Morgunblaðið - 19.01.1946, Page 12

Morgunblaðið - 19.01.1946, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 19. jan. 1946 - SIÐA S. U. S. Framh. af bls. 7. irtektir, sem hann hefir feng- ið á undanförnum umræðu- fúndum æskulýðsfjelaganna og einnig sá fjöldi nýrra meðlima, sem daglega streym ir inn í Heimdall. Það er ákaflega greinilegt, að kommúnistar eru mjög ó- styrkir og stendur mikill stuggur af úrsllitum kosning- anna. Þeir eiga mjög þunga drauma þessa dagana og æða um með allar árar úti, sem þeir eigi lífið að leysa. Þeir smala saman unglingum, sem rjett hafa slitið barnaskón- um og beita þeim til að klappa, stappa og öskra á fundum. Þeir fá kvennalið sitt til þess að framleiða á fundum sínum mjelkisulegar og óraunhæfar ályktanir og áskoranir til mæðranna með hörnin sín, og sem aðeins er ætlast til að slá á við- kvæma strengi hjá þeim, — og fá þær þannig til fylgis' við sig. Þeir trúa því, að þeir hafi reiknað alt út svo að engu muni að það sje fullkomið, — bara ef þeir komist að. Þeim er gjarnt á að við- hafa vísindalega gagnrýni, — og ætli hún þá ekki opinber- ist einnig í því, sem öðru, þegar þeir hafa það eitt út á bæjarreikningana að setja, að ekki hefir verið heimt inn leiga af bragglaíbúðum, eða þá í því, þegar Reykja- vík er lýst eins og horg eftir loftárás. Þessir menn þykjast geta bent á lausn allra vandamála •— þessir vandræðamenn, sem ekki hafa getað lært að lifa sjálfir, heldur hafa ætíð þurft að leita austur til Rússlands til að fá þaðan tilkynningar um, hvað þeir eigi að gera næst. Það er blindur maður, sem ekki tekur eftir því, hvernig kommúnistar snúast eins og skopparakringla, eftir _ því, hvernig tekið er í hina rúss- nesku línu. Við minnumst þess, hve fullan fjandskap þeir sýndu málstað Bandamanna í upp- hafi styrjaldarinnar. Þegar þeir litu á hvert handtak í þjónustu Breta sem hrein og bein landráð. Reyndu að koma af stað ringulreið í hernum og kröfðust þess m. a. að ísl. hættu að selja Bret- um fisk. En þannig var það meðan fulltrúar hins 3. ríkis sátu veislufögnuð gestgjafans í Kreml. En þar kom, að upp úr sauð milli Þjóðverja og Rússa, — og hvað skeður ekki. Þeir útibússtjórarnir snúa við1 bíaðinu mjeg snögglegia. Þá verður Bretavinnan; sem áður var landráðavinna alt í einu að landvarnavinnu. Við munum líka afstöðu Kommúnistanna til Finna á sínum tíma, þegar þeir bök- (uðu sjer óvirðingu alþjóða” fyrir lúalega framkomu. í Æskulýðssíðu Þjóðvilj- ans stóð nýlega: „Við ungir sósialistar stefnum að því markmiði að mynda sósíal- iskt þjóðfjelag á íslandi". — og láta mjög drýgindalega. En þeir ýusa mest, sem grynnst vaða. Ungir Sjálfstæðismenn og konur munu í þessum kosn- ingum sýna þessum mála- fylgjum erlendrar kúgunar- stefnu, að Sjálfstæðisflokk- urinn skal ekki aðeins sigra, heldur sigra glæsilega. Allir Sjálfstæðismenn og konur mun sanna þessum andstæðingum sínum, sem sjaldan eða aldrei hafa látið gptt af sjer leiða, að Sjálf- stæðisstefnan er stefna fram- tíðarinnar, stefna framfara og frelsis. Sjálfstæðismenn og ekki síst Heimdaellingar, munu sjá til þess, að^hinum snjall- asta og vinsælasta formanni Heimdallar, Jóhanni Hafstein verði trygt örugt sæti í bæj- arstjórn og Sjálfstæðisflokkn um þar með SIGUR. Samningur við iðnfjelögin um hagnýtingu vinnuafls Framh. af bls. 2. heldur mann af sjer. og að kommúnistar treysta ekki málstað sínum, nema hann sje studdur af blekkingum og hrekkjum, þar sem þeim verður við komið. Það þarf ekki að efa, að kommúnistar reyni að beita þessum ráðum það sem eftir er í kosningabardaganum. Það skiftir ekki miklu máli. Orustan er þeim þegar töp- uð. Það er orðið löngu ljóst, að Reykvíkingar láta nú enn sem fyr eigin flokk, Sjálf- stæðisflokkinn, vinna glæsi legan sigur. -----• ♦------ — Myndir úr bæjarlífimi Framhald af bls. 8 nauðugir viljugir verða að dansa eftir pípu kommanna, sem þeir þó þykjast vera að berjast gegn með öllum ráðum. Það hefir sýnt sig á undan- förnum árum, að margir flokks menn Alþýðuflokksins hafa haft meira vit í koliinum en forystumenn þess flokks. Og mjer þætti líklegt, sagði jeg við þenna óbóðna sendimann, að eins færi nú. Að margir ÁJ- þýðuflokksmenn, sem í raun og sannleika vilja sporna geg'n kommúnismanum, tækju það ráð, sem áreiðánlega er heilla- vænlegast, bæði fyrir hvern einstakan bæjarmann og bæj- arfjelagið, og það er —. — Að sitja heima við kosn- ingarnar í þetta sinn, greip náunginn fram í fyrir mjer. — Onei, sagði jeg. Þeir munu margir draga þær rjettu álykt- anir af flokkaskiftingunni eins og hún er, og sjá, að þeir gera rjettast með því — að kjósa hreinlega með Sjálfstæðis- flokknum. Með því móti einu vinna þeir gegn áhrifum kommúnistanna hjer í bænum. Breski fáninn rifinn niður LONDON: Breska her- námsliðið hefir sett fjögurra daga umferðabann^ frá sól- setri til sólarlags á þýska bæinn Lunden í Schleswig Holstein, vegna þess, að breski fánin var rifinn þar niður af stöng. Á SÍÐASTA bæjarstjórnar- fundi urðu nokkrar umræður um að leita samninga við iðn- fjelögin, til þess að tryggja sem best hagnýtingu vinnuafls ins til húsabygginga. í frásögnum Alþýðublaðsins og Þjóðviljans gætir verulegra missagna um orð mín og af- stöðu til þessa máls á fundin- um. Vil jeg því gefa eftirfar- andi skýringar Fyrir fundinum lá tillaga frá Jóni Axel Pjeturssyni um að gera samninga milli bæjar- stjórnar annarsvegar og hins- vegar Dagsbrúnar, Trjesmíða- fjelags Reykjavíkur og Múrara fjelagsins, í því skyni að vissar byggingarframkvæmdir sætu í fyrirrúmi um vinnuafl. Jeg benti á ,að hjer væri um merkilegt mál að ræða og gætu slíkir samningar um hag- nýtingu vinnuaflsins orðið til góðs. En uppkast Jóns Axels væri þannig úr garði gert, að ekki væri unt fyrir bæjarstjórn að samþykkja það. Nefndi jeg meðal annars 3. gr. uppkasts- ins, sem hljóðar svo: „Bæjarstjórnin lofar því hins vegar að sjá meðlimum fje- laganna, sem að samningi þess- um standa, fyrir vinnu við bygg ingarframkvæmdir, svo fremi að tíðarfar leyfir, og skal sú vinna ávalt greidd samkv. við- urkenndum töxtum eða samn- ingum viðkomandi fjelaga". Bæjarstjórn átti þannig að gefa meðlimum þessara þriggja fjelaga loforð um vinnu við byggingarframkvæmdir. um al veg ótiltekinn tíma. Jeg sagði, að á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar, sem allir bæjarfulltrúar styddu, væri það meginatriði, að tryggja öllum atvinnu og koma í veg fyrir atvinnuleysi. — Að þessu væri unnið sleitulaust af ríkisstjórn, nýbyggingarráði og fleiri aðiljum. Hitt væri óeðli- legt, að bæjarstjórn hlypi fram fyrir skjöldu til þess að lofa til- teknum fjelagsmönnum at- vinnu, en gefa engin samskon- ar fyrirheit til annarra hlið- stæðra stjetta. Slíkt væri rang- læti gagnvart öðrum. Eða hvers vegna vildi Jón Axel ekki hafa með í fyrirheitinu, t. d. málara, pípulagningamenn, járnsmiði, rafvirkja, blikksmiði, o. m. fl? Hjer væri um að ræða mál, sem varðaði allar stjettir þjóðfjelags ins, og yrði að leysa á víðari grunc^velli en tillagan fæli í sjer, en taka ekki einstakar stjettir út úr. Auk þess gerir tillagan ráð fyrir að lofa þessum fjelögum vinnu við byggingarframkv., jafnvel eftir að leyst væri úr nú verandi húsnæðisvandræðum og drægi úr þeim stórfelldu framkvæmdum, sem nú eru á döfinni. Vænti jeg að allir sjái, að ekki var unt að samþykkja þessa tillögu Jóns án verulegra breytinga. Hinsvegar var „Men ingen god nok“ hjá Jóni Axel, enda flutti jeg og fjekk sam- þykta tillögu um að strax yrðu teknir upp samningar við fje- lögin um hagnýtingu vinnu- aflsins við byggingarfram- kvæmdir. Jeg vona, að þessar skýr- ingar sjeu næg leiðrjetting á mishermi Alþýðublaðsins og Þjóðviljans. Gunnar Thoroddsen. S j álf stæðismenn! Þið, sem eigið þess kost, veit- ið Sjálfstæðisflokknum liðsinni með því að Ijá honum bifreiðar yðar á kjördegi. Tilkynningum um þetta er veitt mótttaka í skrifstofu flokksins, sími 3315. Hernámslið dansar LONDON: Starfslið yfir- stjórna hernámsliða Rússa, Frakka, Breta og Bandaríkja manna hefir haldið mikinn dansleik í stöðvum sínum í Berlín. Eflir Roberl Storm At THE P.B.I. fielp offkse k WMAT'ð THl£l ANOTHER DRAFT EVADER...LA5-T $EEN IN THI$ J VICINITY... 'é WELL, I THINK i'VE 60T 1 A LINE ON THE TRUCK, U£ED IN THE HIJACKIN6 OF THO&E TlRE^n.SETTER CALL PWL... ÁND AT THE CANDV RlVER R.R. yÁRDZ- MR. RALEI6H , I HAVE A HUNCH THAT THE MEN VJE WANT ARB EVING A CARLOAD OF RADIOS IN THE VARD ! NOW, HERE'6 Júlía: Það er ómögulegt fyrir þig Franki, að vera altaf með lögregluna á hælum þjer. Því gefurðu þig ekki fram við hana. Hún finnur þig hvort sem er. — Franki: Jeg veit ekki hvað jeg á að gera. ■— í skrifstofu lögreglunnar: Jim: Jæja, þá held jeg að jeg sje að hafa upp á þessum vörubíl. Best að ná í X-9 . . . En hvað er nú þetta. Enn einn liðhlaupinn, og sást síðast hjer í grendinni. — í járnbrautar- stöðinni —: X-9: Hr. Raleigh, jeg held að þorp- ararnir hafi nú fengið augastað á vagni með út- varpstæki, sem er hjer á stöðinni. Og viðvíkjandi því, hefi jeg hugsað mjer þetta ...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.