Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 16
16
íslandsmet í
400 metra
hlaupi
í GÆRKVÖLDI setti Kjart-
an Jóhannsson, I. R., nýtt Is-
landsmet í 400 metra hlaupi,
en kepni fór fram í því hlaupi
í sambandi við kappleikinn
milli Vals og FrSm, — Brynj-
ólfur Ingólfsson, K. R., hljóp
einnig innan við gamla metið.
Urslit urðu annars sem hjer
segir:
1. Kjartan Jóhannsson, I. R.,
51.2 sek.
2. Brynjólfur Ingólfsson, K.
R., 52.0 sek.
3. Arni Kjartansson, A,
53.8 sek.
4. Jóhann Bernhard, K. R.,
53.9 sek.
Fyrra metið, 52.3 sek., setti
Kjartan fyrr á sumrinu og hef-
ir því nú bætt það um 1.1 sek.
— Kjartan hljóp á 1. braut,
Arni á annari, Jóhann á þriðju
og Brynjólfur á fjórðu.
Þá keptu og tveir ,,drengir“,
Oskar Jónsson, I. R., sem vann
á 55.1 sek., og Páll Halldórs-
son, K. R. Tími hans var 55.2
sek.
Valur vann Fram
ANNAR leikur Vals og
Fram í Walterskepninni fór
fram í gærkveldi og endaði
með sigri Vals 1:0.
I fyrri hálfleiknum lá yfir-
leitt á Fram og næsta óskilj-
anlegt, að ekki skyldi vera
skorað hjá þeim. Þó gerðu
Fi-amarar nokkur upphlaup.
sem hefðu getað orðið hættu-
leg Valsmönnum.
Síðari hálfleikurinn var mun
hraðarí og „spenningurinn“
jókst að sama skapi. Þar var
eins og í fyrri hálfleik, að yf-
irleitt lá á Fram, en sóknin
var ekki eins staðbundin. —
Svo loksins um miðjan hálfleik
* inn skoraði Ellert úr þvögu
með föstu, óverjandi skoti.
Þ.
F. H. og Haukar
keppa í kvöld
í KVÖLD kl. 7 fer fram
kappleikur í Hafnarfirði milli
fyrstu flokka knattspyrnu-
manna úr Hafnarfjarðarfjelög
unum tveim. Fimleikafjelagi
Hafnarfjarðar og Haukum. —
Má enginn annars flokks mað-
ur taka þátt í leiknum. — í
fyrra vann F. H. þenna leik,
en Haukar munu nú hafa full-
an hug á því að hefna sín.
Samkomulag
á Akranesi
SAMNINGAR tókust í gær
milli Verkalýðsfjelags Akra-
ness og vinnuveitenda á Akra-
nesi um kaup og kjör verka-
fólks í bænum. Hafði verklýðs-
fjelagíð farið fram á launa-
hækkanir, en samningar voru
útrunnir þann 1. þ. m.
Samkomulag varð um, að
kaup karlmanna hækkaði úr
kr. 2.10 á klst. í kr. 2.45 og
kaup kvenna úr kr. 1.50 í 1.75.
■ ■ *
Mjólkurflutningar yfir Olfusá í gær
STR.4X um hádegi í gær var farið að fiytja mjóik úr Flóabúinu vestur yfir Ölfusá á bát
um. Voru fluttir 15 mjólkurbrúsar í hverri ferð. Myndin hjer að ofan var tekin af þessum nýstár
legu mjólkurflutningum, er verið var að setja mjóikurbrúsana í ferjubátinn í viki á eystri
bakka árinnar.
Frumvarp um efiingu fiugsanigangna í iandinu
RÍKISSTJÓRNIN lagði í gær
fyrir Nd. Alþingis frumvarp
til laga um gerð flugvalla og
og lendingarstaða fyrir flug-
vjelar.
í fyrstu grein frumvarpsins
segir svo:
Flugvellir skulu flokkaðir í
4 flokka eftir stærð þeirra,
gerð og búnaði til notkunar
og rekstrar.
Fullnægja skulu þeir eftir-
töldum skilyrðum:
1. flokkur. — Rennibrautir
skulu vera ekki færri en 3,
gerðar úr steinsteypu, malbiki
eða með öðru varanlegu slit-
lagi. Skulu þær fullnægja að-
alvindáttum.
Lengd braut og breidd skal
nægileg fyrir stórar millilanda
flugvjelar. Skulu þar vera bygg
ingar þær, tæki og búnaður,
sem nauðsynlegt telst til þess
að fullnægja millilandaflugi.
2. flokkur. Rennibrautir
skulu vera 3, nema þar sem
reynsla sýnir, að 1 eða 2 braut-
ir muni íullnægja í aðalvind-
áttum. Þær skulu þaktar gras-
sverði eða malbornar. Lengd
og breidd brauta svo og gerð
þeirra skal nægja til innan-
landsflugs. Skulu þar vera
byggingar. tæki og búnaður,
sem nauðsynlegt þykir til þess
að fullnægja innanlandsflugi
með flugvjelum allt að 15000
kg þyngd.
3. flokkur. — Rennibrautir
skulu vera 3, nema þar sem
reynsla sýnir, að 1 eða 2 braut-
ir muni fullnægja í aðalvind-
áttum. Þær skulu þaktar gras-
sverði eða malbornar. Lengd
og breidd brauta svo og gerð
þeirra skal nægileg fyrir með-
alþungar flugvjelar, allt að
5000 kg þyngd. Við völlinn
skulú vera nauðsynlegustu
læki og búnaður fyrir snögga
viðkomu slíkra flugvjela.
4. flokkur. — Rennibrautir
skulu vera 2, nema þar sem
reynslan'sýnir, að 1 braut muni
nægja eða verða of koslnaðar-
samt að gera 2 brautir. Renni-
brautir skulu þaktar grassverði
eða malbornar. Lengd brauta
og breidd skal ætluð aðeins fyr
ir ljettar flugvjelar, allt að
3000 kg þyngd, eftir því, sem
fært þykir kostnaðar vegna. —
Rennibrautir skulu merklar og
þar skal vera aðgangur að
síma, svo og smáskáli fyrir far-
þega, en yfirleitt ekki annar
búnaður.
í 2. grein frumvarpsins ræð-
ir um það, hvar flugvellir
skuli bygðir. Segir þar á þessa
leið:
Flugvellir skulu vera á eft-
irlöldum stöðum:
a. í 1. flokki:
1. í Reykjavík.
2. A Reykjanesi.
b. í 2. flokki:
1. í Eyjafirði.
2. Hjá Egilsstöðum á Völl-
um.
3. Á Melatanga í Horna-
firði.
c. í 3. flokki:
1. í Borgarfirði.
2. Hjá Söndum í Miðfirði.
3. Hjá Blönduósi.
4. Hjá Sauðárkróki.
5. I Vestmannaeyjum.
6. Nálægt Siglufirði.
7. Hjá Húsavík.
8. Hjá Kópaskeri.
d. í 4. flokki:
1. Á Akranesi.
2. Á Kambsnesi hjá Búðar-
dal i Dalasýslu.
3. Á Melgraseyri við ísa-
fjarðardjúp.
4. Hjá Hólmavík.
5. í Vopnafirði.
. Hjá Búðum í Fáskrúðs-
firði.
7. Hjá Fagurhólsmýri.
8. í Mýrdal í Veslur-Skafta
fellssýslu.
9. Á Geilasandi í Rangár-
vallasýslu.
Flugskýli og dráttarbrautir
fyrir sjóflugvjelar skulu vera á
þessum stöðum:
a. I Reykjavík.
b. í ísafjarðarkaupstað.
c. Á Akureyri.
d. Á Austfjörðum.
e. Á Vestfjörðum.
Þá er gert ráð fyrir að bygð-
ar verði þráðlausar talstöðvar
til öryggis flugsamgöngum í
landinu.
Samkvæmt 7. grein frum-
varpsins skal stjórn flugmála
í landinu vera háttað á þessa
leið:
Atvinnu- og saúigöngumála
ráðherra skal setja á stofn sjer
staka stjórn flugmála, þegar
tímabært þykir, og fellur þá
niður starf flugmálaráðunaut-
ar ríkisins. Forstöðumaður
þessarar stofnunar nefnist flug
málastjóri. Þar til þessi skip-
an verður gerð, hefir atvinnu-
og samgöngumálaráðuneytið
stjórn þeirra mála, sem grein-
ir í lögum þessum, og er vega-
málastjóri og flugmálaráðu-
nautur ráðuneytinu til aðstoð-
ar við framkvæmd þeirra.
Kostnaður við stjórn flug-
mála og rannsóknir og undir-
búning þeirra framkvæmda, er
í lögum þessum getur, greiðist
úr ríkissjóði.
Kostnaður við framkvæmd
þeirra flugmannvirkja, er um
getur í frumvarpinu skal
greiddur úr ríkissjóði eftir því
sem fje er veitt til þeirra á
fjárlögum.
Að lokum eru i frumvarp-
inu ákvæði um eignarnám,
bætur vegna jarðrasks og land
náms o. fl. Eru þau ákvæði
hliðstæð ákvæðum vegalaga.
London: — Kvikmyndaleik-
konan Myrna Loy hefir kraf-
ist skilnaðar við mann sinn,
John Hertz.
Fimtudagur 7. sept. 1944
Furðuleg skrif
ÞJÓÐVILJINN er í gær,
með skæting til stjórnarvaldai
bæjarins fyrir það, að stræti
isvagnarnir, sem brenna lirá*
olíu, skulj vera stöðvaðir.
Kemur þessi skætingufl
vissulega úr hörðustu átt. Eins
og Þjóðviijamönnum er kunn-
ugt, fór framkvæmdastjórij
strætisvagnanna á sínum tíma,
fram á það, að vagnarnir* 1 2 3 4,
fengju að taka hráolíu í Sliell*
portir svo að þeir þyrftrr ekkí
að stöðvast. En stjórn Dags*
brúnar neitaði þessu afdrátt*
arlaust.
Auðvitað kom engum til
bugar, að auðsóttara yrði að
fá olíu á vagnana hjá Shell
suður í Keflavík. Þessvegnaj
var stjórn Dagsbrúnar ekkl
um þetta spurð sjerstaklega,
En að gefnu tilefni í greiií
Þjóðviljans í gær, spurði borg
arstjóri formann Dagsbrúnafl
(Sigurð Guðnason alþm.)',
hvort stjór n fjelagsins mynd^
levfa að olía sú, sein Þjóð-
viljinn taíar um yrði sótt suð-
ur í Keflavík. En formaður,
Dagsbrúnar þvertók þetta með
öllu.
ITvað er þá Þjóðviljinn að
blaðra um? Tlonum ætti ]>ói
að skil.ja.rt, að á meðan ekkí
liggur fyrir slíkt leyfi frá
stjórn Dagsbrúnar, verðuii
liærinn ekki ásakaður fyrir,
aðgerðarleysi í þessu málí«
Því varla ætlast Þjóðviljinu,
til, að bærinn geri tilraun til
að brjóta verkfall Dagsbrún-
armanna?
Þórarinn á
Hjaltabakka
látinn
ÞÓRARINN JÓNSSON bóndí
og fyrrum alþm. á Hjalta-
bakka, andaðist að heimili
sínu síðastliðinn þriðjudag,
74 ára að aldri. Hann hefir1,
átt við iangvarandi vanheilsu
að stríða. Þessa mæta manns
og gamla þingskÖrungs, verð-
ur minst síðar hjer í blaðinu,
Aður en þingfundur hófsti
í Nd. í gær mintist forsetí
(Jör, Brynjólfsson) Þórarins,
einkar hlýlega, en þingmennj
risu úr sætum og vottuðu hin-
um látna yirðingu sína.