Morgunblaðið - 26.02.1946, Side 1
á3. árg'angur.
46. tbl. — Þriðjudagur 26. febrúar 1946
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Christmas Möller
kemur hingað í apríl
CHRISTMAS MÖLLER, formaður danska íhaldsflokks-
ins kemur hingað í stutta heimsókn í aprílmánuði n. k. —
Hann kemur í boði Norrænafjelagsins. —
Guðlaugur Rosinkrans, rit-
ari Norrænafjelagsins skýrði
Morgunblaðinu frá þessu í
gær.
Þetta hefir staðið til all-
lengi, sagði Guðlaugtir, en s.
1. föstudag barst stjórn Nor-
rænafjelagsins svar hans, þar
sem hann segist geta tekið
boði fjelagsins.
Hingað er hann væntanleg
ur dagana 18. til 28. apríl n.
k. — Hann mun koma hingað
loftleiðis frá Stokkhólmi. —
Hefir þegar verið spurst fýr-
ir um flugferðir á þessu
tímabili og virðast allar lík-
ur benda til þess að- hag-
kværa ferð muni falla ein-
hvern þessa daga.
Hjer mun Christmas Möll-
er dvelja um viku tíma. —•
Hann mun flytja hjer fyrir-
lestra. — Sennilega verða,
þeir m. a. um sambandsmál-
ið. — En svo sem kunnugt er
hefir hann haldið mjög á
lofti málstað íslendinga í
skilnaðarmálinu.
Auchinleck hótui uppivöðslu
seggjum lörðu
Asbjörn Ruud
rm
sameinasl
stjómarhsr
Christmas Möller
FIMIR AÐ KLIFRA.
LONDON: — Tveir kanad-
iskir hermenn, sem brotlegir
höfðu gerst við heraga, sluppu
nýlega úr fangabúðum í Bret-
landi með þeim hætti, að þeir
klifruðu yfir 12 feta háa gadda
vírsgirðingu. Hvorugur hefir
náðst aftur.
Bretar og Frakkar semja ú
nýju um brottflutning
NEFND breskra hernaðarsjerfræðinga mun koma til
Paris í kvöld, eða á morgun, til þess að ræða við frönsku
stjórnina um brottflutning breskra og franskra hersveita,
sem nú eru í Sýrlandi og Libanon. Eru ráðstafanir þessar
í samræmi við úrskurð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um þessi mál.
Nýr samningur.
Um brottflutning um-
ræddra hersveita var gerður
samningur milli Breta og
Frakka á síðastliðnu sumri.
Það var m. a. út af þessum
samningi, sem Sýslendingar
og Libanonsmenn báru fram
kærur sínar'í öryggisráðinu.
Munu Bretar og Frakkar nú
semja um breytingar á samn
ingi þessum eða jafnvel af-
nema hann að fullu.
Fulltrúar Sýrlendinga
og Libanonsmanna eru vænt
anlegír til Paris innan skams
til viðræðna um þessi mál
samkvæmt ósk frönsku stjórn
arinnar. — Ekki hefir enn
verið ákveðið í hvaða formi
samningarnir verða gerðir
um brottflutninginn, hvort
t. d. Sýrlendingar og Liban-
onsmenn semja við Frakka
og Breta í sameiningu, eða
hvort hver aðili geri samn-
ing sín á milli.
Azad ræðir við
New Dehli í gærkövldi.
AZAD, forseti Þjóðþings-
flokksins indverska, átti í dag
viðræður við 'Wavell, vara-
konung Indlands, og stóðu
þær um hálfa aðra klukku-
!stund. — Azad sagði blaðaí
mönnum að viðræðunum
Toknum, að þeir hefðu rætt
úim matvælaástandið á Ind-
landi og stjórnmálahorfur í
jlandinu. — Sagði Azad, að
'þeir hefðu ekki útrætt þessi
mál og myndu hittast aftur
innan skams. — Reuter.
Chungking í eærkvöldi.
UNDIRRITAÐUR var í
dag í Chungking samningur.
þess efnis, að her kommún-
ista í Kína skyldi sameinast
stjórnarhernum, en kommún
istar hafa nú um 19 ára bil
haft sjerstakan her í land-
inu. Marshall, sendiherrr
Bandaríkjanna í Kína, vai
viðstaddur, er samningarni’
voru undirritaðir. •— Stúden
ar í Chungking hjeldu áfrarr
í dag kröfugöngum til þes:
| að heimta brottför Rússa úi
iMansjúríu. •— Útvarpið
Moskva segir, að kínverskr
stjórnin muni róa undir '
þessum óeirðum. Hafi öflug
lögreglulið verið látið vernd?
stúdentana á ræðuoöllum of
ýmsum tilfæringum komif
fyrir handa þeim. •— Reuter
Enn skærur í
Azerbaijan
Theran í gærkvöldi.
PERSNESKA blaðið „Ette-
lat“ birtir*þá fregn í kvöld, að
600 „lýðræðissinnaðir skæru-
liðar“ sæki fram frá Astara,
hafnarborg við Kaspiahaf á
mörkum hjeraðsins Azerbaijan
og samnefnds rússnesks ráð-
stjórnarríkis, áleiðis til Pahle-
vix (hafnarborgar við Kaspia-
haf, um 75 mílur frá Astara
og 150 mílur frá Teheran).
Hafa skæruliðarnir yfir fall-
byssum og stórum vjelbyssum
að ráða. — Fregn blaðsins, sem
enn hefir ekki verið staðfest,
hermir, að skæruliðarnir hafi
tekið borgina Karganrud, sem
liggur við Kaspiahaf milli Ast-
ara og Pahlevi, og rofið sím-
kerfi. Síðustu freghir herma, að
skæruliðarnir sjeu aðeins nokkr
ar mílur frá Pahlevi.
■—-Reuter.
Kyrt í Bombay,
en óeirðir í
Madras
OSLO í gær: — Meistrakepni
I í skíðastökki fór fram við
: Dammen í dag og fóru leikar
j þannig að Asbjörn Ruud, yngsti
jbróðir hinna frægu Ruud-
I bræðra varð skíðastökksmeist-
ari. — Næstur honum varð
Kongsgaard og þriðji varð
Reidar Andersen.
Skíðastökkmót þetta átti að
fara fram á sunnudag, en var
frestað sökum storms.
Franskur
sendikennari
kominn .
MEÐ Dr. Alexandrine í
gær kom hingað franskur
sendikennari, að nafni Alber
Ducrocq. — Hann kom hing'-
að á vegum fjelags frönsku-
mælandi manna Alliance
Francaise.
Flogið yfir
Valnajökul
Á sunnudaginn flugu þeir
jarðfræðingarnir dr. Sigurður
Þórarinsson og Jóhánnes Áskels
son ásamt Brynjólfi Bjarnasyni
menntamálaráðherra, Steinþóri
Sigurðssyni, mag. scient. og
Guðmundi Hlíðdal, póst- og
símamálastjóra, austur yfir
Vatnajökul, til þess að athuga,
hvort vart yrði við nokkrar
nýjar eldstöðvar í jöklinum,
eða umbrot væru þar nokkur
sjáanleg.
Ekki sáu þeir fjelagar nein
ummerki um eldsumbrot og
höfðu engar verulegar breyt-
ingar orðið á jöklinum. Flug-
ferðin tók alls 3 klukkutíma.
Skyggni var hið besta.
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ENGIN UPPÞOT hafa
orðið í Bombay í dag, og
hefir þar allt verið með
kyrrum kjörum að kalla.
Breskir hermenn vinna að
því að hreinsa til í bruna-
rústum í borginni og koma
umferðinni í borginni í samt
lag. — Hinsvegar hefir fjöldi
manna í Madras stofnað til
óeirða í samúðarskyni við
sjóliðana, sem að vísu eru
nú hættir öllum uppivöðsl-
um, og í mótmælaskyni
gegn því, að herlið og lög-
regla í Bombay skyldi nota
skotvopn í viðureigninni við
á. M. a. tóku 2000 stúdent-
r þátt í óeirðum þessum.
Kveikt var í húsum víðsveg-
r í borginni og brunaliðið
rýtt, er það kom á vettvang
il þess að slökkva.
i Auchinleck hótar hörðu.
Auchinleck, yfirmaður hers
og flota Indverja, flutti ávarp
í útvarp til undirmanna sinna
í New Dehli í dag. Sagði hann,
að agabrot þau, sem framin
hefðu verið innan hersins,
hefðu almennt verið kölluð
verkföll, en rjett heiti þeirra
væri uppreisn. Auchinleck kvað
uppþotsmönnum almennt
mundi ekki verða refsað, að
þessu sinni, en hinsvegar yrðu
forsprakkarnir látnir sæta
fullrl ábyrgð. — Sagði hann, að
nefndir hefðu verið skipaðar til
þess að athuga hvað hæft væri
í umkvörtunum sjóliðanna og
myndu rjettmætar aðfinnslur
teknar strax til athugunar.
Pólitík að baki.
Auehinleck sagði, að. til ó-
eirðanna hefði verið stofnað m.
a. af pólitískum ástæðum. Sjálf
ur kvaðst hann ekki skipta sjer
af stjórnmálum, en ekki kvaðst
hann mundi þola það, að ind-
verski herinn sundraðist- af
pólitískum sökum.
Útifundur í Bombay.
Þjóðþingsflokkurinn ind-
verski hefir boðað til útifundar
í Bombay á morgun (þriðju-
dag) í þeim tilgangi að sefa
borgarbúa og sansa. Pandith
Nehru mun tala þar, og kom
hann til borgarinnar í kvöld.