim og ef.til vill fleiri eyjum
úr höndum Japana. Sagði hann
að landgönguliði Bandaríkja-
manna gengi sóknin á eyjun-
um Taraua og Machin. — Enn-
fremur hafa nú Bandaríkja-
menn sett lið á land á þriðju
eyjunni í þessum eyjaklassa.
Tekið var fram að engra jap-
anskra herskipa hefði orðið
vart, er landgangan var gerð.
Kveður við annan tón.
Japanar hafa gefið út til-
kynningu um þessa atburði, og
kveður þar heldur við annan
tón. Segjast þeir hafa ráðist á
innrásarflotann, sökkt einu flug
vjelaskipi, laskað tvö og eitt
stórt herskip í viðbót, en skotið
niður 35 flugvjelar en misst
15 sjálfir. — Annars segja Jap-
anar Gilbertseyjar ekki sjer-
lega þýðingarmiklar. —■ Reuter.
Áhlaup á Aunuseiði.
LONDON í gærkveldi: —
Þýska frjettastofan segir, að
Rússar hafi í gær gert allsnörp
| áhlaup / á stöðvar Finna á
Aunuseiði, en tekur einnig
fram að Finnar hafi hrundið
þeim eftir nokkra baffdaga, sjer
staklega með stórskotáliði sínu.
Reuter.
Messe stjórnar herráði
á ný.
London í gærkvaWti.
Ambrosio hershöfðingja hef-
ir nú verið vikið frá yfirher-
stjórn hjá Badoglio, en hann
var ákærður fyrir stríðsglæpi
ásamt Roatta, sem nú hefir
verið dæmdur. Messe marskálk
ur, yfirmaður ítölsku hersveit-
anna, sem börðust í Tunis, tek-
ur við embætti Ambrosio. Hann
var fangi hjá Bretum, en hefir
nú vei-ið sleppt. .— Reuter.
Áttundi herinn
hefir unnið á
London í gærkveldi.
Engin staðfesting hefir feng-
ist á þeim fregnum Þjóðverja
enn sem komið er, að áttundi
herinn hafi hafið stórsókn á
Ítalíuvígstöðvunum, og allt er
þar enn í leðju og vatnselg.
Áttundi herinn hefir að vísu
unnið nokkuð á, en það er í stað
bundnum smáskærum, og Kan
adamenn hafa hrundið allhörðu
áhlaupi Þjóðverja, sem ætluðu
að hrekja þá af hæðum nokkr-
um á miðvígstöðvunum. Frá
vígstöðvum fimta hersins hafa
engar fregnir borist, nema um
nokkrar stórskotaliðsviðureign
ir.
Flugvjelar bandamanna hafa
gert harðar árásir á stöðvar
Þjóðverja á Italíuskaganum
austanverðum og ennfremur á
samgönguleiðir þeirra að baki
víglínunnar. Ennfremur hafa
sprengjuflugvjelar allstórar,
farið til árása á bæinn Civita
Vecchia og varpað þar sprengj-
um á olíugeyma og járnbraut-
arstöðvar.
Þjóðverjar segja enn í fregn-
um sínum frá' harðvítugum á-
hlaupum áttunda hersins, sem
hafi brotist í gegn á nokkrum
stöðum, en segja að víðast hvar
hafi árásunum verið hrundið.
Reuter.
Eldar loga enn
í borginni
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Bretar tilkyntu í dag, að
floti sprengjuflugvjela
þeirra hafi í nótt sem leið
gert einhverja mestu loft-
árás á Berlín, sem enn hefir
verið gerð á höfuðstað
Þýskalands, og er talið að
skemdir hafi orðið einna
mestar í miðri borginni, en
þar eru margar opinberar
bvggingar.________________
Alls segir í tilkynningu
Breta, að hafi verið varpað
niður 2300 smálestum af
sprengjum í þessari árás
einni saman. Veður var skýj
að yfir borginni og fátt um
orustuflugvjelar Þjóðverja
á lofti, en skothríð úr loft-
varnabyssum var hin harð-
asta. Alls komu 26 breskar
sprengjuflugvjelar ekki aft-
ur úr árásinni.
Flugmenn segja að mjög
miklir eldar hafi komið upp,
og hafa könnunarflugmenn
leitt í ljós, að þeir hafa enn
ekki verið slöktir. Þá sögðu
flugmenn frá því, að gífur-
leg sprenging hefði orðið á
einum stað í borginni.
Þjóðverjar segja í tilkynn
ingum sínum, að skemdir
hafi orðið miklar í borginni,
og meðal annars hafi mörg
fræg listaverk gjöreyðilagst.
Ennfremur segja þeir að all
margir menn hafi farist eða
særst.
Bretar segjast nú hafa
varpað álíka miklu sprengju
magni á Berlín og Þjóðverj-
ar vörpuðu á London í árás-
unum 1940—1941. .
Bandaríkjamenn
hafa tekið Machin
London í'gærkveldi.
FREGNIR seint í kvöld!
skýra frá því, að landgöngu-
lið Bandaríkjamanna áj
Machin-ey, Gibevtseyjum hafi
nú náð eyjunni algerlega áj
sitt vald og yfirbugað 50Ö
manna japanskt setulið, senf
þar vár. Þá er svo frá skýrt,
að Bandaríkjaherinn hafi bætti
aðstöðu sína á Teraua, eif
þar er álitið að Japanar hafil
5000 ípanna lið til vanar.
Reuter,