Morgunblaðið - 13.02.1944, Side 1
31. árgangur.
34. tbl. — Sunnudagur 13. febrúar 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Stórfeldir hrakningar fiskibáta
__ ••
Einn bdtur sekkur — Oðrum hvolfir
Maður drukna
*
Ottast um tvo Eyjabáta
a
SUÐVESTAN ofsaveður gerði skyndilega
Snður- og Vesturlandi í gærmorgun. Vöru þá allir
bátar úr verstöðvunum á sjó og hreptu mestu hrakn-
inga. — Einn Bátur söklc, en mannbjörg. — Öðrum
hvoldi og druknaði einn maður. — Nokkra báta
vantaði í gærkvöldi. — Feikna veiðarfæratjón hjá
flestum bátum.
Mb „Ægir“ hvolfir
MB. ÆGIR GK. 8, frá
Gerðum, hvolfdi í gær. Af
5 manna áhöfn björguðust
allir nema einn, Sigurður
Björnsson, frá Geirlandi í
Sándgerði.
Er báturinn var staddur
undan Garðsskaga reið brot
sjór yfir hann. Þrír skip-
vérjar voru þá niðri í lúkar,
en skipstjórinn og Sigurður
í stýrishúsi. Brotnaði alt of
ahþilja, stýrishús og möst-
ur, en bátnum hvolfdi, en
rjettir vi”ð aftur, eða rjett-
ara fór eina veltu. Sigurð
skolaði út, þegar aldan reið
vfir skipið, en skipstjórinn
festist undir plánka, er var
á dekkinu. Koma nú hinir
þrír, sem í lúkarnum voru
upp, en í þeim svifum bar
þar að mb „Jón Pinnsson“
frá Garði. Nær hann sam-
bandi við skipverja og tókst
að bjarga þeim. Það er síð-
ast sást til „Ægis“ var, að
hann rak inn buktina í
stefnu á Akranes, en mb.
„Jón Finnssón“ fór með
mennina til Keflavíkur.
Skipstjórinn á Ægi, Þor-
lákur Skaftason, meiddist
nokkuð á öðru fæti, en hina
sakaði ekki. Skipstjórinn á
mb „Jóni Finnssyni“ er Þor
steinn Jóhannesson frá
Gauksstöðum í Garði.
Sigurður var maður um
þrítugt, kvongaður, lætur
eftir sig konu og þrjú börn.
Akranesbátar.
Akurnesingar voru á báð-
mn áttuin um það hvort róa
skyldi í fyrrakvöld. Mótorbát-
arjiir á Akranesi róa venju-
iega um lágnættið um þetta
]eyti árs, en vegna ískyggilegs
veðurútlits drógst það til ki.
2 í fyrrinótt að fara í róður,
en þá rjeru flestir. Um kl.
5,80 voru bátarnir búnir að
Jeggja línuna.
Htrax um. nóttina fór að
livossíi og um morguninn kl.-8
Framh. á bls. 12
Njáll Þórðarson-
skipstjóri á m.b. Fylki, bjargaði
áhöfninni á m.b. Birni II. Njáll
er kunnur dugnaðar- og afla-
maður bæði á þorsk og síld-
veiðum. Hann var um skeið
stýrimaður hjá Bjarna heitn-
um Ólafssyni á línuveiðaranum
Ólafi Bjarnasyni.
a megin-
London í gærkveldi.
í,iberators sprengjuflug'vjel-
ar, varðar amerískum orustu-
flugvjelum, gerðu í dag árásir
á hernaöarstöðvar óvinanna á
meginlandinu. Engra þýskra
orustuflugvjela varð vart og
komu allar sprengjuflugvjel-
arnar aftur til stöðva sinna.
Síðar i dag gerðu Mosquito-
sprengjuflugvjelar árásir á
í hernaðarstaði í Norður-Frakk-
landi. —Reuter
I _
Hjálp til bágstaddra
í Helsingfors.
MARGIR eiga nú um sárt að
binda í Helsingfors, eftir síð-
ustu loftárásir Rússa á borg-
,ina. Hefir verið hafin fjár-
söfnun til hjálpar hinu bág-
stadda fólki .og hafa margir
látið stórar upphæði af hendi
rakna.
Samkomulag á
Alþingi um
skilnaðarmálið?
UNDANFARIÐ hafa á Alþingi átt sjer stað
sainkomulagsumleitanir milli allra flokka um af-
greiðslu skilnaðarmálsins. Ekki er enn kunnur
árangur af þessum tilraunum, en talið er líklegt,
að samvinnugrundvöllur náist, er allir geti við un-
að og tryggir greiðan framgang málsins, eins og
til liefir verið ætlast. '
I sambandi við afgreiðslu lýðveldisstjórnar-
skrárinnar er áformað af þeim flokkum á Alþingi,
sem staðið hafa að málinu, að bera fram hið fyrsta
tillögu til þingsályktunar um kosning nefndar til
þess að undirbúa hátíðahöld 17. júní næstkomandi,
er hin nýja stjórnarskrá tekur gildi.
Finnar vilja íriðc en
ekki á kostnað
siálfstæðis landsins
Stokkhólmi í gærkvöldi.
ERKO, hinn finski stjórn-
málamaður flutti ræðu hjer í
dag', og ræddi um viðhorf Finna
til styrjaldarinnar. Sagði hann
í ræðu sinni, að Finnar vildu
allir sem einn, frið, en settu
líka allir sem einn það skilyrði
fyrir friði, að landið hjeldi
sjálfstæði sínu og sjálfsákvörð-
unarrjetti óskprtum, og rjeði
sjálft sambúð sinni við aðrar
þjóðir, en finska þjóðin vildi
gjarna friðsamlegt samstarf við
hvaða þjóð, sem vera skyldi, á
þeim grundvelli, að fullveldi
Finna og sjálfstæði væri hvergi
skert. —Reuter.
Bandamenn öruggir um sigut
Norðmenn reknir í
nauðungarvinnu
Frá norska blaða-
fulltrúanum.
ÞRJÁ DAGA í röð í síðustu
viku gerði lögreglan í Osló ít-
arlega og ákafa leit í veitinga-
stofum borgarinnar og tók þar
fasta um 100 menn. Allir voru
þeir síðan sendir í nauðungar-
vinnu til þýskra herstöðva í
Norður-Noregi.
Einn daginn lokaði lögregl-
an nokkrum helstu umferðar-
götum Oslóar, og heimtaðí
vegabrjef og önnur persónu-
leg skjöl af öllum, er lögðu leið
sína Um götur þessar, til þess
að komast að því, hvort meðal
þeirra væru nokkrir þeir, er
hefðu svikist um að gefa sig
fram til nauðungarvinnu, sem
er nefnd hinu milda nafna
„þjóðleg vinnuhlutdeild“.
íslendinqur drukn-
Churchill sendir út til-
kynningu um bardaga
á landgöngusvæðinu
London í gærkvöld: — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
CHURCHILL forsætisráðherra sendi út tilkynningu
frá Downing Street nr. 10, um 6 leytið í kvöld. Þar segir
Churchill, að hann hafi fengið skeyti frá herforingjunum
Wilson og Alexander og fullvissi þeir hann báðir xim, að
bandamenn muni vinna sigur í orustunni um Róm. —•
Bandamenn hafi yfirhöndina. Þeir hafi yfirráð í lofti og
ennfremur hafi þeir fleiri skriðdreka og meira stórskota-
lið, en Þjóðverjar.
• Slæmt veður hafi að vísu
tafið hernaðaraðgerðir, en
það hafi verið notað til að
flytja meira herlið og her-
gögn til landgöngusvæðisins
við Anzio. Það sje því ekki
hin minsta ástæða til svart-
ar i
í Néw York
ÞAÐ SLYS vildi til í höfn-
inni í New York, síðastliðið
fimtudagskvöld, að íslenskur
sjómaður, Konráð Guðmunds-
son, kyndari á Dettifossi, fjell
í sjóinn og drukknaði. Konráð
heitinn lætur eftir sig ekkju og
tvö ung' börn. Heimili hans er
á Skeggjagötu 6.
Eimskipafjelagi íslands barst
skeyti um slys þetta í gærdag.
Stokkhólmi í gærkv.
ÞJÓÐVERJAR hafa hand-
tekið marga járnbrautarverka-
menn í Næsteved í Danmörku
vegna skemdarverka, er unn-
in hafa verið á járnbrautinni
þar.
í Kolding hafa fimm ménn
verið handteknir í sambandi
við skemdarverk, sem unnin
hafa verið þar í borg. — Meðal
hinna handteknu var einn veit
ingamaður.
í Álaborg varð sprenging í
gær og eyðilagðist skip í höfn-
svm.
Veður fer batnandi.
Frjettaritarar í Ítalíu
síma í kvöld, að í dag hafi
sólin komið fram á milli
grárra skýjaþykknanna í
fyrsta sinn í marga daga.
Sje útlit fyrir að veður fari
batnandi á vígstöðvunum
og þurfi þá ekki að efast um
að þegar slái í harða bar-
daga.
Veður hefir verið svo
slæmt, stð ekki hefir verið
hægt að fljúga yfir vígstöðv
Fraxnh. á 2. síðu.