Morgunblaðið - 31.08.1945, Qupperneq 16
16
|,n’T n jTFJTf
! . ■> I .i * ! ÍÍilJ
fAndráMafíðbfl
stofnað
Skorar á Mentamálaráð
að auka laun tónskálda
TÓNSKALDAFJELAG IS-
I/ANDS var stofnað í Reykja-
vík 25. júlí s.l. til þess að gæta
hagsmuna tónskálda. Fjelags-
menn eru allir fjelagir í
„Bandalagi íslenskra lista-
manna“. Stjórnina skipa: Páll
ísólfsson formaður, Hallgrímur
Helgason/rítari, Helgi Pálsson
gjaldkeri, Jón Leifs var kos-
inn varaformaður.
Stofnendur samþyktu með
öllum atkvæðum að senda
Mentamálaráði Islands svo-
hljóðandi brjef:
„Tónskáldafjelag Islands“
ieyfir sjer hjermeð að senda
„Mentamálaráði Islands“ lög
fjelagsins ásamt nöfnum fje-
lagsmanna og vill um leið virð
ingarfylst vekja eftirtekt ráðs-
ins á kjörum íslenskra tón-
skálda.
Fyrst er þess að geta, að laga
vernd íslenskra tónverka er,
hæði á Islandi og erlendis, ófull
komnari en í flestum ef ekki
öllum öðrum löndum, en mögu
leikar til flutnings tónverka á
íslandi minni en annarsstaðar,
en gjöld fyrir flutning tónverka
eru aðaltekjur tónskálda. Erfið
tónverk færa erlendis jafnvel
þarlendum höfundum tiltölu-
lega litlar .tekjur og þær venju
Iega þeim mun minni, sem
verkin eru veigameiri. Hæstu
árslaun tónskálda á íslandi
%
hrokkva nú tæplega til óhjá-
kvæmilegrar afritunar eins
meiriháttar tónverks ásamt
raddheftum, en til flutnings
þarf oft þegar í fyrsta sinn alls
konar fjölritun, þó að ekki sje
bugsað um að prenta verkin.
Ef tillit er tekið til sölumögu-
leika skáldsagna, virðist síst
viðeígandi, að tónskáldalaun
sjeu lægri en laun rithöfunda.
Þar sem laun leikara eru ekki
veitt af fje til bókmenta eða
rithöfunda, virðist heldur ekki
rjettmætt að launum túlkandi
tónlistarmanna sje úthlutað af
sömu upphæð og til tónskálda.
„Tónskáldafjelag íslands“
leyfir sjer því að fara þess á
leit, að Mentamálaráðið ákveði
við næstu úthlutun sjerstaka
upphæð til tónskáida eingöngu,
oe aðra upphæð til afritunar,
fjölritunar eða prentunar tón-
verka.
Virðingarfylst
Páll Isólfsson, form.
Hallgrímur Helgason, ritari.
Helgi Pálsson, gjaldkeri.
.......... .......................... ' ' -.................................................................................
Húsgöp geSin í
,1.
dtuoentsyðrounRn ryifiM
eílr fimm ára liersetu
r B/
BRESKA SETULIDIÐ á Islandi heíir nú rýmt Stúdentagarð- ,
inn, og Stjójjn Stúdentagafðanna hefir aftur fengið full umráð
yfir húsinu. Síðustu sjúklingarnir/voru fluttir af Garði fyrir
| nokkrum dögum, og í gær flutti það, sem eftir var af starfsliði
■ hersins, í burtu.
Vigerðá „Drotn-
fngunni" lokið eft-
fr íyo mánuSi
RÍKISSTJÓRNINNI hefir bor-
Tst-svar við fyrirspurn, er send
var til Danmerkur, út af danska
ekipinu Dronning Alexandrine-.
Segir þar, að skipið hafi verið
tekið til viðgerðar og muni
henni ekki verða lokið fyrr en
eftir tvo mánuði. — Ráðgert er,
að skipið hefji síðan venjulegar
áætlunarferðir, milli íslands og
Danmerkur; ef um nægan flutn
ing og farþega verður að ræða.
Fimm ára herseta.
Um rýmingu Garðs segir á
þessa leið í tilkynningu frá
stjórn Stúdentagarðanna:
Biæska setuliðið hjer hefir
notað Stúdentagarðinn sem
sjúkrahús síðan það steig hjer
á land í maí 1940. Það hefir eðli
lega haft í för með sjer mikil
óþægindi fyrir íslenska háskóla
stúdenta að hafa ekki húsið til
afnota, og hefir Garðstjórn
gert margar tilraunir til þess
að fá það rýmt, en herstjórnin
hefir ekki talið sjer fært að
rýma það fyrr en nú. Síðan
Evrópustríðinu lauk, hafa stað
ið yfir stöðugir samningar við
sendiherra Brcta og bresku
hernaðaryfirvöldin um að
hraða rýmingu Garðs eftir því,
sem frekast væri unt. Lagði
stjórn ríka áherslu á nauðsyn
þess, að auðið yrði að gera Garð
íbúðarhæfan fyrir haustið. Setu
liðið hefir nú reist bráðabirgða-
sjúkrahús við flugvöllinn og
hafa sjúklingarnir, sem voru á
Garði, verið fluttir þangað.
Viðgerð og breytingar.
Garðsstjórn hóf þegar snemma
í sumar nauðsynlegan undir-
búning til þess að geta hafið
viðgerðir á húsinu strax og það
losnaði. Er viðgerð á Garði
þegar hafin, því að naumur
tími er til stefnu, en óhjákvæmi
legt að hægt verði að búa í hús-
inu í vetur, því að húsnæðis-
vandræði stúdenta munu aldrei
hafa verið meiri en nú. Hafa
borist um 140 umsóknir um
húsnæði á Görðunum. Fyrir-
hugað er að reka matsölu á
Gamla Garði, en hætt er við,
að hún geti ekki tekið til starfa
strax 1. október. Verður því
lögð rík áhersla á að hraða nauð
synlegum aðgerðum svo, að
mötuneytið geti sem allra fyrst
hafið starfrækslu, en óhjá-
kvæmilegt verður að gera ýms-
ar breytingar á kjallara Garðs,
þar sem miklu fleiri stúdentar
munu borða í mötuneytinu en
gömlu matsalirnir geta rúmað.
Er í ráði að gera leikfimissal-
inn einnig að borðstofu. Húsið
hefir eðlilega látið nokkuð á
sjá, en þó síst meira en búast
mátti við eftir rúmlega fimm
ára hersetu. Breytingar hafa
engar verið gerðar á herbergja-
skipun, en nauðsynlegt verður
að mála allt húsið og dúkleggja
að nokkru leyti.
Bretar bæta skemmdir.
Bretar hafa lofað að greiða
allar skemmdir, sem orðið hafa
á Garði umfram eðlilegt slit.
Hefir Garðsstjórn fengið dóm-
kvadda tvo matsmenn, þá Björn
Rögnvaldsson, byggingameist-
ara, og Sigurður Jónsson, múr-
arameistara. Eru þeir þegar ^
byrjaðir að meta skemdirnarj
ásamt fulltrúa Breta Mr. Mas-
land.
Gústaf Pálsson, verkfræðing-
ur, hefir tekið að sjer að sjá
um allar viðgerðir á húsinu, og
hefir Garðsstjórn falið honum
að gæta hagsmuna sinna við
matsgjörðina. Væntir Garðs-
stjórn þess, að auðið verði að
komast að samkomulagi við
breska yfirvöld um bótagreiðsl-
urnar. ^
Stúdentar munu fagna því
mjög, að þetta heimili þeirra
stendur þeim nú aftur opið, og
blaktir islenski fáninn nú yfir
Garði í fyrsta sinn eftir rúm
fimm ár.
Þess skal að lokum getið, að
vegna hinnar miklu nauðsynj-
ar að hraða sem mest viðgerð-
um, er ekki’hægt að leyfa fólki
aðgang að Garði til þess að
skoða hann, fyrr en viðgérðum
er lokið.
SÍÐAN nýi stúdentagarður-
inn var reistur, hefir setustofa
Garðsins verið lítið notuð vegna
húsgagnaleysis. Var Garðstjórn
það ljóst, að það myndi kosta
mikið fje að gera stofuna vist-
lega og erfitt á ófriðartímum
að láta gera húsgögn, sem gætu
verið til írambúðar.
Garðsstjórn sneri sjer því sí&
astliðinn vetur til Ólafs John-
son, stórkaupmanns i New
York, og bað hann aðstcðar.
Reyndist það'ýmsum erfiðleik-
um bundið að útvega húsgögn-
in, en *þó tókst að leysa málið
vegna áhuga og dugnáðar Ólafs
Johnson. Síðari hluta vetrar
voru hiisgögnin flutt heim,
stólar, borð og bekkir, og reynd
ist svo, að ekki vetö.. á...hetra
kosið að fegurð og styrkleika.
Þau skilaboð fylgdu, að þeim
hjónum, frú Guðrúnu og Ólafi
Johnson, væri það ánægja að
afhenda húsgögnin sem gjöf til
Stúdentagarðsins.
Þetta er ein hin þarfasta og
höfðinglegasta gjöf, sem Nýja
Stúdentagarðinum hefir borist,
og hefir Garðsstjórn, fyrir hönd
stúdenta, beðið blaðið að flytja
þeim hjónum og Eimskipafje-
laginu, sem flutti húsgögnin
ókeypis heim, innilegustu þakk
ir.
(Tilkynning frá stjórn
stúdentagarðanna).
Föstudag-ur 31. ágúst 1945,
Eíisch leikur fyrir
melimi' Tóniislar-
fjelagsins
ADOLPII BUSCII hjelt síð-
ustu opinberu tónleika sína í
fyrrakvöld, fyrir fullu húsi
áheyrenda, sem Ijetu hrifningm
sína í Ijós, ekki síður en ái
fyrri tónleikum. Listamannin-
um bárust margir blórnvendir.
Á morgun kl. 3 og á sunnu-
, dag kl. 11 árd. mun P>i:seh
leika fyrir styrktarmeðlimi]
Tónlistarfjelagsins. — Mun
strengjasveit fjelagsins og dr.
Urbántschitsch aðstoða lista-
manninn. — Viðfangsefnin.
eru öll eftir J. S. Bach, —■
Tónleikarnir verða haldnir í
Tripol i-leikhúsinu.
Af óviðráðanlegunr ást.æð-
um verða tónleikarnir að vera
á þessum tíma, þar sem Adolph
Busch mun fara hjeðan bráð-
lega.
Fjelagar í Tónlistafjelagimt
! eru beðnir að vitja miða. sinna
hið fyrsta í Tónlistarskólaini.
Sá, sssa ók á gamla
Bankatnann fá iéðir
í Kleppsholfi
BÆJARRÁÐ hefir samþykkt
að ætla Byggingarsamvinnufje
lagi bankam«nna leigulóðir
undir einnar hæðar- timburhús,
með risi, inni í Kleppsholti.
Er hjer að ræða um 25 lóðir.
Kenslukvikmyndir
rir bamaskólana
BÆHARRÁÐ hefir heimilað
fræðslumálafulltrúa Reykja-
víkur að, koma upp kennslu-
myncfasafhi fyrir bæjarskólana.
Notkun kVikmynda í þágu
kennslu í Rarnaskólum ryður
sjer nú hvarvetna til rúms, og
framleiddar eru nú víða
kennslukvikmyndir í stórum
stíl, sjerstaklega af hverskonar
framleiðslu og atvinnuháttum
þjóða, þjóðlífi, svo og myndir
varðandi einstakar námsgrein-
ar, eins og eðlisfræði, heilsu-
fræði, landafræði, náttúrufræði
og fleira.
mn er
inn að koma lil
viðlals
S.l. laugardag var bifreið!
ekið á gamlan mann á Leifs-
götn, skamt frá gatnamótuin
Leifsgötu og Barónstígs. —
Bílstjórinn fór með gamla
•manninn á slysavarðstofuha,
og er gert hafði verið að sár-
uin hans, fór hann með mann-
| inn heim til sín. Bílstjóri þessi
| sagði gamla manninum, að
j hann myndi köma til hana
| daginn eftir, en hann hefug
ekki látið sjá sig.
Það eru vinsamleg tilmæli1
rannsóknarlögreglun nar, til
hílstjóra þessa, að hann hafi
hið fyrsta tal við sig.
I B R æilar að
byggja leikskála
TENNIS- og Badmintonfje-
lag Reykjavíkur hefir farið
fram á, að fá lóð fyrir starf-
semi fjelagsins, til þess að
byggja þar leikskála og jafn-
vel útivelli. Bæjarráð ákvað að
ætla fjelaginu lóð í þessu skyni
á íþróttasvæðinu í Laugardaln-
um, eftir nánari ákvörðun síð-
ar. —
10 þúsund króna
gjöf til Nýa Garðs
NÝJA stúdentagarðinum hef-
ir borist tíu þúsund króna gjöf
frá frú Ragnhildi Benedikts-
dóttur, Akureyri, til minningar
um bróður hennar, Einar Bene-
diktsson, skáld.
(Tilkynning frá stjórn
stúdentagarðanna).
Handknaifleiksmót
Anslurlands
NÝLOKIÐ er handkuatt-
leismóti kvenna Austanlands,
Tóku þrjú fjelög þátt í mót-
inu, og sendu til þess tvo
flokka hvert, fyrsta og annan
flokk. Fjelögin voru þessi: —.
Þróttur úr Neskaupstað, —■
Austri af Eskifirði, og Huginn
frá Seyðisfirði.
I fyrsta flokki fóru leikar
þannig, að Huginn sigraði;
Þrótt með 3—1 og Austra með.
5—‘2, en Þróttur vann Austra,
Sigraði því Ilugimi í 1. fh
með 4 stigum, en Þróttur
hlaut 2. í
í öðrum flokki sigraði Þrótt
ur með 4 stigum, Huginn hlaut
2, en Austri ekker'
Engir fangar í Hiroshima
LONDON: Japanar hafa til-
kynt,,að engir stríðsfangar frá
bandamönnum hafi verið í Hir-
oshima, þegar atomsprengjan
fjell þar. Ekki er vitað nema
einhverjir kunni að hafa farist
í Nagasaki.