Morgunblaðið - 12.02.1944, Blaðsíða 4
4
MORG U JST B L A Ð T Ð
Laugardagur 12. febrúar 1944
SÓLIM-Iéðurbætir
í’ramieiimm nú eftirtaldar fóðurblöndur.
„Sólar“-kúafóður fyrir
mjólkurkýr. 2 tegundir
A og B. Nú þegar hafa
margir bændur reynt
þessar fóðurblöndur og
gefið þeim ágæt meðmæli.
„Só]ar“-hænsnafóður, er
fóðurblanda ' fyrir varp-
hænur, framleidd og blönd
uð samkyæmt tilraunum,
er hafa gefið besta raun
við fóðrun varphænsna.
„Sólar“-hestafóður, fóð-
urblanda handa reiðhest-
um og áburðarhestum.
,Sólar“-svínafóður, fóður
blanda handa gyltum,
grísum og eldis-svínum.
,Sólar‘-beitarfóður, fóður-
blanda handa hrossum og
sauðfje með beit.
„Sólar“-Refafiskur
fóðurbianda handa
loðdýrum.
Ofangreindar fóðurblöndur eru blaiKÍaðai- efir leið-
sögn háskólagenginna fagmanna.
Samsetning næringarefnanna í öllum fóðurblöndun-
um er fyrst og fremst miðað við næringarefnaþarfir
dýranna.
„Sólar“-fóðurblöndur eru blandaðar úr ýmsum
komtegTindum, fiskimjöli, síldarmjöli, fóðursöltum o.
fl. af mikilii nákvæmni í fullkomnum fóðurblöndunar-
vjelum og fylgir leiðarvísir liverjum poka.
„Sólar“-fóðurblöndurnar hafa rjett næringarcfnahlut-
föll.
„Sólai-“-fóðurblöndurnar gefa mikil afköst.
— — tryggja heilbrigði.
— — venula afurðarþol.
— auka arðsemi búsins.
— — eru ódýrastar eftir gæðum.
„Sólar“fóðurblönduniar eru aðeins framleiddar hjá
H.f. riSKiMJÖL
Sími 3304. Hafnarstræti 10. Sími 3304.
7 Reykjavík.
— Fjdrhagsdætlunin
Framhald af bls. 2.
hverfum bæjarins þar sem slík
heimili eru ekki fyrir, eins og
t. d. í vestanverðu Höfðahverfi,
Laugarneshverfi og Grímsstaða
holti“.
Stríðsgróðaskatturinn.
Ennfrerhur samþ. svohljóð-
andi till. frá Sjálfstæoisflokkn-
um um stríðsgróðaskattinn:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
skorar á Álþingi að breyta lög-
gjöfinni um stríðsgróðaskatt
svo, að bæjar- og sveitarsjóðir
fái í sinn hlut verulega meiri
hluta hans en hingað til hefir
verið.“
Korpúlfsstaðir.
Sjálfstæðisflokkurinn bar
fram svohljóðandi tillögu, sem
vísað var til landbúnaðarnefnd
ar:
„Bæjarsttjórn telur, að
mjólkurframleiðslu í bæjar-
landinu beri'að koma svo fyrir
að þar verði einkum framleidd
barnamjólk og felur borgar-
stjóra og bæjarráði að gera ráð
stafarúr til að svo megi verða.
Jafnframt ákveður bæjarstjórn
að hagnýtingu Korpúlfsstaða ]
og jarðeigna bæjarins á Kjal-
arnesi og í Kjós, skuli við það
miðuð að þar verði einkum
framleidd barnamjólk, en tel-
ur ekki timabært að kveða nán
ar á um búrekstur þar, fyrr .
en landbúnaðarnefnd bæjar-
stjórnar, sem starfað hefir að
undirbúningi þessara mála,
hefir skilað áliti“.
Samþ. var breytingartillaga
frá Alþýðuflokknum með átta
atkv. gegn sjö, um að veita nú
þegar kr. 500 þús. til undirbún
ings búrekstrar til framleiðslu
barnamjólkur og hagnýtingar
jarðeigna bæjarins.
En um þetta mál komu fram
ályktunartillögur þessar, sem
einnig var vísað til landbún-
aðarnefndar.
Frá Sósíalistaflokknum: •
„Bæjarstjórnin samþykkir
að auka búrekstur bæjarins að
Korpúlfsstöðum, þannig, að
lönd bæjarins í Mosfellssveit
og á Kjalarnesi verði fullnýtt.
Skal einkum stefnt að því, að
framleiða barnarnjólk, enn-
fremur garðávexti, egg o. fl.
Borgarstjóra heimilast, að
fengnu samþykki bæjarráðs að
taka nauðsy-nleg lán til þessara
framkvæmda.
Bæjarstjórnin skorar á þing-
menn Reykjavíkur að stuola að
þeim breytihgum á mjólkur-
lögunum, sem nauðsynlegar
kunna að vera til þoss að bær-
inn geti selt barnamjólk“.
Og frá Árna Jónssyni:
„Bæjarstjórn ákveður, að
efnt skuli til á Korpúlfsstöðum
samyrkjubúskapar bæjarins
með alt að 40 ungum og efni-
legum bændum, þar sem fram-
leiddar sjeu úrvals framleiðslu
vörur, s. s. barna- og sjúkra-
mjólk, egg og grænmeti.
Bú þessi skili bænum fullum
vöxtum af fje því, er hann hef-
ir liggjandi í eignum, vegna
rekstursins, svo sem sköttum,
til þess að ekki sje stofnað úl
óeðlilégrar samkepni við bá
áðfa,': ér : lándbúnað stúnda í
lögsagnárumdæmi bæjarins’.
B.' ggingamál. . . ...
Á fjárhagsáætlun bæjarins
var sett upphæðin kr. 3.300.000
til bygginga. Er tilætlunin
fyrst og fremst sú, að byggja
barnaskólann á Melunum svo
fljótt sem auðið er o. fl. Sósíal-
istar fluttu breytingartillögu
við þann lið, að hækka hann í
6 miljónir. En hún var feld
með 7 atkv. gegn 4.
Samþykt var svohljóðandi
tillaga frá Alþýðuflokknum:
„Ræjarstjórnin samþykkir
að fela borgarstjóra að láta
tafarlaust fram fara athugun
á því, hvað kosta mundi að
byggja tveggja hæða steinhús
með 50—75 eins og tveggja
herbergja íbúðum ásamt eld-
húsi, er síðar gætu hentað fyrir
eldra fólk, er minkað hefir við
sig, eða og einhleypt fólk, er
slíkar íbúðir henta.
Ennfremur þessi frá Sósíal-
istaflokknum:
„Reynist eigi unt að fram-
kvæma húsbyggingar fyrir alt
það fje, sem til þess er áætlað,
skal afgangurinn lagður til
hliðar og varið til slíkra bygg-
inga síðar.“
Strætisvagnarnir.
Svohljóðandi ályktunartil-
laga frá Alþýðuflokknum var
feld með 7 atkv. gegn 7:
„Bæjarstjórnin samþykkir
að taka í sínar hendur rekstur
almenningsvagna í umdæmi
bæjarins og felur borgarstjóra
ög bæjarráði að gera ráðstaf-
ið þessa starfsemi sem allra
fyrst“.
En síðari hluti tillögunnar,
er var þessi, var samþyktur:
j „Bæjarstjórn félur borgar-
stjóra og bæjarráði að koma
upp skýlum á aðalviðkomu-
stöðum strætisvagnanna. Enn-
fremur að athuga um heppi-
legt fyrirkomulag almennings-
ferða milli Hafnarfjarðar og
Reykjavikur og sjerleyfisferða
til Þingvalla“.
Trjárækt í bænum.
Svohljóðandi tillaga fi'á
Soffíu Ingvarsdóttur, var sam-
þykt með samhljóða atkvæð-
um:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
samþykkir að verja af óvissum j
úttgjöldum bæjarins 20 þús.
til að efla trjárækt til skjóls
og prýðis í bænum. Skal leit-
að til skólastjóra barna og ung
lingaskólanna í Reykjavík um
að fá ungmenni til að gróður-
setja trjáplöntur í skemtigörð-
um, torgum, við opinberar
byggingar og víðar. ■— Unnið
skál að þessu í sambandi við
garðyrkjuráðunaut bæjarins
og Skógræktarfjelag íslands.“
Kvikmyndahúsin.
Tillaga frá Árna Jónssyni um
kvikmyndahúsin var samþykt
með 8 atkvæðum:
„Bæjarstjórn ályktar að
kjósa 5 manna nefnd til að at-
huga, með sjerstöku tilliti til
reynslu Háskólans af rekstri
kvikmyndahúss, hvort tekjur
bæjarins af rekstri kvikmynda
húsa í eigu einstakra manna
sjeu hæfilegar.
Jafnframt sje nefndinni fal-
ið að athjuga, hvort allri að-
göpgumiðasölu að kv.ikmynda-
húsum bæjarins ;sje ekki best
íyrir komið.í höjndum fulltrúa.
bæjarins".
Vísað til bæjarráðs.
Ýmsum ályktunum, flokka
og einstakra bæjarfulltrúa var
vísað til bæjarráðs. M.a. þess-
um:
Frá Jóni A. Pjeturssyni og
Haraldi Guðmundssyni um að
rannsókn fari fram á því, hvern
ig hagnýta skuli lóð Hótel ís-
lands.
Frá Sósíalistaflokknum um
að stofnuð verði útlánadeild
Alþýðubókasafnsins í Laugar-
nesskólanum, og að komið
verði upp vinnustofu fyrir
öryrkja, en slíka stófu hefir
bærinn rekið undanfarin ár, þó
i smáum stíl sje.
Tillögu frá frú Soffíu Ing-
varsdóttur, svohljóðandi, var
vísað til bæjarráðs:
„Bæjarstjórn felur bórgar-
stjóra að láta athuga á hvern
hátt megi sem best hagnýta
írárenslishitaveituvatn ’ til áuk
innar grænmetisræktunar við
hús. Og ennfremur að bæjar-
búar, er vildu koma sjer upp
gróðurhúsum í sambandi við
frárenslið, fái til þess leiðbein-
ingar hjá sjerfróðum garð-
yrkjuráðunaut bæjarins“.
IViinning
í DAG verður til moldar bor
inn að Kotströnd í Ölfusi
Sveinn Steindórsson frá Hvera
gerði.
Fleiri en mig, sem rita þess-
ar línur, mun hafa sett hljóða
þegar sú sorglega fregn barst
út, að Sveinn Steindórsson
hefði látið lífið í hinum geig-
vænlega bruna aðfaranótt 3.
þ. m.
Sveinn var talsvert óvana-
legur ungur maður. Jeg hefi
víða farið og þar af leiðandi
kynst mörgum og margskonar
mönnum, en jeg hefi naumast
kynst hugljúfari manni í sam-
vistum og umgengni allri en
honum. Sveinn sál. var frekar
dulur maður og flíkaði ekki tii-
finningum sínum við hvern sem
var, þótt hann ætti stundum
við ýmsa örðugleika að etja,
ekki síst vegna fjárskorts í
sambandi við fyrirætlanir sín-
ar og framkvæmdir. En Sveini
varð vel til vina og þeir, sem
þektu dugnað hans, drengskap
og ósjerhlífni, veigruðu sjer þá
heldur ekki við að uppör'a
hann með aðstoð sinni á marg-
an hátt og gleðjast með ho.ium
yfir góðum árangri. Það v r
einmitt nú, eða fyrir rösku ári
síðan, að Sveinn, — eftir að
hafa um nokkurt slceið staðið
fýrLr jaröþýaborþn á vegum
Framh. á bls. 12.