Morgunblaðið - 12.09.1945, Blaðsíða 1
16 síður
82. árgangur.
202. tbl. — MiSvikudagnr 12. september 1945,
lsafoldarprentsmiðja h.f.
Fjörulíu háttsettir Japanar handteknir
Tilraunir til að knýja
eimreiðir með atóm-
orku að byrja
Annar skauf sig,
hinn var hand-
fekinn
London í gærkvöldi.
BRÁTT verður hafist handa um að gera tilraunir á
því, hvort ekki sje hægt að knýja eimreiðir með atóm-
orku. Þetta verður gert í Bandaríkjunum af Ralph Lucas
aðalrannsóknarsjerfræðingi New Yorkborgar. — Verður
eimreið þessi útbúin sjerstaklega og síðan byrjað á til-
raununum. I eimreiðinni verður komið fyrir tækjum til
þess að sprengja kvikasilfursatöm. Talið er að eitt sprengt
kvikasilfursatóm myndi gefa frá sjer orku, sem nægilegt
\æri til þess að knýja eimreið, sem drægi 100 fullhlaðna
jámbrautarvagna, 45 ferðir milli New York og San Fran-
ciseo, en fjarlægðin milli þessara tveggja staða er rúm-
lega 4800 kílómetrar.
-Reuter.
Utanríkisráð-
herrar á fundi
London í gærkvöldi.
JiVlt.íAÐUR er nú fundur
utanríkisráðherra stórveld-
anua í London, og var Bevin
utanríkisráðherra Breta fund-
arsfjóri í dag. Fóru þá fram.
umfirbúningsumraeður, en tek-
ið verður til við að ræða frið-
arsamningana við Itali á morg
un. Sá orðrómur hefir komið
ui>]), að Italir eigi að fá að
haida öllum sínum fyrri ný-
lepdum, en James Byrnes, ut-
anríkisráðherra Bandarík.j-
anna hefir lýst því yfir, að
]>að s.je með öllu tilhæfulaust,
að nokkuð hafi verið afráðið
um það. Þegar uppkast hefir
verið • gert að friðarsamning-
unmn \ ið ítali, verður farið'
að atlníga friðarsamningana
við Finna, Búlgara, Rúmena
og Ungverja. — Allir ráðherr
arnir hafa með sjer allmarga
s.jerfræðinga sjer til aðstoðar.
Þeim verða haldnar margar
veisiur af Bretum, meðan ]>eir
dvel.ja í London, en talið er að
fundmánn muni standa í um
hálfiin inánuð. Skrifstofa verð
ur sett á stofn í London, til
þess að hafa á hendi millij
funda ýms málefni, er ráð-
herranefndina varðar.
Leynisala blómgast
LONDON: Feykilega mikil
leynisala á sjer nú stað í Mar-
seilles. Nýlega rannsakaði lög-
reglan þar vegabrjef 10000
manns sama daginn og tók af
þessu fólki 360 fasta fyrir ólög-
lega verslun.
Eyðilagði smásjá
— dæmdur ti!
dauða
London í gærkvöldi.
ÞYSKI vísindamaðurinn Len-
ner hefir verið dæmdur til
dauða í Vínarborg. Sakaður var
hann um það, að hafa eyðilagt
einhver tæki í vinnustofum há-
skólans í Vín, er Rússar voru
komnir inn í borgina, þar á
meðal rafmagns-smásjá eina
mjög dýrmæta. Einnig er hon-
um gefið að sök, að hann hafi
miðað skammbyssu á samstarfs
menn sína, er þeir ætluðu að,
koma í veg fyrir, að hann eyði j,
legði tækin. — Reuter.
Tojo, fyrv. forsætisráðh.
skaut sig. Ovíst hvort
hans verður bjargað
Washington í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
SNEMMA f MORGUN fyrirskipaði Mac Arthur, að
handteknir skyldu fjörutíu háttsettir Japanar, þar á með
al allir, sem sátu í ríkisstjórn Japan, er árásin var gerð
á Pearl Harbour þann 7. des. 1941, en forsætisráðherra
þeirrar stjórnar var Tojo, flotamálaráðherrann Shimada
flotaforingi, utanríkisráðherra Togo. — Þegar amerískir
öryggislögreglumenn komu á heimili Tojo, var hann ný-
j kominn heim og skaut sig með skammbyssu, er hann
** sá, hverjir gestirnir voru. Kom kúlan rjett fyrir neðan
hjartað. Er alt í óvissu um það enn, hvort hann lifir
þetta af. — Hinir allir munu hafa verið teknir, verða
þeir ákærðir fyrir stríðsglæpi, fyrir að bera ábvrgð á
hryðjuverkum, og fyrir áróður.
Shimada.
Fjelög leyfð
- með skilyrðum
Hernámsstjórn Breta á Þýska
landi hefir tilkynnt, að hún
muni leyfa Þjóðverjum að
stofna með sjer verklýðsfjelög,
en verður þetta þó allt háð all-
mörgum skilyrðum, sem her-
stjórnin setur um stofnanir sem
slíkar.
I gær hjelt æðsta hernámsráð
Þýskaland fund í Berlín. — Þar
var aðallega rætt um erfiðleika
á ferðalögum fólks milli her-
námssvæða hinna ýmsu aðila.
Montgomery var fundarstjóri
Inkuicrí rí ^srílhm mncnnrli /irv/cf
* »*«■■■ w wi. Wk «—»- v k. * bvk a. i i bVbtiyviLi >. VL a. I jp k/«_
undarL hrúnni
Samgöngur teppast
með öllu
Verða ekki hraklir
EINN AF mestu sjerfræðing
um Bandaríkjanna í siglinga-
AÐFARANOTT þiiðjudags s.l. kom mikið hlaup í Jökulsá á ^ málum hefir látið það álit sitt
Sólheimasandi. Varð feikna vatnsflóð í ánni, með jökulburði, ! í ljós, að Bandaríkjunum beri
eins og jafnan er, þegar hlaup koma í ána. — I þessu hlaupi að auka skipastól sinni afar-
hafði meginhluti árinnar brotist fram fyrir austan austasta mjög. í þessu sambandi, sagði
brúarstöpulinn, svo að samgöngur á þessari leið eru nú teptar ! sjerfræðingurinn, að Banda-
með öllu.
Þcgar komið var að Jökulsá
í gærmorgun, var ástandið þann
ig, að áin hafði brotið um 20
metra skarð í sandölduna aust
an við brúna og bcljaði þar
fram af miklum krafti og
straumþunga.
Hjelt áin áfram að brjóta öld
una, jafnt og þjett, svo að altaf
breikkaði bilið milli brúarend-
ans og austurbakkans. Mikill
straumþungi lá á austasta brú
arstöplinum og byrjað að grafa
undan honum. Var stöpullinn
farinn að síga talsvert, eða um
Framh. á 4. síðu.
ríkjamenn myndu þó ekki
Jhrekja Breta, Norðmenn nje
l Ilollendinga af höfunum, þeir
] gætu annast þær siglingar, sem
Þjóðverjar hefðu áður haldið
uppi, en Bandaríkjamenn
myndu aftur á móti taka að
sjer allar siglingar um Kyrra-
hafið, þar sem Japanar sigldu
áður. — Reuter.
Kom til sjálfs sín aftur.
Þegar Tojo kom til sjálfs sín
aftur nokkru eftir að hann
skaut sig, ljet hann svo um
mælt, að hann hefði of seint
sjeð hve illt þjóðin hefði haft
af styrjöldinni og vildi því helst
deyja. Amerískir læknar stunda
Tojo og hefir honum verið gef
ið blóð. Telja amerísku læknarn
ir, að hann muni hressast aft-
ur, en japönsku læknarnir, sem
einnig stunda hann, segja, að
vonlaust sje um bata.
Hafði Harakirihnífa til.
Þegar lögreglumennirnir am-
erísku höfðu drepið á dyr hjá
Tojo, kom hann til dyra, en er
hann sá komumenn, skellti
hann hurðinni í lás við nefinu
á þeim, rjett á eftir heyrðu þeir
skot. Brutust þeir þá inn og sáu
vegsummerki. A litlu borði í
einni stofunni, þar sem breidd-
ur var á hvítur dúkur, lágu 2
hárbeittir hnífar, sem Japanar
nota til þess að fremja kvið-
ristu með. Sagði Tojo og síðar,
að hann hefði svift sig lífi að
haétti forfeðra sinna, _ef hann
hefði haft tóm til þess.
Fleiri sjálfsmorðtilraunir.
Flugufregnir hafa borist um
það, að ýmsir aðrir af hinum 40,
sem handtaka átti, hafi reynt að
granda lífi sínu, en það hefir
ekki verið staofest. Þannig var
talið að Togo, íyrrum utanríkis
ráðherra hefði ráðið sjer bana.
— Mac Arthur hefir skipað svo
fyrir, að útvarp 1 Japan og
frjettir allar sjeu settar undir
eftirlit Bandaríkjamanna.
LONDON: — Tilkynt hefir
verið í Moskva. að nokkur rúss
nesk herskip sjeu komin til
hafna í Norður-Kóreu, en þann
hluta þess lands munu Rússar
hernema.