Morgunblaðið - 14.04.1944, Side 12
12
Föstudagnr 14. apríl 1944'
Isltækur vici-
skiftasamningur
milli Hiorðmanna
og Svía
Frá norska 'olaðafulHrú-
anum: —
FRÁ LONDON er símað, að
utanrikismálfiráðuneytið norska
hafi tilkynt eftirfarandi:
„Tryggvi Lie og ssénski
sendiherrann hjá norsku stjórn
inni, Beck-Friis fríherra, hafa
í dag undirritað samning milli
norsku stjórnarinr.ar og sænsku
stjórnarinnar um fyrirkomulag
á greiðslum í sambandi við það,
sem Svíar ætla að láta Norð-
menn hafa af vörum til endur-
reisr.arstarfseminnar i Noregi
að ófriðnum loknúm.
Ennfremur heíir verið gert
samkomulag um að taka upp
viðræður um fjárhagsleg at-
riði, sem þessi tvö ríki varða‘\
Nefnd, skipuð fulltrúum frá
Svíum og Norðmönnum, hefir
unnið að því um hríð, að rann
saka á hvern hátt Svíar geti
orðið Norðmönnum að sem
mestu liði með að láta þá fá
vörur eftir að ófriðnum lýkur.
Svíar munu láta Norðmönnum
í tje matvæli og aðrar vörur,
sem Norðmepn vanhagar mest.
Um leið hafa staðið yfir samn
ingai- um fjárhagslega hlið
þfiása máls og hafa náðst samn
ingar um að Norðmenn fái lán
til vörukaupanna í Svíþjóð. —
Norðmenn munu taka lán í
sænskum krónum til að greiða
með þær vörur, er þeir eiga að
fá.
Fyrir utan matvæli ætla
Svíar að láta Norðmenn fá
allskonar sáðvörur, járn og
stál, Ivf og margt fleira.
I samningsuppkastinu er gert
ráð. fyrir, að reynt verði að
koma öllu viðskifta og atvinnu
iífi Norðmanna í eðlilegt horf
á sem skemstum tíma. Loks er
gert ráð fyrir allv'íðtækum vöru
skiftum á grundvelli þess, sem
var fyrir stríð, og verði þá tek-
ið tillit til þarfa og framleiðslu
möguleika beggja þjóða,
fnnlán í bankana
|ufíusl í febrúarm.
um 2.2 mifj. kr.
ínnlán í bankana jukust í
febrúarmánuði um 2.2 milj.
króna, en þau námu samtals
539,308 milj. kr. — Útlán námu
191.979 milj. króna. Höfðu þau
aukist um 1.4 milj. kr.
Á sama tíma í fyrra námu
innlögin 3-63.80G milj. kr. og
útgjöldin 174.840 milj. króna.
Bðrnasöfnunin
170 þús. krónur
SÖFNUN tii harna á Norð-
urlöndum gerrgur rnjög. að
óskum. Jíefir sÖfnunarnefnd
nú borist nokkrir söfunarlist-
ar utan af landi og er hún nú
kornin upp í nærr; 170 þús.
krðnur.
Innrásarforingjar horfa á bormenn sína
EKKI GERA BANDAMENN innrás sína á meginlandið er.nþá. En fregnir herma að þeir
hafi mikinn viðbúnað. Hjer á myndinni sjást þrír yfirforingjar innrásarinnar. Liðsforingi
bendir þeim á hermenn, sem eru að æfingum. Innrásarforingjarnir eru, (talið frá vinstri);
Sir Arthur Tedder flugmarskálkur, aðstoðaryfirforingi innrásarhersins, Dvvight D. Eisen-
hovver, ylirhershöfðingi, og Be nar.d L. ðlonígomery, yfirmaður breska innrásarhersins.
*
Islensku togararnir seldu
97 miljónir síðastliðið
fyrir
ár
Júpíter var hæstur með 5
miijón kr. sölur í 13 ferðum
Innstæöur bankanna
erlendis 458.5 milj.
krénur
ÍSLENSKU TOGARARNIR, 33 að tölu, sel'du á s. 1. ári ísfisk
í Englandi fyrir 3,702,537 sterlingspund, eða tæplega 97 miljón
krónur. Meðalsölur í ferðum skipanna voru alt frá rúmjega
5 þúsund sterlingspund upp í 15,000. — Aflahæsta skip flotans
og það skipið, sem seldi hæst, vrar Júpíter, sem seldi fyrir
samtals 195.554 stpd. (tæplega 5 miljón kr.), í 13 ferðum. Júpíter
var einnig hæstur árið 1942.
Fer hjer á eftir listi yfir heild
arsölur íslensku togaranna árið
1943. Er listi þessi birtur í sjó-
mannablaðinu ,,Víkingur“. Töl-
urnar I svigum eru ferðirnar,
sem skipin hafa farið. Upphæð
irnar eru sterlingspund:
Júpíter (13)
Venus (13)
Gulltoppur (13)
Skallagrímur (11)
Þórólfur (11)
Helgafell (13)
Arinbjörn hersir (12)
Gyllir (12)
Maí (12)
Belgaum (11)
Max Pemberton (12)
Baldur (12)
Júní (12)
Snorri goði (11)
Hafstein (11)
Gylfi (10)
Karlsefni (12)
Surprise (11)
Kári (11)
Haukanes (11)
Egill Sk.grímsson (10)
Skutull (10)
Óli Garða (9)
Hilmir (10)
Sindri (12)
Geir (11)
Tryggvi gamli (9)
Vörður (7)
Rán (8)
Þorfinnur (7)
Garðar (3)
Ólafur Bjarnason (5)
íslendingur (3)
195.554
192.827
164.986
155.138
152.304
140.013
137.833
132.581
132.326
131.557
130.386
129.039
128.450
125.770
123.275
121.202
120.439
118.719
113.193
112.996
104.970
100.758
98.902
93.394
92.693
89.391
85.850
76.084
58.300
54.859
49.527
28.952
21.299
Nokkrir af togurunum eða
Gylfi, Vörður og Júpíter, fóru
nokkra „skraptúra“ á árinu, en
ekki er blaðinu kunnugt um
afla þeirra yfir þann tima, og
er því ekki hjer með talið.
Togarinn Júpíter, sem var
hæstur í aflasölum i fyrra, hef
ir aftur á þessu ári orðið hæst-
ur í sölu. Skipstjóri er Bjarni
Ingimarsson, en útgerðarmaður
Tryggvi Ófeigsson. í fyrra seldi
skipið fyrir samtals 184.061
stpd., fór þá 14 ferðir
„Svívirðilegur
áróSur"
WASHINGTON í gærkveldi:
Cordell Hull utanríkismála-
ráðherra sagði á fundi, sem
hann hafði með blaðamönnum
í dag, að ,,það væri svívirðileg
ur áróður að gefa í skyn, eða
hvetja Brcta og Bandaríkja-
menn, að ganga í lið með Hitler
gegn Rússum“.
Þetta var svar ráðherrans við
spurningu eins blaðamannanna
vegna áskorunar, sem lesin var
í útvarpið í Valladolid á Spáni
og þar sem „allar siðaðar þjóð-
ir voru hvattar til að samein-
ast gegn bolsivikka-hættunni".
Hull sagði að hver, sem hefði
átt upptökin að þessari áskor-
un hlyti að gera sjer Ijóst að
hann væri að vinna svívirðilegt
verk. — Reuter.
SAMKVÆMT nýútkomnum
Hagtiðindum námu innstæður
bankanna erlendis, í lok febr-
mánaðar samtals 458.570 milj..
Innstæður höfðu aukist í mán-
uðinum um 46 þús. krónur, en
jan.—febr. þ. á. er aukningin
alls 11.9 milj. kr.
Á sama tíma í fyrra, eða í
lok febrúarmánaðar 1943, námu
innstæður í bönkum erlendis
265.680 milj. kióna.
Veðrið fer bafnandi
r
á ffalíu
LONDON í gær: —■ Fi'jetta-
ritarar, sem eru með hersveit-
um bandamanna á Ítalíu, segja
að nú sje veður farið að skána
mjög á vígstöðvunum þar og
sje það ekki vonum fyrr. Snjó
hefir tekið upp í fjöllunum og
það er ekki óalgeng sjón að sjá
hermenn bera að beltisstað. En
hermennirnir munu ekki
gleyma hinum harða vetri á
Ítalíu, sem þeir líkja meira við
hugmyndir þeirra um Norður-
pólinn, en sólríkt Miðjarðar-
hafsland.
Ekki hefir komið til neinna
stórátaka á ný á Ítalíuvígstöðv-
unum. Þjóðverjar gerðu eina
tilraun til gagnsóknar á víg-
stöðvum 8. hersins í gær, en
þeir voru brátt hraktir aftur
til fyrri stöðva sinna.
Wallace lil Chunking.
Washington: — Tilkynt hefir
verið, að Wallace, varaforseti
Bandaríkjanna muni bráðlega
takast á hendur ferð til Chun-
king og heimsækja þar Chang
Kai Shek. — Reuter.
Maður finnst
örendur
í fyrrakvöld fanst örendur
maður á Hótel Heklu. — Mað-
ur þessi reyndist vera Sighvat-
ur Jónsson.
Það vora börn, er fundu
hann. Voru þau að leik fyrir
utan herbergi hans, en hann bjó
á herbergi nr. 16, sem er á efstu
hæð hótelsins. Hafði hann lagst
fyrir, en yfir sig hafði hann
breitt jakka sinn, og mun hann
hafa látist í svefni.
Sighvatur Jónsson var um
margra ára skeið bifreiðarstjóri
hjá Matthíasi Einarssyni, lækni
„Varðbergs"-menn
hvetja til þjóðar-
einingar í skiln-
aðarmáiinu
SVO SEM kunnugt er, hóf-
ust nokkrir menn handa í vet-
ur og gáfu út blaðið „Varð-
berg“, sem átti að vinna gegn
þeirri lausn skilnaðarmálsins,
sem Alþingi stefndi að; nefndu
þeir sig „lögskilnaðarmenn“.
Eftir að samkomulagið náðist
á Alþingi um lausn skilnaðar-
málsins, hætti blaðið „Varð-
berg“ að koma út. Benti það
til þess, að þessir óánægðu
menn myndu nú verða með.
Hinn 11. þ. m. hjeldu ,,lög-
skilnaðarmenn" fund í Kaup-
þingssalnum og gerðu þar álykt
un í skilnaðarmálinu, sem þeir
sendu blöðunum. Hvetja þeir
alla íslendinga til þess að sam-
þykkja niðurfelling sambands-
laganna, „til þcss að sú þjóð-
areining, sem ávalt hefir ríkt
um lokatakmarkið, komi seni
skýrast í ljós“, eins og segir í
ályktun þeirra.
Ætli með þessu að vera feng
in fullkomin þjóðareining um
lausn skilnaðarmálsins. Að vísu
er Alþýðublaðið byrjað að
grafa upp úr tímariti gamlar
skætingsgreinar, sem mjög
stinga í stúf við þá allsherjar
sameiningu, sem nú er unnið
að. En vonandi ber ekki að
skilja þetta þannig, að Alþýðu-
blaðið ætli að svíkja samkomu
lagið, sem gert var á Alþingi.
Vörubifreiðar
keypiar fil landsins
VIÐSKIFTAEÁÐ liefir festi
kaup á nokkrum vörubifreið-i
tnn. — Eru bifreiðar þessar,
af stærðinni Yí til 2 smálesta,
og verða Jiær væntanlega fluttl
ai' til landsins í vor og' sumar,
Oiert er ráð fyrir að bif-
reiðarnar fari til Jieirra slaða.
á landinu, þar sem mest nauð-
syn er að bæta úr brýnnij
flutniugaþörf og endurnýjui\
eldri Ijifi'eiða.
Dánarfregn
SÍRA JÓN ÁRNASON, fyrr-
um prestur i Bíldudal, aridað-
ist að heimili sínu þann 12.
þ. m.