Morgunblaðið - 19.07.1944, Side 4
4
MORGUN BLAÐIt)
Miðvikudagur 19. júlí 1944
— Innrásin
Framh. af 1. síðu.
ar komið sjer vel fyrir í skógi
einum og földu þar mikið lið.
Varpað var niður á þessa
staði sjerstökum sprengjum; er
nefndar eru ,,gýgsprengjur“ —
Sprengjur þessar fara í jörð
niður áður en þær springa og
sprengja út frá sjer gýga mikla
Gýgarnir ollu því( að Þjóðverj-
ar áttu bágt með að flytja her-
lið sitt á þessum slóðum.
Þriðja loftárásin var gerð á
Cagny; 8 km. fyrir austan Caen.
Þar er járnbrautarskiftistöð og
þar koma þjóðvegir saman, —
Ljósmyndir; sem teknar voru
úr lofti; sýna, að flugmenn
bandamanna hafa valdið Þjóð-
verjum miklu tjóni; án þess að
eyðileggja aðalveginn. Höfðu
þessar loftárásir verið undir-
búnar vel,
Minni flugvjelar
taka við.
Þetta er f fyrsta sinn( sem
bandamenn senda yfir 1000
fjögra hreyfla flugvjelar gegn
hersveitum Þjóðverja. Var Sir
Stafford Leigh Mallory; yfir-
maður innrásarflugliðsinSj sjálf
ur í Frakklandi til að fylgjast
með loftárásunum. Á eftir stóru
sprengjuflugvjelunum komu
meðalstórar sprengjuflugvjelar
og gerðu loftárásir á stöðvar
Þjóðverja.
í þessum miklu loftárásum
sást ekki ein þýsk orustuflug-
vjel og allar minni sprengju-
flugvjelarnar komu heilu og
höldnu til stöðva sinna. 6 Hali-
fax og Lancaster flugvjelar
voru skotnar niður og 2 Libera-
tor flugvjelar komu ekki aftur
til bækistöðva sinna.
Ágæt skilyrði fyrir
skriðdreka.
Hernaðarsjerfræðingar hrósa
mjög Montgomery hershöfð-
ingja fyrir undirbúning og
skipulag þessarar sóknar og
benda á, að það eitt út af fyrir
sig, að hafa getað komið Þjóð-
verjúm á óvart með slíka stór-
sókn; sje mikilsvert atriði. Það
hefði verið talið mikið verk-
efni, að ráðast í að sækja yfir
Orne og koma upp brúarsporði
á eystri bökkunum. En nú hafi
hersveitir Montgomery’s sött
fram austur á sljettlendið, þar
sem sje mjög hentugt land fyr-
ir skriðdreka. Á stóru svæði sje
landið flatt. Þjóðvegurinn liggi
þarna þráðbeinn eina 40 km.
Þarna eru engir skógar eða ár.
Það er einmitt slíkt land-
svæði, sem herforingjar banda-
manna hafa óskað sjer að hitta
Þjóðverjana fyrir á til þess að
geta reynt krafta sína við þá í
skriðdrekaorustum og valdið
þeim tjóni, sem þeir seint munu
bíða bætur.
— Rafmagnsmálið
Framh. af bls. 2.
hægt að koma upp á tveim ár-
um.
Hana á að reisa nálægt Ell-
iðaárstöðinni, því þá liggur hún
vel við bæjarkerfinu og þægi-
legt að fá kælivatn úr Elliða-
ánum.
Til öryggis hitaveitu.
Gufutúrbínustöð hefir ýmsa
kosti, leysir margt í einu. Hún
framleiðir rafmagn á þeim tíma
sólarhrings, sem álagið og þörf
in er mest, svo ekki þarf að
hafa orkuverin eystra eins mik
il og dýr. Hún verður í fram-
tíðinni til vara, ef háspennulín-
ur bila. Og hitaveitan notast
betur í sambandi við þessa stöð.
Því þaðan geta bæjarbúar feng
ið hitaviðbót köldustu daga árs-
ins. Annars þarf hitaveitan að
geta fullnægt bænum í mestu
frostum, og færi þá mikið af
hita hennar til ónýtis flesta
daga ársins. Með þessu verður
hitaveitan notadrýgri.
Gufuna, sem notuð er í túr-
bínustöðinni og upprunalega
hefir þrítug til fertugfaldan
loftþrýsling, er hægt að nota
til vatns hitunar, þegar hún hef
ir ekki nema tvífaldan til þre-
faldan loftþrýsting, og mest af
hreyfiafli hennar er þegar not-
að.
HIÐ NÝJA
handarkrika
CREAMDEODORANT
stöðvax svitann örugglega
l. Skaðar ekki föt eða karl
mannaskyrtur. Meiðir ekki
höruudið.
!. Þornar samstundis. Notasi
undir eins eftir rakstur.
!. Stöðvar þesar svita. næstu
1—3 daga. Eyðir svitalvkt
heldur handarkrikunum
burrum.
. Hreint. hvitt. fitulaust. ó-
mengað snvrti-krem.
i. Arrid hefir fengið votlorð
alþjóðlegrar bvottarann-
sóknarstofu fvrir bvi. að
vera skaðlaust fatnaði.
lArrid er svita
stöðvunarmeðal'
| ið. sem selst mes
■ reynið dós í da
Fæst í öllum betri búCum
Geymslupláss
gott og rakalaust, óskast nú þegar.
FLÓRA
Austurstræti 8.
Sími 2039 kl. 10—12 f. hád.
Fimfugtir:
Guðmundur B. Hersir
bakari
GUÐMUNDUR B. IIERS-
IR er fimmtugur í dag. Hann
er fæddur í Reykjavík 19. júlí
1894. Foreldrar hans voru
Brynjólfur Ögmundsson frá
Geldingaá í Borgarf^arðar-
sýslu og kona hans, Sigríður
Freysteinsdóttir, bónda á
Iljalla í Ölfusi.
Guðmúndur hóf að nema
bakaraiðn hjá Sigurði Hjalte-
sted bakarameistara í Reykja-
vík árið 1910, og var hjá hon-
um fram til 1915, en sveins-
prófi lauk Guðmundur árið
1917 hjá Valdimar Petersen,
bakarameistara á Laugavegi
42. Sama ár rjeðst hann verk-
stjóri við Alþýðubrauðgerð-
ina og gegndi því starfi, þar
til hann sigldi til Kaupmanna-
hafnar haustið 1918. Þar vann
hann síðan á ýmsum stöðum
fram til 1921 og lærði þar
meðal annars kexgerð og mun
hann vera með fyrstu íslensk-
um hökurum, sem þá grein
bakaraiðnarinnar námu. Flutt
ist hann síðan til Vestmanna-
eyja og var þar rúmt ár verk-
stjóri við fjelagsbakaríið í
Eyjum. Árið 1922 fór Guð-
mundur til Reykjavíkur og
rak þar um tíma brauðgerða-
hús á Vesturgötu 14, en rjeð-
ist síðan til Fredrik A. Kerff,
hakarameistara á Skólavörðu-
stíg 28 og var hjá honum verk
stjóri um 12 ára skeið. Um
nokkur ár vann hann að kex-
gerð í kexgerðarhúsi Ingim.
Jónssonar, en er nú starfandi
hjá Guðm. Ólafssyni og Sand-
holt. Guðmundur B. Hersir er
kvæntur danskri konu, Helge
E. Petersen frá Thurö í Dan-
mörku, hinni mestu myndar-
og dugnaðar konu, eiga þau
hjón 5 dætur, allar uppkomn-
ar og hinar mannvænlegustu
stúlkur.
Guðmundur B. Ilersir, hefir
verið hinn áhúgasamasti um
öll velferðarmál sinnar stjett-
ar, og átti sæti í stjórn bakara
sveinafjelagsins alt frá árinu
1915, ýmist sem ritari for-
maður eða varaformaður og
er nú varaformaður. ÖIl sín
störf fýrir fjelag sitt hefir
hann leyst af hendi með fá-
dæma dugnaði og samvisku-
semi, enda nýtur hann óskor-
aðs trausts starfsbræðra sinna.
Guðmundur hefir einnig ver
ið mjög áhugasamur um í-
þróttamál og var, öll árin sem
knattspyrnuf jelagið „Fram' ‘
vann sinn glæsilega sigur,
virkur þátt.takandi í þeim sigr
um sem vinstri útframherji í
kappliði fjelagsins.
Geri jeg ráð fyrir að fjöl-
mennt verði á heimili þeirra
heiðurs hjóna við Bergstaða-
stíg nr. 6B, í dag.
Vilh. Stefánsson.
Kálflugnaplága í SuffoJk
LONDON: Kálflugur hafa
valdið svo miklu tjóni á upp-
skeru í Kessingland í Suffolk,
að skólabörnum þar hefir ver-
i heitið verðlaunum fyrir að
eyða þeim.
FYRIRLIGGJANDI:
Múrhúðunarnet £
Eintommu möskvar,
sterk tegund., en ódýr 'X,
Bindivír *
1 mm, mjög mjúkur
Asfalt cement *
til þjettunar á þökum, ;•;
viðgerðar á bárujárns- og
pappaþökum o. fl. •••
•*♦
•:•
Byggingavöruverslun .••
ísleifs Jónssonar ;>
Aðalstræti 9. Sími 4280. £
Reykjavík.
bctra en nokkuð annað,
bæði hressandi og ljúffengt.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI — HVER ÞÁ?
Framleiða
Víra - víra- oy hamfikaðla
umbúðir oy tvinna
til allrar notkunar
Það verður tækifæri til að auka
iðnaðinn eftir að- sigur er unninn.
Með friðnum; sem nú er í nánd; koma
betri tímar framfara og uppbygginga.
British Ropes Ltd. getur þá, vegna
reyslu sinnar í stríðinu^ orðið við öll-
um kröfum. Framleiðsla þess mun
sem áður bera af að gæðum.
Doncaster
(BR 13) England
2 mótor
| 12 og 25 smál. til sölu. Annar bátuiinn er í góðri |
' leigu hjá setuliðinu.í
Nánari upplýsingar gefur
Brandur BrynfóSfsson
lögfræðingur, Bankastræti 7, sími 5743.