Morgunblaðið - 07.09.1944, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 7. sept. 1944
ÖLFUSÁRBRÚIN FELLUR NIÐUR
Reynt verður að lyfta
brúnni og nota sem
gangbrú
' AÐFARANÓTT MIÐVIKUDAGS s.L slitnaði annar
(nyrðri) aðalburðarstrengur á Ölfusárbrúnni og hang-
ir nú brúin uppi á hinum strengnum. Voru tveir vörubíl-
ar á brúnni, er strengurinn slitnaði og fjellu þeir báðir
niður í ána. Engir farþegar voru í bílunum, en báðir bíl-
stjórarnir björguðust.
Það var um klukkan tvö um nóttina, sem þessi atburður skeði.
Báðir bílarnir voru eign Kaupfjelags Árnesinga, en notaðir til
mjólkurflutninga fyrir Flóabúið. Annar var stór Dodge-bíll,
og voru tómir mjólkurbrúsar á honum, en hitt var bíll af venju-
legri stærð og var hann með trjetex-hleðslu. Hafði sá bíll bilað
i Reykjavíkurferð og Dodge-bíllinn fenginn til að draga hann
austur.
Báðir bílarnir munu hafa
farið veltu, er þeir fóru út af
brúnni. Annar, sá sem var dreg
int!, lenti á grynningum nær
vestprbakka árinnar og var
vaðið út til hans og tókst þann-
ig að bjarga bílstjóranum. En
hirtn lenti í aðal-álnum og er
þar strengur mikill og hyldýpi.
Bx tstjórinn fór í kaf með bíln-
um. en bjargaðist á undraverð-
an hátt og er nánar skýrt frá
þv: á öðrum stað í blaðinu (bls.
4) '
I frásögn þeirri, sem hjer fer
á eftir varðandi Ölfusárbrúna
og úrræði til samgöngubóta nú
eftfr að brúin er fallin, er
stu.fjst við upplýsingar, er
blaðið fekk hjá vegamála-
stjóra.___________________
Aðvaranir.
Svo sem kunnugt ,er, hefir
notkun Ölfusárbrúar verið ó-
venj-umikil undanfarin ár. Hef
ir það mjög aukið á slit brúar-
innar og dregið úr burðarþoli
hennar.
Á s.l. vori var gerð verk-
fræðileg athugun á brúnni
svq sem oftar hafði verið gert
áður. Enda þótt 10 tonna bílar
haf-t oft farið yfir brúna, þótti
engan veginn fært að leyfa
fneiri þunga á brúnni en 6 tonn,
vegna þess, hve brúin var orð-
in gömul og þ. a. 1. hættu við
ofþreytu járnsins og möguleik
um fyrir ryðmyndun í þeim
hlutum burðarliða, sem ekki
sjást. En engir útreikningar
eru til frá firmanu, sem bygði
brúna, um styrkleika hennar.
Hinn 11. maí í vor voru gefn
ar út aðvaranir um notkun
brúarinnar og jafnframt bann-
að að fara með meiri þunga
yfir brúna en 6 tonn.
Þessar aðvaranir voru end-
urteknar 29. júlí og næstu
daga (í útvarpinu). Þá var og
lagt fyrir bílstjóra á stórum
fólksbílum, að láta farþega
ganga yfir brúna. Aðvarapir
voru festar upp beggja megin
brúarinnar.
Fyrri bilanir á brúnni.
Einu bilanirnar, sem vart
hefir orðið á brúnni áður,
er. að komið hefir fyrir, að
hengistengur, sem festar eru
við burðarstrengina og halda
brúnni uppi, hafa slitnað. Þær
hgfa jafnharðan verið endur-
bættar og nýjar settar í stað-
inn. Síðast nú í sumar voru
settar nýjar og gildari hengi-
stengur á alla miðbrúna, til
öryggis.
Það hefir aldrei orðið vart
bilana á sjálfum burðarstrengj
unum, þar til nú aðfaranótt
miðvikudags, að skyndilega bil
ar festing þriggja strengja
öðru megin, þannig, að þeir
renna út úr festunum og önn-
ur hlið brúarinnar fellur niður
Reynt verður að
lyfta brúnni.
Hvað er nú til úrræða?
munu menn spyrja og þá spurn
ingu lagði blaðið fyrir vega-
málastjóra.
Vegamálastjóri og einn af
verkfræðingum hans (Árni
Pálsson) fóru strax austur til
að athuga brúna.
SJEf) UNDIR Ölfusárbrú. Svarta leiðslan, sein sjest
á rayndinni er vatnsveita Selfoss, sem laskaðist er brúin
fjell. . ....
Annar burðarstrengurinn slitnar
Tveir bílar velta í ána
i
Ölfusárbrúin eftir fallið, sjeð frá vestri árbakkanum. Bíll inn í ánni er sá, sem kom niður
á grynningarnar. Hinn bíllinn, sem sökk, fjell rjett fyrir framan þenna bíl, en þar er hyldýpi.
Ljósmynd Mbl. (Jón Sen).
Þeir ákváðu að hefjast nú
þegar handa og reyna að lyfta
brúnni og styrkja hana svo, að
hún verði a. m. k. gangfær.
Vona þeir, að þetta takist, ef
engin sjerstök óhöpp koma fyr
ir. En ekkert má út af bera,
t. d. ef hvessir, þá er hætt við
að fleiri strengir bili á þeim
burðarstreng, sem nú heldur
brúnni uppi og hún falli nið-
ur í ána.
Aðrar samgönguleiðir.
En hvað er unt að gera nú í
skyndi, til þess að halda uppi
samgöngum á þessari leið?
Þessu svaraði vegamálastjóri
á þessa leið:
— Eina bílfæra leiðin nú er
um brúna á Brúarhlöðum í
Hreppum. En sá vegur er víða
mjög slæmur á kaflanum frá
Gröf í Hreppum að Brúarhlöð-
um og er 17 km. leið. Verður
nú þegar hafist handa um við-
gerð á þessum végarkafla.
En þessi leið, yfir brúna á
Brúarhlöðum, er um 130 km.
lengri, svo að hún er neyðar-
úrræði.
Strax í gær voru útvegaðir
bátar á ferjustað, rjett fyrir
neðan Ölfusárbrúna. Var fólk
og flutningur ferjað þar yfir.
Er nú fyrirhugað að bæta lend
ingar beggja megin árinnar og
fá betri farkosli.
Nýja brúin.
Strax í ársbyrjun 1942, var
g^ð bráoabirgðaáætlun um
nýja brú á Ölfusá og þá þegar
rætt um aðkallandi nauðsyn
hennar. En vegna vankvæða á
útvegun efnis til brúarinnar,
þótti ekki unt að hefjast handa
um framkvæmdir.
En nú getur þetta mál ekki
dregist lengur. Nú verður að
hefjast handa um byggingu
nýrrar brúar. En það verður
vitanlega ekki gert í einu hasti,
jafnvel þótt efnið fáist, tekur
það altaf alllangan tíma að
byggja brúna.
Rjettarhöld-
Sýslumaðurinn í Árnessýslu
hóf í gær rjettarrannsókn út af
falli Ölfusárbrúar. — Þeim
rannsóknum er enn ekki lokið-
Vafnsveita Selfoss-þorps.
íbúar Selfoss-þorps hafa lagt
vatnsleiðslu frá Ingólfsfjalli og
’ auslur í þorpið. Vatnsleiðslan
liggur undir Ölfusárbrú. -— Við
fall brúarinnar bilaði vatns-
leiðslan og varð því vatnslausí
í þorpinu fram á miðjan dag í
gær. Af þeim sökum stöðvaðist
einnig rafmagnsmótorinn, sem
þorpið fekk rafmagn frá, svo og
öll starfræksla í mjólkurbúinu.
En um klukkan 3 í gær koms#
vatnsleiðslan í lag og þá fengia
þorpsbúar einnig rafmagnið
aftur.
ÞESSI MYND er af festuimm, sem aðalburðarstreng-
imir þrír voru festir við og þar sem þeir slitnuðu.
ÚRSLITALEIKUH
annars flokks niótsins fer frani á Iþróttavellinum
í kvöld kl. 7,30.
fmm og K.R. keppa