Morgunblaðið - 11.02.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.02.1944, Qupperneq 1
31. árgangur. 32. tbl — Föstudagur 11. febrúar 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. Þriggja klst. loftbardagar yfir Þýskalandi Foce-Wulf brennandi í hafið ÞETTA SVARTA FLYKKI á myndinni er hrennandi Focke- Wulf sprengjuflugvjel. Eru þetla langdrægar flugvjelar og hafa meðal annars stunduin sjest hjer yfir Islandi. — Var ein þeirra skotin niður fyrir Norðurlandi síðastliðið sumar. , Þjóðverjar gera Monte Cassino- klaustrið að vígi London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. FRÁ LANDGÖNGUSVÆÐI bandamanna við Anzio, fyrir sunnan Róm, bárust fáar fregnir í dag, en vitað er að þar eru harðir bardagar í aðsigi, ef þeir eru ekki þegar hafnir, því vit- að er að Þjóöverjar munu leggja höfuðáhersluna á að hrekja bandamenn í sjóinn á þessum slóðum. Þjóðverjar segjast hafa innikróað breskt lið á landgöngusvæðinu og eig'i það sjer ekki undankomu auðið. , Fjárhagsáætlun bæjarins afgreidd í nólt BÆJARSTJÓRNARFUND- UR hófst á venjulegum tíma í gær, kl. 5 e. h. Aðaþnál fund- arins var síðari umræða um af- greiðslu fjárhagsáætlunar bæj afins fyrir 1944. ; Fjöldi breytingartillagna lágu fyrir fundinum frá bæj- arráði, borgarstjóra, flokkön- ufn og einstaka bæjarfulltrú- um. — Umræðum var ekki lok ið fyrr en langt var komið fram á nótt. Spánverjar skila ífölskum skipum London í gær. ÞAÐ hefir verið tilkynt op- inberlega, að Spánverjar hafi lá'tið laus 6 af 7 ítölskum flutn irígaskipum, sem lágu í spönsk um höfnum. Þrjú þessara skipa háfa þegar lagt úr höfn með fána Badoliostjórnarinnar við hún. Spánska stjórnin hefir lá'tið skip þessi laus vegna ein- dreginna mótmæla breskra stjórnarvalda, þar sem kyr- setningin skipanna var talin brot á hlutleysi landsins. Mannfjón Banda- ríkjahers Washington í gærkveldi. SAMKVÆMT upplýsingum frá upplýsingaskrifstofu Banda rikjahers, nam manntjón Bandaríkjanna 15. janúar alls 150.478 mönnum. — af þeim ena 34,179 fallnir, 51,292 særð- ir, 34,746 týndir og 30,261 fángar hiá óvinaþjóðum. Manntjónið skiftist þannig á milli landhers og sjóherSj að landherinn hefir mist 112,230 menn, en sjóherinn 38,448 menn. Klausturvígi Þjóðverja. Við Cassino gengur hvorki nje rekur ennþá, en bardagar eru þó harðir. Frjettaritarar, sem eru með fimta hernum segja, að höxuð hindrun banda- manna sje hið fræga klaustur Monte Cassino, sem er í hlíð- unum fyrir ofan Cassinoborg. Hafa Þjóðverjar gert klaustrið að öflugu vígi og geta varnað bandamönnum að sækja fram eftir veginum til Cassino. Enn- fremur hafa þeir þar miðunar- stöðvar og stjórna skothríð á stöðvar bandamanna þaðan. Frjettaritarar segja, að úr miklu vandamáli sje að ráða fyrir Clark hershöfðingja. — Hingað til hafi hann ekki vilj- að eyðileggja hið sögufræga klaustur með stórskotahríð, en hinsvegar sje lítil von til að bandamenn nái Cassino nema að klaustrið sje unnið úr hönd- um Þjóðverja. Það sje því ekki nema um tvent að velja. Ann- að hvort að leggja hið æfaforna klaustur í rústir með stórskota hríð, eða að sækja að því hægt og hægt, en það myndi hafa í Framh. á 8. síðu. Loftárás á Histiif- land í gærmorgnn ÞRJÁR ÞYSKAR sprengjuflugvjelar slepptu niður sprengjum á einum stað á Austurlandi í gærmorgun. — Engan íslending sakaði. Herstjórnin hjer á landi gaf út svohljóðandi tilkynningu til blaðanna í gær um árásina: ,,Þrjár þýskar sprengjuflugvjelar birtust sem snöggv- ast yfir austurströnd íslands í morgun. ,,Þegar skotið var á flugvjelarnar úr loftvarnabyssum vörpuðu flugmennirnir sprengjum sínum skyndilega og flúðu á haf út. ,,Engir íslendingar meiddust í þessari stuttu árás“. Þúsundir flugvjela eigast við í árás flug- virkja á Brunswick EINIIYERJAR hjinai1 mestu loftorustur, sem farið hafa fram ýfir meginlandi Evrópu áttu sjer stað í dag er amerisk flugvirki fóru til árása á þýsku iðnaðarborgina Itnmnswick í björtu í dag. Ivom til geysilegra bardaga í lofti milti þýskra orustuflugvjela í huudraðatali annarsvegar og orustuftug- vjeli þeirra, sem vörðu ,,virkin“ og virkjanna sjálfra hins- vegar. Þjóðverjar fram- leiða „New York"- sprengjuflugvjel Stokkhólmi í gær. FERÐAMENN, sem hingað hafa komið fi'á Austurríki, skýra frá því, að þar sje mik- ið talað um nýja risaflugvjei, sem Þjóðverjar sjeu að láta smíða og er hún nefnd „New York“ vjel, þar sem hún á að géta flogið frá Þýskalandi til New York með sprengjufarm. Ferðamenn þessir segja, að þessi flugvjelategund hafi ver- ið smíðuð í þeim tilgangi að gera loftárásir á innrásarlið bandamanna á Englandsströnd um, áður en það leggiir vfir Ermarsund til árása á megin- landið. Það fylgir þessari fregn, að Schwechat flugvjelaverksmiðj urnar hjá Vinarborg hafi framleitt mikið af þessum nýju sprengjuflugvjelum. Það er sagt, að flugvellir í Austurríki, sem hafa verið stækkaðir mjög undanfarin ár, sjeu þaktir af þessum nýju risaflugvjelum. Ennfremur er sagt, að Aspern- flugvöllurinn við Vínarborg sje fjórum sinnum stærri nú en hann var fyrir stríð. Roosevelt flytur ræðu á ínorgun ROOSEVELT forseti mun flytja ræðq á morgun, er full- trúum frönsku þjóðfrelsisnefnd arinnar verður afhentur nýr tundurspillir, sem bygður hef- ir verið í skipasmíðastöð í Bandaríkjunum. Það er búist við, að forset- inn noti þetta tækifæri til að lýsa yfir því, að Bandaríkja- stjórn viðurkenni Þjóðfrelsis- nefndina sem lögmæta stjórn Frakka og ennfremuiv er búist við að um leið verði skýrt frá diplomatiskum fulltrúaskiftum milli Bandarikjanna og Þjóð- freisisnefndarinnar. í herstjórnartilkynningu, sem ameríska herstjórnin í London gaf út seint í kvöld um árás- ina, segir, að skotnar hafi ver- ið niður að minsta kosti 84 þýskar orustuflugvjelar, þar af skutu flugvirkin sjálf niður 29. Bandaríkjamenn segjast hafa mist 29 stórar sprengjuflugvjel ar og 8 orustuflugvjelar í bar- dögum. Barist í 8 km. hæð. Þýsku orustuflugvjelarnar rjeðust á þær amerísku undir eins og hinar síðarnefndu flugu inn yfir strönd megin- landsins. Sendu Þjóðverjar gegn þeim allar tegundir or- ustuflugvjela, Focke-Wulf, Messerschmitt og Junkers rak- ettuflugvjelar. Voru háðir loftbardagar í 8 km. hæð, þar sem frostið var alt að 40 stig. Mikil loftárás. Þrátt fyrir hina ákveðnu mótspyrnu þýsku orustuflúg- vjelanpa var loftárás flugvirkj anna á Brunswick mjög hörð og mikil. Ber öllum áhöfnum amerísku flugvjelanna saman um, að griðarleg eyðilegging hafi orðið í borginni. Einn hinna amerísku flugmanna ljet svo um mælt: ,,Jeg vil veðja, að jeg sá að minsta kosti þús- und elda loga í borginni“. I Brunswick eru miklar flug vjelaverksmiðjur, og er ekki nema nokkrir dagar síðan am- erískar flugvjelar rjeðust á borgina í björtu. Aðrar árásir. Amerískar Liberator flug- vjelar fóru til árása á hernað- arstaði í Hollandi í gærdag og breskar flugvjelar gerðu mikl- ar árásir á bæi í Norður- Frakklandi. Hjá París skutu bresku flug- vjelarnar niður 6 þýskar flug- vjelar. Bretar mistu 3 flugvjel- ar. Göbbels hótar. Síðasta grein Göbbels í Das Reich fjallar um loftárásir bandamanna á þýskar borgir. Segir hann, að gera megi ráð fyrir meiri árásum á Berlín og Framh. á*2. síðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.