Morgunblaðið - 12.09.1945, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.09.1945, Blaðsíða 7
Miðvikudagur. 12. sept. 1945 MORGUNBLAÐIÐ 7 Prófastshjónin á Akranesi stofna „Blómasjóð Akraneskirkju“ PRÓFASTSHJÓNIN Á AKRANESI, frú Emelía og sr. Þor- Steinn Briem stofnuðu J sumar sjóð, sem hlaut nafnið „Blóma- sjóður Akraneskirkju". Var stofnupphæð sjóðsins krónur 5.000.00, en þá upphæð færðu sóknarbörn Akraneskirkju sókn arpresti sínum á sextugsafmæli hans þann 3. júlí s.l. Frá kirkjunefnd Akraness- kirkju hefir Morgunblaðið feng ið eftirfarandi til birtingar um sjóð þenna: Beglugerð sjóðsins. 1. Blómasjóður Akranes- kirkju er stofnaður 3. júlí 1945 og er stofnfje hans 5.000.00 kr. •— fimm þúsund krónur — er sóknarbörn Akranessóknar færðu sóknarpresti sínum, síra Þorsteini Briem, að gjöf á sex tugsafmæli hans þann dag. 2. Af stofnfje sjóðsins skal leggja 1000.00 kr. í Söfnunar- sjóð Islands með þeim skilmál um, að jafnan þá er ártal stend ur á heilum tug eða hálfum, greiðist 9/10 vaxta til stjórnar sjóðsins, en hin árin leggjast all ir vextir við höfuðstól. — Að öðru leyti skal ávaxta fje sjóðs ins í Sparisjóði Akraness eða Landsbanka Islands, að svo miklu leyti sem það verður ekki notað samkvæmt 4. grein. 3. Stjórn sjóðsins er kirkju- nefnd Akraneskirkju, en hana skipa sjö konur, kosnar á safn aðarfundi Akranessóknar. 4. Kirkjunefnd ráðstafar handbæru fje sjóðsins á hvern þann hátt, er henni þykir við eiga til þess að prýða kirkjuna eða kirkjulífinu til eflingar á annan veg, er prófastur sam- þykkir. Á sama hátt skal og verja því fje, er sjóðnum kann síðar að áskotnast. 5. Kirkjunefnd semur árlega reikning sjóðsins og afhendir sóknarnefnd Akraneskirkju af- rit af honum til þess að hann verði lagður fyrir safnaðar- og hjeráðsfund, ásamt reikningi kirkjunnar. Akranesi, 6. júlí 1945. Emilía P. Briem. Þorsteinn Briem. Ávarp safnaðarbarna. I línum þeim, sem fylgdu gjöf inni til prófastsins, stóð m. a.: „Sóknarbörn yðar standa í mik illi þakkarskuld við yður fyr- ir framúrskarandi þjónustu í þágu safnaðarins og fyrir marg þætt störf, Akranesi og íbúum þess til gagns og blessunar. — Upp í skuld þessa sendum vjer yður hjer með litla afborgun og biðjum yður að taka af oss þann vanda að velja yður ein- hvern hlut, til minja um merk- isdaginn 3. júlí 1945, sem er sextugasti afmælisdagur yðar“. Þakkir kirkjunefndar. Kirkjunefnd Akraneskirkju birtir svofelda þakkir: Þar sem prófastshjónin hafa heldur kosið að ráðstafa gjöf- inni samkvæmt því, er reglu- gjörð þeirra ber með sjer, þá þakkar kirkjunefndin fyrir hönd safnaðarins hjer með hjart anlega fyrir gjöl'ina og væntir þess, að sjóður þessi megi eflast og aukast sem mest, kirkjunni til hagsældar á ókomnum tím- um. Gjafir og áheit. Undirritaðar konur. sem nú eiga sæti í kirkjunefnd Akranes kirkju, taka -á móti gjöfum og áheitum til sjóðsins fyrst 'um sinn. Síðar höfum við hugsað okkur að láta prenta minningar spjöld, sem seld verða sjóðnum til eflingar. Akranesi, 23. ágúst 1945. Valdís Böðvarsdóttir, Emilía Þorsteinsdóttir, Friðmey Jóns- dóttir, Margrjet Jónsdóttir, Val gerður Halldórsdóttir, Emilía P. Briem, Ingunn Sveinsdóttir, Bjarnfríður Björnsdóttir. „Leyf mjer þig að leiða" TJARNARBÍÓ. sýnir þessa dagana kvikmyndina „Gomg my way“, eða „Leyf mjer þig að leiða“, eins og hún er kölluð á íslensku. Þeir, sem eru hrifn- ir af söng Bings Crosby og þeir eru margir, munu verða fyrir ánægjulegri uppgötvun, en hún er sú, að það var hægt að kenna Bing að leika sæmilega. Þetta er eiginlega í fyrsta sinni, sem óþarfi er að vorkenna Bing, sem altaf hefir verið eins og hann væri í vandræðum fyrir fram- an kvikmyndavjelina, þar til nú. Þá munu kvikmyndahúsgest- ir hjer sem annarsstaðar dáðst að og skemmta sjer af hinum fyrirtaks góða leik Barrys Fitzgerald, sem leikur gamlan prest af þvílíkri snilld, að slikt sjest ekki nema sjaldan í kvik- myndum. Söngurinn og hljóm- listin í þessari mynd er með skárra móti og auk Bing á operusöngkonan Rise Stevens frá Metropolitanoperunni sinn mikla þátt í því og ennfremur ágætur drengjakór. Það er ekki of mikið sagt, að þetta er með betri kvikmyndum sem hingað hafa komið all- Iengi. Hin kvikmyndahúsin sýna bæði góðar <myndir um þessar mundir. I nýja Bíó er söngva- mynd: Sönghallarundrin. Aðal- hlutverkin leika þau Nelson Eddy, Susanna Foster og Claude Rains, sem hjerumbil ávalt er hægt að reiða sig á að fer vel með hlutverk sín. Söng Nelsons Eddy þekkja allir kvikmyndahúsgestir og vita að röddin er góð. Væri ósk andi að hægt væri að segja um hann eins og Bing, að honum hefði farið fram hvað leik snert ir, en sennilegt er að leikstjór- arnir hafi hafi algjörlega gefist upp á að gera úr honum leik- ara og láti sönginn nægja. „Fyrir föðurlandið" heitir kvikmyndin, sem Gamla Bíó sýnir núna. Er það saga um flughetjur og ástir. Rosalind Russel er altaf gaman að sjá og þeir, sem þola Fred MacMurray á annað borð halda mikið upp á hann. Aukamynd er af atomsprengj unni og fleira og mun marga fýsa að sjá hana. En verst er áð menn fá sjaldan að njóta aukamynda í friði fyrir eftir- legukindunum, sem aldrei geta mætt á rjettum tíma. Hsndknalileiksmót Hafnarfjarðar Handknattleiksmót Hafnar- fjarðar í kvenna- og karlaflokk um, var háð á Sýslumannstún- inu í Hafnarfirði s.l. sunnudag. Fyrst var keppt í kvenflokki. Þátttakenduiworu FH og Hauk ar. Haukar unnu þann leik, eft- ir að fjelögin höfðu skilið jöfn að venjulegum leiktíma liðnum 2:2. Var leikurinn svo fram- lengdur og skoruðu þá Hauka- stiuxurnar 2 mörk gegn engu. Sömu fjelög tóku þátt í kepni Ka:ia, sem fór fram þegaf að hinum leiknum loknum. — Var það tvísýnn leikur og spepnandi | og lauk svo, að FH sigjaði með 8 mörkum gegn 7. •** ♦** í X 4» ❖ t <♦ ± Y ± ? I s Ý t Peningaskápar fyrirliggjandi. Columbus h.í. Sænsk íslenska frystihúsinu. Símar 6460 og 2760. 1 y y y y j y •i ♦ Nýtt íbúðarhús í Ilöfðahverfi til sölu. Laust til afnota 1. okt. n. k. Upplýsingar gefur málflutnings- skrifstofa Sveinbjörnar Jónssonar og Gunnars Þorsteinssonar, Thorvaldse, tr 6. Sími 1535. t<**t"<..t**t-.t..t*'<í.*t-*J^c*»t*-*í*.t*-t*-t*-t.*:—:—t*.t**t*.t.-t*-t—í**:**t—t—t**t*<-<**:*»i*<.*:*.:..:.*:-.:—: - ■:**:**;**: *:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**3 UNGLIMGA f A vantar til að bera blaðið til kaupenda *:» \ _ ♦♦♦ við Lindargötu •j* •:♦ | LaugavegIIIinstihluti § Hringbraut | og Grettisgötu f Talið strax við afgreiðsluna, Sími 1600. '* or9 un Sendisveinar óskast 15. þ. mán. til Ijettra sendiferða, or^uu bla&Lci Toiletpappír nýkominn. Eggert Kristjánsson & Co. h.f. U nglingsstúlka vön afgreiðslu getur fengið atvinnu við sjerverslun í miðbænum nú þegar. — Umsóknir ásamt ljósmynd og meðmælum óskast send blaðinu fyrir næstkomandi fööstudag 14. þ. m., merkt „O. K.“ Strauvjel Kentug fyrir Þvottahús eða hótel, fyririiggjandi. Jð. Jðtefánóóon CCo. h.f. - ^JÍafna rhúóinu Sími 5579. Ennþá er þó nokkuð eftir af vindla- og sigarettukveikjurum, þar á meðal teguuir sem lifir á í vindi. Lögur (Linghter-fluid), Tinnusteinar (Fliht’s). Það getur komið sjer vel að eiga góðan kveikjara. Uriótof, Uankaótrtíéti AUGLtSlNG Eft GULLS tGJLDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.