Morgunblaðið - 01.07.1944, Page 4

Morgunblaðið - 01.07.1944, Page 4
4 i MORGUNBLiAÐlÖ Laugardagur 1. júlí 1944 Minning bræðronnn Gísln og Eiríks Eiríkssonnr VIÐ, sem höfum lifað langa æfi hljótum að kynnast mörg- nm á þeirri leið. Altaf erum við að máeta nýjum og áður óþektum samferðamönnum. í>eir koma og fara. En áhrif- in, sem þeir hafa á okkur, skilja vanalega eitthvað eft- ir, sem varir lengri eða skemri tíma, sumt þannig, að það verður tæplega máð úr hug- anum. Sje svo, er töluvert, sem sker úr frá því vanalega. í>ví flest það, sem minna er í varið, gleymist fljótt. Þess vegna er holt og gott að kynn ast þeim mönnum, sem hafa göfugum kostum af að miðla, því að minningin um þá verð- ur aðeins fögur og hrein og l>ætandi fyrir hvern hugsandi jþar dvaldist hann til ársins Gnúpverjahreppi, Eiríkur, Gísli Eiríkssynir. mann. 11907, en þá fluttist frændi Bræðurnir Gísli og Eiríkur hans búferlum til Reykjavík- voí'U þeir menn, er seint munu ur. Fluttist Gísli þá til systur gleymast þeim, er nutu ná-1 sinnar, Sigríðar Eiríksdóttur inna kynna og samverustunda Ijósmóðir, sem bjó þá að Ut- við þá. Ollum heilbrigðum hlíð í Biskupst. og dvaldi mönnum, sem kyntust þeim, hjá henni til ársins 1913, er þótti vænt um þá. Því ollu hún fluttist ásamt manni sín- þeirra margþættu góðu eigin- leikar, sem komu í Ijós þegar í bernsku þeirra. Glaðværð og starfslöngun, samfara glæsi- leik í útliti og framkomu, kallaði _snemma að þeim hóp góðra vina. Allir vildu hafa þá með sjer í orði og verki, enda var það þeirra mesta gleði að láta sem mest gott af sjer leiða. Þeir voru báðir háir rnenn vexti, um þrjár álnir á hæð, Ijósir á hár og íturvaxnir, einarðlegir í framg_öngu, skjót ir til úrræða og hreinskiptnir í orði og verki. Þeir voru fædd ir 1. apríl 1894 að Miðbýli á Skeiðum í Árnessýslu. For- eldrar þeirra voru hjónin Sig- ríður Einarsdóttir frá Urriða- fossi í Flóa og Eiríkur Ein- ríksson frá Miðbýli. Þeir ól- ust upp hjá foreldrum sínum þar til móðir þeirra dó, 2. jan. 3 904. Fór Gísli þá til móður- bróður sins, Gísla Einarsson- ar í Ásum í Gnúpverjahreppi. BÓNAÐIR OG SMURÐIR BÍLAR H.f. STILLIR, Laugaveg 168. — Sími 5347. um og börnum til Vestur- heims. Þá tók Gísli að stunda sjómennsku yfir vetrarver- tíðina, en vor og sumur vann hann að Brekku í Biskups- tungum, hjá hinum ágætu sæmdarhjónum Birni Bjarna- syni hreppstjóra og konu hans, Jóhönnu Björnsdóttur, og var Gísla svo hlýtt til þeirra, sem barni getur best verið til foreldra, enda voru þeir Gtísli og sonur þeirra Erlendur, nú hreppstjóri á Vatnsleysu í Biskupstungum, svo miklir vinir, að líklega hefir Gísli engan betri átt utan fjölskyldu sinnar, enda voru þar miklir mannkostir á báða hliðar. Þessi ár var heitnili hans að vetrinum hjá Guðríði systur hans, sem þá var flutt alfarin ■til Reykjavíkur. Er það eitt með öðru, sem lýsir vel mann- kostum þeirra systkina, hve ant þau ljetu sjer hvert um annað. Voru þau sjö alsyst- kinin, þrjár systur og fjórir bræður, en auk ]>ess ein hálf- systir. Árið 3921 fluttist Gísli al- farinn til Reykjavíkur og kvæntist það ár Guðríði Guð- mundsdóttur frá Sandlæk í liinni á- Th'e Idol of the Feminine Wo rld gætustu konu, og bjuggu þau allan sinn búskap hjer í bæ. Þeim varð sex barna auðið, en mistu eitt þeirra. Börnin eru öll einkar mannvænleg eins og þau eiga kyn til. Gísli hjelt áfram að stunda sjómennskuna, og þótt hann hann væri tekinn að þreytast á sjóvolkinu og vildi gjarnan fara að taka sjer hvíld frá því, rjeði meiru þar um hve Gísli var bátsmaður á togar- öll störf ljeku í höndum hans. eftirsóttur hann var. því að anum Max Pemberton. Með dugnaði sínum og framsýni var hann btiinn að byggja svo upp heimili sitt, að aðdáun- arvert var, enda var kona hans honum samhent í dugnaði og snyrtimennsku. Sólin skein í heiði og alt l.jek í lyndi. En þá kom harma fregnin mikla. Max Pember- ton hafði farist 'með allri á- höfn. „Það er svo oft, í dauð- ans skuggadölum, að dregur myrkva fyrir lífsins sól“, seg irjskáldið. Okkur verður það á orði, þegar vinir okkar eru kvaddir hjeðan til nýrra starfa a sólarlöndum eilífðarinnar. Bn þessi myrkvi varir ekki lengi fyrir sjónum trúaðs manns. Jeg kom nokkrum sinn- um á heimili Gísla eftir þetta átakanlega slys, og sá þá og sannfærðist um arfinn frá honum meðal barna hans. Sá arfur lýsti sjer I.jóslega í al- úð þeirri og huggun, sem þau veittu móður sinni í hartni hennar. Þegar við eigum á bak að sjá þeim mönnum, sem mikl- ar framtíðarvonir eru bundn- ar við, ekki einungis vinanna nánustu, heldur og allra, sem kynningar þeirra nutu, verð- ur söknuðurinn sárastur. En ágætustu mannanna er þó mest gleði að minnast. Það var fyrirhugað af Gísla og þó sjerstaklega af konu hans og börnum, að hafa fagn að ðeima á fimtugsafmæli hans, sem var 3. apríl síðastl. Það var stutt leið ófarin að því, þegar við kvöddumst hjer í síðasta sinn. En við sjáum skamt og vitum ekki hvað bíður í næsta fótmál. Gísli og Eiríkur voru tví- bui’ar. Jeg var lengi búinji að kynnast ]>essum ágætu mönn- um, en sjaldnast vissi jeg hvoruin þeirra jeg mætti á förnum vegi. svo líkir voru þeir um alt, ekki einungis að ytra útliti, heldur og í mál- róm, orðatiltækjum, glaðlyndi og góðvild. Enda kvað svo að þessu, að meðan börn Gísla voru ung, tóku þau á móti Eiríki sem föður sínum í þeirri trú, að það væri hann,, ef þau sáu þá ekki báða undir eins, Þegar þeir bræður mistu móður sína fór Eiríkur með Ólafi bróður sínum að hæli í Gnúpverjahreppi, til Einars Gestssonar og var hann þar til ársins 1915, er ■ hann fór til- náms á bændaskólann á Ilvann eyri. Þar var hann til ársins 3918, en fluttist þá til Reykja- víkur. Voi’ið 1919 gekk hann að eiga Þorgerði .Jónsdóttur úr Mýrdál. Seinna varð hann bústjóri hjá Thor Jensen í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesl Þaðan fluttist hann aftur til Reykjavíkur 3 928 og var lög- regluþjónn um nokkurt skeið. Stundaði hann síðan ýms störf. Konu sína misti hann 3 930 og varð þeim ekki barna auðið. Síðar eignaðist hann eina dóttur, sem er enn á barnsaldri. Síðustu ár æfi sinnar átti Eiríkur við heilsuleysi að stríða og bjóst við dauða sín- um þá og þegar, en ekki hafði það áhrif á skapsmuni hans. í fari hans var engin hálf- velgja.' Hann var þess fullviss, að björt framtíð biði sín hand an við þröskuld dauðans. Ei- ríkur ljest 18. jjiní 1942. Þótt fjölskylda G5sla, kona hans j>g börn, væru að undir- búa fagnað á fimtíu ára af- mæli hans, var honum hugs- unin um það trega blandin, þar sem Eiríkur gæti nú ekki tekið þátt í g'leðinni. Þeir voru bíæður í bestu merkingu þess' orðs. En nú hafið þið, bræður, gengið allan veg þessarar ver- aldar. Ljós og ylur varð eftir í sporum ykkar. Jeg óska ykk- ur til hamingju þar sem ekkei’t skilur ykkur og þið fáið að halda afmæli ykkar saman og njóta samverunnar um eilífa tíð. Við stöndum þögul, horfum út á hafið. Frá heimi dauðans andinn lyftir sjer. Þar hyllir uppi landið, ljósi vafið, þar lífið nýjan þroskaávöxt ber. Verið þið sælir, bræður og vinir. Erlingur Filippusson. ÁGÆT TÓLG * FÆST ENN. w I Frystihúsið Herðubreið Símí 2678. Motsvein og hásetn vantar á síldveiðiskip. Uppl. kl. 18—19 í dag Óskar Halldórsson Ingólfsstræti 21. Rafmagnsmótorn i y4 kw. 10 ha. ásamt tilheyrandi rofum, hefi I jeg fyrirliggjandi. Jón Arinbjörsson Öldugötu 17. — Sími 2175. 3x$k^<SxS>3>3x$x$x$xSxS>^<^x$x$>3x$^x$x$xSxSxSxí^x8x$xSxM*§*S><S><®^>3><S><Í ilílílllllllllíll! IMIMIIIIIIIIIMI llillllliiillll [illiill Best að auglfsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.