Morgunblaðið - 20.06.1944, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.06.1944, Qupperneq 2
t SÍÐASTA BLAÐI var skýrt írá þjóðhátíðinni á Þingvallum fram til þess tíma, er athöfn- inni var lokið að Lögbergi. En þá skyldi vera hlje til kl. 4V2. Áður en Lögbergsgangan Itófst, barst það í tal meðal for- göngumanna hátíðahaldanna, að síðari hluta þeirra, er fram skyldi fara á Völlunum fyrir neðan Fangbrekku, yrði að fresta, ef veður balnaði ekki. En sú ákvörðun var tekin, að láta engin atriði dagskrárinnar farast fyrir, sem mögulegt væri1 að framkvæma. Um það leyti, sem hinir er- Jendu sendimenn fluttu ræður gínar að Lögbergi, fór veður batnandi. rigningunni stytti npp, og vindur varð hægari. Og kl. 4 var orðið sæmilegt veð lir. Nokkur skýjaskil í vestri gáfu mönnum vonir um, að svo gæti komið, að veður yrði gott iim kvöldið. Er kominn var hinn tilsetti tími, að hátíðin byrjaði þarna, Var kominn mikill mannfjöldi umhverfis fimleikapallinn, er gerður hafði verið undir brekk unni, en mannflest var þó í brekkunni, því þaðan er gott útsýni niður yfir pallinn og vell ína. Á þessum stað er fyrirhugað að gera íþróttasvæði í fram- tíðinni, enda er hann tilvalinn fyrir íþróttasýningar. Fyrsti liður dagskrárinnar var ræða formanns þjóðhátíð- arnefndar, Alexanders Jóhann- «ssonar prófessors. En þegar til átti að taka, varð að fresta Dagskránni varð ekki framfylgt henni, vegna þess að sambands- þráður við hljóðnema hafði bil að, svo ræðum Varð ekki út- varpað þarna, fyrr en sú bilun yrði lagfærð. Lúðrasveit var'á pallinum og stjórnaði Albert Klahn henni. Ljek hún nokkur lög. Síðan skyldi Páll ísólfsson fá „þjóð- ina“ í brekkunni. En Páll ísólfssón stóð þar frammi fyrir þeim mesta þjóð- kór, sem hann enn hefir stjórn- að, þar sem öll Fangbrekkan var þakin fólki, og var hinn æfði og þjóðfrægi útvarpskór hans areifður innan um þyrp- inpuna. Hann ávarpaði mannfjöld- ann, hress í bragði, sem hans er vandi, og bað menn að taka vel undir. Þetta tókst ekki alveg upp á það besla í upphafi. En fljótt söng öll brekkan, eins og hlýðinn kór undir tilþrifamik- illi stjórn þessa vinsæla stjórn- anda. Það var lyfting í þeim söng. Aliir höfðu ánægju af að taka þátt í honum. Hjfcr var virk þátttaka almennings í því að gera stundina hátíðlega, hlý- lega, skemlilega. Eftir bvd sem fleiri lög voru sungin; dreif fleira fólk að, og settist í brekkuna, svo hún varð öll lifandi. En útsýnin yfir mannfjöldann minti á uminæli norska skáldsins ástsæla, Nor- dahls Grieg, er hann hafði um fólksfjöldann á Alþingishátíð- inni, er hann sá, eins og hann sagði, fólkið klæða bergið. ■ Mjer varð hugsað til þess fólks, sem komið hafði um lang an veg, og oft hefir hlýtt á þjóðkór Páls í útvarpinu, en aldrei sjeð hann sjálfan, hve ánægjulegt það væri fyrir það, að sjá hann þarna á þessum víða palli í fyrsta sinn stjórna þúsundunum í brekkunni. Er Páll hætti að láta fólkið taka undir, flutti Alexander prófessor ávarp silt. Að því búnu lok Rkhard Beek prófessor til máls, en hann var, sem kunnugt er, fulltrúi Vestur-íslendinga á hátíðinni, og er hjer í boði ríkisstjórnar- innar. Mannfjöldinn fagnaði mjög báðum ræðumönnurn og ræðúm þeirra. En er Beck hafði Iokið máli sínu, spilaði lúðra- sveilin „Þótt þú langförull legð- ir“. . Meðan prófessor Beck flutti ræðu sína, komu þeir á jfallinn Sveinn Björnsson forseti, Björn Þórðarson forsætisráðherra og Vilhjálmur Þór utanríkismála- ráöherra. Er lófataki linti eftir ræðu Becks prófessors, steig Björn Þórðarson forsælisráðherra fram á pallinn og tilkynli mann fjöldanum að ríkissljórninni hefði borisl árnaðarskeytið frá Kristjáni X. Danakonungi. Skýrði hann frá efni þess. en mannfjöldinn tók undir með ferföldu húrrahrópi er ráðherr- ann lýsti þakklæti fyrir kon- ungi og bað að honum, fjöl- skyldu hans og þjóð mætti vel farnasl í alla staði. t En síðan spilaði lúðrasveitin konungssönginn danska, ::Kong Christian". Nú hafði gert stórrigningu um stund. En næst skyldi fara fram fánahylling, sem auglýst var í dagskránni, þar sem ung stúlka í skaulbúningi, ungfrú Kristjana Thorsteinsson, skvldi ávarpa fánann um leið og hann væri dreginn að hún. Uppi í Fangbrekku norðanhalt við miðjan pallinn, hafði verið reist mikil fánastöng er gnæfði við himinn. Þar skyldi mikill fáni dreginn að hún. Skátar önn- uðust um það. En einmitt þá var svo rnikið úrfelli, að ekki þólti fært að láta hina skrýddu „Fjallkonu“ koma fram á pall- inn, svo fánakveðja hennar f jell niour. En um leið og fáninn rann upp að hún, tók Páll ísólfsson til söngstjórnar og söng mann- fjöldinn nú „Rís þú unga ís- lands merki“, þrjú erindin. Enn söng mannfjöldinn nokkur ætt- jarðarljóð og Páll stjórnaði. Næsti þáttur dagskrárinnar varð söngur þjóðhátíðarkórs Sambands íSTenskra karlakóra. Um 200 manns voru í kórnum. En þessir stjórnuðu söngnum til skiftis: Jón Halldórssoií, sem var aðalsöngstjóri, Sigurður Þórðarson, Hallur Þorleifsson, Róbert Abraham og Þórarinn Guðmundsson, er stjórnaði þeg- ar kórinn söng lag eftir hann við kvæði Jóhannesar úr Kötl- uro, „Land míns föðurs“. Pjetur Jónsson söng einsöng með kórnum, er hann söng lag Björgvins Guðmundssonar, við kvæði Gríms Thomsen, „Heyrið vella á heiðum hveri“. Var því lagi tekið svo vel, og söng Pjet- urs, að það var endurtekið, en mannfjöldinn klappaði í takt við marsinn er lúðrasveitin spilaði, þegar söngmenn gengu fylktu liði út af pállihum. Þá flutti Benedikt Sveins- son snjalla ræðu, um sjálfstæð- isbaráttu íslendinga, er mann- fjöldinn hlýddi á með mikilli athygli. Af íþróttasýningum gat ekki orðið, nema hinni miklu hóp- sýningu, vegna þess hve veður var slæmt og pallurinn votur, Fór fólk nú sem óðast að hverfa af Þingvöllum, eftir þessa fjölmennu og eftirminni- legu hátíð, sem markar tíma- mót í sögu þjóðarinnar. Kínverjar missa Lung- ling. London í gærkveldi: — Kín- verska herstjórnin hefir tilkynt að Kínverjar hafi mist í hend- ur Japönum bæinn Lungling í Yunnanfylki, sem þeir náðu fyr ir einum 10 dögum síðan í til- raun sinni til þess að sækja ina í Norður-Burma. — Reuter. Þriðudagur 20. júní 1944, MANNFJÖLDINU í FANGBREKKU á Þingvöllum um kl. 5% þ. 17, júní. Nær myndin yfir nyrðri hluta brekkunnar. En annar eins stífnuður var í brekk- unni sunnan við myridarsvæðið og mikill fjöldi niðri á jafnslj ettunni þrcm megín við r”ll{”*' 'f^• - ■ ■■ (Ljósmynd: Jón Sen). Hdtíðahöldin d Völlunum 17. júní

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.