Morgunblaðið - 22.12.1944, Qupperneq 1
16 síður
31, árgangur. 283. tbl.
LÍKLEGT AÐ
VERÐI EKKI
— Föstudagur 22. desember 1944. Isafoldarprentsmiðja h.f.
SÓKN ÞJÓÐVERJA
STÖÐVUÐ í BRÁÐ
Geslapomenn
í essinu sínu
MisþyrnÆigar og
fantabrögð
Frá norska blaðafulltrú-
anum:
Bresk flugvjel varð nýlega að
n,auðlenda hjá Os 30 km. sunn-
an við Bergen. Flugmennirnir
kveiktu í flugvjelinni, og
hvurfu síðan.
Gestapo fór strax á stúfana.
Kvennsnipt ein var send til Os.
Hún hafði bænakver, sálma og
nýja testamentið til sölu. Hún
gekk á milli heimilanna og
lagði hlustir við því, sem talað
var manna á milli.
Síðan fór hún leiðar sinnar.
Kom brátt aftur. Þá var ann-
að upplit á henni. Þá var hún í
fylgd með Þjóðverjum. Þýsku
lögreglumennirnir rjeðust inn í
hvert heimilið af öðru, og
drógu alla karlmenn út úr hús-
unum. Skipuðu þeim að leggjast
endilöngum á frosna jörðina.
Spörkuðu þeir í hina varna-
lausu menn, lömdu þá og
frömdu önnur níðingsverk á
þeim. Sumir þessara manna
voru teknir og þeim ekið á
brott, til þess að veita þeim
sjerstaka meðferð“ alt eftir for-
skriftum Gestapo.
A annað hundrað manns voru
teknir fastir. Þjóðverjar full-
yrtu að þeir hefðu fundið
vopnabirgðir í Os í höndum
Norðmanna.
Allir karlmenn á aldrinum
18—135 ára urðu fyrir misþyrm
ingum. Þjóðverjar ljetu þá leggj
ast marga hlið við hlið meðan
misþyrmingarnar fóru fram.
Urðu menn þessir að liggja
hreyfingaflausir alt að því 8
klukkustundir.
Gestapomennirnir, sem þarna
voru, voru í essinu sínu. — Á
einum stað skutu þeir hund og
Ijetu húsmóðurina ganga með
sjer um alt húsið með blóðugt
hræið í fanginu, á meðan þeir
fleygðu öllum innanstokksmun
um heimilisins út um gluggana.
Þegar komið var með fang-
ana frá Os til Bergen, andaðist
einn þeirra þegar af sárum.
Grimmir bardagar
norðan Faienza
Barist er nú af mikilli heift á
Ítalíuvígstöðvunum á 15 km.
breiðu svæði milli ánna Lemone
og Segno fyrir norðan Faienza.
Þa standa Þjóðverjar fast fyrir,
og verjast af ógurlegri hörku,
en Indverjar, Kanadamenn og
Nýsjálendingar sækja á.
emocn
gronningen
*T AMstERBAH \
Sv * + v +
GPONAN
•MMERíCH
t++, + + :
0U$$eu>0RF
ANTWERPBN
8RUSSEL
'MCHEN
NAMUR
TRtER
Vígsvæðið í Belgíu og Luxemburg sjest lijer á kortinu. Talið
er að Þjóðverjar sjeu komnir framhjá Liege fyrir sunnan
borgina og hafa rofið það þar mikilvægan veg, sem liggur til
suðurs.
Bnrist öf hörku
i Aþenu enn
< -■ —
Stjórnin klofin í ríkisstjóramálinu
Stokkhólmi í gær. Einkaskeyti til Morgun-j
blaðsins frá Reuter. |
I allan dag hafa verið harðir bardagar í Aþenu og hafa
breskar flugvjelar sveinmð yfir borgumi í leit að fallbyssu-'
stæðum Etasmanna, en ekki hafa borist miklar fregnir vnn|
það, hvernig gengið hefir að eyðileggja fallbyssur þessar.l
Þá hafa borist- fregliir um það, að skæruliðar berjist innbyrð-
is í NorðurGrikklandi af-'miklum ákafá. Stjórnin hefir klofn-
að í spursmálinu um það, hvort beri að gera érkibiskup Aþenu
að ’ríkisstjóra.
Foringjar skæruliða eru sagð
ir hafa skorað á menn sína að
herða baráttuna, sem mest, og
láta ekki bilbug á sjer finna,
heldur vera undir vopnum og
sem vígreifastir, er ríkisstjórinn
tæki völd. En nú virðist ætla
að vera bið á því, að þetta verði
þar sem sterkur flokkur innan
stjórnarinnar er nú á móti skip
an erkibiskupsins í embætti
þetta og virðist því heldur lítið
um einingu í landinu sem stend
ur.
Frjettaritarar telja að fallið
hafi af skæruliðum, eða verið
teknir höndum um 5000 menn.
Loftárás á Trier
London: t gær gerðu bresk-
ar Lancasterflugvjelar miklar
árásir á þýslav borgina Trier.
Þeir eru kom.nir yf ir
50 km. inn 1 Belgíu
og því nær yf ir
Luxemburg
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HERFRÆÐINGAR ERU alment á þeirri skoðun, að
sókn Þjóðverja í Belgíu og Luxemburg verði ekki stöðvuð
í bráð, að minsta kosti ekki að fullu, og eigi baráttan eftir
að ná hámarki sínu. í dag kom það fram af opinberri
hálfu bandamanna, að á þriðjudagskvöldið var hefðu
Þjóðverjar verið komnir um 50 km. inn í Belgíu og því
nær yfir Luxemburg, og er líklegt að fylki þetta sje nú
alt á valdi Þjóðverja aftur. — Rundstedt hefir rofið þýð-
ingarmikinn veg, sem liggur milli hinnar miklu iðnaðar-
borga Liege, og borgarinnar Arlon. suður við landamæri
Luxemburg. — Sækir her Rundstedts fram á sama svæði
og vorið 1940, og er enn talið, að skarðið í varnarlínu
fyrsta Bandaríkjahersins sje um 50 km. breitt, en mót-
spyrna bandamanna er hörð á báðum fylkingarörmum.
áhlaisp Rússa
við Balatonvatn
London í gærkveldi:
Rússar herða nú árásir milli
Dónár og Balatonvatns, og er
nú barist þar af ákaflegri
hörku. Segja Þjóðverjar Rúss-
ar beita þarna bæði miklum
flugher og landher. — Ekki er
neitt barist að ráði nærri Buda
pest, en framsókn Rússa austur
í Slovakíu heldur enn áfram,
þótt ekki hafi þeim enn tekist
að ná borginni Kositze á sitt
vald.
Einnig sækja Rússar hart að
þeim þýsku og ungversku her-
sveitum, sem verja kola- og
járnnárhahjeruðin í Norðaust-
ur-Ungverjalaridi, en breyting
ar hafá ekki orðið miklar þar
Þrír nýir kjörræðis-
menn islands
í Ameríku
ÞRÍR NÝIR kjörræðismenn
hafa verið skipaðir í Ameríku.
Þann 20. október s. 1. var Kol-
beinn Thordarson skipaður
vararæðismaður í Seattle.
Sama dag var Steingrímur
Ocatvius Thorláksson skipaður
vararæðismaður í San Franc-
isco og sama dag var og Stan-
ley Olafsson skipaður vararæð-
ismaður í Los Angeles.
í dag segja fregnritarar
sókn Þjóðverja hafa haldið
áfram af miklum þunga, og
er talið, að þeir sjeu komnir
vestur fyrir Liege að sunn-
an. Ekkert hefir frjettst,
hvort þeir sjeu komnir til
borgarinnar. Þeir nota stöð-
ugt mikið af fallhlífaliði, og
beita því aðallega til þess að
rjúfa samgönguleiðir.
Tveir fleygar.
í fregnunum frá aðal-
stöðvum bandamanna var
svo sagt, að það sjeu tveir
djúpir fleygar, sem Þjóð-
verjar hafa rekið inn í stöðv
ar bandamanna, annan í
Belgíu; en hinn í Luxem-
burg. í dag var enn þoka á
vígstöðvunum, og ekki hægt
að beita f lughernum til
neinna muna. Var það mjög
erfitt fyrir bandamenn. sem
stöðugt senda varalið á vett
vang, að geta ekki notað
flugherinn til að slæva sókn
Þjóðverja.
Skýrsla Þjóðverja.
Þýska herstjórnin segir
um þessi mál í dag, að sókn-
in haldi áfram, en nefnir
enga staði, nema Liege og
Arlon, er hún tilkynnir að
vegurinn milli þessara staða
hafi verið rofinn. Þjóðverj-
ar segjast nú alls hafa tekið
20.000 fanga, og ennfremur
163 skriðdreka og 52 fall-
bvssur, af bandamönnum,
og sjeu v'arnir þeirra í hin-
um mesta ólestri.
Framh. á 2. síðu