Morgunblaðið - 22.09.1945, Page 2
HUUQ CiNBLaÐIW
Laugardagur 22. sept. 1945
Loftárásir og setulið
á Borgundarhólmi
f Stutt samfal við Steingrím
Matthíasson
i_ •
STEINGRÍMUR MATTHÍAS
SON læknir kom inn á skrif-
stofu blaðsins í gær. Tíu ár eru
liðin síðan hann fór til Dan-
merkur. Hann er nú 69 ára að
aldri, en hefir lítið breytst síð-
an hann fór, glaður og reifur
að vanda.
Jeg átti við hann stutt sam-
tal. Hann hefir nú verið ein sjö
ár á Borgundarhólmi, er prakti
serandi læknir í Nexó. Áður var
hann víðsvegar um Danmörku,
þjónaði læknaembættum í for-
föllum ýmsra lækna. Uns hann
staðnæmdist þarna. Hann hefir
hjer aðeins stutta viðdvöl, —
kvaðst ekki geta verið lengi í
burtu frá starfi sínu, býst ekki
við að fá tíma til þess að heim-
sækja fornar slóðir Norðan-
lands í þetta sinn.
— Urðu ekki.miklar skemdir
í Nexö í loftárásum Rússa í vor?
— Jú. Mörg hús hrundu al-
veg. Fleiri löskuðust. Þakið fór
af mínu húsi og gaflinn hrundi.
En samt slapp jeg tiltölulega
vel. Því hægt var að gera við
húsið. Það er jafngott og það
var.
— Fórust margir?
— Nei. Einn maður særðist
svo mikið, ao hann beið bana af.
Fleiri fórust í Rönne.
— Hvernig kom til þessara
átaka eftir að Þjóðverjar höfðu
gefist upp annarssíaðar?
— Mikið þýskt lið kom til
Borgundarhólms rjett síðustu
dagana fyrir vopnahljeið. Þeir
komu frá Danzig-hjeraði. Þeir
voru með alvæpni. Rússar
sendu njósnara til að vita hvað
um væri að vera þarna. Þjóð-
verjar rjeðust á rússnesku flug
vjelarnar, þó þeir væru hættir
bardögum annarsstaðar. — Her
stjóri eyjarinnar í Rönne neit-
aði að gefast upp. Þá gerðu
Rússar árás á bæina, þar sem
setulið Þjóðverja var, aðallega
Rönne og Nexö. Fyrsta loftárás
in þarna var ekki mikil — Þá
flýðu menn í kjallara sína. Er
hún var úti, flýðu allir úr bæjun
um, út á víðavang. Þá byrjuðu
árásirnar fyrir alvöru. En mann
tjón var ekki mikið þá, vegna
þess að fólkið var farið úr hús-
unum.
Með loftárásum í 2 daga,
neyddu Rússar hið þýska lið,
sem á eynni var, til uppgjafar.
Þá voru bæirnir orðnir illa út-
leiknir. En fólkið kom aftur,
þegar hættan var liðin hjá. —
Það hangir í lengstu lög við
heimili sín þó lítið sje eftir af
þeim.
— Hvernig kann fólkið við
Rússana?
— Við höfum lítið af hinu
rússneska liði að scgja. Þcir
hafa komið sjer fyrir í skógum
og á víðum völlum. Þeir skifta
lítið við Borgundahólmsbúa. —
Þeir eta úr sinni skrínuog skifta
sjer af fáu. Þeir segjast fara þá
og þegar. En fólk vantreystir
því. Ekkert bendir til þess. Þeir
hreiðra um sig. Eru vel vopnum
búnir. Hafa með sjcr hcsta og
kýr og hvaðeina. Menn spyrja
hvað sje erindi þeirra, með all-
an þennan viðbúnað, þegar hætt
er að berjast. Kanske fara þeir
einn góðan veðurdag, kanske
kemur einhver skýring á dvöl
þeirra þarna.
— Var mikið um erjur á Borg
undarhólmi meðan á styrjöld-
inni stóð.
■—Nei. Það get jeg ekki sagt.
Þar mun hafa verið rólegra en
víðast annarsstaðar í Danmörku
Fáir Nasistar. Og frelsisvinir
ljetu ekki mikið til sin taka. —
Stríddu Þjóðverjunum smá-
vegis.
Okkur vantaði kaffi, te og tó-
bak. Annars leið okkur bæri-
lega.
-—• Sjaldan frjettir að heim-
an?
— Jeg fjekk frjettabrjefin,
sem sendiráðið í Höfn sendi út
á 2—3 mánaða fresti. Þau komu
sjer vel. Annars ekkert.
— Engir aðrir Islendingar á
Borgundarhólmi?
— Nei. Ekki núna. Jeg fer
við og við til Rönne og hitti þar
ekkju Jóns Benediktssonar tann
læknis. Hún var hjer í 9 ár. Fer
þangað til þess að tala íslensku.
Og svo er hægt að skreppa til
Hafnar við og við til að hitta
landa að máli.
Meðan Steingrímur er hjer í
bænum, dvelur hann hjá dóttur
sinni og tengdasyni, Árna
Kristjánssyni píanóleikara.
V. St.
VopnaburSur bann-
aður í Indo-Kína
London í gærkvöldi.
ALLMIKILL breskur her bíð
ur þess nú á Malakkaskaga að
vera fluttur í flugvjelum til
franska Indo-Kína. Bretar í
Indo-Kína hafa bannað þar al-
gjörlega allan _ vopnaburð. Má
enginn bera þar vopn, annar
en breskir hermenn, og er sama
hvers kynþáttar menn eru eða
hver staða þeirra er. — Ekki
hefir borið neitt að ráði á óeirð
um í landinu að undanförnu, og
ekkert er vitað um lýðveldi
það, sem innlendir menn lýstu
yfir fyrir nokkru, að stofnað
væri. — Reuter.
Umbætur í Tjarn-
argarðinum
G ARÐ YRK JURÁÐ UN AUT -
UR bæjarins, Sigurður Sveins-
son, gaf bæjarráði í gær skýrslu
um ýmsar aðgerðir og umbóta
fyrirætlanir í Tjarnargarðinum.
Hann hefir gengist fyrir því,
að framræsla hefir þar verið
aukin, og eins hefir hann látið
flytja gróðrarmold og áburð í
ný trjábeð og blómareiti. Hann
lítur svo á. að gróður hafi dafn-
að svo illa í garðinum sem raun
er á, vegna þess, hve framræsla
hefir verið lítil, jarðvegurinn
blautur, og jarðvegur víða Ije-
legur, aska og gjall o. þessh. —-
Auk þess er skjólleysið þar
mjög bagalegt.
Sigurður ætlar nú, í samráði
við skipulagsnefnd bæjarins að
gera ákveðnar tillögur um til-
högun gróðurs og gangstíga í
garðinum. Hann er því mjög
mótfallinn að garðurinn verði
í framtíðinni notaður sem úti-
samkomustaður. Til þess sje
hann ekki. í hvert sinn sem sam
komur eru þar, hljóti gróður
þar að spillast mjög.
Eldsneytisvandræði
í Bandaríkjunum
Washington í gærkvöldi.
TALIÐ ER, að hjer í Banda-
ríkjunum geti orðið veruleg-
ur eldiviðarskortur í vetur. Var
það verkamálaráðuneytið, sem
spáði þessu í kvöld og kennir
um verkföllum þeim, sem nú
standa yfir. Ljetu talsmenn
ráðuneytisins svo um rríælt, að
illa myndi til takast, ef verk-
fallsmenn hverfi ekki snarlega
aftur til vinnu. — Verkfalls-
menn krefjast 30% launahækk
unar. Eins og er, lítur mjög illa
út með það, að samkomulag
takist í vinnudeilum þessum.
— Reuter.
Birgir Halldórsson
syngur á Akureyri
VESTUR-ÍSLENDINGUR-
INN Birgir Halldórsson hjelt
söngskemtun á Akureyri s. 1.
miðvikudag við mikla aðsókn
og fádæma góðar viðtökur á-
heyrenda. Birgir varð að syngja
aukalög og endurtaka mörg
lögin á söngskránni. Bárust
honum blómvendir og yfirleitt
var söngskemtunin hin ánægju
legasta fyrir áhorfendur og
söngvarann sjálfan.
í gærkveldi söng Birgir á
Siglufirði. Þegar söngvarinn
kemur að norðan mun hann
hafa í hyggju að halda hjer
söngskemtun.
Reyfcjavík og
íjsróltasjóður
BÆJARRÁÐ samþykti í gær
að fela borgarstjóra að sækja
um það fyrir bæjarins hönd,
að veittur yrði styrkur úr í-
þróttasjóði ríkisins til fram-
kvæmdanna á íþróttasvæðinu í
Laugadalnum.
Úr sjóði þessum hafa alls
verið veittar kr. 1.600.000. En
af því fje hafa 100 þúsund kr.
runnið til Reykjavíkurbæjar.
„Hlíf“ tekur þátt í
rekstri góðtemplara-
hússins í Hafnarfirði
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag
var haldinn fundur í Verka-
mannafjelaginu Hlíf í Hafnar-
firði.
Á fundinum voru rædd ýms
hagsmunamál hafnfirskra
verkamanna og gerðar álykt-
anir í þeim. Fara hjer á eftir
nokkrar tillögur, sem sam-
þyktar voru á fundinum:
Tillögur varðandi
vetrarstarfið.
Fundur haldinn í Verka-
mannafjelaginu Hlíf 19. sept.
1945 samþykkir að taka tilboði
Góðtemplarareglunnar um hlut
deild Hlífar 1 rekstri G. T.-
hússins hvað skemtanir snert-
ir á komandi vetri og samþykk
ir fundurinn að fela 5 manna
nefnd að annast rekstur skemt
ana í G. T. húsflnu af hálfu
Hlífar.
Fræðslustarfsemi.
Fundur haldinn í Verka-
mannafjelaginu Hlíf 19. sept.
1945 telur, að þrátt fyrir hina
neikvæðu reynslu, sem fjekst
í fræðslustarfsemi fjelagsins
veturinn 1943—-44 vegna þátt-
tökuleysis, þá sje vegna nauð-
synjarinnar á aukinni fræðslu
fyrir verkalýðinn rjett að hald
ið sje áfram og reynt að halda
uppi fræðslustarfsemi og þá á
annan veg en áður hefir verið
gert.
Samþykkir fundurinn að
fela 5 mapna nefnd að -reyna
að koma á stað kvöldskóla fyr-
ir verkamenn á, hinum komandi
vetri, sem hafi það hlutverk
með höndum að fræða verka-
menn um ýmis hagnýt efni og
atriði, er þýðingu hafa fyrir
þá, er taka að sjer starf í verka
lýðshreyf ingunni.
I skemtinefnd voru kosnir:
Olafur Jónasson, Jens Runólfs-
son, Kristinn Torfason, Sigurð-
ur P. Guðmundsson, Kristján
Gamalíelsson.
I fræðslunefnd voru kosnir:
Sigurður T. Sigurðsson, Helgi
Jónsson, Eggert ísaksson, Þor-
geir Einarsson og Hermann
Guðmundsson.
Húsbyggingarmál.
Tillaga varðandi húsbygg*
ingamál verkalýðsfjelaganna:
Fundur haldinn í Verkam,-
fjelaginu Hlíf 19. sept. 1945
lætur í ljósi ánægju sína yfir
þeirri ráðstöfun fulltrúaráðs
verkalýðsfjelaganna að taka á
leigu lóð þá, er bæjarstjórnin
hafði gefið verkalýðsfjelögun-
um kost á undir væntanlegt
hús verkalýðsfjelaganna.
Lítur fundurinn svo á, að að-
kallandi sje að hafist sje ■ nú
þegar handa og komið upp svo
fljótt og verða má veglegu
húsi yfir starfsemi verkalýðs-
fjelaganna og þátttaka V.m.f.
Hlíf í slíkri viðleitni sjálfsögð
og eðlileg.
Felur fundurinn 7 manna
nefnd að annast undirbúning
og fleira varðandi húsbygging-
armál verkalýðsfjelaganna, af
hálfu Hlífar.
í húsbygginganefnd voru
kosnir: Sigurbjörn Guðmunds-
son, Grímur Kr. Andrjesson,
Óskar Guðmundsson, Þorleifur
Guðmundsson, Bjarni Erlends-
son, Guðjón Sigurfinnsson og
Hermann Guðmundsson.
Dýrtíðarmál og
samningar.
Þá gerði fundurinn ályktan-
ir í sambandi við dýrtíðarmál-
in, sem fólu í sjer mótmæli
gegn því, að hækkun á neyslu-
vörum sje ekki látin hafa á-
hrif á vísitölu framfærslukostrí
aðar. Ennfremur var gerð á-
lyktun í sambandi við samn-
inga Hlífar við atvinnurekend-
ur.
í fundarlok flutti Hermann
Guðmundsson erindi um heim-
sókn til verkalýðssambanda I
Svíþjóð.
Tvöfeldni og hræsni
Tímamanna gagnvart
bændum
ÞAÐ ER KUNNUGT nú, að
gagnvart bændum er tvöfeldni
og hræsni Tímamanna einstök
í sinni röð. Afstaða til höfuð-
mála fer oft eftir því hvernig á
stendur. Hvort þeir eru við
völd eða í andstöðu, hvort þeir
eru að tala til sveitamanna eða
Reykvlkinga í kosninga bar-
áttu og jafnvel eftir því hvort
kosningar eru fram undan eða
ekki. Hjer verður sagt frá einu
mjög sláandi dæmi um þetta
varðandi afurðaverðið, sem nú
er mest um talað af Tímalið-
inu:
Daginn, sem síðustu bæjar-
stjórnarkosningar fóru fram í
Reykjavík, þann 15. mars 1942
kom út stórt og feitletrað blað
af Tímanum. Þar segir m. a:
„Jón Pálmason og Þorsteinn
Þorsteinsson hvetja bændur til
þess að skora á verðlagsnefnd-
jna, að hækka verðlægið“, og
ennfr. segir: „að lágt verð land
búnaðarafurða sýni að Fram-
sóknarflokkurinn sje andvígur
sveitunum“.
Svo koma þessar eftirtekta-
verðu setningar; „Verðlag land
búnaðarvara væri nú langtunx
hærra, ef Framsóknarmenn
hefðu ekki staðist þcssi yfir-
boð lýðskrumara íhaldsins í
Framh. á bls. 12