Morgunblaðið - 10.02.1946, Qupperneq 1
12 síður og Lesbók
á3. árgangur. 34. tbl. — Sunnudagur 10. febrúar 1946 ísafoldarprentsmiðja h.f.
FISKIBÁTAR LEINIDA í OFSAVEÐRI
Danir framleiða flugvjelar.
Vjelbófi hvolfir við Garðskaga
4 menn drukna
Se\ bátar ókomnir ú á miðnætti s.l. nótt
VJELBÁTAFLOTINN úr verstöðvunum hjer við Faxaflóa lenti í hinu versta veðri
í fyrrinótt og í gær. Einn bátur fórst og koirnst aðeins einn maður af, en fimm manns
voru á bátnum. Á miðnætti í nótt voru sex bátar ókomnir að, en vitað var um tvo
þeirra, sem hjeldu sjó. Veiðarfæratap var mikið hjá bátum yfirleitt og siunir kom-
ust við illan leik til lands.
FYRIR STRÍÐ var dönsk flugvjelaframleiðsla í miklu áliti. —
Hafa Danir nú hafið flugvjelaframleiðslu á ný og munu leggja
áherslu á að byggja „sport“-vjelar. Hjer sjest ein þeirra, K-Z.
III. Verð þessara flugvjela er 21.000 krónur, eða.talsvert Iægra
en notaðar bifreiðar hafa verið seldar hjer á svörtum markaði.
I vjelinni er rúm fyrir tvo. Vjelin er 100 hcstöfl og flughraðinn
alt að 165 km. á klst. Getur flogið 800 km. án þess að lenda og
notar 20 lítra af bensíni á flugtíma. — Vjelin getur lent á 50
metra langri braut með um 55 km. hraða, ef skilyrði eru góð. —
Javamálin enn rædd
í Öryggisráðinu
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ÖRYGGISRÁÐIÐ kom saman í dag og hóf á ný umræður um
kæru Ukrainu um Javamálin. Fyrstur tók til máls Manuelsky,
en hann er einn af fulltrúum Rússa á þingi Sameinuðu þjóð-
anna. Bar hann Breta þeim sökum, að þeir hefðu beitt bæði
breskum og japönskum hermönnum gegn Indónesum.
BÁT HVOLFIR.
Vitað er um þau afdrif eins fiskibátsins, Magna, frá Norðfirði, að honum hvolfdi út
af Garðskaga. Vjelbáturinn Barði frá Húsavík var þarna nálægur og tókst að bjarga
einum manni af áhöfninni af Magna, en fjórir menn fórust. Maðurinn, sem bjargað-
ist var vjelarmaðurinn. Hann hjelt sjer uppi á braki úr öldustokk bátsins.
Þeir, sem eru ókomnir að.
AF ÞEIM sex bátum, sem ókomnir voru að á miðnætti í
nótt var vitað um tvo. En það eru þeir Hilmir frá Eskifirði
og Hákon Eyjólfsson frá Gerðum. Þeir sögðust halda sjó
og töldu að alt væri í lagi. En hinir fjórir, sem engar fregn
ir höfðu borist af eru: ,.Skíði“ frá Reykjavík, Aldan frá
Hafnarfirði, Geir frá Keflavík og Max frá Vestfjörðum.
Slysavarnafjelagið bað skip að grenslast eftir bátunum,
en togarar, sem samband náðist við sögðu að veður væri
svo vont, að hver hefði nóg með sig.
Hann bætti því við, að hvorki
Holjendingar nje Bretar hefðu
reynst þess' megnugir að bera
af sjer neinar af þeim stað-
reyndum, sem hann hefði lagt
fram. .
Finhliðá styrjöld.
Vinátta Breta og Rússa, sagði
hann, hefði verið mikil og auk-
ist til muna í styrjöldinni. En
því væri hinsvegar ekki hægt
að neita, að mjög einhliða styrj
öld væri nú háð á Java.
Bevin grípur fram í.
Bevin, utanríkisráðh. Breta,
greip fram í ræðu Manuelskys,
og spurði, hvað Ukrainumenn
mundu hafa gert, ef eins hefði
staðið á fyrir þeim og Bretum í
þessu efr.i. Svaraði þá fulltrúi
Rússa: „Herir okkar berjast
ekki til að verja hagsmuni Shell
olíufjelagsins. Þeir berjast að-
eins til varnar föðurlandi sínu“.
Bevin tók nséstur til máls og
andmælti ræðu Manuelskys. —
Kvað hann Breta vera á Java
með fullu samþykki Hollands-
stjórnar en ekki vegna sinna
eigrn hagsmuna. Sagði hann þá
ekki geta staðið aðgerðarlausa,
meðan hryðjuverk væru fram-
in, en Bretar bætti hann við,
vildu stuðla að friðsamlegri
lausn deilumálanna.
Spáni neitað um þátttöku.
Þing sameinuðu þjóðanna
kom einnig saman í dag. Var
samþykt einróma sú tillaga full
trúa Panama, að Spánverjum
skyldi ekki veitt upptaka í
bandalagið, fyr en lýðræðis-
stjórn væri komin á þar í landi
á ný.
Noel Baker, einn fulltrúi
Breta, tók til máls við þetta
tækifæri. Sagðist hann harma
það, að lýðræðisstjórn væri
ekki enn komin á á Spáni,
Lögð voru fram gögn frá
pólsku stjórninni, þar sem sönn
ur eru færðar á það, að stefnt
hafi verið að því meðal annars,
að gera viðurværi pólskra
bænda ljelegra en þýskra.
Sex miljón Itús eyðilögð.
Saksóknarinn kvað Rússa
Endurvígsla Gamla
Garðs
í GÆRKVÖLDI hjelt stjórn
Gartlla Stúdentagarðsins hóf
fyrir nokkra boðsgesti, sem að-
allega voru styrktarmenn og
stúdentar. Var hófið haldið að
Gamla Garði, sem nú hefir ver
ið gert mjög vel við eftir her-
námið.
Ásgeir Ásgeirsson banka-
stjóri, formaður garðsstjórnar,
flutti ræðu og skýrði frá hög-
um garðsins. Björn Ólafsson og
Árni Kristjánsson ljeku són-
ötu eftir Grieg og Guðmunda
Elíasdóttir söng einsöng. Síðan
var sest að snæðingi 1 matstofu
Garðs og skemtu menn sjer þar
lengi nætur.
Aukinn útflutriingur.
London: Bretar hafa síðustu
mánuði aukið útflutning sinn
á bifhjólum að mjög miklum
mun.
hafa orðið að þola meira af
höndum nasista en nokkur önn
ur þjóð. Upplýsti hann, að auk
1700 borga og 7.000 þorpa, sem
gereyðilögð hefðu verið, hefðu
6.000.000 hús verið lögð í rúst-
ir, ránshöndum farið um
100.000 bændabýli og hundruð
kirkna eyðilagðar.
Iran viðurkennir
ekki sljórn upp-
reisnarmanna
London í gærkvöltíi.
FORSÆTISRÁÐHERRA ír-
anstjórnar hefir lýst því yfir,
að stjórn hans muni alls ekki
viðurkenna stjórn þá, sem kom
ið hefir verið á laggirnar í hjer
aði því í norðurhluta landsins,
sem uppreisnin braust út í á
dögunum.
Eins og mönnum er kunnugt,
töldu yfirvöld íran, að Rússar
hefðu með hervaldi komið í
veg fyrir það, að uppreisnin
yrði bæld niður. Barst þingi
Sameinuðu þjóðanna kæra frá
Iranstjórn, þar sem þess var
meðal annars krafist, að Rúss-
ar hyrfu á brott með her sinn
úr landinu.
Forsætisráðherrann sagði í
yfirlýsingu sinni, að það væri
álit háns og stjórnar hans, að
Iranbúar yrðu sjálfir að taka
ákvörðun um það, hvernig
stjórnfyrirkomulag væri í hin-
um ýmsu hjeruðum landsins.
UNGUR SKÁKSNILL-
INGUR.
LONDON: — Fjórtán ára
gamall skáksnillingur tekur nú
þátt í millilandakepninni í
London. Hann er spánskur og
heitir Pomar. Hann hefir þeg-
ar unnið marga stórmeistara,
t. d. breska meistarann Stone.
Vekur frammistaða drengsins
mikla athygli.
Margir hætt komnir
Margir bátar voru hætt
komnir. Fyrsta fregnin um
hrakningar kom til Slysa-
varnafjel. frá „Bjarna Ólafs
syni“. Freyja úr Reykjavík,
70 lesta bátur, sem riu er
björgunarskip hjer í flóanum
fór honum til aðstoðar og
kom hann í höfn kl. 3,30.
Næsta aðstoðarbeiðni kom
frá Særúnu frá Siglufirði,
sem var stödd 14 sjómílur
frá Akranesi. Vjel Særúnar
bilaði og leit svo út um
tíma. sem bátinn myndi reka
upp á Mýrarnar. Fjekk Slysa
varnafjelagið „Ólaf Bjarna-
son“ frá Akranési til að fara
bátnum til aðstoðar, en skip
verjum á Særúnu tókst loks
að koma vjelinni í lag og náði
hún höfn um klukkan 17,30.
Tveir bátar hætt
komnir.
Tveir bátar af Suðurnesjum
voru hætt komnir, Faxi frá
Keflavík og Einir frá Eskifirði
(sem gerður er út frá Kefla-
vík).
Faxi fjekk á sig brotsjó og
misti m. a. afturmastrið. Var
þetta mikið áfall og gliðnaði
báturinn talsvert og kom að
honum leki. Vjel bátsins bilaði
einnig. Rak hann fyrir sjó og
vindi. Freyja fór á vettvang til
að reyna að koma honum til
aðstoðar. Undir kvöldið tókst
að komá vjel Faxa í lag og
komst hann til Keflavíkur
klukkan tæplega 11 í gærkvöldi
Einir misti stýrið og var því
hjálparlaus. Freyju tókst að
Framh. á 2. síðu
Núrnberg:
Slæmar aðfarir Þjóð-
verja í Rússlandi
NÚRNBERG í gærkvöldi.
SAKSÓKNARI Rússa í Núrnberg hjelt í gær áfram lestri
ákæranna á hendur nasistaforsprökkunum. Lýsti hann því,
hvernig Þjóðverjar skipulögðu fimtu herdeildina í Póllandi.