Morgunblaðið - 04.03.1944, Síða 1
31. árgangur.
50. tbl. — Laugardagur 4. mars 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Stórskotahríð um nótt
■ Stórskotaliðinu hefir verið beitt mjög mikið á ItaJíuvíg-
■stöðvunum að undanförnu, bæði um nætur og daga. Er oft
svo, að sókn er undirbúin með mikilli stórskotahríð ura nótt,
og er myndin hjer að ofan tekin meðan slík skothríð stóð yfir
Fyrstu amerísku flugvfel-
arnar yfir Berlín
Bretar nota nú fimm
smálesta sprengjur
Rússar sækja
Narvaflióti
Klukkunni flýlt
næstu nólt
KLUKKUNNI verður flýtt
næstu nótt um eina klukku-
stund. í reglugerð um tímareikn
ing hjer á landi, segir svo, að
fyrsta sunnudag í mars skuli
flýta klukkunni um eina
klukkustund, verður þá svo-
nefndur sumartími hjer á landi.
Klukkunni skal flýta þannig,
að þegar hún er 1 aðfaranótt
sunnudags, á að færa hana fram
til klukkan 2.
Best er að flýta klukkunni
áður en menn ganga til svefns
í kvöld.
Fjórburar fæðast
í Bretlandi.
London í gærkveldi.
í DAG eignaðist kona her-
manns eins í Vestur-Bretlandi
fjórbura, tvær stúlkur og tvo
drengi og líður öllum vel.
Vinna hatin við
Krýsuvíkurveginn
VINNA við Krýsuvíkur-
veginn hófst fyrir um það bil
viku síðan ,
Ilei’ir verið gerður samn-
ingur við Ilafnarfjarðarkaup-
stað um að kaupstaðuriim taki
verkið að sjer í ákvæðisvhmu.
-— Vinnuflokkurinn hóf vinn-
una við Kleifarvatn.
Sænsk-danskur
viðskiptasamningur.
Stokkhólmi í gaervkeldi: —
Hjer hefir verið undirritaður
viðskiptasamningur milli Svía
og Dana fyrir fyrri helming
þessa árs. Nemur viðskiptaupp
hæðin á því tímabili als 33
miljónum króna. Útflutningur
frá Danmörku til Svíþjóðar
nemur 19.5 milj. króna á þessu
tímabili.
Ekkert gengur saman
með Finnum og
Rússum
Stokkhólmi í gærkveldi.
Miklu fleiri af blöðum Finna
hafa í dag kveðið upp dóma
sína um friðarskilmála Rússa,
og eru þau öll á einu máli um
það, að samningarnir sjeu óað-
gengilegir og yfirleitt er á öll-
um frá Finnlandi að heyra, að
litlar líkur sjeu til þess að verði
af samningum. Ekki hefir sendi
nefnd enn farið til Moskva frá
Finnum, að því er vitað sje.
Finska þingið hjelt fund í
dag, en ekki voru rædd þar
nema ómerk mál og ekkert á
íriðarsámningana minst. Voru
nokkur frumvörp afgreidd sem
lög.
Að afstöðnum fundi þessum
var tilkynnt, að næsti þing-
fundur yrði á þriðjudaginn
næstkomandi.
Til Haparanda í Svíþjóð
komu 500 finsk börn, sem
Svíar taka til dvalar um nokk-
urn tíma, en Svíar taka nú mik
ið af finskum börnum til
dvalar.
Fregnritarar segja, að liklegt
sje, að Rússar hefji sókn á
hendur Finnum', ef ekki gangi
saman með þeim um friðar-
samningana að þessu sinni.
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunhlaðsins
í herstjórnartilkynningu
Rússa í kvöld segir, að rúss-
nesku herirnir, sem komnir
sjeu yfir Narvafljótið, ha'fi get-
að fært út kvíarnar og bætt að-
stöðu sína allmikið.
Ennfremur segjast Rússar
enn hafa sótt nokkuð fram í
áttina til Pskov og tekið þar
allmörg þoi-p. Þá kveðast Rúss
ar hafa sótt fram í áttina til
borgarinnar Ostrow og tekið á
þeim slóðum 6 þorp og tvær
j árnbrautarstöðvar.
A öðrúm vígstöðvum hefir
ekki verið barist neitt að ráði,
að sögn Rússa, enda segja fregn
ir frjettaritara, að þýðviðri sjeu
nú mikil á suðurvígstöðvunum,
og vatnsagi hvarvetna.
Þjóðverjar segjast hafa gert
miklar loftárásir á bæinn
Shepetowka og gert usla í her-
skörum Rússa þar. Fyrir suð-
austan Vitebsk segjast Þjóð-
verjar hafa eyðilagt 16 rúss-
neska skriðdreka í hörðum bar-
dögum.
Breska þingið vill
hækka kaup
hermanna
London í gærkveldi.
Einhverjar harðvítugustu og
lengstu deilur, sem lengi hafa
verið háðar í neðri málstofu
breska þingsins, stóðu í dag, er
rætt var um tillögu um að
hækka kaup hermanna, og voru
því nær allir deildarmenn á
móti ríkisstjórninni í þessu
efni, en hún vildi ekki að kaup
ið væri hækkað.
Þingmönnum þeim, sem tóku
til máls gegn stjórninni, fanst
sjálfsagt, að hermenn bæru
jafnmikið úr býtum og iðnáðar-
menn yfirleitt.
Kauphækkunartillagan var
þannig, að kona hvers her-
manns skyldi fá 35 shillinga á
viku og hvert barn 12 shillinga.
— Hermálaráðherrann kvað
slíka hækkun, sem gert var ráð
fyrir í tillögunni, baka ríkis-
sjóði alt of mikil útgjöld.
Flestir ræðumenn tóku það
fram, að þeir væru ákveðnir í
að sjá um það, að hermenn
hefðu ekki lægra kaup, en aðr-
i ir þeir, sem störfuðu í þágu
föðurlandsins.
London í gærkvöldi. — Einkaskoyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
í dag flugu fyrstu amerísku flugvjelarnar yfir Berlín-
arborg. Þar voru orustuflugvjelar, sem fóru í ferð yfir
borgina, á meðan sprengjuflugvjelar, sem þær voru að
fylgja, rjeðust á ýms skotmörk í norður og vestur Þýska-
landi.
Nú eru Bretar byrjaðir að nota sprengjur, sem vega
meira en fimm smálestir og var tilkynt, að þessar sprengj-
ur hefðu verið notaðar í árásum á franskar flugvjela-
verksmiðjur í norður og mið-Frakklandi í nótt sem leið.
Rússar fá
ítölsk herskip
London í gærkveldi. — Roose
velt forseti hefir sagt frá því,
að verið sje að semja um það,
að Rússar fái allmikið af hin-
um ítölsku herskipum, sem eru
á valdi bandamanna, eða um
1/3 þessara skipa, en sagt er
að þetta sje gert vegna þess að
Italir hafi raunverulega gefist
upp fyxúr Bretum, Bandaríkja-
mönnum og Rússum, og beri
því Rússum hluti af flota ítala.
Ekki er vitað, hvar Rússar nota
skip þessi, þar sem þau komast
hvorki inn í Svartahaf eða
Eystrasalt. — Reuter.
Orustum aftur siotað
við Anzio
London í gæi'kveldi.
SÓIvN Þjóðverja við Anzio
er nú aftur hætt, og hefir ekki
verið mikið barist á landgöngu
svæðinu í dag', en bandamenn:
beittu stórum sprengjuflug-
vjelum til árása á samgöngu-
leiðir Þjóðverja að baki víg-
stöðva þeirra. Var meðal*ann-
ara staða ráðist á járnbraut-
arstöðvar í Rómaborg.
óstaðfestar fregnir segja í
kvöld, að bandamenn bafi
hafið gagnsókn á Anziosvæð-
inu, og' sjeu bardagar aftur
orðnir miklir. — Reuter.
Tveim skipum sökt.
London í gærkveldi. — Kana
diskai' flugvjelar sem voi'u í
könnunarflugi, rjeðust í dag á
tvö þýsk skip, vopnuð, út af
Cherbourgh í Frakklandi. Urðu
skipin fyrir tjóni og er jafnvel
búist við að þau hafi bæði eyði-
lagst. — Reuter.
Enn er ekki fullkunnugt um
árásir amerískra orustuflug-
vjela á Berlín í dag, nje heldur
árangur þann, sem varð af árás
sprengjuflugvjelanna á skot-
mörk þeirra, nje hver þau væru
Þó er vitað að það voru Light-
ing-flugvjelar, sem flugu yfir
Berlín, og að 16 flugvjelar fór-
ust.
Næturárásin.
Það er orðið langt síðan að
Bretar sendu hinar stóru
sprengjuflugvjel sínar til árása
á skotmörk í Frakklandi. í nótt
sem leið, fóru þær í tveim hóp-
um, annar rjeáist á flugvjela-
smiðju við Albert, en hinn hóp-
urinn heimsótti verksmiðjur
fyrir flugvjelahreyfla, nokkru
fyrir sunnan París. Var varp-
að 5 smálesta sprengjum á þær
stöðvar og varð eyðilegging
mjög mikil að sögn flugmanna.
Ekki hefir lint árásum á
hernaðarstöðvar Norður-Frakk
lands í dag og hafa aðalléga
Marauder-flúgvjelar og orustu-
flugvjelar fjölmargar, tekið
þátt í þeim. Engar þýskar or-
ustuflugvjela varð vart þarna.
Þjóðverjar hafa
miljónir varaliðs
— segrir Laval.
London í gærkveldi.
Laval hjelt ræðu í dag og tal
aði aðallega um það, að ekki
væri hægt að sigra þýska her-
inn. Sagði hann að Þjóðverjar
berðust ,,fyrir framtíð Italíu á
framandi grund“.
Ennfremur sagði Laval: „Það
er ekki hægt að sigra Þjóðverja
vegna þess, að þeir hafa milj-'
ónamanna varalið, reiðubúið til
þess að berjast, hvar sem er
og hvenær sem er.
' Sagði Laval, að Frökkum
bæri að koma Þjóðverjum til
hjálpar með öllum þeim ráðum,
er þeir mættu, ef bandamenn
rjeðust til innrásar.