Morgunblaðið - 16.01.1944, Síða 5

Morgunblaðið - 16.01.1944, Síða 5
Sunnudag'ur 16. janúar 1944. MORGUNBLAÐIÐ 5 ‘-EimskipaSjelasy Sslaads 30 ára — Samhugur íslendinga styður þjóðnytjastarf fjelagsins Miklar framtíharvorLLr jparfa að rætast um aukin skipakost A morgun þann 17. janúar eru liðin 30 ár frá því stofnfundur Eimskipafjelags íslands var haldinn hjer í Reykjavík. Sá atburður markaði tímamót í viðskiftum, atvinnusögu og hugsunarhætti þjóðar- innar. Hinna almennu samtaka um fjelagsstofnun þessa, verður ætíð minst, sem eins hins ánægjuleg- asta viðburðar í sögu þjóðarinnar á fyrsta skeiði 20. aldar. Dagurinn. Stofnfundardeginum fyrir 30 árum lýsa samtíðarmenn á þessa leið (sbr. 25 ára afmæl- isrit fjelagsins): Stofnfundardagurinn rann upp yfir höfuðstaðinn mildur og fagur. Fánar voru dregnir á stöng um allan bæinn, og blöktu þeir í hægum austan- andvaranum. Umferðin á göt- unum bar þess vott þegar um morguninn, að eitthvað mikið var á seiði í bænum. Straumur af fólki gekk um stræti borg- arinnar, margir voru í spari- fötum, og á götuhornum stóðu hópar af allra stjetta mönnum og ræddu með áhuga það, sem fram átti að fara. Flestir skólar höfðu gefið nemendum leyfi allan daginn, en aðrir frá há- degi. Búðir og skrifstofur voru lokaðar, svo og bankar og aðr- ar fleiri stofnanir. Þegar leið að hádegi tóku menn að streyma til Iðnaðar- mannahússins. í þeirri fylk- ingu voru margir, sem eigi voru því vanir að sækja opin- bera fundi. Búðarstúlkur og vinnumenn, sjómenn og sveita menn gengu í sömu átt, með sama áformi, að vera viðstödd þann merkisdag, söguatburð er Eimskipafjelag íslands væri stofr.að. Þannig er upphafið að lýs- ing dagsins. Eins og kunnugt er, reyndist húsrúm í Iðnó of lítið fyrir hina miklu fundar- sókn og var þá farið fram á það við sr. Ólaf Ólafsson frí- kirkjuprest og safnaðarfulltrúa að Fríkirkjan yrði lánuð fyrir fundastað fundarins, en sjera Ólafur tók því vel og sagði að hann teldi „hvern þann stað helgaðan, er þetta mál væri rtett á“. Síðan hefir Eimskipafjelag íslands verið nefnt óskabarn þjóðarinnar, en hver sá mað- ur hlotið vanvirðu af, er reynt hefir að hnekkja vinsældum þess, eða leggja stein í götu þess. Þeir hafa sem betur fer reynst fáir. Starfið. I einni blaðagrein verður þjóðnytjastarf Eimskipafjelags ins ekki rakið. En í tilefni af þrítugsafmælinu, hitti jeg framkvæmdastjóra fjelagsins, Guðmund Vilhjálmsson, að i.; M :; i ’ j i { í i i : 't i I . máli í gær. Hann hefir haft framkvæmdastjórn á hendi í 14 ár, tók við af Emil Nielsen, fyrsa framkvæmdastjóranum. Er jeg spurði Guðmund hve miklu tekjur fjelagsins 'hafi numið frá byrjun, og hver hafi útgjöldin verið til ársloka 1942 skýrði hann svo frá: Tekjur af skipum fjelagsins frá byrjun til ársloka 1942, hafa numið samtals 106,2 milj. króna, en gjöldin alls 95,8 milj. króna. Þegar tekjur af leigu- skipum eru taldar með, verða þær samtals 157,6 milj. kr.. en gjöldin 137,3 milj. kr. Samtals hefir því tekjuaf- gangurinn orðið kr. 20,3 milj. króna. En beinar tekjur þjóð- arinnar eru vitanlega margfalt meiri, því af gjöldum fjelags- ins til reksturs skipanna hefir meira en helmingur eða yfir 50 miljónir runnið til lands- manna. Af þessum rúml. 20 milj. kr. tekjuafgangi hafa 10,6 milj. verið notaðar til afskrifta af skipum og fasteignum fjelags- ins, en rúml 9 milj. verið lagð- ur í sjóði. í árslok 1942 voru t. d. sjóð- eignir þessar: Eftirlaunasjþður .... 1.115.000 Varasjóður........... 1.808,000 Byggingasjóður .... skipa............. 4.500.000 Vátryggingarsj...... 4.692,000 Arðjöfnunarsj....... 450.000 Gengisjöfnunarsj. . . 348.000 En vátryggingarsjóður er ekki talinn af tekjuafgangi, heldur eru greiðslur til hans taldar með iðgjöldum. Arður hluthafa. í upphafi lögðu menn ekki fje sitt i Eimskipafjelag ís- lands í þeim tilgangi, að vænst væri eftir miklum arði af fjenu. Fjeð var lagt fram til samhjálpar í þjóðfjelaginu, til þess að reka það sliðruorð af landsmönnum eyþjóðar, að geta ekki tekið samgöngur við útlönd í eigin hendur, því öld- um saman hafði þjóðin lifað sem ósjálfbjarga fangi, er varð einkum ef út af bar, að eiga það undir annara náð, hvort flutningar fengjust hingað eða eigi. Arður hlutháfa hefir ekki verið mikill þessi 30 ár, lægri en sparisjóðsvextir, áð meðal- rfrt.rí ■t-Jl'M'fú' t. Guðmundur Vilhjálmsson framkvæmdastjóri. tali 3.4% á ári, og hefir af 20 milj. tekjuafgangi verið varið samtals kr. 1.424.258 í arð til hluthafanna eða tæplega 14. hluta tekjuaafgangs. Þegar skipunum var fjölgað. Eins og kunnugt er, skall heimsstyrjöldin fyrri á, sama árið og fjelagið var stofnað. Um þróun fjelagsins á fyrri árum, sagði framkvæmdarstjór inn m. a.: Fyrra stríðstímabilinu má telja lokið 1919. Á því tímabili hafði fjelaginu græðst 3.507 þús. kr. • og af því hafði um 1500 þús. kr. verið notað til af- skrifta á eignum fjelagsins, en um 1 milj. lögð í varasjóð. Á næstu 10 árum ljet fjelag- ið byggja 3 skip, ,,Goðafoss“, ,,Brúarfoss‘: og „Dettifoss” og keypti „Selfoss“, enda Voru þá allir sjóðir fjelagsins gengnir til þurðar, þannig, að alt and- virði síðasta skipsins (Detti- foss) varð að taka að láni, og skuldaði fjelagið á þriðju milj. kr. eftir þessi ár, aðallega er- lendis. ' Síðan 1930 hefir fjelágið ekki getað bætt neinum skipum við skipastól sinn, meðfram vegna þess, að þeir sjóðir, sem fjelag- ið eignaðist, voru í íslenskum krónum, en vegna gjaldeyris- vandræða landsins fjekst ekki yfirfært neitt fje tii skipabygg- inga, og þó fjelagið gæti fengið lán erlendis til byggingar skips, fjekst ekki trygging fyrir því, að hægt yrði að standa skil á vöxtum og afborgunum af slíku láni, eins og ástandið var fvrir stríðið. Þessar voru þá m. a. orsakir til, að starfsemi fjelagsins stóð í stað í nokkur ár, áður en nú- verandi syrjöld skall á. — En síðustu styrjaldarár hafa leitt í ljós, hvílík lífsnauðsyn það er þjóðinni, að þróun fjelagsins fái að halda áfram hröðum skref- um á næstu árum. Fýrir styrjöldina munu skip EihtSkiþafjelágsinS hafa flutt ,' '*!'1 I- i. ', ;■■ til landsins um % af venju- legum verslunarv., að undan- skildum kolum, salti, sementi og timbri. En er siglingar hófust og flutningaleiðir lengdust, varð skipastóll fjelagsins ger- samlega ónógur, eins og best sjest á því, að skip fjelagsins fluttu til landsins árið 1938 46 þús. tonn af vörum, en árið 1942 aðeins 24 þús. tonn, en með leiguskipum voru það ár flutt 63 þús. tonn, eða yfir % flutningsins. Þess er vert að geta um leið, að við mégurn gera ráo fyrir, að leiguskipin höfum við feng- ið vegna hernáms eða hervernd ar landsins, því aðrar hlutlaus- ar þjóðir, sem hafa ónógan skipastól sjálfar, hafa engin leiguskip fengið hjá banda- mönnum og lent fyrir þá sök í miklum vandræðum og vöru- {skorti. Skipin dýr í rekstri. Þá er það og mjög athyglis- vert og alvarlegt fyrir framtíð íslenskra siglinga og framtíð fjelagsins, hve íslensku skipin hafa á síðustu árum verið dýr í rekstri. Það eru leiguskipin, er hafa gert fjelaginu kleift að reka skip sín, þó með stórtapi hafi verið. Nam tapið á rekstri fje- lagsskipanna árið 1942 3 Vá milj. kr. En hagnaður á leigu- skipunum vóg það upp. Ef ekki hefði orðið tekjuaí- gangur af rekstri leiguskip- anna það ár, sem nam alt að því, sem tapið var á eigin skip- um, hefði fjelagið orðið að hækka flutningsgjöld sín miklu meira en gert hefir verið, ef ekki alt hefði átt að fara í strand, enda hefði megnið af flutningum þess verið brýnustu nauðsynjavörur, sem lægst Vátryggingárgjöld Kaup skipshafnar, fæði, vinna við fermingu og affermingu o. s. frv. Kol Aðgerðir og viðhald Heildarútgjöld þessa skips voru árið 1918 671 þús. kr., en 1942 2 milj. 202 þús. kr. (1938 voru þau 465 þús. kr.). Tekjur voru aftur á móti 1 milj. 201 þús. kr. árið 1918, en aðeins 1 milj. 358 þús. kr. árið 1942 (1938 voru þær 372 þús. kr.). Þetta hefir því snúist þannig við, að í stað þess að ár- ið 1918 er ágóði af rekstri skips ins 543 þús., er tap á rekstrin- um, sem nemur 825 þús. kr. ár- ið 1942. Siglingar skipsins voru svip- aðar hvað mílufjölda srtertir, og nam kostnaður fyrir hverja siglda sjómílu 1918 kr. 24.73, 1938 var hann kr. 14.98, en 1942 er kostnaðurinn kr. 90.70. Tekjur skipsins reiknaðar á sama hátt eru 1918 kr. 44.28, 1938 kr. 12.00 og 1942 kr. 55.95 fyrir hverja siglda sjómílu. í þessu sambandi má til sam- áríburðar geta þess, að á fyrsta . ,'!•■ . ’ •' ’ I II,! > flutningsgjöld eru greidd fyrir, en þau flutningsgjöld hafa að- eiris hækkað um 134.5%, en eins og áður er sagt hafa héild- arútgjöld fjelagsins hækkað um 304%. Ef miðað er við útgjaldaupp- hæðir árið 1938, hafa helstu út- gjaldaliðir skipa fjelagsins hækkað þannig fyrir árið 1942: Vátryggingargjöld um 1532% (aðallega stríðsvátrygging og trygging skipshafnar). Kaup skipshpifnar, fæði og vinna við fermingu og affermingu um 407% . Aðgerðir og viðhald um 334 %. Heildarútgjöld skipanna hafa hækkað samtals um 304% eða rúmlega fjórfaldast, en tekjur þeirra hafa hinsvegar aðeins aukist um 206% eða rúmlega þrefaldast. Þetta er myndin og hún er í raun og sannleika ekki glæsi- leg. En þessi mynd verður að breytast. Það sjer hver heil- vita. maður. Og hún getur breyst til batnaðar, ef vilji þjóð arinnar og samhugur um hag siglinganna og fjelagsins er hinn sami og var i upphafi. Guðmundur . Vilhjálmsson ljet blaðinu í tje samanburð á rekstri Lagarfoss í fyrri styrj- öld árið 1918, árið 1938 og ár- ið 1942. Lítur sá samanburður þannig út: „Lagarfoss" er eina skipið af skipum jpeim, sem fjelagið á nú, sem er fullkomlega sam- bærilegt, að því er snertir gjöld og tekjur, þareð hann sigldi alt útgjaldahæsta stríðsárið fyrra (1918) og einnig nú. Til sam- anburðar er hjer einnig getið gjalda og tekna árið 1938, sem telja má siðasta eðlilega árið fyrir þetta stríð. 1918 1938 1942 204 þús. 42 þús. 623 þús. 111 — 202 — 895 — 215 — 86 — 257 — 24 — 22 — 229 — reikningsári fjelagsins 1915 voru öll útgjöld þess kr. 393.525, árið 1938 eru þau kr. 4.125.109, en árið 1942 nema gjöldin kr. 37.616.124. Tekjurnar voru hins vegar árið 1915 kr. 495.243, ár- ið 1938 kr. 4.662.700, en árið 1942 kr. 38.154.957. Fleiri samkepnishæf skip. Er jeg spurði framkvæmda- stjórann, hvað hann teldi mest aðkallandi fyrir rekstur fjelags ins eftir nuverandi styrjöld, komst hann að orði á þessa leið: — Við þurfum að eignast ný skip. Og rekstur þeirra þarf að geta kept við skip annara þjóða. Jeg tel flutningaþörfinni naumast fullnægt fyr en við höfum fengið 5 skip til viðbót- ar. Þau þurfa að vera 2—3000 tonn að stærð. 3000 tonna skip eru hæfileg til Ameríkuferða ! ’ ■ Framh. á S. síðu. • i < i L - o ’: i5"o > : •.-; ■<:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.