Morgunblaðið - 20.06.1944, Síða 1
Bandaríkjamenn i skotfæri við Cherbourg
Börnin í skrúðgöngunni
FREMSTU RAÐIR barnafylkingarinnar þ. 18. júní koma yfir Tjarnarbrú inn á Fríkirkjuveg.^
Litlu stúlkurnar margar í þjóðbúningum. (Ljósmynd: Jón Sen).
llnyir Sjálfstæðismenn heiira
formann Sjálfstæðisflokksins
HEIMDALLUR, fjelag ungra Sj álfstæðismanna í Reykja-
vík, hjelt lýðveldisfagnað í Tjarnarkafé á sunnudagskvöldið.
~ Mikið
fjölmenni var saman
komið, svo sem salarkynni
framast rúma.
Var hátíðarbragur á samkom
unni og augljós fögnuður unga
fólksins.
Síðar um kvöldið mættu
þarna formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Ólafur Thors, og for-
maður Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna, Jóhann Hafstein.
Formaður Heimdallar, Ludvig
Hjálmtýsson, flutti ræðu og
mintist merkisþátta í sjálfslæð-
isbaráttunni.
Að því búnu tók til máls Ól-
afur Thors, formaður Sjálfstæð
isflokksins. Ávarpaði hann
Heimdellinga, er staðið hefðu
fremstir í fylkingu unga fólks-
jns í höfuðstaðnum í sjálfstæð-
ismálinu, frá því fjelagið hóf
göngu sína. Árnaði hann fjelag-
inu allra heilla og óskaði þess,
að Sjálfstæðisflokkurinn mætti
sem lengst njóta áhuga þess og
dugnaöar í stjórnmálabarátt-
unni. Fögnuðu Heimdellingar
óspart ræðu Ólafs Thors.
Þá taiaði Jóhann Hafstein,
formaður Sambands ungra
Sjálfstæðismanna. Mintist hann
þess sjerstaklega, að enn biðu
ungra Sjálfstæðismanna mörg
og mikil störf og að framtíð ís-
lands krefðist krafta þeirra.
Framh. á bls. 5.
Ámaðarósklr frá
belgísku stjóminni
RÆÐISMANNI BELGÍU,
herra Carl Olsen stórkaup-
manni, barst að kvöldi 17. júní
þetta skeyti frá utanríkisráð-
herra belgísku stjórnarinnar í
London, Monsieur P. H. Spaak:
„Gerið svo vel að bera fram
við hæstvirtan forseta íslands
og ríkisstjórn íslenska lýðveld-
isins hjartanlegustu hamingju-
og heillaóskir belgísku stjórnar
innar í tilefni af gildistöku lýð-
veldisins. Geri svo vel að mæta
fyrir hönd belgísku stjórnarinn
ar við hátíðahöld gildistökunn-
ar“.
Því miður barst skeytið svo
seint, að eigi var hægt að lesa
það á hátíðinni. (Samkv. rfjett
frá utanríkisráðuneytinu).
Marshall á ferð um
Ítalíu.
London í gærkveldi: Marshall
yfirmaður Bandaríkjahers, sem
fyrir skemstu fór-til Norður-
Frakklands og ræddi við Mont-
gomery hershöfðingja, er nú
kominn til Ítalíuvígstöðvanna.
Rússar
í skotíœri
við Vihorg
London í gærkveldi:
RÚ$SAR segja í tilkynn-
ingu sinni, að þeir hafi nú
rofið 48 km. breitt. skarð í
Mannerheimlínuna finnsku.
Er skarð þetta alt frá sjó og
inn til bæjarins Mohla. —
Kernur í skotmál við Víborg.
Barist í návígi.
Óstaðfestar fregnir herma,
að Rússar sjeu á einum stað
komnir inn í fallbyssuskothríð'
við Viborg. Aðrar fregnir
segja, að Rússar hafi að und-
anförnu haldið uppi mörg-
um mjög grimmilegum l'oft-
árásum á Viborg, og standi
hlutar af borginni í björtu
báli. — Rússar beita í sókn
sinni gegn Finnum ógrynn-
um af skriðdrekum, flugvjel-
um og stórskotaliði’, en sókn-
inni stjórnar Govorov, sá, er
leysti Leningrad úr umsát.
Ilajm hefir nýlega. verið gerð-
ur marskálkur. —
Finnar verjast allsstaðar
vasklega og kveðast hafa
unnið Rússum allmikið tjón,
sjerstaklega á skriðdrekum og
flugvjelum. — Víða er bar-
ist í návígi og bardagarnir
1 óhemju harðir. —^Reuter.
Enn geisa orustur
við Tilly
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BANDARlKJAIIERSVEITIR ÞÆR, sem komust til
sjávar á vesturströnd Cherbourgskagans, hafia sótt fram til
norðurs í dag óg eru komnar í fallbyssuskotfæri við Cher-
bourg. Hafa þær tekið bæinn Briquebee og sækja fram í átt-
til Valonnes. Iíefir þeim orðið nokkuð ágengt í sókn sinni
norður skagann, og virðst nú svo, sem þeir hafi í hyggju:
að taka Valonnes í tangarsókn. Þjóðverjar hörfa undan til
norðurs, og er álitið að þeir muni t.aka sjer varnarstöðu í
hæðum fyrir sunnan Cherbourg. Þá herma fregnir að Þjóð-
verjar hafi enn ekki byrjað neinar samræmdar árásir að
norðan og sunnan á Bandaríkjalierina, er koinnir eru til
sjávar að vestan. Yfirráðasvæði þeirra á Skaganum nuux
vera frá 7—10 km. á breidd og er búist við að Þjóðverj-
ar geri tilraunir til þess að brjótast í gegn að sunnan.
Guðmundur Ágústs-
son „Glímukonung-
ur íslands
SÍDARI HLUTI Islands-
glímunnar fór fram í Iþrótta
húsi Jóns Þorsteinssonar í
gærkveldi. Úrslit urðu þau,
að Guðmundur Ágústsson (Á)
vann glímuna, lagði alla keppi
nauta sína að velli. Vann
hann Islandsglímubeltið og
hlaut sæmdar heitið „Glímu-
konungur Islands 1944“. Var
honum einnig dæmdur feg-
urðarglímuskjöldurinn og
sæmdarheitið „Glímusnilling-
ur Islands 1944“. Guðmundur
hlaut einnig verðlaunabikar
ríkisstjórnarinnar, sem Alex-
ander Jóhannesson prófessor
afhenli fyrir hennar hönd.
Veislur hjá sendi-
herrum íslands
erlendis
Sendiherrar Islands erlendis
hjeldu allir veislu þann 17. júní
s. 1. í tilefni af lýðveldisstofn-
uninni. Voru boðnir í þau hóf
íslendingar og erlendir gestir.
í Washington komu um 500
manns í boði hjá Thor Thors,
þar á meðal amerískir ráðherr-
ar og þingmenn.
Hjá Vilhjálmi Finsen í Stokk
hólmi voru tvö síðdegisboð. —
Hjá Pjetri Benediktssyni í
Moskva voru um 100 manns.
Stefán Þorvarðarson í London
hjelt boð í Grosvernor House
og í New York hjá Helga P.
Briem voru 270 íslendingar og
Vestur-íslendingar í veislu.
Markmiðið er
Cherbourg.
Bandamenn fara ekki dulti
með það, að markmið þeirra
með þessari sókn sinni á skag
anum sje hin mikilvæga hafn
arborg og herskipalægi Cher-
bourg sjálf. Talið er að Þjóð
verjar hafi um 25—30 þús.
manna lið þarna norður fra
og varnarskilyrði eru góð,
skaginn klettóttur, en mýrar-
fen á milli. Ekki búast banda-
menn við fið ná borginni öðru
vísi, en höfnin verði stór-
skemd, en kveða það hafa
sýnt sig, að ekki sje lengi
verið að gera við hafnir, sem
skemdar eru.
Bardagamir við
Tilly.
Enn er ekkert lát á skrið-
drekaorustunum frá Tilly og
alt austur fyrir Caen og
veitir ýmsum betur í þeim:
viðureignum. Hafa þar engar
teljandi breytingar orðið. eit
aðilar skiptst á um að haldai
hæðum og öðrum varnarstöðv
um. og er víglínjin þarna:
næsta kyrrstæð. Breskir skrið
drekar komust inn í Tilly og
urðu af götubardagar, sem’
ekki er vitað, hvernig luku.
Aftur barist nærri
nærri Carentan.
Þjóðverjar hafa aftur byrj-
að mikla stórskotahríð a
stöðvar bandamanna nærri'
Carentan, en aðrar -svritir
bandamanna hafa lent í or-
ustum við skriðd.ekasveit-
ir Þjóðverja, er þær hugðust'
að sækja fram til St. Lo. —
Munu Bandaríkjamenn nú
vera um 10 km. frá þeim bæ.
Illviðri mikil.
Veðrið í dag hefir verið
það versta. sem hefir komið
á innrásarsvæðinu, norðan*
storinur, rok, kuldi og rigu-
ing.