Morgunblaðið - 30.12.1943, Qupperneq 2
9
M O R G-U NBLAfilÐ
Fimtudagur 30. des. 1943.
AKUREYRARBRJEF
J«!a-annir.
ÞAÐ er nú orðið langt síoan
að jeg hefi skrifað Morgunblað-
inu og veldur þar hvorttveggja,
að hjer gerist fátt frásagnar-
' vert í skammdeginu og að jog
fer ekki, frekar en aðrir, var-
hluta af jólaannríkinu, sem virð
ist altaf fara árvaxandi. Það er
svo með okkur, þessa kvæntu
menn í hinu dæmalausu vinnu-
konuleysi, að við þurfum ýmis-
legt að snúast fyrir heimilið, ef
konurnar eiga að koma öllu í
kring heima fyrir, sem þar þyk
ir nauðsynlegt fyrir jólin. Og
af því að jeg býst við, að hef-
uðstaðarblöðunum veiti varla
af rúmi sínu fyrir jólaaugljs-
ingar um þessar mundir, mun
jeg verða stuttorður.
Bókaflóðið.
MÖRGUM verður tíðrætt um
bókaflóðið fyrir jólin, og verð-
ur þess mjög vart hjer. Ný-
komnar eru hjer út margar bæk
ur, og alltsaman jólabækur, svo
sem gefur að skilja á þessum
tima. Meðal þeirra má nefna:
..Minningar frá Möðruvöllum“,
ritaðar af gömlum „MQðruvell-
ingum“, sem er hin glæsilegasta
bók að útliti og efni, „Ham-
ingjudaga heima í Noregi“,
•vfyrstu bók Sigrid Undset, sem
út kemur á íslensku, „Töfra-
manninn“ eftir Fenchtwanger
cg „Sjö mílna skóna“ eftir Halli
burton, Þá hefir verið stofnuð
ný bókaverslun, „Bókabúð Ak-
ureyrar“, lítil en einkar smekk
leg, og er ekki annað sjáanlegt,
en að nóg sje að gera í þeim öll
um, þótt hún bætist við.
Hámarksverð bóka.
Sú röggsgmi Viðskiptaráðs að
lækka verð nýju bókanna um
20% mælist misjafnlega fyrir.
Eins og gefur að skilja, eru út-
gefendurnir ekkert hrifnir af
Því, og má vissulega búast við,
að verðlækkunin komi mjög
hart niður á þeim útgefendum,
sem reynt hafa að stilla verði
útgáfubóka sinna í hóf. Og þeir
sem búnir voru að kaupa „jóla
bækurnar“ fyrir 1—2 dögum,
þegar verðið var lækkað, n^ga
sig í handabökin, en hinir hrósa
happi, sem áttu það eftir. En
margir mæla svo, að eftirlit méð
verðlagi á bókum hefði mátt
vera komið á fyrir löngu.
■Skilnaðarmálið.
SJALDAN hittir maður svo
annan mann að máli, að ekki sje
minnst á skilnaðarmálið við
Dani, og er þá jafnan látin undr
trn í ljósi yfir andstöðu Alþýðu
flokksins. Á síðasta landsþingi
flokksins viðurkendu þeir Al-
b-fl.menn, að skoða bæri yfir-
lýsinguna frá 17. maí 1941 sem
uppsögn á samningunum, en þó
halda þeir áfram að dylgja um
„samningsrof“, „hraðskilnað",
„ódrengskap“ o. s. frv., þegar
ymprað er á skilnaði þrem ár-
um eftir uppsögnina. Þeir tala
cm, að ekki komi til mála, að
við höldum áfram að vera í
sambandi við Dani nje afhenda
Þöim aftur neitt af þeim mál-
vm, er þeir fóru með fyrir okk-
ur fram til 10. apríl 1940, en
J>ó má ekki slíta sambándinu.
Hver skilur þeirra hugsana-
gang?
Mikilsverð umbót á
samgöngum.
MEÐ þeirri ráðstöfun póst-
stjórnarinnar, að halda uppi
j samgöngum milli Akureyrar og
Reykjavíkur tvisvar í viku nú
í vetur, hefir mikil bót verið
ráðin á póst- og samgöngumál-
um Norðlendinga. V.s. Víðir
reynist hið besta skip í ferðum
þess milli Sauðárkróks og Ak-
ureyrar. Nú vænta menn þess
einnig, að framvegis verði lang
ferðabílunum, sem ganga milli
Norður- og Suðurlands, ekið
fyrir Hvalfjörð, svo að farþeg-
' arnir losni alveg við sjóleiðina.
a. m. k. yfir sumarið. Væri það
, til mikilla þæginda, ef svo gæti
orðið.
Betri vegir — meiri slys.
OFT kvarta menn undan
vondum vegum hjer á landi. En
vondir vegir hafa sína kosti.
Slysahættan er þar miklirminni
! en á góðu vegunum. Það er við
urkend reynsla, að því betri,
sem vegirnir eru, því hraðara
sje ekið og umferðaslysin tíð-
ari. Þessa reynslu höfum við ís-
lendingar einnig hlotið. í Rvík
og nágrenni, (svo sem á Suður-
landsbraut) eru umferðarslys-
in tíðust, en hjer á Akureyri og
í grend, þar sem götur og veg-
ir eru yfirleitt í ljelegu, ásig-
komulagi, eru slík slys sjald-
gæf. Má þar um segja, að „fátt
er svo með öllu illt, að ekki
boði nokkuð gott“.
Tíðarfar og heilsufar.
MJER hefir verið öndvegis-
tíð í skammdeginu, miklu betri
en síðastliðið sumar, hlákur og
hlývindi af suðri. Hinsvegar hef
ir heilsufarið verið lakara. In-
flúenza gengið yfir og lagst
nokkuð þungt á einstaka mann,
þótt hún hafi yfirleitt verið
með vægasta móti. Skarlats-
sótt hefir einnig stungið sjer
niður á stöku stað, en er hald-
ið í skefjum með einangrun
sj úklinga.
16. des. 1943.
Jökull.
Söinun handa hörn-
um í ófriðarlönd-
unum
Frá frjettaritara Mbl.
á Akureyri,
LAUGARDAGINN 18. des-
ember bauð skólastjóri barna-
skólans á Akureyri tíðinda-
mönnum blaða ásamt skóla-
nefnd ög bæjarstjóra, upp í
barnaskóla til að kynnast nokk
urri nýjung, er skólinn hefir
tekið upp í v^tur, en það er
fjársöfnun handa nauðstöddum
börnum í ófriðarlöndunum.
í ræðu, er Snorri Sigfússon
skólastjóri flutti yfir kaffi-
borði, gat hann þess, að söfnun
þessi hefði tvöfalt markmið.
Henni værri beitt þannig, að
hún hefði sem mest uppeldis-
legt gildi fyrir börnin sjálf, hún
væri áhugastarf, sem örfáði
hugkvæmni og dug, en tilgang-
urinn í eðli sínu mannbætandi.
Hitt væri og aðal markmiðið,
að hefja raunhæft starf meðal
barna, á tímum allsnægta, til
þess að þau legðu nokkuð af
mörkum í þarfir annara barna,
sem miklu verr væru stödd. Að
vísu væ,ri það öllum ljóst, að
slíkt gæti ekki af vorri hálfu
orðið nema einn dropi í haf
hörmunganna, en hann myndi
þó vel þeginn og bera vott um
vilja til hjálpar. Taldi skóla-
stjórinn, að börnin hjer hefðu
sýnt ótrúlegan dugpað og hug-
kvæmni í þessu söfnunarstarfi,
sem væri þó aðeins mánaðar
gamalt. Hafa þau nú þegar með
samskotum, smáskemtunum
innan skólans, hlutaveltum o.
fl. safnað nokkrum þúsundum
króna. Og bærinn hefir sýnt
það á ýmsan hátt, að hann tek-
ur þessu vel, og fjöldi heimila
aðstoðað skólann á ýmsa lund
við starfið, beint og óbeint.
Var gestum því næst sýndur
Framb á 6. síðu.
Verndari kaupskipa
'Mörg af kaupskipum bandamanna, sem um úthöfin sigla,
hafa meðferðis Hurf-ieane-orustuflugvjelar, og er ein á
hverju skipi, á rennibraut. Eru flagvjelar ]>essar hafðar
til varnar gegn ]>ý.skum flugvjelum, en sá er galli á, að
hver flugvjel getur aðeins háð eina onistu, síðan verður
hún að setjast á sjóinn 1
Jólakveðja til
Grænlands
Jólakveðja sendiherra Dana
hjer, til Grænlendinga, er á
þessa leið:
„Kæru landar,
Þegar jeg vjek nokkrum
orðum af framtíð Danmerkur
á þessum tíma í fyrra, þá ef-
aðist jeg ekki hið minsta um
það, að danska þjóðin myndi,
er fylling tíinans kæmi, geta
utekið örlögum sínum með
virðulegum þrótti, og var jeg
þess fullviss, að danska þ.jóð-
in myndi ganga þyrnibraut
lieiðursins, ef vélja yrði milL
heiðurs og vanvirðu.
Tímar örlaganna eru nú,
komnii' yfir Danmörku, og
danska þjóðin gengur liinn
þyrnum stráða veg sigursins,
þá þyrnibraut mótlætis, and-
legrar kúgunar, haturs og
misskilnings, sem H. C. And-
ehscn hefir dregið svo greini
lega upp fyrir oss. Sú þyrni-
gata heiðursins, sem rang-
læti og ofbeldi kernur þjóð til
að velja, sem eins og daiiska
þjóðin á aldagamlan norrænu
vægiskendar, til þess að lifa
ar rjettartilfinningai' og jafn-
af.
I>að var líka að þessu leyti,
hvað viðveik rjettlætiskend-
inni, að þolinmæði dönsku
þjóðarinnar þraut, og sanxbúð-
in fór út um þúfur. Það varð,
þegar átti að rjúfa vort eld-
gaxnla i'jettarfai', þegar átti
að ræna x-jetti frjálsra manna,
til þcss að dæmast af jafn-
iixgjum sínixin, en ekki eftir
dutlungunx drotneixdanna, sem
ckki er hægt að nefna því
nafni, sem heilagt er norræn-
um mönnum: lög. Orðið lög,
sem víð Danir settnm fram
andanxi í fyrir 700 ánxm síð-
an í hiixum hljómfullxx spak-
mælum jótsku laga: Með lög-
um skal land byggja. — Þá
reis þjóðin upp sem einn mað-
ur, og konungurinn og þjóð-
in skildi rödd fólksins, kröf-
una xun það, að nú væri tími
til kominn að segja nei, og
ganga þymaslóð heiðursins.
Með þessari afstöðxx vann
danska þjóðin mikla sigra á
tímabilinxx um 1. september.
IIúii vann aðdáun og virðingu
heimsins, sem þjóð, er ótta-
laust lagði út í baráttu gegn
ofureflinu, þegar heiðuiinn
var í veði, og þetta veítti hinni
svoncfndu nýskipan hennar
mesta stjórnmálaósigur. Sem
tákn þess heiðurs, senx vjer
höfum hlotið, sjáum vjer í dag,
að danski fáninn blaktir nxv
aftur á sínum rjetta stað á
öllum dönskunx skipum, sem
með því að sigla í breskri,
þjónustu, gera hinum sam-
einuðu þjóðum þýðingarmikið
gagn. Það hefir verið stolt
augnablik í dag (jóladag), er
danskir sjómenn xxnx hin ýmsu
höf og í höfn, gátu aftur dreg
ið þjóðfáiia sinn að hún, og
líka var það* uppreist fyrir
nafn og heiður Danmerkur.
Þegar við nii lýtum fram til
ársins 1944, þá er það í vorx
um, að það ár nxuni færa
dönsku þjóðinni það frelsj og'
]>ann frið, scm hiin hefir nxi
bráðxxm þráð í fimm ár.
Yjer voxium að öll þjóðin;
standist þrengingarnar meðj
sama ákveðna samhuganum og>
til, og að konungur vor haldíj
áfram að vera skjól og skjöldj
ur Danmerkur, gegrx ofureflí
og valdbeitingu, og að hom
um auðnist að lifa þann dag,
þegar hann aftur er konungi
nr frjálsrar þjóðxxr. Vjer g'leðjj
umst við fregnirnar uni það,
að mótlætið síðan 1. septern*
ber hafi hert konxxng voi’n og
gert hann þrekmeiri en nokkrxn
sinni áður. '
1 fyrrá um þetta leyti, sái
um vjex' rofa til framundan,
og gx’unaði að tímar valds og
kúgunar væi’u að styttast.
1 ár sjáunx vjer morguninii
renna og myrkraöflin á f'lótta,
Vongóðir getum vjer haldiði
jól og beðið dagsins.
Láturn vjer oss öll ó.skai
hvert öðru gleðilegra jóla og
góðs nýárs.
Láturn oss öll ti’eysta því,
að áiúð 1944, verði ár fi'elsis!
og friðar.
Gleðileg jól og nýár.
Fr. de Fontenay.
Peningagrjafir til Vetrarh.jálp*
arinnar: Óli Ólason 100 kr. GeúJ
H. Zoega 200 kr. Verslun H. Toft
200 kr. B. P. 200 kr. J. H. 100 ki*.
N. N. 100 kr. Veiðarfæraversl.
Geysir 300 kr. Starfsfólk hja
Veiðarfæraversl. Geysir 195 kr.
Esja & Kári 20 kr. Lyfjabúðin
Iðunn 300 kr. X 50 kr. St. G. 50
kr. H. Ólafsson & Bernhöft 500
kr. Starfsfólk H. Ólafsson &
Bernhöft 130 kr. Jóh. G. Hall»
dórss. 10 kr. Halld. Eyþórss. 10
kr. Ö. W. 10 kr. Sjóklæðagerð ís-
lands h.f. 250 kr. J. Þ. 50 kr.
Heildvei’sl. Hekla 500 kr. Guðm.
Kr. Guðmundsson 25 kr. Starfs-
fólk á bæjarskrifstofunum 480
kr. Starfsfólk hjá J. Þorlákssoxí
& Norðmann 165 kr. I. 50 kr. T.
30 kr. Ónefndur 300 kr. Starfs«
menn á Klapparstíg 28 100 kr.
Starfsfólk Landssímans 440 kr.
H. E. 100 kr. Bernh. Petersen
250 kr. Geir Thorsteinsson 300
kr. Jóh. Guðmundss. 15 kr.
Ragnar H. Blönda h.f. 500 kx’.
Starfsfólk hjá Ragnar H. Blöndal
h.f. 200 kr. Heildverslunin Edda
500 kr. Timburversl. Völunduc
h.f. 500 kr. N. N. 10 kr. Anna
litla 15 kr. Ónefndur 10 kr. St.
J. 100 kr. Eir. 20 kr. Ti’jesmíða-
vinnustofan Vatnsstíg 10 200 kr.
Fimm systkin Seljaveg 9 50 kr.
Hugull 25 kr. Þórður Sveinssoxt
& Co. h.f. 300 kr. G. Helgason
Melsted h.f. 500 kr. Bókaversl.
Sigf. Eym. 500 kr. H. W. 30 kr.
Brynjólfur 20 kr. Einar Jóhanns-
son 20 kr. J. & S. 100 kr. Starfs-
fólk í Reykjavíkur Apóteki 440
kr. Veiðarfæraversl. Verðandi
200 kr. S. B. 60 kr. Starfsfólk h.f.
„Ræsir“ 460 kr. H.f. „Ræsir“ 200
kr. Jón og Steingrímur 200 kr.
Ónefndur 20 kr. N. X. 200 ki’.
Lárus Guðgeirsson 5 kr. Áheit 5
kr. H.f. „Shell“>500 kr. N. N. 50
kr. Starfsfólk við Heildverslun
Garðars Gísasonar 350 kr. H.f.
„Lýsi“ 500 kr. XXX 50 kr. Starfs-
fólk hjá Rafmagnsveitu Rvíkuc
455 kr. A. F. 50 kr. K. 50 kr.
Stai’fsfólk Ríkisprentsmiðjunnar
Gutenberg 70 kr. Starfsfólk f
Landsbanka íslands 130 kr.
Starfsfólk í IsafoldarprentsmiðjU
h.f. 300 kr. *’4— Kærar þakkir.
F. h. Vetrai’hjálparinnar |
Stefán A. Pálsson. j