Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 12
12 MORGUjJBLAÐIÐ Fimtudagur 7. sept. 1944. — SkySdi það vera bjargráðið? Framh. af bls. 5. vinnurekendur í kapitalisku þjóðfjelagi hafi víðtæka sam- vinnu að veita þeim ekki vinnu, sem hafa eitthvað gert, sem skerðir hagsmuni atvinnu rekenda, þá hefir auðvaldið í sócialistisku þjóðfjelagi þau forrjettindi, að það þarf ekkert að múta. Þar er engra sjer- stakra samtaka þörf, vegna þess, að það — sócialistiska auð valdið — hefir löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdar- vald í sinni eigin hendi. Eini sæmilega ljósi punktur- inn í hinu sócialistiska skipu- lagi er sá, að þar er stjórn allra framleiðslumála í höndum sama aðilans. Á þann hátt er afar auðvelt að gera samræmd ar áætlanir um hina ýmsu þætti framleiðslunnar eftir þeim þörfum, sem fyrir hendi eru. En það er ekki svo, að til þess að hægt sje að gera slíkar áætlanir þurfi sócialstiskt skipulag. Til þess ber enga nauð syn, og nú er einnig byrjað að fara þessa leið, bæði hjer heima og þjóða á milli. Leikur lítill vafi á því, að frjáls sam- tök og samvinna í þessum efn- um muni lengur standa en valdboðið eitt. Bjargráðið er ekki sócial- ismi, síður en svo. Ef því skipu lagi yrði komið á, yrði ekkert betra, en margt verra, eins og hjer hefir verið sýnt fram á. ★ Háttvirta „Æskulýðssíða Þjóðviljans“ eða þið, sem að henni standið. Þið vilduð nú yíst ekki gera sæmilega raun- hæfa grein fyrir því, hvað þið álítið, að vinnast myndi við hið sócialistiska skipulag. Líklega þýðir nú lítið að biðja svona vel, þótt það sje reynt hjer. Þið hafið ekki kom ist þetta áleiðis í ísl. stjórn- málum með rökföstum umræð um um stefnu ykkar og störf- Þið hafið rjettilega sjeð, að þannig munduð þið ekkert hafa komist. Þið hafið því tek- ið þann kostinn að tala til til- finninganna — ímyndaðra til- finninga, ef svo mætti að orði komast. Þið hafið ávalt reynt að slá á viðkvæmustu streng- ina. Þið hafið skírskotað til öf- undar og illgirni. Það er því sennilega til alt of mikils mælst að biðja ykkur að mæla með skynsemi og til skynsemi sam- borgaranna. En íslensk æska lætur ekki bjóða sjer tilfinningavaðal í stjórnmálunum til lengdar. ís- lensk æska er raunsæ. Hún mun því fylkja sjer gegn ein- ræði og kúgun. Hún mun hefja merki lýðræðis, frelsis og fram taks hátt á loft. Og undir því merki mun hún skapa framtíð sína. Grímnir. — Húsavík Framh. af bls. 7. Þá fóru fram handknattleikir og kepti fyrst III. fl. A og B frá Völsungum og sigraði A með 2:0. Síðan keptu í II. fl. stúlkur úr Knattspyrnufjel Akureyrar við Völsunga og sigraði K. A. með 2:1 eftir mjög fjörugan og spennandi leik. Um kvöldið voru svo verð- laun afhent og dans stiginn. BEST AÐ AUGLtSA 1 MORGUNBLAÐINU. I ? t # # # ? ? y I T t | Frá Skildinganesskóla Skólaskylcl börn í Skildinganess- og Gríms- staðarholts-bygð, fædd 1934, 1935, 1936, 1937, mæti við skólahúsið, Smyrilsveg 29, fimtu- daginn 7. sept. kl, 9, — Kennarar mæti til starfs á sama tíma. SKÓLAST J ÓRINN. PUDLO vatnsþjettiefni í steinsteypu, múrhúðun og útkúst (hvíttun), fyrirliggjandi. Sögin h.f. Höfðatún 2. Sími 5652. í-x-x-x-x-x~x-x-x-x-:-x-:-x-x-x-x-x-:-x-x-:-:-x-:-x-x-» AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI FRAMTlÐARSTARF Ungur maður óskast til skrifstofustarfa hjá þekktu fyrirtæki í miðbænum. Umsókn, helst með mynd af umsækjanda, merkt: „Framtíðarstarf“ sendist afgreiðslu þessa blaðs sem fyrst. — Hugleiðingar um íþróttamál Framh. af bls. 5. okkur vel í milliríkjakeppn- um, til þess sjeum við of fá- mennir. En þetta er rangt. Af- reksmaðurinn og afreksliðið verður fyrst og fremst’ til fyrir góða og rjetta þjálfun. Góð dæmi um þetta eru frændur okkar á Norðurlöndum. Einnig frægðarferill knattspyrnuliðs Mjöndalen. Allir menn liðsins voru starfsmenn 'í lítilli skó- verksmiðju í dalnum. Eigandi verksmiðjunnar sem mikinn á- huga hafði fyrir knattspyrnu, ljet byggja þar góðann knatt- spyrnuvöll og leigði góðan þjálfara. Árangurinn kom brátt í Ijós. Lið Mjöndalsins vann norsku meistarakeppnina mörg um sinnum. Til þess þurfti þó mikla getu, því Norðmenn eru með bestu knattspyrnumönn- um í heimi. Trúlegt þykir mjer að eftir stríðið verði íslandi boðin þátt taka í knattspyrnukeppni Norð urlanda og verður það þá vænt anlega útsláttar keppni með svipuðu fyrirkomulagi og sú, sem háð var í Kaupmannahöfn 1939 í tilefni afmælis danska knattspyrnusambandsins. — Knattspyrnufjel. Fram var þá einnig boðið við sama tækifæri og átti jeg því láni að fagna að vera einn í liðinu sem sent var. Setning hátíðarinnar, sem fram fór í Idrætsparken, var mjög tilkomumikil. Milli 30 og 40 þúsund áhorfendur voru viðstaddir þar á meðal danski konungurinn. Við og landslið ■frá hinum Norðurlöndunum stóðum í knattspyrnubúningun um á leikvanginum meðan þjóð söngvarnir 5 voru leiknir. Síð- an hófst keppnin milli Svíþjóð- ar og Noregs. Okkar þætti í Norðurlandakeppni þessari var lokið með byrjuninni er við hlupum aftur út af vellinum eftir setningu hátíðarinnar. Það var erfið stund. Jeg huggaði mig þó við að mjög bráðlega myndi líða að því að íslenskt landslið m’ætti þarna frændum sínum í drengilegri keppni og sýndi „at Islændere spiller ogsaa Fodbold“, sem haft var í flimtingum. Frændur okkar á Norðurlönd um eru með bestu íþróttaþjóð- um heims, svo miklir sigrar fyrir okkur, eru ekki líklegir. En það er ekki aðalatriðið. — Hitt skiptir meira máli, að við sýnum að við sjeum menningar þjóð,sem kann og skilur íþrótt ir.I þessu sambandi detta mjer í hug orð enska knattspyrnu- dómarans, hr. Rae. Hann sagði: „Jeg var hissa, þegar jeg sá ís- lenska knattspyrnu, því hún var ekkert öðruvísi en ensk knattspyrna. Leikmenn höfðu góðan skilning á íþróttinni og leikni töluverða. Það, sem vant ar bara er grasvöll og góðan þjálfara, þá eiga Islendingar afbragðs knattspyrnulið“. Það hefir verið mikið deilt á íslenska íþróttamenn fyrir hvað þeir væru deilugjarnir sín í millum. Það er satt að gagn- rýni þessi á nokkurn rjett á sjer. En þetta hefir breytst mik ið til bóta á seinni árum. Og eitt er jeg alveg viss um að, þegar að því kemur að þeir eiga að halda uppi heiðri fþð- urlandsins hjá framandi þjóð- um, þá mun hver standa við annarse hlið, heima og heiman. .. Brandur Brjmjólfsson. Ritari Mussolinis skotinn. London: — ítalska blaðið Avanti hefir þá sögu að segja, að ítalskir andfasistar hafi fyr ir nokkru brotist á næturþeli inn í hús Sebastini, sem um mörg ár var einkaritari Musso linis, dregið hann út og myrt hann með skothríð. niimniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiininiiiiiiiiiiiimmniimiin = = 1 Útlærð | [ saumastiílka I = = j§ óskast nú þegar eða 1. okt. §§ imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiimi ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ X-9 Eflir Roberl Sform ►♦♦♦< ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< tmirtv-thr&e Y IT'5 pro&ablw MILBS TO f / TUE APPROXIMA7E WHgRg? / MHEA6E FROM -----"( ROXV'5 CABIN TO v ^ \ BLUE-JAW'S ^ V hide-oot; ) PEADED its rescrved TA<:Nö A OUICK úLASJCE AT TWE "03" FlúURES ON Ti-ÍIS PH’ON£V CCUPON, VJ'AAT NUMBER C>CCuR5 70 YOLF? ^---------^ W \ I/ mYYrk THikiV- BÖÍS, I 0EUEVE X-9'S RUN mO A NE5T OF GASOUHE COUPON COUNTERFEITERS... BV BLUE-JAW! f RlóHT! 1 U4/NK ( ÚOMENO'H, ' THÁT X-9 HAD A HÁND IN ^ PRlNTINú TNAT COUPON! * I 6ET THI5 MESSAGE---- v "X*9...THIRTV-THREE, MILEAGE." Yfirlögregluþjónninn: — Ef þið lítið sem snöggvast á „B3“ á þessum falsaða seðli, hvaða tala dettur ykkur þá í hug? Lögreglumaður: •— Þrjátíu og þrír. Yfirlögregluþjónnínn: — Það er rjett. Jeg held, að X-9 hafi haft hönd í bagga við prentunina á seðlunum. Skilaboðin eru: „X-9 .... þrjátíu og þrjár mílur“. 3—4) Lögreglumaður: — Þrjátíu og þrjár mílur hvert. Yfirlögregluþjónninn: — Það er líklega því sem næst vegalengdin frá krá Roxy til að- setursstaðar Blákjamma. Strákar, jeg held, að X-9 sje með'al bensínseðlafalsara, sem vinna undir stjórn Blákjamma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.