Morgunblaðið - 10.02.1946, Side 8
ORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. febr. 1946
K. F. U. M.
K. F. U. K.
Æskulýðsvikan
hefst með almennri æskulýðssamkomu í kvöld
kl. 8,30., þar sem sjera Bjarni Jónsson talar.
Síðan verða samkomur á hverju kvöldi, kl.
8,30, alla vikuna í húsi K. F. U. M. og K. á
Amtmannsstíg 2 B. ^
RÆÐUMENN:
Sjera Bjarni Jónsson,
Sjera Sigurbjörn Einarss., dósent,
Sjera Magnús Guðmundsson,
Octavíanus Helgason,
Ólafur Ólafsson, kristniboði,
Sjera Sigurjón Þ. Árnason,
Gunnar Sigurjónsson, cand. thol.
Sjera í’riðrik Friðriksson.
Mikill söngur og hljóðfærasláttur verður á
hverri samkomu. — Allir velkomnir.
Dönsk málaralist
Málverkasýning
verður opnuð að Hótel Borg (bak-
dyr), mánu.d 11. febr., kl. 1 e. h.
Þar verða eingöngu sýnd málverk
eftir þekta danska málara.
Sýningin stendur aðeins 3 daga.
Notið þetta einstaka tækifæri.
Brödrene Rasmussen
Fimtugur:
Sveinbjörn Jónsson, byggingameistari
!-X-X
SVEINBJÖRN JONSSON
byggingarmeistari á fimmtugs
afmæli á morgun.Hann er Svarf
dælingur að ætt. Foreldrar
hans bjuggu að Þóroddsstöð-
um í Ólafsfirði, þar ólst hann
upp. Hefir hann ávalt sýnt Ól-
afsfirði og framfaramálum Ól-
afsfirðinga, mikla ræktarsemi.
Snemma bar á áhuga hans
fyrir ýmsum nýjungum í at-
vinnu- og öðrum menningar-
málum. Að afloknu prófi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar
sigldi hann til Noregs. — Þar
lagði hann stund á byggingar-
fræði. Settist síðan að á Akur-
eyri. Þar stofnaði hann R.-
steinagerð, annaðist bygging
margra stórhýsa. Reisti m. a.
r *
Kristneshæli og verslunarhus
KEA á Akureyra. Gekst jafn-
firamt fyrir ýmsum nýjung-
um. T. d. að bygður var sund-
skáli 1 Svarfaðardal er mun
vera sá fyrsti hjerlendis. Hann
tók fyrstur upp þann hátt við
húsahitun með hveravatni, að
leiða kalt vatn í heitar upp-
sprettur, þegar hita þurfti hús
sem stóðu hærra en uppsprett-
urnar. Hann var og forvígis-
maður að bygging núverandi
sundlaugar á Akureyri.
Meðan Sveinbjörn starfaði
nyrðra reistu þau hjónin Guð-
rún Björnsdóttir frá Veðramóti
og hann nýbýlið Knarrarberg í
Kaupangslandi. Þar annaðist
kona hans garðyrkjustöð með
miklum myndarskap og snyrti-
mensku.
Eitt helsta einkenni Svein-
bjarnar er sívakandi hug-
kvæmni hans. Er það líf og
yndi hans að hugsa upp nýjar
starfsaðferðir, ný tæki og nýtt
fyrirkomulag við atvinnurekst
ur manna.
Eigi verður í fljótu bragði
komið tölu á öll þau viðfangs-
efni, er Sveinbjörn hefir valið
sjer viðvíkjandi nýjungum í
byggingum, í vinnutækjum og
starfsháttum manna. — Hann
lætur helst ekki sitja við hug-
renningar einar. Hann kýs frem
ur að klifa þrítugan hamarinn
til þess að koma hverri hug-
mynd sinni í framkvæmd, sem
hann telur að geti komið at-
vinuvegum landsmanna á ein-
hvern hátt að gagni. Enda er
hann einn þeirra manna, sem
leysa vill hvers manns vand-
ræði, er til hans leitar.
Vikurnámi hratt hann af stað.
Unnið hefir hann að vinslu þang
mjöls og heyþurkunarstöðvar
við hverahita. Ahald hefir hann
fundið til vinnuljettis við að
draga línu, er hann nefnir
„dráttarkarl" og hefir fengið
einkarjett á þeirri nýung. Eitt
sinn gerði hann tillögur um ör-
ugga geymslu saltsíldar, svo
trygt væri að síldin yrði ekki
fyrir skemdum. Hann var með-
al stofnenda raftækjayerksmiðj
unnar í Hafnarfirði. Og aðal-
stofnandi Ofnasmiðjunnar, sem
hann og veitir forstöðu.
Margt hefir hann starfað fyr-
j ir Ólafsfirðinga. M. a. unnið að
undirbúningi hitaveitunnar, er
þar er komin á.
1 Sveinbjörn hefir í mörg ár
starfað með miklum áhuga að
ýmsum fjelagsmálum iðnaðar-
manna. Hefir hann óbifanlega
trú á því, 3ð íslenskur iðnaður
eigi mikla framtíð fyrir sjer.
En það verður þó ekki síst
vegna þess, að iðnaðurinn fær
að njóta áhuga og elju hugvits-
samra manna, sem ótrauðir
brjóta ísinn og finna útvegi og
framleiðsluhætti, sem öðrum
hefir ekki hugkvæmst.
Sveinbjörn er áhugamaður í.
hverju verki sem hann vinnur.
En hann hefir stundum svo
mörg áhugamál, að hvert verk-
efni getur ekki tekið hug hans
nema takmarkaðan tíma. Þetta
getur valdið honum erfiðleika
og orðið upphaf að vonbrigðum
í breytilegu starfi hans.
Sveinbjörn er í stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna. Hefir
hann þar beitt sjer fyrir mörg-
um góðum málefnum með
áræði sínu og bjartsýni. — En
þetta tvent þurfa þeir að eiga
í ríkum mæli, er ryðja vilja
braut nýjungum í atvinnuveg-
um þjóðarinnar.
Margir velunnarar Svein-
bjarnar og samstarfsmenn
munu í dag þakka honum fyrir
hjálpfýsi hans og góðan fjelags
skap, bjartsýni hans og fram-
farahug og óska honum góðs
gengis um langa framtíð.
V. St.
BUFFALO BILL CSjálfsævisagaj
kemur út eftir nokkra daga á forlagi mínu
Tekið á móti áskrifendum
JT _
Máhaútgáia €tuSféms O. €$m<&jémss@mesr, sími 4169
^JiiiiiiiiiniwiiuiiiiiiiiiiHiuMuiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiii iiiiiiiiiiiiiiiimrfiii!iiiimiiifiiiii:iiiif!iiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii:miiiiiiii!miiiiiiii!iiiiiii:Emiiiiiiiiii!imiiiiiimiii!iiii!iiiiiii[iH»
X-9
Effir Robart Sioriti
HJHI!UH!iniHH!!IMIU!llliUHil]Ulli:ni!IIIHIII!!HIHIIIIIIIIIIUIIIIH!IHIillHIIII!IHIIHIIIIHIUIIHIIII
iiuiuiuiiiiiiiiHuiuiiiiiuiiiHiiiiiiiiHiuiiHiniHiiiiiumiiniiuiiiiiiiHuiuiiiiHHiiiiiiiiiiiiiiniiirHs
"DRÉA/tfER'', v'mean
VOU'RE 6-GONNA
| OFF THAT R.AU.R0AD
BULL?
5, King Featurcs Synáicate, Inc.,'Wo’rlH ri^Fts reserved.
önjaxari: Giamur, þú ætlar þó ekki að far^ að
drepa löggann? — Glámur: Við komum ekki með
hann hingað til þess að láta hann gera við vaskinn.
Og þar að auki sagði jeg aldrei að jeg ætlaði að
kála honum. Rokkarnir hjerna í lögreglunni eru
gamlir. Jeg býst við að þessi sje frá Washington.
Hann er ungur. -
barið að dyrum.
Þetta heyrir X-9. — um leið er