Morgunblaðið - 22.09.1945, Page 1
16 síður
82. 4rgangor.
211. tbL— Laugardagur 22. september 1945
IsaíoiáarprentsmiSja h.f.
Rússar ráð-
ast á Sviss-
lendinga
London í gærkvöldi.
Linkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
Eftir Michael Fry.
SVISSLENDINGAR eru á-
kaflega undrandi og sárir
vegna ummæla útvarpsins í
Moskva, sem tilkynti. að sú
staðreynd hefði komið í ljós i
samningum Rússa og Svisslend
inga, að Svisslendingar hefðu
/nisþyrmt rússneskum flótta-
mönnum. Telja Svisslendingar
ákaflega einkennilegt, að Rúss
ar skuli. vera að ræða um þetta,
þar sem ekkert hafi enn verið
íátið uppi um samningana,
enda verður það ekki gert, uns
rússneska samninganefndin
kemur aftur heim til Moskva,
en hluti hennar er enn gestir
Svsislendinga í besta gistihús-
inu í Bern, en nokkrir af nefnd
inni eru komnir til Parísar.
Kramer leiddur
hringinn í kringum
rúsiir Belsen
London í gærkvöldi.
í DAG var farið með alla
hina ákærðu í Belsenmálinu
þangað sem rústir fangabúð-
anna eru, og voru leiddir um-
hverfis þær. Kramer, fanga-
búðastjóri fyrrverandi, var þar
iremstur í flokki, og sást hon-
jum ekki bregða. Var hann
hlekkjaður við annan mann
með handjárnum. Kvenfanga-
verðirnir voru einnig með í för
inni og leið yfir einn þeirra.
Var henni ekið kringum rúst-
irnarú sjúkrabifreið. — Þýsk-
ir hermenn eru nú að hreinsa
til í rústum þessum. — Reuter.
Spönsk blöð æf
vegna griðabelðni
Madrid í gærkvöldi.
SPÖNSKU blöðin eru í dag
æf vegna þess, að margir kunn
ir Bretar hafa sent spönsku
stjórninni beiðni um að náða
tvo kommúnista, sem dæmdir
hafa verið til dauða. Segja blöð
in, að ekki sitji á þessum mönn
um að vera að biðja glæpamönn
um lífs, meðan saklaust fólk
hrynji niður eins og flugur víðs
vegar um álfuna. Þá scgja fclöð
in, að undarlegt megi teljast,
að Spánverjum skuli ekki leyfi
legt að framfylgja rjettlætinu
eins og' öðrum og taka dæmda
afbrotamenn af lífi, því marg-
ir sjeu nú skotnir, sem minna
hafi gert fyrir sjer, en hinir
tveir menn. — Ekkert er enn
vitað um það, hvernig málum
manna þessara lyktar.
Fimm miljónir þýskrn flótto-
Svíar svara
mnnnn eru ú hernómssvæði Rússo gagnrýni
Japan verður aldrei
stórveldi framar
— Segir Mac Arlhur
Washington í -gærkvöldi. — Einkaskeyti til
Morgunblaðsins frá Reuter,
MAC ARTHUR hershöfðingi lýsti því yfir í Jápan i dag, að
japanska ríkið myndi aldrei framar verða stói-veldi. — Verið
væri að afvopná her þess, og flotinn myndi vera geréyðilagður,
þannig, að hann yrði al-ls ekki til. Sagði Mac Arthur, að í Japan
væri nú algert hrun á öllum sviðum, Japönum hafa verið settar
strangar reglur um frjettaburð.
Ekki að gagnrýna bandamenn.
Mac Arthur hefir gefið út
reglugerð fyrir japönsk blöð að
fara eftir og nær hún til alls
efnis þeirra, frjetta, leiðara og
jafnvel auglýsinga. Er Japön-
um stranglega bannað að birta
nokkra gagnrýni í garð banda-
manna, . nje hernámslið þeirra.
Frjettir skulu allar vera sann
ar og ekki rangfærðar, og ekk-
ert má prenta, sem raskað geti
ró almennings í landinu.
Doihara skal handtekinn.
Þá hefir Mac Arthur fyrir-
skipað, að japanski hershöfð-
inginn Doihara, sem stjórnaði
herjum Japana, er þeir rjeðust
inn í Manchuríu forðum, skuli
tafarlaust handtekinn. Um or-
sakir til þessarar fyrirskipanar
er ekki kunnugt, en síðast í gær
kom Doihara í aðalstöðvar
Bandaríkjamanna og bauð þeim
samvinnu sína.
IIOLLÝWOOD: — Shirley
Temþle gifti sig í fvrradag,
æskukærasta sínum, sem nú er
liðþjálfi í ameríska hernum.
Undirrttaði upp-
gjöfina
ÞETTA ER SIGEMITZU, mað-
urinn, sem undirritaði fyrir
hönd Japana uppgjafarsamn- •
ingana á Tokioflóa. Hann var
þá utanríkisráðherra. en heíir ^
nýlega sagt af sjer.
Pólverjar reiðir Bretum
vegna dauðadóma
Uppsteytur Pólverja á her-
náimsvæði Brefa
PÓLSKA STJÓRNIN hefir borið fram mótmæli við sendi-
herra Hreta í VVarsjá vegnft. þess, að á dögunum dæmdi her-
rjettur Breta 4 Pólverja tii dauða í Paderborn í Þýskalandi
og 27 áðra í fangelsi, en menn þessir höfðu á næturþeli gert
árás á þýskt þorp og drepið þar 7 Þjóðverja.
Bretar hafa svarað því til,
að Pólverjar hafi hagað sjer
þannig á hernámssvæðinu
hreska í Þýskalandi, að beita
hafi þurft valdi til þess að
koma í veg fyrir frekari niann
dráp, rán og ýmsa aðra glæpi.
Þá or það tekið fram, að
málskjölin verði send til War
sjá, og eins hitt, að pólskur
Tiðsforingi hafi verið við-
staddur rjettarholdin, og þakk
Framhald á bls. 11
Dauðveikt og
hungrað fólk
þyrpist til
Berlínar
London i gærkvöldi. —
skeyti til Morgunbl. frá
Reuter. Eftir einkafregn-
ritara Daily News í Berlín
FLÓTTAMENN streyma
enn að austan til Berlínar
hundruðum þúsunda saman,
og talið er, að fimm milljón-
ir manna sjeu heimilislaus-
ar á hernámssvæði Rússa.
Oft koma allt að 10 þúsund-
ir á dag til Berlínar, og þótt
flóttamannastraumurinn sje
nú heldur að minnka, veld-
ur þetta illa farna fólk mikl
um áhyggjum.
Veikt fólk og hungrað.
ALLFLEST er þetta fólk
veikt, og er mest af því aldr-
að fólk, konur og börn. Her-
námsliðin í Berlín eru að
reyna að gera eitthvað fyrir
fólk þetta, en sökum mergð-
ar þess er slíkt erfitt. — Jeg
kom í dag, segir frjettarit-
arinn, í byggingar nokkrar,
er áður höfðu verið herliðs-
skálar. Þar voru hjúkrunar-
liðar og þrír þýskir læknar
að reyna að gera eitt hvað
fyrir þá 2.500 manns, sem
streyma þangað á hverjum
degi til að leita sjer einhverr
ar hj ukrunar.
Sögðu læknarnir, að mik-
ill meiri hluti fólksins væri
veikt af skyrbjúg, hungri,
taugaveiki, inflúensu eða
beinkröm, og deyja margir
í þessari hjálparstöð dag-
lega.
Gjöreyðilagðir menn.
TALSVERT er í þessum
hópum af þýskum hermönn
ium, sem Rússar hafa látið
lausa, af því þeir eru ekki
vinnufærir. Þessir menn eru
flest allir bæði líkamlegir
og andlegir aumingjar, all-
flestir berfættir, eða þá þeir
binda einhverjar druslur um
fæturna. Þeir eru klæddir
einkennisfötum sínum, sem
bæði eru grútskítug og
hanga í tuskum utan á
þeim.
Segir fregnritarinn loks,
að hann hafi aldrei sjeð
hryllilegra ástand á nokkru
fólki, en því, sem kom í
hjálparstöð þessa í dag.
Rússa
Stokkhólmi í gærkvöldi.
EINS OG getið hefir verið í
frjettum, hafa ýms rússnesk
blöð, einkum þó blaðið Novoye
Vremja, ráðist mjög harkalega
á Svía að undanförnu, borið
þeim á brýn fasistavináttu og
að þeir hafi stutt Þjóðverja í
styrjöldinni, ásamt ýmsu
fleira,.eins og t. d. það, að þeir
hafi ekki hreyft sig banda-
mönnum til hjálpar, er verst
hafi horft fyrir þeim.
Svara Svíar því til, að verst
hafi horft fyrir bandamönnum
haustið 1940, en þá hafi Rúss-
ar sjálfir verið í vináttu mik-
illi við Þjóðverja. — Haldið
var einnig fram í blaðinu No-
voye Vremja, að Svíar hefðu
ekki hjálpað Norðmönnum og
Dönum neitt, og væru þó altaf
að tala um norræna samvinnu.
Svara Svíar því til, að hjer
skeri reynslan úr, enda hafi
nefnt blað altaf verið Svíum
óvinveitt.
Loks ráðast Rússar að Sví-
um vegna þess, að þeir leyfa
nasistaflokk í landi sínu, en
Svíar svara því til, að þeir
dæmi að hætti siðaðra manna
menn eftir verkum sínum, en
ekki skoðunum, og sje flokk-
ur þessi auk þess gjörsamlega
áhrifalaus. — Reuter.
Reynl aS seíja við-
skiffabann á Spán
París í gærkvöldi.
ÞAÐ ER álitið hjer í borg,
að rússnesku fulltrúarnir á
verkalýðsráðstefnunni, sem
byrjar í næstu viku, muni
styðia tillögur Mexíkómanna,
um það að skora á allan verka-
lýð að hafa þau áhrif á ríkis-
stjórnir sínar, að þær lýsi yf-
ir viðskiftabanni á Spán, til
þess að neyða Franco til að
láta af völdum. Talið er, að
formaður bresku fulltrúanna,
Sir Walther C-itrine, sje and-
vígur því, að nokkrar fljótfærn
islegar ákvarðanir sjeu teknar
í svona máli. — Reuter.
Sludebaker eykur
bíiaíramleiSslu
Washington í gærkvöldi.
STUDEBAKER biíreicaverk-
smiðjueigendurnir í I*-diana-
ríki hafa í hyggju að stækka
verksmiðjurnar mjög mikið, og
verja munu þeir til þess alt að
16 miljónum dollara. Verða
þessar stækkanir á öllum deild
um verksmiðjanna, en mark-
miðið er að framleiða 300.000
bifreiðar þar á ári hverju.
— Reuter.