Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 1
81. árgungTir,
200. tbl. — Fimtudagur 7. september 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
FBAIHSVEITIIt. IIMIVi í ÞÝSKALAIVID
KANADAMENN IJMKRIMGJA CALAIS
■ ■
Þannig lítur Otfusárbrúin úl
Snörp vörn Þjóðverjn
í Hnvre, irest og
Boulogne
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
FRAMSVEITIR þriðja ameríska hersins hafa farið í
könnunarferð inn yfir þýsku landamærin og eru allmikl-
ar hersveitir komnar þarna yfir ána Moselle. Könnunar-
sveitirnar fóru aftur til meginhersins eftir könnunar-
ferðina. Þ.ær munu hafa farið yfir landamærin rjett við
Luxembourg.
Kanadiski herinn er nú að berjast við Þjóðverja um
borgirnar við Ermarsundið og hafa umkringt Calais og
eru í úthverfum Boulogne. Pólskar hersveitir nálgast
Dunkerque, og eru bardagar allsstaðar harðir þarna. —■
Bandamenn beita nú sprengjuflugvjelum sínum gegn
vörnum Þjóðverja í hinum einangruðu hafnarborgum.
a_____
ÞANNIG leit Olfusárbrúin út, eftir að annar burðarstren gurinn hafði sutnao. Mynum er
tekin af vestri bakka Ölfusár. — Grein um brúna og fleiri myndir á bls. 2. Ljósm. Mbl. (J. Sen).
Rússar við landa-
mæri Jugoslaviu
Hafa tekið Turno-Severin
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun
blaðsins frá Reuter.
RÚSSAR tilkynntu í herstjórnartilkyningu sinni í kvöld:
herir þeirra væru komnir að landamærum Júgóslafíu á einum
stað og ennfremur að borgin Turno-Severin hefði verið tekin.
að
Nokkru áður en herstjórnar-
tilkynningin barst, hafði í
Moskva verið gefin út dagskip-
an frá Stalin, þess efnis, að
tekin hefði verið borgin Ostro-
lenkais um 100 km norðaustur
af V'arsjá og 35 km suðaustur
af landamærum Austur-Prúss
lands. Stendur borg þessi við
fljótið Nareth og þar segja Þjóð
verjar í dag að miklir bardag-
ar geisi.
Rússar segjast hafa hreinsað
algerlega austurbakka Nareth
fyrir sunnan Ostrolenkais og
tekið þar nokkur þorp. Einnig
segjast Rússar hafa í gagn-
áhlaupum bætt aðstöðu sína
við bæinn Wolovin, sem um
nokkra daga hefir ýmist verið
á valdi Rússa eða Þjóoverja.
í Rúmeníu ræða Rússar um
framhaidssókn og tilkynna
töku ýmissa borga og bæja, en
annarsstaðar kveða þeir könn-
unarsveitaskærur hafa átt sjer
stað.
„Óheppileg" dag-
skipan
PÓLSKA útlagastjórnin hef-
ir gefið út yfirlýsingu, þar sem
dagskipan Sosnokowskys ‘um
það, að verið sje að brytja
Varsjábúa niður eins og fje,
vegna þess að enginn af banda
mönnum Pólverja vilji hjálpa
þeim, sje mjög óheppileg eins
og á standi, þar sem verið sje
að reyna að komast að sam-
kcmulagi við Rússa. — Talið
er, að Pólverjar þeir, er í Var-
sjá berjast, sjeu nú mjög að
þrotum komnir. — Reuter.
Finnsk friðarnefnd
fil Moskva
Stokkhólmi í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
TALIÐ er, að sendinefnd
Finna, sem fara á til Moskva
til friðarumræðna, hafi lagt af
stað í kvöld. Var Haesell for-
sætisráðherra í fararbroddi,
en með honum fara yfirmaður
herforingjaráðsins finska og
einnig landvarnaráðherra Finn
lands. — Reuter.
Skærur Ungverja
og Rúmena
UNGVERSKA frjettastofan
nefnir í kvöld 18 staði, þar sem
Rúmenar hafi gert árásir á
Ungverja á landamærunum og
segjast nú hafa mist þolinmæð
na, eftir að hafa þolað hótan-
ir Rúmena og ofbeldistal, og
hafi nú ungverska hernum ver
ið fyrirskipað að verja landa-
mærin gegn þessum tilefnis-
lausu árásum. — Þá segja Þjóð
verjar, að bardagar sjeu byrj-
aðir, en Ungverjar kveðast
hafa gripið til vopna nauðugir
gegn þessum nágranna sínum,
sem þeir hafi allra helst vilj-
að búa í sátt við. — Reuter.
Búlgarar biðja
um vopnahlje
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BÚLGARAR hafa beðið Rússa um vopnahlje, um 5 klst. eftir
að Sovjetstjórnin hafði sagt þeim stríð á hendur. Ekki hefir neitt
verið barist í Búlgaríu enn og þykir líklegt að það verði ekki.
Er þetta talin styttsta styrjöld, sem sögur fara af.
Eins og kunnugt er, áttu
Búlgarar í vopnahjelssamning-
um við Breta, Bandaríkjamenn
— bandamenn Rússa, er Rúss-
ar sögðu Búlgörum stríð á
hendur. Frá styrjaldarbyrjun
milli Þjóðverja og Rússa, höfðu
Búlgarar verið hlutlausir í
þeim hildarleik, en Rússar
kváðu Búlgara sjer ótrygga.
Fregnir frá Cairo herma í
kvöld, að búist sje við, að
breyta þurfi um samningsað-
ferðir, er Rússar sjeu einnig
komnir í spilið um friðarsamn-
inga við Búlgara.
Á Nancysvæðinu
Þar sækir þriðja herinn enn
fram, en fremur hægt og fer
mótspyrna Þjóðverja þar harðn
andi. Einnig verjast þeir af
hörku umhverfis Compigene.
Á suðurlandamærum Belgíu
er ástandið nokkuð óljóst, en
talið er, að þar dragi banda-
menn- nú að sjer lið.
Ramke verst í Brest
Þjóðverjar verjast enn af
hinni mestu hörku í Brest,
þrátt fyrir það, að 300 amerísk
ar flugvjelar gerðu árás á
borgina í dag. Foringi Þjóð-
verjanna í Brest er Ramke hers
höfðingi sem ræður fyrir
fyrsta fallhlífaherfylkinu, sem
tók Krít og varðist lengst í
Cassino.
Skorað á Þjóðverja í Havre
Tvisvar hefir verið skorað á
þýska setuliðið í Le Havre að
gefast upp, en það er talið um
2000 manns. Var áskoruninni
neitað og loftárás gerð á borg-
ina.
Orustur eru sagðar allharðar
umhverfis Antwerpen og kveð
ast Þjóðverjar hafa hörfað únd
an í áttina til Albertskurðar-
ins. í nótt sem leið, gerðu Þjóð
verjar loftárás á stöðvar Banda
ríkjamanna, þá fyrstu um lang
an tíma.
Grikkir dæmdir enn.
London: —* Enn hafa átta
grískir sjóliðar verið dæmdir
til dauða í Alexandríu fyrir að
hafa gert tilraun til uppreisn-
ar á herskipinu. sem þeir voru
á. Hefir þegar fjöldi sjóliða ver
ið tekinn af lífi fyrir þessar
sakir.