Morgunblaðið - 26.02.1946, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. febr. 1946
ií. R. fær sænskan íþróttakennara
í GÆRMORGUN kom hingað
með „Drottningunni" sænski í-
þ róttakennarinn George Berg-
fors. Er hann á vegum íþrótta-
fjelags Reykjavíkur og hefir
verið ráðinn kennari hjá fje-
laginu til septemberloka. Hann
er bæði skíðakennari og frjáls,-
íþróttakennari. —• Bergfors tek
ur þegar til starfa við skíða-
kennslu að Kolviðarholi. Hann
mun þessa fyrstu viku, sem
hann verður hjer eingöngu
þjárifa ÍR-fjelaga, en strax í
næstu viku hefjast skíðanám-
skeið á vegum IR, þar sem hann
kennir.
Stjórn IR og ýmsir fleiri ÍR-
ingar tóku á móti Bergfors í
gærmorgun, er hann kom. —
Laust fyrir hádegi fór hann
svo upp að Kolviðarhóli, þar
sem hann mun dvelja. I tilefni
af komu hans var nokkrum
íþróttaleiðtogum og blaðamönn
um boðið þangað til hádegis-
verðar en á Hólnum dvelja nú
þeir skiðamer).n ÍR, sem taka
þátt í fyrsta námskeiði sænska
kennarans.
IK tekur við rekstri
Koiviðarhóls.
Sigurpáll Jónsson, formaður
IR, bauð Bergfors velkominn til
starfa með íslenskum íþrótta-
mönnum. Hann gat þess, að fje
lagið hefði fengið hann hingað
með hjálp Norrænafjelagsins,
I. S. I. og sænska sendiráðsins,
og ýmsir fleiri hefðu sýnt fje-
laginu velvild í því. Sigurpáll
gat þess um leið, að nú hefði
IR tekið rekstur Kolviðarhóls
í eigin hendur, en ,.Hóllinn“
hefði áður værið leigður út. —
Hjer eftir verður Kolviðarhóll
fyrst og fremst fjelagsheimili,
sagði hann, þó við reynum að
sjálfsögðu að gera allt, sem við
getum eins og að undanförnu
•hefir verið gert fyrir þann
mikla fjölda Reykvíkinga, sem
sækir á skíði um helgar.
Námskeið fyrir almenning.
I skíðanámskeiðunum, sem
haldin verða fyrir almenning, er
gert ráð fyrir að 20—30 manns
taki þátt í hverju námskeiði. —
Þá er ákveðið, að annar skíða-
kennari, Nordenskjöld, komi
hingað í byrjun mars. Hann
verður á vegum ÍR og Fjalla-
manna. Ef ekki verður nægur
snjór hjer og starfskilyrði fyrir
báða þessa menn, verða þeir ,
sendir út á land, annað eða báð
ir, þar sem þeir geta komið að
meira gagni. Hvað Sigurpáll
það ekki hafa vakað fyrir ÍR,
að þessir erlendu kennarar
kæmu því fjelagi eingöngu að
gagni, heldur og að þeir mættu
verða íþróttahreyfingunni hjer
á landi í heild til sem mestra
nota.
Þá bauð Ben. G. Waage, for-
• seti I. S. í., Bergfors velkominn,
en þeir urðu samskipa hingað
til lands. Var Waage að koma
frá íþróttaráðstefnu í Kaup-
mannahöfn. — Einnig talaði A.
J. Bertelsen, sem'er, eins og
íkunnugt er, aðalstofnandi ÍR.
Bergfors þakkar móttökurnar.
Bergfors þakkaði þær ágætu
móttökur, sem hann hefði feng
Skiðanámskeið fyrir almenn-
ing haldin ú Kolviðarhóli
George Bergfors
ið hjer. Kvað hann þessi fyrstu
kynni sín af landinu hafa orðið
sjer til óblandinnar ánæg'ju. —
Vonaðist hann til þess að starf
hans hjer mætti verða til sem
mests gagns fyrir íslenska
íþróttamenn.
Éergfors hefir stundað í-
þróttakennslu í þrjú ár. — Sem
skíðakennari hefir hahn aðal-
lega lagt rækt við gönguþjálf-
un og svo er hann einnig kenn-
ari í frjálsum íþróttum og mun
þjálfa íþróttamenn í þeirri
grein í sumar. Af ummæluni
sænskra blaða um hann er
hægt að sjá. að hann er enginn
liðljettingur í faginu, enda
hafði sænska iþróitasambandið
lofað að sjá um, að hingað yrði
ekki sendur nema fyrsta flokks
kennari. Áður en hann gerðist
kennari, var hann í hópi bestu
skíðagöngumanna Svia.
Sænskir íþróttamenn hingað.
Bergfors skýrði frá því, er
blaðamenn áttu tal við hann í
gær, að mikill áhugi væri ríkj-
andi á því meðal sænskra í-
þróttamanna, að auka samband
og samvinnu milli sænskra og
íslenskra íþróttamanna. Sænsk
íþróttafjelög og íþróttasamband
ið sænska mæltust til þess við
hann, að hann reyndi að komast
að samkomulagi hjer um, að
sænskir íþróttamenn kæmu
hingað í heimsókn og kepptu
við íslenska íþróttamenn, helst
á komandi sumri. Gæti þá
verið, að hingað kæmu ýmsir
af bestu hlaupurum Svía, eins
og t. d. Lennart Strand. Vilja
Svíar svo fá íslenska íþrótta-
menn til Sviþjóðar i staðinn.
Hágg og Andcrson keppi ekki.
Þegar Bergfors var spurður
að því ,hvort Hágg og Anders-
son myndu keppa í sumar, svar
aði hann því neitandi. En Sví-
ar eiga nú ýmsa hlaupara, scm
gefa þeim ekkert eftir.
Skrifar greinar fyrir sænsk
blöð.
Á meðan Bergfors dvelur
hjer mun hann skrifa greinar
um íslenskt íþróttalíf fyrir
sænska íþróttablaðið „Idrotts-
bladet“ og „Svensk idrotí“, sem
er blað sænska íþróttasambands
ins.
Vilja aðeins til íslands og
Sviss.
Það voru 8 Evrópulönd, sem
hafa sótt um að ófriðnum lokn-
um, að fá sænska íþróttakenn-
ara, en kennarar fengust aðeins
til þess að fara til tveggja
þeirra. Það voru Island og
Sviss.
Sölufjelag bátaút-
gerðarmanna
stofnað
HINN 4. þ. m. stofnuðu
nokkrir bátaútgerðarmenn í
Reykjavík og Hafnarfirði fje-
lag, sem hlaut nafnið „Fisk-
umboð Reykjavíkur og ná-
grennis".
í 2. gr. fjelagslaganna segir
svo:
„Tilgangur fjelagsins er að
selja fisk og hrogn fjelags-
manna, til útflutnings og á
innlendum markaði. Jafnframt
að vinna að vöruvöndun og
gæta hagsmuna fjelagsmanna.
Heimili fjelagsins skal vera í
Reykjavík".
Fjelagssvæðið er gert ráð
fyrir að verði Reykjavík og
suður fyrir Hafnarfjörð. Fje-
lagssvæðið getur þó vel orðið
stærra og takmarkast fyrst og
fremst við það, að ekki sje
gripið inn á svæði samskonar
fjelags.
I stjórn fjelagsins voru kosn-
ir:
Sveinbjörn Einarsson útg.m,
Reykjavík, formaður, Kristinn
Friðriksson, útgm., Rv., ritari,
Jón Halldórsson, útg.m., Hafn-
arfirði, gjaldkeri, Hallgrímur
Oddsson, útg.m., Rv. og Krist-
ján Karlsson, útg.m., Rv„ með-
stjórnendur. Varaformaður er
Hallgrímur Oddsson, og vara-
menn í stjórn: Jón Sigurðsson,
útg.m., Rv. og Ingvar Sigurðs-
son, útg.m., s. st„ en endurskoð
endur: Árni Böðvarsson, útg.m.,
Rv. og Baldur Guðmundsson,
útg.m., s. st.
Sölufjelag þetta er stofnað
til þess að auðvelda sölu á af-
urðum útgerðarmanna í Reykja
vík og nágrenni og skapa mögu
leika til sjálfstæðs útflutnings,
ef heppilegt þykir eða þörf ger
ist.
Flestir bátaútgerðarmenn í
Reykjavík eru nú orðnir fje-
lagar og nokkrir í Hafnarfirði.
l’er fjelagsmönnum nú fjölg-
andi, enda flestir, sem skilja
nauðsyn þess að standa saman
um sölu fiskafurða sinna, ef vel
á að fara.
Gert er ráð fyrir, að aðkomu-
bátar, sem ekki eru þegar
samningsbundnir, sjái sjer hag
í að gerast þátWakendur í fje-
lagsskapnum meðan þeir
dvelja hjer við veiðar. Full
rjettindi til sölu í gegnum fje-
Lagið njóta aðeins þeir, sem
standa heilir og óskiftir að því.
Framkvæmdastjóri hefir ver
ið ráðinn Kristján Karlsson. '
Valur fær skoska þjálfarann
sinn aftur til Islands
Murdo Mac Dougall segir fjörlítið í skoskri
knattspymu stríðsárin
MURDO Mac DOUGALL er kominn aftur til íslands og verð-
ur þjálfari hjá Val á ný. Allrir knattspyrnumenn kannast við
Murdo. Hann var þjálfari hjá Val í 18 mánuði 1937 og 1938.
Hann kom með Brúarfossi fyrir helgina og verður hjer senni-
lega í eitt ár.
Dauft yfir knattspyrnunni
stríðsárin.
Mudro segir að það hafi ver-
ið dauft yfir knattspyrnunni í
Skotlandi styrjaldarárin. Flest-
ir ungir menn fóru í herinn,
en hinir unnu að framleiðslu
vegna styrjaldarinnar og var
unnið alla daga vikunnar, jafnt
sunnudaga sem aðra daga. Var
aðeins frí síðari hluta laugar-
daga. En nú er að lifna aftur
yfir knattspyrnunni í Bretlandi
,og áhuginn ekki minni en áður.
Kemur Tommy Lawton
til íslands?
Mac Dougall hafði meðferðis
úrklippu úr skosku blaði, sem
hann sýndi mjer. Þar er sagt
frá því að hinn kunni enski
knattspyrnumaður, Tommy
Lawton frá Chelsea, hafi verið
boðinn til íslands. Mun það
vera K. R„ sem hefir boðið hon
um. Ekki vissi Murdo hvort
Lawton gæti þegið boðið, en ef
hann myndi koma yrði það
sennilega í maí eða júní og
myndi hann þá dvelja hjer í'
4-—6 vikur.
Alfreð Guðmundsson vinsæll
hjá Rangers.
Murdo hafði þær fregnir að
færa af Albert Guðmundssyni
úr Val, sem nú leikur með
Glasgow Rangers, að hann sje
mjög vinsæll meðal fjelaga
sinna og eigi mikla framtið
fyrir sjer sem knattspyrnu-
maður. Þið þurfið að nota ykk-
Murdo Mac Dougall
ur af hæfileikum hans, sem
knattspyrnumanns, segir
Murdo.
Búist er við að Albert komi
til Islands í sumar, en fari síð-
an aftur til Skotlands.
Vann í skipasmíðastöð.
• Murdo Mac Dougall bauð sig
fram í flugliðið þegar styrj-
öldin braust út, en þar sem
hann vann í skipasmiðastöð,
sem var álitið jafn mikilvægt
styrjaldarverk og að vera í hern
um fjekk hann sig ekki laus-
ann úr þeirri vinnu og vann
hann í skipasmíðastöðinni öll
styrjaldarárin.
Murdo er giftur og á 5 ára
gamlan son, Murdo Mac Dou-
gall, yngri. Hann hefir von um
að kona hans og sonur komi
til íslands í vor.
Þjóðverjar kvaddir
með víni og söng
ÞÝSKA beitiskipið „Prinz
Eugen“, sem hjálpaði til við
að sökkva breska orustuskip-
inu „Hood“, árið 1941, fór í
fyrradag frá Bandaríkjunum
með um 70 þýska stríðsfanga.
Mikið var um dýrðir, er skip
ið fór. Amerískir hermenn
hjeldu Þjóðverjunum veislu,
gáfu þeim firnin öll af mat
og víni og sungu með fullum
hálsi með Þjóðverjunum
þýskar bjórkjallaravísur.
Margmenni dreif þar að, sem
hófið fór fram, og færðu flest
ir Þjóðverjunum eitthvað að
gjöf, föt, ávexti, sælgæti og
fleira. Þjóðverjarnir voru
hinir sperrtustu, og ekki var
á þeim að sjá, að þeir væru
minnugir hrakfara þjóðar
sinnar. — Flotastjórn Bandaí
ríkjanna er byrjuð að rann-
saka þessi veisluhöld, því að
henni finnst Þjóðverjarnir
hafa verið í fullmiklum há-
vegum hafðir. — Reuter.
Veglegt samsæii
í Veslmannaeyjum
Vestmannaeyjum, mánud.
Frá frjettaritara vorum.
SÍÐASTLIÐINN laugardag
gekkst Útvegsbændafjelag og
skipstjórafjelagið Verðandi hjer
fyrir samsæti til heiðurs Guð-
jóni Jónssyni vjelsmið í til-
efni af 55 ára afmæli hans.
Guðjón hefir unnið við vjel-
smíði hjer undanfarin 30 ár og
aflað sjer í því starfi alveg
frábærra vinsælda.
Guðjóni var tilkynnt í sam-
sætinu, að ofangreind fjelög
myndu færa honum að gjöf
nýtísku bifreið, strax og hún
fengist frá Ameríku, sem vænt-
anlega yrði í vor. I hófinu, sem
Gísli Magnússon útgerðarmað-
ur stjórnaði, voru mjög margar
ræður fluttar og afmælisbarn-
inu bárust mikill fjöldi heilla-
skeyta. Samsætið sátu um 200
manns.
BEST AÐ AUGLÝSA
í MORGUNBLAÐINU