Morgunblaðið - 08.07.1944, Page 1
31. árg-angnr.
150. tbl. — Laugardaginn 8. júlí 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Flugvjelar
ráðasf á rak-
effusföðvar
London í gærkveldi:
Breskar Lancaster-flugvjel-
ar rjeðust í gær á mikið mann-
virki í Calaishjeraði og er álit
ið að það hafi verið reyst sem
skotstöð fyrir risastór rakettu-
skeyti, sem Þjóðverjar sjeu að
búa sig til að skjóta á Bretland.
Var þetta tilkynt af flugmála-
ráðuneytinu breska í dag.
■ Mannvirki þessi eru afskap-
lega sterk, þannig að nota varð
gegn þeim 12.000 punda
sprengjur, þær stærstu, sem til
eru. Álitið er, að ein slík hafi
komið beint niður á vi'rkið, far
ið gegnum steinsteypuþak þess
og sprungið inni í því. Aðrar
fjellu mjög nærri. — Árásun-
um mun verða haldið áfram
eftir þörfum. — Reuter. —
Kensluplötur
í sænsku til íslands!
Stokkhólmi: „Degens Ny-
heder“ flytur þá fregn, að
fræðslumálastjórnin sænska
hafi látið gera allmikið af tal-
plötum, kensluplötum í sænsku
til þess að nota í dönskum,
norskum, finskum og íslenskum
skólum. Var upphaflega svo til
ætlast, að plötur þessar færu
til Danmerkur. Talið er, að
danska fræðslumálastjórnin sje
að láta gera kensluplötur í
dönsku til þess að senda til Sví
þjóðar.
15.000 börn frá
London
London í gærkveldi:
I dag voru 15.000 börn á aldr
inum 6—16 ára, flutt á brott
frá London til öruggari staða.
Fóru kennarar með börnunum.
— Ráðgert er að halda flutn-
ingum þessum áfram. — Svif-
sprengjur hafa fallið á London
og aðra staði í Suður-Englandi,
bæði í nótt sem leið og eins í
dag. Var sumum þeirra grand-
að, áður en þær fengju valdið
tjóni. — Reuter.
Kínverjum óskað
heilla
London í gærkveldi:
Bæði Churchill og Roosevelt
hafa sent Chang Kai Shek
skeyti i tilefni af því, að sjö ár
eru nú liðin, síðan styrjöld Kín
verja gegn Japönum hófst. Er
tekið fram í skeytum þessum,
að Kínverjar muni verða studd
ir öfluglega í hinni erfiðu bar-
áttu við óvini sína. •!— Reuter.
Bandaríkjamenit brjótast
yfir Vire-ána
Aðstaðan annarsstaðar
óbreytt
Gautaborg í gærkveldi:
Gunder Hágg setti í kvöld
nýtt heimsmet í 1500 metra
hlaupi. Hljóp hann á 3 mín. 43.0
sek. og bætti þar með fyrra
heimsmetið, sem landi hans
Arna Andersson átti, um 2
sekúndur. Var það 3 mín. 45.0
sek. — Arne Andersson varð
að láta sjer nægja annað sætið,
en samt hljóp hann innan við
sitt fyrra met. Tími hans var
3 mín 44.0 sek. — Reuter.
Dauðaslys í Ljósa
fossstöðinni
Bjarni Ingjaldsson
frá Stokkseyri beið
bana af rafstraumi.
í GÆRMORGUN bilaði spóla
í annari rafmagnsvjelinni í
Ljósafossstöðinni. Var strax far
ið að vinna að aðgerð á vjel
þessari.
En nokru seinna, eða laust
fyrir kl. 10 f. h. kom það slys
fyrir, að unglingspiltur, sem
vann við aðgerð þessa, og var
í vjelinni,, fjekk rafmagns-
straum í sig, svo sterkan, að
hann mun hafa andast sam-
stundis.
Framh. á 2. síðu.
London í gærkveldi. Einkaskeyli lil Morgup-
blaðsins frá Reuter.
SNEMMA í MORGUN byrjuðu Bandaríkjamenn fyrir suð-
austan Carentan sókn yfir ána Vire. Var hún hafin með stór-
skotahríð, en síðan komst fótgönguliðið yfir. Tókst sæmilega að
komast yfir ána, en eftir það harðnaði mótspyrna Þjóðverja
mjög. Eru nú framsveitir samt komnar nokkuð eftir þjóðveg-
inum frá Carentan til St. Lo. — Hafa verkfræðingasveitir
Bandaríkjamanna nú slegið brú yfir Vire ána, sem þarna er um
100 fet á breidd.
La Haye brennur.
Ástandið umhverfis La Haye
er nokkuð óljóst, en borgin mun
nú standa í ljósum loga. Sögðu
Þjóðverjar í dag. að þeim hefði
tekist að innikróa og uppræta
hersveit Bandaríkjamanna, sem
sótti niður úr hæðunum að þorp
inu. — I mýrarflákunum fyrir
suðaustan Haye er ástandið að
mestu óbreytt og orustur minni
en áður.
Alt kyrt við Carpiquet.
Hvorugur aðili hefir í dag get
ið um aðra bardaga við Carpi-
quet flugvöllinn, en nokkrar
stórskotaliðsviðureignir. Éinn-
ig hófu Bretar stórskotahríð á
stöðvar Þjóðverja handan ár-
innar Orne, en hún lakmarkar
yfirráðasvæði bandamanna að
austan.
Flugveður versnar aftur.
í herstjórnartilkynningu banda
manna í kvöld segir, að flug-
veður hafi aftur brugðið til
hins verra í dag, og hafi aðeins
orustuflugvjelar getað farið
könnunarflugferðir yfir strönd
unum og orustusvæðunum, en
ekki aðstoðáð herina neitt að
heitið geti. — Þjóðverjar kveð
ast í nótt sem leið hafa gert
atlögur að skipum bandamanna
við ströndina með tundur-
skeyta- og steypiflugvjelum og
sökt þrem flutningaskipum, en
laskað tvö beitiskip.
Sjóbardagi við
Hollandsstrendur
— Reuter.
London í gærkveldi:
I gær kom til allmikilla við-
ureigna á sjó undan Hollands-
ströndum og voru þar að verki
breskir tundurskeytabátar og
hraðbátar, en hinumegin voru
þýskir vopnaðir togarar og
varðskip. Var barist lengi dags
og var sökt þarna einum vopn
uðum togara þýskum, en kveikt
í nokkrum varðbátum. Bretar
mistu einn tundurskeytabát og
auk þess urðu nokkur önnur
aF skipum þeirra fyrir skemd-
um og mistu nokkra menn.
Fölsuð boðskort.
Stokkhólmi: Nýlega hjeldu
Þjóðverjar í Stokkhólmi leik-
sýningu, þar sem hinir kunnu
þýsku leikarar Lillian Harvey
og Georg Alexander Ijeku. —
Voru þá af einhverjum ókunn-
um aðilum fölsuð boðskort að
sýningu þessari og send fjölda
manns, sem svo varð frá að
hverfa, því þeir, er stóðu fyrir
sýningunni höfðu fylt húsið af
boðsgestum. Olli þetta allmikl-
um óþægindum og hefir' málið
nú verið afhent lögreglunni til
rannsóknar.
Lofloruslurnar yfir
Þýskalandi í dag
London í gærkveldi:
Bandaríkjamenn sendu mik-
inn fjölda flugvjela yfir
Þýskaland í dag og var ráðist
á olíuvinslustöðvar og flug-
vjelasmiðjur nærri Leipzig. Er
sagt að 1000 sprengjuflugvjelar
hafi farið í leiðangur þenna og
500 orustuflugvjelar fylgt þeim.
Urðu miklar loftorustur, að
því er Bandaríkjamenn til-
kynna og segjast þeir als hafa
grandað 104 þýskum flugvjel-
um. Sjálfir kveðast þeir als
hafa mist 36 sprengjuflugvjel-
ar og 6 orustuflugvjelar.
Ægilegur eldsvoði
í Harlford
London í gærkveldi:
í gær kviknaði í fjölleikhús-
tjöldum í Hartford, Conn,
Bandaríkjunum og breiddist
eldurinn út með ofsahraða. Eft
ir því, sem þegar er vitað, hafa
146 manns farist í eldinum,
flest börn. Eru þó enn ekki öll
kurl komin til grafar um mann
tjónið. — Reuter.
• •
Qnnur loflárás
á Japan
London í gærkveldi:
Tilkynt hefir verið í Washing
ton, að hin nýju stóru flugvirki
Bandaríkjamanna hafi aftur í
nótt sem leið ráðist á megin-
land Japans. Var árásinni eink
um beint gegn flotabækistöð-
inni Sasebo og stálframleiðslu-
borg einni mikilli, Yawata, sem
ráðist var einnig á þann 15.
júní. Báðar eru borgir þessar
syðst á meginlandi Japan. Ekki
hafa borist nánari fregnir af á-
rás þessari enn sem komið er.
Þjóðverjar herða
gagnáhlaup á Ítalíu
London í gærkveldi:
Síðan síðustu dagan fyrir fall
Rómaborgar, hafa ekki verið
háðir eins harðir bardagar á
Italíu og nú. Gera Þjóðverjar
víða gagnáhlaup og hafa mikið
af stórskotaliði og er það ætlun
manna, að þeir muni reyna að
halda þeim stöðvum, sem þeir
hafa nú, þar til hinar miklu
varnarstöðvar þeirra norður í
fjöllunum sjeu fullgerðar. Að-
alvarnasvæði þeirra er nú um-
hverfis Aresso, en annars er
viðnámið hvarvetna mikið.
Þá hefir orðið vart við það,
að Þjóðverjar sjeu að styrkja
varnir hinnar þýðingarmiklu
hafnarborgar Livorno, og virð-
ist svo, sem þeir telji sig eiga
á hættu, að á borgina verði ráð
ist af sjó. Hafa þeir aukið mjög
við stórskotalið við höfnina.
Áttundi herinn á örðugt um
sókn nærri Aressa, því Þjóð-
verjar hafa þar mjög mikið
stórskotalið, sem þeir beita ó-
spart. Á Adriahafströndinni
eiga pólskar hersveitir í mikl-
um bardögum, en æ vestur-
ströndinni sækir fimti herinn
fram gegn öflugri mótspyrnu.
— Reuter.
Vanþakklálur
Pólverji
Frá norska
blaðaf ulltr úanum:
Um hvítasunnuna síðustu
voru mjög margir menn hand-
teknir á Fosenskaga við Þránd-
heimsfjörðinn. Kom þangað
þýsk lögregla og hafði með sjer
þólskan stríðsfanga, sem vísaði
als á 44 Norðmcnn, sem teknir
voru fastir. Pólverjinn hafði áð
ur ferðast þarna um, dulbúinn
sem rúscneskur herfangi og
hafði fóikið hjálpað honum á
ýmsa vegu, gefið honum að
borða, lofað honum að hlusta
á ólöglegar útvarpcsendingar o.
fl. Nú þakkaði hann fyrir sig,
með því að ljósta upp um hjálp-
endur sína alla.