Morgunblaðið - 09.01.1946, Page 10

Morgunblaðið - 09.01.1946, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagnr 9. jan. 1946 Síða sambands ungra Sjálfstæðismanna. Ritstjórn: Sambandsstjórnin. Öruyt fylgi ungra Sjálfstæð- ismanna á æskulýðsfundunam 3 Islendingar flokkslegt ræði kommúnista? ein- Alþýðuflokkurinn panlar klapplið frá Reykjavík á fundina. STJÓRNMÁLAFUNDIR ungra manna, sem haldnir voru um síðustu helgi í Hafnarfirði og Keflavík voru mjög fjölmennir og sýndu örugt og vaxandi fylgi ungra Sjálfstæðismanna. Sjerstaka athygli vakti það á báðum fundunum, að Al- þýðuflokkurinn hafði viðhaft þær varúðarráðstafanir að panta klapplið úr Reykjavík, enda reyndist flokknum þess full þörf. í Hafnarfirði var húsið full- skipað. Ræðumenn Sjálfstæðis- manna voru þeir Guðmundur Guðmundsson og Páll Daníels- son, báðir úr Hafnarfirði. Framsöguræða Guðmundar var hörð og rökvís ádeila á Ije- lega stjórn Alþýðuflokksins í bæjarmálefnum Hafnarfjarðar á undanförnum árum. — Báðir hjeldu Páll og Guðmundur fast og vel á málefnum flokksins. Mun fylgið á fundinum hafa skifst nokkuð líkt milli Sjálf- stæðismanna og Alþýðuflokks- ins. Höfðu kommúnistar nokk uð fylgi, en Framsókn heillum horfin og fylgislaus. Keflavíkurfundurinn var einnig fjölsóttur og húsið þjett setið. Fundarstjóri var Bjarni Al- bertsson. Þar töluðu af hálfu Sjálfstæð ismanna Magnús Jónsson frá Mel og Jóhann Hafstein. — Flutti Magnús ítarlega fram- söguræðu um grundvallarstefnu og almenn stjórnmálaviðhorf Sjálfstæðisflokksins, en Jóhann vjek meira að afstöðu flokks- ins til einstakra mála og var til andsvara. Höfðu Sjálfstæðismenn greini lega mest fylgi fundarmanna,- Framh. á bls. 11 Sljómmálafcjndur FJELAGSSAMTOK ungra stjórnmálamanna af öllum fjórum flokkum boða til opin- bers umræðufundar um stjórn- mál í Bíóhöllinni á Akranesi næstkomandi sunnudag. Af hálfu ungra Sjálfstæðis- manna munu mæta á fundin- um þeir Björgvin Sigurðsson og Magnús Jónsson^frá Mel. Fundir þeir, sem hin pólitísku æskulýðssamtök hafa haldið að undanförnu, hafa verið afar fjölsóttir og borið vott um á- huga unga fólksins fyrir slík- um opinberum umræðum um stjórnmál. Ungir Sjálfstæðismenn eiga hvarvetna góðum undirtekturq, að fagna hjá unga fólkinu, sem kann að meta það frjálslyndi og víðsýni, sem er einkenni stefnu þeirra og starfs. Ungir Sjálfstæðismenn láta ekki sitt eftir liggja í þeirri baráttu, sem flokkur þeirra berst nú vegna bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna. — Þeir eru hin djarfhuga sveit flokksins, sem gengur stórhuga og örugg fram til sigurs. — (JSœjarótji Orðsending frá Sjálfsíæðisflokknum LISTI Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er D-LISTI. Utankjörstaðakosningar eru byrjaðar og er kosið í Hó- tei, Heklu. Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins, sem annast alla fyrir- greiðslu við utankjörstaðakosningar er í Thorvaldsens- stræti 2. — Símar 6472 og 2339. Kjósendur í Reykjavík, sem ekki verða heima á kjör- degi ættu að kjósa hið allra fyrsta. Kjósendur utan Reykjavíkur, sem hjer eru staddir, ættu að snúa sjer nú þegar til skrifstofunnar og kjósa strax. Listi Sjálfstæðisflokksins — D — LISTTNN. maÁoónin^amar KOSNINGABARÁTTA sú, sem nú er háð, er einstök í sinni röð hjer á landi. Það er barátta milli Sjálfstæðisflokks ins annars vegar, flokksins, sem hafði forustu í sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar og sem altaf hefir verið öruggasti málsvari alhliða athafnafrelsis og sem mótað hefir framfara- og fram kvæmdastefnu þá, sem átt hefir sjer stað m'eðal þjóðarinnar nú upp á síðkastið. En hinsvegar er Kommúnista flokkurinn, stjórnmálaflokkur, sem aldrei hefir virt neitt, sem íslenskt er, sem lætur sjer það sæma að lítilsvirða og ^ótum troða allt það, sem við Islend- ingar unnum mest og það sem við söknuðum mest á fyrri öld- um, en það er rjettur manna til að hugsa, starfa og láta skoð anir sínar í ljós, án þess að eiga það á hættu, að svipa böðuls- ins ríði á herðum þeirra. Kommúnistaflokkurinn hefir gerst boðberi útlendrar einræð isstjórnar, sem sennilega aldrei hefir átt sinn líka í harðstjórn og kúgun, ekki einvörðungu við þær þjóðir, sem þessi stjórn hef ir rænt frelsinu heldur og við sína eigin ríkisborgara, Enginn maður, sem hefir nokkra sjón eða heyrn, er þess nú lengur dulinn, hvað býr á bak við múr þann, sem Rúss- neska einræðisstjórnin hefir hlaðið umhverfis sig, til þess að dylja heiminn hvernig um- horfs er í.þessu „Alræðisríki ör eiganna". Mönnum hryllir við að lesa um allar þær hörmungar, sem Rússneska alþýðan verður að líða undir járnhæl þeirra, sem kalla sig verndara hinna snauðu Kommúnistar hjer á landi, sem og annars staðar hafa einkum snúið máli sínu til verkamanna og beðið þá um fylgi til að koma áformum sínum í framkvæmd. En hver eru nú þessi áform? Þau hafa verið framkvæmd í Rússlandi. Sennilega verður íslenska stælingin ekki betri en frum- myndin, eins og hún kemur fram, þar sem „alræði öreigana* hefir staðið í nær 30 ár. Þar hafa stjórnarvöldin hneppt verkalýðinn í þrældóm. Gert verkamenn að nokkurskonar vimuidýrum, fyrir reigingslega embættismannastjett, sem hlynt hefir verið að, á kostnað þeirra snauðu. Þessu tókst stjórninni rússnesku að halda leyndu fyr- ir heiminum í fjölda mörg ár, en nú hefir þessi vitneskja feng ist, þrátt fyrir strangt eftirlit stjórnarinnar á öllum frjettum frá landinu og útlendingum, sem tekst að ferðast eitthvað um landið. Það eru þessi fyrir- heit, sem kommúnistar hjer bjóða og það er þetta, sem þeir Ur því skera bæjar- stjórnakosningarnar vilja framkvæma, nái þeir valdaafstöðu til þess hjer á landi. Islendingar verða við þær kosningar, sem nú fara í hönd, að skera úr, hvort þeir vilja flokkslegt einræði kommúnista, skósveina útlendrar yfirráða- og einræðisstefnu, sem hafa enga sjálfstæða raunhæfa hugs un, en keppa að því einu, að geta gerst böðlar sinnar eigin þjóðar, í von um, að fá einhvern bita frá yfirboðurum sínum, sem laun fyrir dygga þjónustu. Kommúnistar eru eins og hver önnur snýkjudýr. Þeirra iðja er að mergsjúga þjóðina, brjála heilbrigða hugsun og koma rugglingi á allar nytsamar fram kvæmdir, takist þeim þetta ekki, hjaðna þeir niður eins og loftbóla. Kommúnistar hafa leikið þennan leik hjer. Þeir hafa æst til tilgangslausra verkfalla, sem ekki aðeins hafa stór skaðað þjóðina í heild, heldur og vei’ka menn oft á tíðum. Þetta starf kommúnista náði hámarki sínu sumarið og haustið 1944. Þeg- ar þeim tókst að narra þúsundir verkamanna og kvenna til að leggjá niður vinnu, til þess eins að fórna hag sínum á altari flokksklíku kommúnista. Sjálf- stæðisflokkur bar þá gæfu til að stýra þeim voða frá þjóðinni að atvinnuvegir hennar hryndu saman, og að verkafólk biði stórtjón vegna vinnutaps þess, sem varð vegna þessara tilgang lausu verkfalla, með myndun núverandi ríkisstjórnar. Með því komst á vinnufriður í landinu, því ekki gátu kom- múnistar til lengdar haldið uppi fjandskap við ríkisstjórn, sem þeir báru að sínu leyti ábyrgð á, enda líka fundu þeir þá þeg- ar, að gæfan var að snúa við þeim bakinu. Þeir fundu að verkafólkið hafði hug á að launa þeim að maklegu tjón það, sem það hafði beðið fyrir þeirra tilstilli í þessum tilgang- lausu verkföllum. Kommúnistar vonuðust líka til, að fá tæki- færi til að geta með vinsamlegir yfirskyni í ríkisstjórninni, feng ið Sjálfstæðisflokkinn til að falla frá sinni ákveðnu frjáls- lyndu lýðæðisstefnu, og Sjálf- stæðisflokkurinn kæmist óaf- vitandi inn á ekki psvipaða braut og þeir í ýmsum málum. Þannig hugðust þeir að veikja svo Sjálfstæðisflokkinn, að hann yrði ekki nema svipur hjá sjón. Þá væri þeirra höfuðóvini rutt úr vegi og leiðin að mark- inu virtist þeim standa opin. En þetta hefir nú farið á ann an veg, en þeir vonuðu. Sjálf- stæðisflokknum tókst að halda niðri öllu einræðisbrölti kom- múnista í ríkisstjórninni og móta stefnu stjórnarinnar af sinni stefnu, til framfara og framkvæmda til sjávar og sveita, svo þess eru ekki dæmi í stjórnmálasögu landsins, að nokkur stjórn hafi viðlíku áork að. — Og nú eru Þjóðviljamenn reið ir, alt hefir gengið þeim á móti í kosninga hríðinni, eins og mál efni standa til. Allir sjá nú að tillögur þeirra ,og verk innanlands er mark- laust brölt, starblindra manna, sem sjá ekkert nema rautt, og það, að geta afvegaleitt kjós- endur inn á braut þeirra auð- virðilegustu stjórnmálastefnu. Þegar innlendu málin brugð- ust kommúnistum, og þeir voru algerlega komnir á flótta í mál efnabaráttunni innanlands, — sneru þeir ásjónu sinni til Rúss lands, í von um að kraftaverk gerðist þeim til bjargar. Því að þótt þeir gætu ekkert áorkað hjer hjá þjóðinni til góðs, þá hefðu þó húsbændur þeirra í Moskva frelsað allan heiminn frá harðstjórn nasista. Þeir töluðu fjálglega ■ Um „austrænt lýðræði“ sem þeir töldu að væri hið eina sanna lýðræði. Þeir bjuggust sem sagt við, að þjóðin væri enn blind og fávís umj>að, sem var og hefir verið að gerast þar sem sovjet-áhrif og stjórn hefir ríkt. En þar brást þeim bogalist in, sem annarsstaðar. Þjóðin var vöknuð, hún sá hvernig rúss neska einræðið fetaði dyggilega í fótspor nasista, lagði undir sig þjóðir og lönd, og við heyrðum stunur hinna kúguðu þjóða, sem þjáðust undir áþján þeirra. Það er þetta kúgunarvald sem kommúnistar hjer dýrka og til- biðja. Nú líður að úrslitastundinni. Við þessar bæjarstjórnarkosn- ingar verður skorið úr, hvort almenningur hjer í bæ kýs held ■ur að hefta sig í þrældóm kom múnistiskrar einræðisstjórnar eða halda áfram að efla lýðræð is- og framfarastefnu þá, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir stað ið fyrir hjer í bænum undan- farin ár. Gunnar Helgason. D-LISTINN er listi Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. — Ungir Sjálfstæð- ismenn! Gerið ykkar til að sig- ur flokksins verði sem mestur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.