Morgunblaðið - 07.09.1944, Síða 9
Fimtudagur 7. sept. 1944.
MORGUNBLAÐIÐ
9
MÐ TJJSLDMBÆKI
ÞÝSKALAND Á AÐ HVERFA
EF TIL VILL hefir merki
legasta ákvörðunin, sem tek
in var á Teheranráðstefn-
unni, verið sú samþykt stór
veldanna, að í framtíðinni
skyldi nafn Þýskalands
þurkast út úr öllum sögu-
kenslubókum. Ef Teheran-
ráðstefnan hefði tekið sjer
einhver einkunnarorð, hefðu
þau líklegast orðið eitthvað
á þessa leið: „Germania
delenda est“, eða m. ö. o.
Þýskalandi ber að eyða.
Uppástungan um afnám
nafns Þýskalands er sögð
hafa komið frá Rússum, sem
hefir löngum verið það ljóst,
að saga Þýskalands er saga
rána og sigra Prússa í
Þýskalandi.
Þótt auðvitað sje ekki
hægt að segja nákvæmlega
frá öllum fyrirhuguðum
breytingum, má þó með
nokkurri vissu sjá fyrir viss
ar lagfæringar og landa-
mærabreytingar, sem gerð-
ar munu á þýska ríkinu.
Einnig nú er hægt að segja
fyrir um tilhögun banda-
manna á stjórnarfarslegri,
hagfræðilegri og hernaðar-
legri stjórn Þýskalands eftir
stríðið. En menn mega ekki
halda, að þetta fyrirkomu-
lag verði árangur friðarráð-
stefnu, eða byggist á ein-
hvern hátt á friðarsamn-
ingi. Það má gera ráð fyrir
því, að þegar amerísku,
bresku og rússnesku herirn
ir hafa tekið Berlín, verði
lýst yfir friði og nýskipan
Þýskalands byrji þar með.
Það er áreiðanlegt, að
mönnum sem eitthvað hafa
fengisf við málefni Þýska
lands síðustu tuttugu og
fimm árin, verður ekki gef-
inn kostur á öðru tækifæri.
Þetta ákvæði mun einnig ná
til þeirra andstæðinga nas-
ista, sem stjómuðu Weim-
ar lýðveldimp á þá er vart
treystandi. Óhæfi þeirra
hjálpaði Hitler upp í valda-
stólinn.
Fjórþætt lausn
vandainálanna.
í STÓRUM dráttum má
skifta lausn þýsku vanda-
málanna eftir styrjöldina í
fjóra flokka: landfræðiiega,
hernaðarlega ,stjórnarfars-
lega og hagfræðilega.
Að því er landamæra-
breytingunum viðvíkur,
hljóta veigamiklar lagfær-
ingar að fara fram í austri.
Ef Pólverjar fallast á Cur-
zon-línuna, verða þeir að fá
alt Austur-Prússland í sára
bætur. Með þessu móti
fengju Rússar aftur land-
svæði það, sem Pólverjar
undir stjórn Pilsudskis, tóku
af þeim eftir lok fyrri heims
styrjaldarinnar. Þá var mál
ið til lykta leitt samkvæmt
samningum í Riga 1921.
Þessi lausn myndi eigi ein-
ungis hafa í för með sjer
endalok hins heimskulega
pólska hliðs, heldur og
myndi ráðin bót á gömlu
sögulegu órjettlæti.
Menn ættu að hafa það
Eftir Johannes Steel
,,Eftir styrjöldina á að búta Þýskaland sundur, sum-
part í sjerstök ríki, sumpart í sneiðar, sem falla öðrum
ríkjum í skaut“, segir Johannes Steel rithöfundur, út-
varpsfyrirlesari og stríðsfrjettaritari blaðsins New York
Post.
POST-WAR StRMANY
Skifting Þýskalands eftir stríð.
hugfast í þessu sambandi,
að á elleftu öld voru þýsk-
pólsku landamærin skamt
frá Berlín. Magra alda til-
raunir í þá átt að gera land-
ið þýskt mistókust, og næst-
um því helmingur íbúanna
í Austur Prússlandi er pólsk
ur. Hálft fjórða þúsund
þýskra junkara áttu nær því
helming allra landeigna, og
þeir höfðu tögl og hagld-
ir um alla stjórn bæði Aust-
ur- og Vestur-Prússlands.
Mestur hluti bændanna, sem
lítið eða ekkert land áttu,
voru ánauðugir þrælar junk
aranna. Með því að innlima
Austur-Prússland í pólska
ríkið, verður fjárhagsgrund
vellinum kipt undan þýsku
junkarastjettinni, en þaðan
hafa löngum komið meðlim
ir þýska herforingjaráðsins.
í Sljesíu mun landamær-
unum milli Póllands og
Þýskalands einnig verða
breytt. Af tveimur miljón-
um íbúa Efri-Sljesíu talar
hálf önnur miljón pólsku.
Þess vegna munu banda-
menn að öllum líkindum
hallast aftur að upphaflegri
ákvörðun Versala ráðstefn-
unnar en í friðarsamningn-
um sem afhentur var þýsku
sendinefndinni 8. maí 1919
er kveðið svo á, að öll Efri-
Sljesía eigi að hver.fa til
Póllands. Þessari ákvörðun
var seinna breytt vegna ó-
bilgirni þýsku samninga-
mannanna. í þetta skifti
mun ekki verða um neina
samninga að ræða. Það er
hreinn pólskur þjóðernis
meiri hluti í Efri-Sljesíu,
sem nemur 64%.
Að því er snertir vestur
landamæri Þýskalands,
voru ákvarðanir Teheran-
fundarins, að því er best
verður sjeð, í þessa átt: Saar
hjeraðið ásamt Elsass-Lotr-
ingen verður aftur skilað
Frökkum. Aðrar landamæra
breytingar fjalla um endur-
reisn Austurríkis og Tjekko
slovakíu. Sljesvík-Holstein
verður látið af hendi við
Dani en Kielarskurðurinn
verður annað hvort frjálst
alþjóðasvæði eða afhentur
Danmörku.
Hamborg, Lubeck og
Bremen fá sömu stöðu og
borgir þessar höfðu fyrir
1914. Þær verða aftur sjálf-
stæðar Hansaborgir og hafn
ir þeirra munu tryggja hæfi
lega þróun Þýskalands í al-
þjóðaviðskiftum og þar að
auki stuðla að sköpun nýs
þýsks ríkjasambands.
Þýskaland verður aftur
ríkjasamband.
ÞAÐ MERKILEGASTA í
þessari nýju skipan er ef til
vill sú breyting, sem á að
gera á sjálfu þýska ríkinu
og miðar að því að skifta
því í nokkur smærri ríki
eftir amerískri fyrirmynd.
Með því á að koma í veg fyr
ir það, að ríki eins og Prúss-
land geti orðið alls ráðandi
í ríkjasambandinu. Prúss-
land yrði þá, það sem það á
að vera: aðeins hjeruðin
Pommern. Brandenburg og
Sljesía, eða það. sem eftir
verður af þeim, er Pólverjar
hafa fengið sitt.
Ríkjasambandið mun hafa
sameiginlegan gjaldmiðil,
póstþjónustu og vegabrjefa
útgáfu. Landsvæðið fyrir
vestan Weser og norðan ána
Main verður skilið frá Prúss
landi og sameinast Rínar-
Westfalen ríkinu. Það verð
ur hluti þýska ríkjasam-
bandsins en verður í nánari
fjárhags- og menningar
tengslum við sjálfstætt Baj
ern, sem þó einnig verður
meðlimur sambandsins.
Saxland verður endur-
reist sem sjálfstætt ríki, en
ræningjabælið Prússland
takmarkast milli ánna Elbe
og Oder. Turingeri verður
sameinað Saxlandi.
Búið mun verða þannig
um hnútana, að þýska iðn-
aðinum verði ekki aftur
hægt að breyta í vopnafram
leiðslu. Bandamenn munu
hafa eftirlit með því inn á
hvaða brautir þýskri iðnað-
arframleiðslu verður beint
eftir styrjöldina. Mikill
hluti verkfæra- og vjelaiðn-
aðarins verður fluttur til
Rússlands, þar sem þörf er
fyrir hann — ásamt tveim-
ur miljónum þýskra verka-
manna, sem annað hvort
verða fluttir þangað frá
Þýskalandi eða valdir úr
þeim stóra hóp þýskra
fanga, sem Rússar hafa tek-
ið í stríðinu.
Alþjóðanefnd á að hafa
eftirlit með innflutningi hrá
efna til Þýskalands og sjá
svo ujn að engar brellur
verði hafðar í frammi. Land
búnaðarframleiðsla Þýska-
lands verður aukin, en iðn-
aðargetan minkuð að mikl-
um mun. Þýsku hringarnir
verða afnumdir eða stjórn-
að af alþjóðlegum peninga-
stofnunum.
og munu Bandaríkjamenn,
Bretar og Rússar hertaka
hvert svæði fyrir sig.
Á vettvangi stjórnmál-
anna má sjá það fyrir, að
sjerhver Þjóðverji, sem ver
ið hefir meðlimur nasista-
flokksins verður sviftur
kosningarjetti og kjörgengi,
borgaraleg rjettindi önnur
mun hann og missa og eng-
an þátt fær hann að taka
í endurreisn þýska ríkisins,
sem bandamenn munu hafa
umsjón með.
Það verður að brjóta
þýsku auðhringana
á bak aftur.
ÞAÐ ER ástæða til þess
að ætla, að í Teheran hafi
menn orðið sammála um
það, að ein veigamesta or-
sökin fyrir sigrum Þjóðverja
í Evrópu hafi verið straum-
ur þýsks fjármagns út í
hvern krók og kima megin-
landsins. Það er alveg ótrú-
legt, hvernig Þjóðverjum
hefir tekist að ná tangar-
haldi á bönkunum, iðnaði,
tryggingastofnunum og við-
skiftalífinu yfirleitt í Ev-
rópulöndunum. Eitt af erf-
iðari viðfangsefnum banda-
manna eftir stríðið verður
glíma þeirra við hinn gevsi-
mikla auðhring, sem Þjóð-
verjar hafa skapað með sam
einingu alls iðnaðar og við-
skifta* á meginlandinu. —
Þenna hring verður að
leggja að velli og eyða hin-
um óhollu þýsku áhrifum í
viðskiftalífinu. Alþjóða-
nefnd mun hafa eftirlit með
fvrirtækjum þeim,
hljóta að rísa á
þessa hrings.
Eftirlit með uppfræðslu
þýskrar æsku.
Menn urðu einnig sam-
mála um það að ef þýsku
þjóðinni yrði veitt sjálfsá-
kvörðunarvald þegar að
stríðinu loknu, myndi hún
vafalaust hallast aftur að
fasismanum í einhverri
mvnd. Það var þess vegna
samþykt að eftirlit yrði haft
með uppfræðslu þýskrar
æsku, og hún alin upp við
lýðræðishugsjónir í að
minsta kosti tuttugu og
fimm ár eftir stríðið. Vænta.
má, að eftir þann tíma verði
þýsk æska búin að tileinka
sjer eitthvað af þeim lýð-
ræðisreglum og hugmynd-
um, sem þátt eiga í því að
gera sambúð þjóða og ein-
staklinga þolanlega. Það
hefir þegar verið hafist
handa um undirbúning
slíkrar fræðslu.
Einnig var samþykt í Te-
heran, það sem kalla mætti
kenninguna um sameigin-
lega ábyrgð. Upplýsinga-
nefnd bandamanna í Lond-
on hefir giskað á að þar til
í lok marsmánaðar þessa árs
hafi hjer um bil fimm milj-
ónir borgara verið teknir af
lífi eða látist í fangabúðum
nasista eða fangelsum í
þeim níu löndum, sem Þjóð
verjar hafa hernumið. Nú
er svto komið að ekki einu
sinni óttinn við endurgjald
fær þýsku þjóðina til þess
að koma í veg fyrir áfram-
haldandi blóðsúthellingar.
Menn urðu sammála um
það, að því sem' næst ein
miljón. Þjóðverja hljóti að
vera viðriðnir morðin á þess
um fimm miljónum borg-
ara, þ. e. a. s. þeir, sem fram
kvæmdu aftökurnar, þeir
sem gáfu fyrirskipanirnar
og þeir sem lögðu á ráðin
um morðin. Rjettarhöld
munu haldin yfir þessum
mönnum og verður hver að
bera ábyrgð á sínum gjörð-
um. Hegningin verður miss-
ir borgararjettinda, erfiðis-
vinna í hinum eyddu hjer-
uðum Frakklands, Póllands
og Rússlands eða líflát.
Þetta er bara nokkur hluti
þess, sem rætt var um í Te-
rústum | heran. Hugsast getur, að ein
hverjar breytingar verði á
sem
Til þess að varna yfir- þessum ákvörðunum eða aðr
gangi og tryggja öryggi eft j ar teknar — en yfirleitt
ir stvrjöldina, verður alt j virðist þetta heilbrigður
þýskt land hernumið um að, grundvöllur að byggja á og
minsta kosti tuttugu og
fimm ára skeið. Hernumda
landinu verður skift í þrent,
vænlegur til þess að koma
í veg fyrir aðra styrjöld í
náinni framtíð.