Morgunblaðið - 10.02.1946, Síða 12
VEÐURUTUTIÐ. Faxaflói:
H vass vestan og norðvestan. —
Jeljaveður.
SÍÐUSTU „villur“ kommún-
ista. — Grein á bls. 2.
Sunnudagur 10. febrúar 1946
Landstnálafjelagið
Vörður 20 ára
Afmælissamkoma á mið-
vikudaginn kemur.
A MIÐVIKUDAGINN kem-
ur, þ. 13. þ. m., eru 20 ár liðin
frá stofnun stjórnmálafjelags-
ins Varðar.
Verður þessa afmælis fjelags
ins minst með samkomu, er
haldin verður í Listamannaskál
anum. Samkoman verður hald-
in þar, en ekki í flokkshúsinu,
vegna þess, að ekki er enn lok-
ið við að ganga frá hinum glæsi
lega samkomusal við Thorvald-
sensstræti.
Núverandi formaður Varðar-
fjelagsins er Bjarni Benedikts-
son borgarstjóri.
Olafur Thors forsætisráð-
herra tekur til máls á fundin-
um á miðvikudaginn.
Fleiri verða þar ræðumenn,
m. a. fyrsti formaður Varðar,
Magnús Jónsson alþm.
Þau 20 ár, sem stjórnmála-
fjelagið Vörður hefir starfað,
hefir það verið öflugt vígi fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn og stefnu
hans í bæjar- og landsmálum.
Um sama leyti og þetta fjelag
var stofnað, var gerð ný og ör-
uggari skipun á alla flokks-
starfsemina hjer í bæ. En Varð
arfjelagið var miðstöðin fyrir
flokksstarfsemina. Þá var Varð
arfjelagið eiginlega eina flokks
fjelag Sjálfstæðismanna hjer í
bæ. A næstu árum fjölgaði
þeim, til mikils velfarnaðar
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
A miðvikudaginn kemur verð
ur að einhverju leyti rifjuð upp
saga fjelagsins, jafnframt því
sem rætt verður um þau störf,
sem framundan eru.
Seglskúfa S. í. 6. S,
HJER BIRTIST MYND af seglskútu þeirri, sem er meðal vinn-
inga í liappdrætti S. í. B. S. Skútan er bygð eftir teikningu frá
Bandaríkjunum, en þessi gerð báta er algeng þar við land. Traust
er hún og stöðug í sjó, þrátt fyrir mikinn reiða. Verð hennar er
15 þús. krónur.
3 menn tekur út af báti
frá Vestmannaeyjum
Náðusf allir aflur.
Truflanir á Sogslín-
unni
TVÍVEGIS var bærinn raf-
magnslaus í gærkvöldi. I bæði
skiftin mun hafa verið um að
ræða truflanir á háspennulín-
unni austur við Sog. Um kl.
eitt í nótt lagði af stað hjeðan
úr bænum hópur starfsmanna)
Rafmagnsveitunnar. Munu þeir
i
fara með línunni til þess að
athuga truflanir þessar.
Vestmannaéyjum í gærkvöldi. Frá frjetta^itara vorum.
ÞRJÁ MENN tók út af vjelbátnum „Ófeigi“, frá Vest-
mannaeyjum í dag, en þeir náðust allir aftur. „Ófeigur“
var í róðri er þetta skeði, en veður var hvasst. Fjekk bát-
urinn áfall með þeim afleiðingum, sem fyrr greinir. Má það
teljast sjerstök heppni, að mennirnir skyldu allir bjargast.
„Ófeigur“ er 25 smálesta
bátur. Skipstjóri *er Angan-
týr Elíasson.
Allir bátar, sem rjeru í dag
eru komnir að, heilu og
höldnu. Afli er sæmilegur
eftir ástæðum, og enginn bát
urinn varð fyrir teljandi
veiðarf ærat j óni.
Piorræn verkfræðingaráðstefna
í Stokkhólmi í maí
ÞRIÐJA NORRÆNA verkfræðingaráðstefnan verður hald-
in dagana 27.—29. maí næstkomandi í Stokkhólmi. Er það
sænska verkfræðingasambandið, sem býður til ráðstefnu þess-
arar. Verða þar mættir fulltrúar frá Norðurlöndunum fimm,
Ðanmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Gert er ráð fyrir, að fulltrú-
arnir frá Danmörku, Finnlandi,
íslandi og Noregi verði um
300 og álíka margir frá Sví-
þjóð.
Þetta er í þriðja sinn, eins
og fyrr segir, sem slík norræn
verkfræðingaráðstefna er hald
in. Hún var í fyrsta sinn í
Kaupmannahöfn 1929 og síðan
í Osló 1938. Næsta ráðstefna
átti svo að verða í Stokkhólmi
1943, en af henni gat ekki orð-
ið þá af skiljanlegum ástæðum,
og því til hennar boðað nú.
Hifaveifugeymarnir
læmdusf vegna raf-
magnsbilunar
í GÆRKVÖLDI um kl.
7, 20 bilaði háspennulína.
sem lie;Kur unn að Revki
um með beim afleiðine-
um, að ekki var hæet að
dæla heitu vatni í gevma
Hitaveitunnar á Öskiu-
hlíð. Voru beir orðnir
tómir kl. 8,45 í eærkvöldi.
Lokið var að gera við
rafmaensbilunina um kl.
10,30 í gærkvöldi og bá
bvriað að dæla vatni í
sevmana að nviu.
Er blaðið áttí tal við
Helga Sigurðsson, hita-
veitustióra í gærkvöldi,
bað hann um að benda
fólki á, ef ofnar bess hitn
uðu ekki í dae, að eæta
að hvort loft væri ekki í
beim. bví að við bví má
búast.
Ölvuðum manni
bjargað frá druknun
ÞAÐ BAR til seint í fyrrakvöld, að tveir drukknir menn
fjellu hjer í höfnina. Og var það snarræði Magnúsar Magnús-
sonar, verkstjóra í Hjeðni, Laugarnes 34, að þakka, að annar
þeirra, Einar J. Björnsson, háseti á mb. Kristjáni frá Akureyri,
skyldi ekki drukkna. Hinn manninn mun ekki hafa sakað.
Þessir drukknu menn munu
hafa verið í ryskingum vestur
á Ægisgarði. Ekki voru þó
sjónarvottar að því. En báðir
fjellu þeir af garðinum, milli
skips og bryggju. Það vildi
þeim til happs, að það var aft-
arlega við skipið, sem þeir
fjellu í sjóinn.
Magnús var að vinna í vjel-
arrúmi bv. Sindri, ásamt fleiri
mönnum. Heyrði hann þá, að
einhver gaf frá sjer hljóð. Brá
hann þegar við, við annan
mann upp á þiljur. Sjá þeir þá,
hvar maður var um það bil að
sökkva. Sást aðeins á hendur
hans. Og annan mann er hjelt
sjer í einn af bryggjustöplun-
um. Magnús rendi sjer á kaðli
niður með skipshliðinni og
lagði - til sunds. Honum tókst
fljótlega að ná taki á hinum
druknandi manni. Með aðstoð
vinnufjelaga sinna tókst hon-
um að koma Einari um borð
í skipið. Síðan hjálpuðu þeir
hinum manninum upp. Einar
var þá aðfram kominn. Hafði
drukkið mikið af sjó og var
kalt.
Magnús Magnússon og fje-
lagar hans gerðu lögreglunni
þegar aðvart. Tók hún menn-
ina í sínar vörslur. Var hlúð
að þeim eftir bestu getu á lög
regluvarðstofunni. Þeim gefið
heitt að drekka, þurkaðir og
síðan vafðir inn í teppi og lagð
ir fyrir á bekkjum. Um nótt-
ina var Einari útveguð föt og
hann fluttur um borð í bát
sinn. Hinn maðurinn, sem
mun vera búsettur hjer í bæ,
sofnaði þegar er búið hafði ver
ið um hann og svaf hann þar
til í gærmorgun. Þá voru föt
hans orðin þur.
Hefði Magnús Magnússon,
sem er karlmenni mikið, ekki
sýnt í>etta snarræði, hefði
Einar að öllum líkiridum
druknað.
Kviknar í rafsiöð-
inni í Vesfmanna-
eyjum
Vestmannaeyjar í gær-
kvöldi. Frá frjettaritara
vorum.
LAUST fyrir kl. 6 í kvöld
kom upp eldur í rafstöðinni
hjer í Vestmannaeyjum.
Byggingin er öll úr steini,
nema þekjan, sem er úr trje,
og var hún alelda, er slökkvi
liðið kom á vettvang.
Slökkviliðinu tókst á til-
tölulega skömmum tíma að
ráða niðurlögum eldsins, þótt
veðurhæð væri mikil og því
erfiðara um allar slökkviað-
gerðir.
Ekki liggur enn fyrir, hve
skemdir hafa verið miklar.
en Vestmannaeyjabær er nú
alveg ljóslaus. Fullvíst er þó
talið, að stærsta vjel stöðvar
innar sje óskemd, en ekki er
vitað með vissu um hinar
tvær. Vonast er eftir að ljós-
in verði aftur komin í lag
eftir morgundaginn. — Þakið
er alt skemt.
Enn er ekki fullkunnugt
um, hver eldsupptök eru, en
haldið er að kviknað hafi í
út frá reykröri.
S JÁLFS VIRÐING
New York: Dómari í borginni
Dallas, sem varð það á að tala
of hátt, sektaði sjálfan sig fyr-
ir virðingarleysi fyrir rjettin-
um.
Nýtísku gistihús reist
í Reykjavík
ÁKVEÐIÐ hefir verið að reist verði hjer nýtísku gisti-
hús. Hefir ríkisstjórnin forgöngu í því máli, en Reykjavík-
urbær og Eimskipafjelag íslands munu verða meðeigend-
ur. Gert er ráð fyrir að bygging þessi kosti 15 milljónir
kr. Leggur hver aðili sínar 5 milljónir í hana.
Mikil þörf er orðin fyrir
slíkt hótel sem þetta, þar sem
fyrirsjáanle^t er að ferða-
mannastraumur muni verða
mikill hingað á komandi ár-
um, en gistihúsaekla er hjer
mikil. Sennilegt er, að fengn
ir verði verkfræðingar frá
Bandaríkjunum til þess að
gera teikningu að hinu nýja
húsi.
VILDU IIALDA REGLURNAR
New York: í Tokio hleypur
fólk nú sem fætur toga, til þess
að halda reglur þær, sem Banda
ríkjamenn hafa sett um há-
markshraða ökutækja í borg-
inni. Það athugar ekki að það
er ekki ökutæki og hraðinn
er hámarks, en ekki lágmarks-
hraði.