Morgunblaðið - 30.12.1943, Qupperneq 12
12
Fimtudagur 30. des. 1943,
Þríburarnir að
Fossavöllum skírðir
í l'YRRASUM Alí skýrði
Morgunblaðið frá fæðingu
|)ríbura, sem fæddust 39. júlí
að Fossyöllum í Norður-Múla
sýslu. Nú hefir blaðinu liorist.
f:iær frjettir, að þríburarnir
tafi dafnað vel og að ]>ær
systur hafi verið skírðar þann,
3fi. þ. m. og hlotið nöfnin:
Ragnheiður, Kristbjörg ög
(iuðný.
Mikið hóf var haldið er
systurnar voru skírðar og
liöfts }>að rneð því, að sókuar-
presturinn, síra Sigurjón Jónsi
«ón flutti ræðu. Sátu um fiO
manns Skírnarveisluna og var
veitt. af míkilli rausn.
Veislugestir mynduðu s.jóð
til handa systrunum, sem á að
afhenda þeim á feiuiingardag
•þ.eirra. Söfnuðust alt að 3
Ifúsúnd krónUr í sjóðinn.
Sjóðurinn er opin ættingjum
og v inum, sem kynnn að vilja
■(pitthvað af hendi rakna í hann
J. sjóðsstjórn voru kosnir þess
ir ménn: Björgvin Vigfússon
Ivetilsstöðum. Hjörn Gnð-
in undsson Sleðbrjótsseli,
Gtumlaugur Eiríksson Set-
bergi, E.inar Jónsson Ilvanná
og Stefán Pjetursson I»ót.
Bruggorar
dæmdir
NÝLEGA hafa bruggararnir
þfír, bræðurnir frá Flókastöð-
um í Fljótshlíð, verið dæmdir
fyrir afbrot sín. En þeir höfðu,
eins og lesendum blaðsins er
kunnugt, orðið uppvísir að
bruggi.
Bræðurnir hlutu 10 daga
varðhald hver og var auk þess
gert að greiða alls 2000 kr. til
menningarsjöðs, einum 1000
kr., en hinum 500 kr. hvorum.
Híu ára drengur
snáfar seluliðsmenn
„THE WHITE FALCON“,
blað ameríska setuliðsins skýr-
ii' frá því, að 9 ára gömlum
blaðasöludreng hjeðan úr bæn-
um hafi verið boðið dag nokk-
urn að leika skák við -hermenn
í herbúðum við bæinn. Dreng-
urinn þáði boðið og mátaði her-
manninn, sem bauð honum, og
ekki nóg með það, heldur og
alla skákmenn herbúðanna frá
óbreyttum liðsmönnum upp í
kapteina!
Blaðið segir. að pilturinn
héiti Gretar Burtman og að
hann tali ensku eða öllu heldur
amerísku reiprennandi. Hann
talar við hermennina á ýmsum
mállýskum, segir blaðið. Her-
mennirnir eru alveg undrandi.
Gretar segir kunningjum sín
um í hernum, að heitasta ósk
sin sje að komast til Ameríku
og sjá Brooklyn Dodgers, base-
ball-leikarana frægu.
Ekki er getið um heimilis-
fang Gretars og sennilegt er, að
föðurnafn hans sje bjagað í
meðförum setuliðsblaðsins, en
ef einhver kannaSt við þetta
undrabarn. væri gaman að fá
að heyra meira um hann.
íslenskir flugnemar í Ameríku
ÞESSIR ÞRÍR piltar eru Akureyringar og stunda flug-
nám við Curtis Wright flugskólann í Suður-Kalifomíu. Þeir
heita, (talið frá vinstri): Kristján N. Mikaelsson, Gunnar
Sigurðsson og Steinþór Loftsson. ,
Þrír Akureyringar stunda flugnám
í Kaliforníu.
I>RÍR UNGIR AKUREYIIINGAR stuiida flugnám-við flug-
skóla Curtiss-Wright flugyjelavérksmiðjanna, sem er á
Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna í Suður-Kaliforníu. l/a
flugnema í þcssum skóla eru annara þjóða, en Bandaríkja-
manna. Þar eru nemendur frá Tyrklandi, Suður-Afríku, Sviss-
landi, Svíþjóð, Noregi, Brasilíu, Astralíu, Kanada, Mexiko,
Kína og frá 30 öðrutíi þjóðum.
Islendingarnir þrír, heita
Kristján Nikulás Mikkaelsson,
Gunnar .Sigurðsson og .Stein-
þór Loftsson. Þeir hafa látið
svo umniælt við amerískan
hlaðamann, að þeir hafi feng-
ið brennandi áhuga fyrir flugi
er þeir kyntust amerískum
flugmönnum á Islandi. Islend-
ingarnir þrír eru æskuvinir.
Þeim tókst með hjálp ame-
ríska ræðismannsins, að kom-
ast ■ að flugskóla «. Curtiss-
Wright Þeir ætluðu sjer allir
að verða flugstýrimenn, en
Gunnar Sigurðsson varð fyrir
vonbrigðuni, því sjón hans
stóðst ekki kröfur þær, sem
gerðar eru til flugmanna í
skóla þessum. Ilann hefir því
um stund* ekki fengið inn-
göngu á flugstýrimannaskól-
ann, en vonast er til að hann
verði síðar tekinn inn á skól-
ann, ef honum gengur vel
sjónæfingar, sem hann stund-
ar af kappi.
lslendingarnir húa hjá ame,
rískuin fjölskyldum í bænum
Glendale, sem er skan)t frá
flugskólanum. Þeir stunda nám
sitt af miklu kappi og vonast
til að komast aftur heim til
íslands er ófriðnum lýkur.
Þeir hafa hug á að kynna
sjer sjerstaklega stjórn flug-
valla.
Þeir fjelagar skýrðu frá
því í blaðaviðtali, að mikill
áhugi ríkti á Jslaudi fyrir
flugmálum.
Lögreglan bjargar
veöurlepfu fólfd
í Svínahrauni
í FYRRAKVÖLI) á tólfta
tímanunr var hringt á lögreglu
stöðina frá Kolviðarhóli. Var
lögi’eglan beðan að fara til
móts við biðreið, cr farið
hafði þaðan fyrir 4 klst., en
ckkert spurtst til. í bifreið-
inni var kona, er komin var
að ala barn, auk þcss voru í
hifreiðinni tvö börn.
Um Jkl. tólf á miðnætti fóru
1 lögregluþjónar og læknir
af stað hjeðan úr bænum. Er
lögreglan kom. að Lögbergi,
komu tveir meiin gangandi úr
Svínahrauni. Voru þetta tveir
bílstjórar, annar, af bílnum,
or farið hafði fyrir nærri 5
tímum frá Kolviðarhóli. Voru
þeir á leið til Lögbergs, en það
an ætluðu þeir að hringja til
Reykjavíkur crg biðja urn að-
stoð. Sögðu þeir bílinn fast-
an í snjóskafli, um það bil 2
km. fyrir ofan Lögbcrg Braust
nú lögreglan og bílstjórarnir
áfram og urðu að moka, stóran
skafl, er varð á vegi þeirra,
en komilst heilu og höldnu að
hílnum.
Var nú þegar háTdið af
stað til Reykjavíkur og var
komið til bæjarins um kl. 3
um nóttina. Ekki varð kon-
unni meint af volkinu.
Ekkert cr hægt að íullyrða
um, hverjar afleiðingar það
hefði gctað haft í för með sjer
ef ekki hcfði verið brugðist
svo fljótt við En hægt er að
fullyj’ða, að dugnaður lögregl
unnar kom að góðu haldi.
Bv. Oli Garða rekst
á fluttningaskip, sem
sökk við áreksturinn
FYRIR NOKKRU varð árekst-
ur milli b.v. Óla Garða frá Hafn-
arfirði og 4000 tonna flutninga-
skips, er sökk af völdum árekst-
ursins. Einnig varð árekstur
milli b.v. Vörður frá Patreks-
firði og flutningaskips. Frá þessu
var skýrt hjer í blaðinu þ. 3.
des. s.l., en þá voru fregnir af
atburðum þessum óljósar. Nú
hafa borist hingað nánari fregn-
ir, einkum þó af b.v. Óla Garða.
Blaðið hefir snúið sjer til fram-
kvæmdastj. Hrafna Flóka, Ás-
geirs Stefánssonar í Hafnarfirði
og hefir hann skýrt m. a. svo
frá:
Óli Garða var á leið til Eng-
lands, er áreksturinn varð. Var
skipið statt ekki alllangt undan
Aberdeen, er árekstur varð milli
þess og 4000 tonna flutninga-
skips. Flutningaskipið sökk. Óli
Garða varð fyrir miklum skemd-
um, en komst þó af eigin ram-
leik til hafnar. Ekkert tjón varð
þó á skipshöfn Óla Garða, en
ekki er fullkunnugt um, hvort
tjón varð á skipshöfn flutninga-
skipsins.
Áreksturinn varð um nótt og
var flutningaskipið ekki með
nein ljós, en ljós var í öðru siglu-
trje á Óla Garða. Mál þetta hef-
ir verið í rannsókn ytra og hef-
ir þar komið í ljós, að Óli Garða
hafi „átt bóginn“.
Þá gat framkvæmdastjórinn
þess, að gera mætti ráð fyrir, að
aðgerð á skipinu muni taka altaf
einn mánuð.
Botnvörpurtgurinn Vörður
var á leið til landsins, er árekst-
urinn varð. Ekki hafa aðrar
fregnir af því borist en þær, að
skip það, er Vörður lenti á, var
flutningaskip. Komst Vörður
og flutningaskipið af eigin ram
leik til hafnar.
Garðari Ólafssyni (Jóhann-
essonar), sem er framkvæmda-
stjóri Varðar h.f., hefir borist
skeyti frá skipshöfn Varðar nú
um jólin og leið þeim öllum
vel og báðu að heilsa vinurm og
vandamönnum.
Tedder er meistari
í samvinnuvið
landherinn
London I gærkvöldi. Einka-
skeyti til Morgunblaðsins frá
Reuter.
Eftir Stanley Burch.
Hinn nýskipaði næstæðsti
maður Eisenhowers, Tedder
flugmai’skálkur, er meistari í
því að vinna með flugher sín-
um bæði í samvinnu við land-
her og flota, eftir þörfum, og
lítu* hann svo á, að þetta sjeu
ekki þrjú mismunandi afbrigði
herja, heldur ein samsteypt
heild til sóknar og varnar, eins
og Þjóðverjar gerðu með land-
her og flugher í „leifturstríði”
sínu.
Það er ný hernaðarvjel, sem
Tedder og Eisenhower hafa
smíðað á ströndum Norður-
Afríku.
Tedder er mjög árvakur mað
ur og dylur hinar skörpu gáfur
sínar og ímyndunarafl bak við
kyrrlátt bros sitt og sína ómiss-
andi reykjarpípu. Á hinum erf
; iðu dögum, þegar breskir og
amerískir herforingjar og flota
foringjar voru að reyna að
vinna saman, lagði Tedder
þeim til vernd flugvjela. Það
var hann, sem stjórnaði flug-
flota þeim, sem hjálpaði cil
þess að sigra heri möndulveld-
anna í Tunis, og mikinn þátt
átti hann í þeim sigrinum.
Það var Tedder, sem yfir-
bugaði eyna Pantellaria, og
beindi síðan sókn að Sikiley,
svo hún yrði auðunnari fyrir
landheriná. Það er nú opinbert
leyndarmál, að margir hers-
höfðingjar fengu þá fyrst trú
á stuðningi flughers við land-
her, er innrásin hafði verið
gerð á Sikiley og Montgómery,
sem stjórna mun herjum Breta
í innrásinni, hefir nú nýlega
hrósað Tedder mjög fyrir
ágæta stjórn á flughernum.
Tedder er frægur fyrir það,
eins og Montgomery, hvað
hann kemur alúðlega fram og
er sjerstaklega lundgóður. —.
Hann lifir mjög óbrotnu lífi,
sefur í svefnbifreið á strönd
fVorður-Afríku, en tjaldbúðir
þær, sem eru aðalbækistöðvar
hans, notar hann aðeins fyrir
ráðstefnur.
Hann og Conningham flug-
marskálkur, aðstoðarmaður
hans, eru mjög miklir vinir,
þeir gerðu hrein kraftaverk
saman í Lybiu, og búist er við
því, að Conningham verði
með Tedder í hinu nýja starfi
hans.
Rúða brotin í skart-
gripaverslun
í FYRRINÓTT var brotin
stór rúða í sýningarglugga
skartgripaverslunar Jóns Sig-
mundssonar við Laugaveg 8.
Var stolið 7 úrum úr gluggan-
um, sem verið höfðu þar til
sýnis.
Þettá er í annað sinn á
skömmum tíma, sem rúða er
brotin í sýningarglugga skart-
gripaverslunar hjer í bænum,
og í fyrravetur kom það sama
fyrir nokkrum sinnum hjer í
bænum.