Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 7. sopt. 1944 Hafn arfjörð ur: Ný bók: Rafmagnshiti í Hafnarfjarðar- kirkju — Ráðhúsið langt komið Krisuvíkurvegur — Minkasaga Frá frjettaritara vorum ÞÆR BREYTINGAR hafa verið gerðar innan Hafnarfjarð arkirkju í sumar, að rafmagns- hitunartæki hafa verið lögð í hana. Er því þannig fyrir kom- ið, að margir og stórir „panel- ofnar“ eru meðfram öllum veggjum bæði í kór, kirkju og á sönglofti, en undir hverjum bekk liggja rör er leiða hita út frá sjer. Hyggja margir gott til þessarar nýbreytni, en aðrir bera kvíðboga fyrir, samanber reynslu síðasta vetur, að raf- magn verði ófullnægjandi, og þá verði ver en áður var. Áður var kirkjan hituð upp með heitu lofti, er blásið var fram í kirkjuna, varð af því talsverð-- ur þytur er truflaði messugjörð, og varð því að hætta því er kirkjuathöfn hófst, en þá vildi oft verða fljótt að kólna inni, sjerstaklega ef fátt var í kirkju. Raflagnir í kirkjuna annað- ist h.f. „Ekko“. Ráðhúsið. RÁÐHÚSIÐ nýja hjer í Hafn arfirði má nú heita fullgert að utan og sumir hlutar þess að innan nærri fullgerðir, t. d. það sem bæjarstjórn á að hafa til umráða, vantar eigi annað en hurðir. Mestan hluta bygging- arinnar er búið að mála að inn- án, en talsvert er eftir óurinið í þeim hluta hússins, er ætlaður 'er til leik- og kvikmyndasýn- inga. Sparisjóður Hafnarfjarðar, sem hingað til, végna húsnæð- isörðugleika, hefir oft orðið að gjöra sjer að góðu óhentugt húsnæði, er nú í þann veginn að fá úr þessu bætt. Nú nokkur ár hefir sparisjóðurinn haft inni í húsi Jóns Mathiesen, en sá galli var á, að fara þurfti gegn- um port og upp stiga til að kom ast inn í sparisjóðinn. En nú á að bæta úr þessu, þvi næstu daga stendur til að hann flytji í hið nýbygða Ráðhús. Á gólf- hæð þess í suðurenda hefir sparisjóðnum verið ætlað vist- legt húsnæði með inngangi frá Strandgötu. Eru það 2 herbergi, annað 8X6 □ m. er skiftast þannig að 3X6 □ m. verða fyrir framan afgreiðsluborðið. Þar eru bólstruð sæti og tvö borð föst við vegg til að skrifa við. Hurðir og húsgögn hefir h.f. Dvergur smíðað, og virðist það vera vandað, sem og allur ann- ar frágangur, á þessum full- gjörða hluta byggingarinnar. Inn af afgreiðslusfofunni er annað minna herbergi 4X6 m. að stærð og innaf norðurhlið þess hreinlætis- og snyrtiher- bergi, ásamt innmúruðum, eldtraustum skjala- og pen- ingaskáp. Krýsuvíkurvegur. UNNIÐ hefir verið að stað- aldri að Krýsuvíkurvegi í sum- * ar af mönnum hjeðan úr bæn- um, undir stjórn Jóns Einars- sonar og Gísla Sigurgeirsson- ar. Er nú vegurinn kominn það langt, að bílfært er orðið upp að Krýsuvíkurengjum. Þó er lítill kafli enn óofaníborinn og ekki fyllilega búið að ganga frá. Vart trúi jeg öðru en fjöl- farið verði þangað framvegis, því þar er sá orkumesti hver hjer nærlendis, ef ekki sá mesti á landinu. Jeg, er þetta rita, sá og heyrði Geysi oft gjósa, er jeg var á þrettánda árinu og varð snortinn krafti þeim er þar bjó í iðrum jarðar, varð gripinn óttablandinni lotn ingu er jeg nú fyrir nokkrum árum kom að Krýsuvíkurhver- unum og kom í nálægð stóra hversins. Þar voru þær drunur og óhemju umbrot undirniðri, að mjer finst að enginn, sem ekki hefir heyrt, geti gjört sjer hugmynd um, hvílík ógnarorka er þar falin, ef hægt væri að beisla hana. En gallinn á þeim leðjuhver er, að hánn hef- ir sýnt, og það í tíð núlifandi manna, að hann getur fært sig til í jarðskjálftakippum, og þeirra mun oft verða vart í Krýsuvík, þó þeir eigi finnist annarsstaðar. Minkasaga. VÍÐAR EN í Gvendarbrunn. um hjá ykkur Reykvíkingum er það sem minkurinn gerir vart við sig. Hjer í Firðinum má segja að hann gangi ljósum logum; að vísu heldur hann sig enn að mestu leyti við hænsa- hús og í sorpræsum. Út af þess- um vana sínum brá hann þó nú nýverið. Fólk, sem var á gangi eftir Hellisgötu, tók eftir að köttur, auðsjáanlega í miklum veiði- hug, var skamt frá bílhlassi af timburbraki,er látið hafði verið þar á götuna. Er betur var að gáð, sást hvar minkur, æði ygldur og í vígahug var skamt frá timburbrakinu. Höfðu þau nánar gætur hvort á öðru, kisa og minkurinn, reiðubúin til varnar, ef atlaga yrði gjörð, en voru þó sýnilega hálf hrædd hvort við annað. Fólk safnaðist þarna að og horfði á og bjóst á hverri stundu við miklum bardaga. En til þess kom þó ekki. Minkurinn sá sjer færi og gat skotist inn í timburbrakið. Nú var lögreglunni tilkynt hvaí minkurinn væri, og óskað eftir aðstoð hennar til að útrýma vágestinum. Lögreglan, að vanda viðbragðsfljót, kom á staðinn vopnuð byssu, reiðu- búin í stað kattarins að hefja einvígið, ef minkurinn sæist. En til þess kom ekki, timbrið var alt fært til undir vakandi auga lögregluþjónsins, en hvergi sást minkurinn. Lögregluþjónninn, er sjálf- sagt hefir verið í vígahug og gjarnan viljað sýna skotfimi sína, hefir að líkindum ályktað að fyrst minkurinn var ekki undir timbrinu, að þá væri hann í einhverri hraunholunni þar nálægt og eyðir hann því skotunum úr byssu sinni inn í þær holur, er honum fanst lík- legastar að minkurinn hefði sloppið inn í. Einhver, er þarna var viðstaddur, spurði nú lög- regluþjóninn, hvort hann hjeldi að hann hefði nú drepið mink- inn. Lögregluþjónninn svaraði, að það vissi hann ekki, en víst væri að hann hefði fengið kveðjuskot! Að öllu þessu loknu labbar lögregluþjónninn burt. Flestra álit, er viðstaddir voru, mun vera, að minkurinn hafi sloppið ómeiddur úr þessum sjerkennilega bardaga, því mörg er holan í Hafnarfjarðar- hrauni og engu síður gott fylgsni fyrir lifandi minka en skemt kjöt. En mörg mundi skotin þurfa, ef eyða ætti öll- um minkum, sem lausir ganga í hrauninu og umhverfis bæinn, með þessari aðferð. Sg. niHiiiiiiiiiiiiniinnnnnnnannuniiiuitmiiiiiiiiiiiirp I Emelerað ( | Skaftpottar Diskar djúpir og grunnir § 1 Drykkjarmál Pottar = B | Vaskaföt | i | Ausur | | Verslunin NOVA | = Barónsstíg 27. Sími 1519. 1 = E ÍTiiiuniiiiibiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiitiiiiiuiiim ?. - * * Okkur vantar góðan £ Bifreiðastjóra til sjerleyfisaksturs. Bifreiðastöð Steindórs X jffifWiffjSiHjiWi fl 0 D10 Ö 0 0:0: c c:; j : — x ♦ Ur bygðum Borgarf jarðar Kristleifur Þorsteinsson: Úr bygðum Borgarfjarð- ar. ísafoldarprentsmiðja h.f. Rvk. 1944. HVERT mannsbarn á ís- landi, sem nokkra nasasjón hefir af bókmentum þjóðar sinnar, kahn deili á fróðleiks- manninum Kristleifi Þorsteins syni á Stóra-Kroppi. Mun það mála sannast, að hina síðari áratagi hefir Kristleifur hald- ið manna best uppi merki al- þýðlegrar fræðimensku í göml um og góðum stíl. Mikill var skerfur sá, sem hann lagði af mörkum til Hjeraðssögu Borg- arfjarðar. Varð mönnum þá ljósl, ef þeir vissu það ekki áð- ur, að þar fór fræðaþulur, sem frá mörgu kunni að segja, og hafði tök á að lýsa hlutunum skýrt og skilmerkilega. Siðan hafa öðru hvoru komið rit- gerðir frá hendi Kristleifs, og verið birtar hjer og þar í blöð- um og tímaritum. Nú í sumar gaf ísafoldarprenlsmiðja út stóra og myndarlega bók, sem hefir að geyma yfir 40 ritgerð- ir Kristleifs, stærri og smærri. Er þar safnað á einn stað öll- um þeim þáttum, er Kristl. hefir skrifað, og ekki eru birt- ir í Hjeraðssögu Bórgarfjarð- ar. Undanskilin eru þó frjetta- brjef þau, hin mörgu og merki legu, sem Kristleifur hefir sent Vesturheimsblöðunum ís- lensku áratugum saman. Sum- ir þæltirnir í hinni nýju bók, eru gamlir kunningjar, sem áð ur hafa verið prentaðir á víð og dreif i blöðum, en auk þess er þar mikið af nýju efni. Kristleifur Þorsteinsson seg ir svo frá sjálfur, að hann hafi ekki tekið að fást við ritstörf fyr en á efri árum. Hefir hann einkum tekið sjer penna í hönd á sjöunda og áttunda tug æfi sinnar, en er nú kom- inn yfir áttrætt. Hjer er um það aldursskeið að ræða, þeg- ar flestum rithöfundum tekur að fara aflur, þótt áður hafi þótt góðir og gildir. Það er þó mála sannast, að verða ekki sjeð á ritsmíðum Kristleifs. Kippir honum í kynið til langafa síns, Snorra klerks hins sterka á Húsafelli, um þrek og langlífi, en Snorra entust firnalengi kraftar mikl ir til líkama og sálar. — Háfa þeir engir aukvisar verið, af- komendur Snorra, og mun Kristleifi síst í ætt skotið. Það er um bók Kristleifs á Stóra-Kroppi að segja, að margur hefir fengið rithöfund- arnafn fyrir minna. Maðurinn virðist vera stálminnugur og sjór að fróðleik. Kemur það sjer vel þegar lýsa skal hátt- um og siðum genginna kyn- slóða, sem lifðu við skilyrði gerólík nútímanum, að því er atvinnuhætti snerti, yfir sið- venjur og alla menningu. — Þau hafa orðið örlög Kristleifs, að lifa hina mestu umbrota- og byltingatíma, sem um getur í sögu þjóðarinnar. Á einni mannsæfi hafa orðið stórfeld- ari breytingar á þjóðháttum öllum, en fyr um þúsund ára skeið. Að sjálfsögðu verður margt til frásagnar, þegar slík umskifti gerast. KriStleifur er glöggur á frásagnarefni. Sjald an teygir hann lopann um skör fram, en á það oft til að bregða upp skýrum og eftirminnileg- um þjóðlífsmyndum. Stíllinn er víða þróttmikill og þægileg- ur, aldrei þungur nje tyrfinn, en varla laus við dálitla mærð á stöku stað. Bestu þætlirnir bera ótvírætt með sjer, að Krist leifur hefir lesið fornsögurnar, og gert það vel. Fyrir kemur, að hann bregður upp svo meitl uðum lýsingum, að hvaða rit- höfundur sem væri mætli vera fullsæmdur af. Fjölbreytni er mikil í bók Kristleifs, og víða komið við. Dálítilla endurtekningá gætir á fáeinum stöðum, en þó má segja, að flestar eða allar hafi ritgerðirnar eitthvað til brunns að bera. Efnisríku^tu og bestu þættirnir eru hvorttveggjá í senn, ágætur skemtilestur og stórmerk menningarsögUleg heimild. Eftirfarandi upptaln- ing fyrirsagna gefur nokkra hugmynd um fjölbreytni rits- íns: Frá bernskuárunum. Borg firsk æska fyrir 70 árum. Bernskuminningar. Sjávarút- vegur í gömlum stíl. Sagna- þættir af 'Vatnsleysuströnd. Ferð í verið veturinn 1881. Hreindýr og hreindýraskyttur. Þáttur af Jóni Borgfjörð og Grími syni hans. Veiðiför á Arnarvatnsheiði 1887. Dapur- legt ferðalag á Mývatnsöræf- um. Olnbogabörn. Vinnuþörf og vinnukapp. Dulrænar sagn- ir. Kirkjurækni og helgihald- Borgfirskir jólasiðir fyrir 70— 80 árum. Sætaskipun fyr á tím um. Ekki spillir það bókinni, að í henni er mikill fjöldi ágætra mynda. Sýna myndirnar eink- um borgfirskt landslag í fjöl- breytni sinni og fegurð og hef- ir Þorsteinn Jósepsson tekið flestar þeirra. Sonur höfundarins, Þórður Kristleifsson kennari á Laugar prentun og lesið prófarkir. Er það starf vel af hendi leyst, sem önnur útgerð ritsins. Gils Guðmundsson. GIBS Marmaracement Dextrin CASCOKalt lím Kimrök Blýmenja Kieselguhr Blásteinn Carbid VEFr’'" ¥TN 0. F/ ’ T TGSEN h.f. m. ellimörk _vatui, hefir búið bókina undir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.