Morgunblaðið - 26.02.1946, Síða 5
Þriðjudagur 26. febr. 1946
MORGUNBLABIÐ
6
Niðursuðuverksmiðjur
HÁVÆRAR raddir hafa talið
mikla nauðsyn bera til að
byggja þurfi fullkomnar og af-
kastamiklar verksmiðjur um
land allt til þess að sjóða niður,
í allskonar fiskmeti m. m. í
stórum stíl til sölu á útlendum j
mörkuðum. Þetta lítur glæsi- j
lega út í þeirra augum, sem |
ekkert þekkja til þessa iðnað- |
ar hjer á landi eða í öðrum,
löndum, en þeir sem hafa afl- j
að sjer margra ára reynslu hjer
heima og aflað sjer margvís-
legra upplýsinga um iðnað,
þennan utanlands, þeim finnst J
hjer vera á ferð ævintýralegur j
áhugi, sem virðist vera í lausu
lofti og hafa lítið við að styðj-
ast.
Niðursuðuverksmiðjan
á Akranesi.
Haraldur Böðvarsson & Co.,
á Akranesi hafa rekið niður-
suðuverksmiðju um nokkurra
ára skeið og framleitt hinar
landsþekktu Heklu-niðursuðu-
vörur. Þeir hafa smátt og
smátt aukið við tæki sín og
húsrúm, haft góðan verksmiðju
stjóra, hr. Pjetur Jóhannsson,
er lærði iðn sína hjá S.Í.F. í
Reykjavík, og síðan í haust hafa
H. B. & Co. haft hr. Ingimund
Steinsson, fiskiðnfræðing, er
lærði iðn sína í Þýzkalandi og
var þar verksmiðjustjóri um
margra ára skeið yið eina af
stóru verksmiðjunum þar í
landi. Síðan Ingimundur byrj-
aði hjá H. B. & Co., hefir verk-
smiðja þeirra framleitt ýmsar
nýjar tegundir t. d. roð- og
beinlaus þorskþunnildi í tómat
sósu, fiskur í hlaupi, reyktur
karfi i matarolíu, vitaminkæfa,
sem er búin til úr þorsklifur,
hrognum o. f 1., margskonar síld
arrjettir í olíu, tómat, ediki o.
s. frv. Kona Ingimundar, frú
Ruth, sem einnig er lærður
þýskur iðnfræðingur og stjórn-
uðu þau sinni verksmiðjunni
hvort fyrir sig í Þýskalandi áð-
ur en þau fluttu hingað á s. 1.
ári. Þau ráða yfir þekkingu í
þessari iðngrein, sem telja
mætti hverri niðursuðuverk-
smiðju, hvar sem væri til mik-
ils sóma að hafa.
Verksmiðja H. B. & Co. get-
ur framleitt 10—12 þúsund
punds og tveggja punda dósir
t. d. af Heklu-fiskbollum á 8
•—10 stunda vinnudegi og í
verksmiðjunni eru dósirnar líka
búnar til að nokkru leyti.
Hvernig fiskbollur
eru tilbúnar.
Þeir hafa aflað sjer umbúða
og undirbúið rekstur sinn
þannig, að auðvelt er að fram-
leiða eina milljón dósa af ýms-
um tegundum niðursuðuvara á
fyrra helmingi þessa árs og
aðra milljón mætti framleiða
á hinum helmingi ársins, ef sölu
möguleikar væru fyrir hendi.
Nýjar og fullkomnar vjelar eru
nú til alls, sem gerg þarf. Til
fróðleiks ætla jeg lauslega að_
lýsa fyrir lesendum, hvernig t.
d. fiskbollur eru búnar til:
Fiskurinn er flakaður og roð-
flettur (aðeins notaður bein-
laus og roðlaus fiskur, ekki
þunnildin, og alveg glænýr).
Fiskurinn er látinn í hakka-
vjel, þaðan í hrærivjel, en þar
er mjólk (aðeins nýmjólk) og
Eftir Harald Böðvarsson
dálitlu kartöflumjöli, salti og
kryddi blandað saman, þegar
deigið er fullhrært, fer það í
mótunarvjel, sem mótar boll-
urnar, þaðan í suðuvjel, sem
í er sjerstaklega tilbúið fisk-
soð. Þegar bollurnar eru hæfi-
lega soðnar, skilar suðuvjelin
þeim sjálfkrafa frá sjer. Þaðan
fara bollurnar á pökkunarborð-
in, en á þau koma samstundis
uppþvegnar dósir af efri hæð
gegnum rennu. Á pökkunar-
borðunum eru dósirnar fylltar
með bollum og tilheyrandi soði.
Þaðan fara dósirnar í lokunar-
vjelarnar, en hver lokunarvjel
getur lokað 30 dósum á mínútu.
Þegar dósunum hefir verið lok-
að, fara þær í stóra gufusuðu-
potta (autoklav) og þegar dós-
irnar eða innihald þeirra er full
soðið, þá eru þær kældar með
köldu rennandi vatni, síðan
fara þær í sjálfvirka^ þvotta-
vjel og þaðan í sjálfvirka þurrk
unarvjel, en úr henni í rennu
inn í geymsluplássið (lagerinn),
þar er þeim staflað á sjerstakan
hátt, geymdar við góðan hita í
30 daga (til tryggingar því að
skemmdir verði fram komnar,
ef nokkrar reynast), svo fer
pökkun fram. Fyrst fara dós-
irnar í vjel, sem sjálfkrafa
límir á miðana, 6000 dósir á
klukkutíma, síðan í pappa-
kassa og eru þeir limdir með
límböndum á öllum samskeyt-
um til að fyrirbyggja að ryk
eða önnur óhceinindi komist í
þá, síðan vírbundnir í bindi-
vjelum og er þá fyrst Varan til-
búin til afhendingar og sölu.
í verksmiðju H. B. & Co. vinna
40 manns. •
Sölumöguleikar.
En nú kemur að merg máls-
ins og það eru sölumöguleik-
ar afurðanna. Hvar er hægt að
selja íslenskar niður'suðuvörur
í stórum stíl? Sumir telja að
Mið- og Austur-Evrópa, já, og
öll álfan bíði bara eftir því að
við getum búið eitthvað til
handa þeim af niðursoðnum
fiskafurðum. Pjetur Benedikts-
son og Ólafur Jónsson eru ný-
búnir að vera þar austurfrá og
Ólafur sendi okkur skeyti frá
Prag og sagði að engir mögu-
leikar væru til að selja neitt
af þessu tagi þangað. Við send-
um í vetur kunnugan, dugleg-
an mann til Hollands og Belgíu,
sama sagan þar. Englendingar
kaupa ekki niðursoðnar vörur.
Það þykir luxus þar í landi og
skömmtunarseðlar fást ekki
fyrir slíku. Það eru veikir
möguleikar í Ítalíu, Sviss og
Frakklandi með smávegis send
ingar, ef úr rætist með greiðslu
möguleika. Þá er eftir hin stóra
Ameríka, en þar er verðið svo
lágt og magn mjög takmarkað,
sem hægt er að selja, og Norð-
menn og Svíar skæðir keppi-
nautar, sem geta framleitt nið-
ursuðuvörur með hagnaði, þeg-
ar okkar framleiðsla sýnir tap
með sambærilegu verði, og
eiga vinnulaunin hjer sinn þátt
í því, sem eru svo langt um
hærri en þeirra.
Niðursuðuverksmiðjur í
Bandaríkjunum eða eigendur
þeirra vilja sporna á móti því
að flutt verði inn samkepnis-
vörur við þá og hafa komið
því til leiðar að dósir, sem flutt-
ar eru út þaðan mega ekki
flytjast inn aftur með niður-
soðnum matvælum, en það er
leyft að flytja inn þangað í
enskum dósum — en svo hafa
verið feikna miklir örðugleik-
á að fá enskar dósir, en það
kann að lagast, þegar tímar
líða.
Faxasíldin.
Þá get jeg ekki stillt mig um
að minnast á Faxasíld í þessu
sambandi, því hún tekur norð-
ansíldinni svo langt fram að
gæðum til niðursuðu. Fitan í
norðansíldinni er svo laus að
hún sýðst út úr síldinni við
mikinn hita og verður að lýsi,
en Faxasíldin heldur sinni fitu
og þetta er mikill kosfur fram
yfir hina. Mjer finnst að þeir
menn, sem þessi mál hafa með
höndum, þurfi fyrst og fremst
að láta rækilega athuga mögu-
leika á þessum afurðum áður
en stórar framkvæmdir eru
hafnar á byggingu stórra verk-
smiðja, enda eru hjer á landi
til verksmiðjur, sem geta búið
Framh. á bls. 8.
Egyptar svara
fullura hálsi
Cairo í gærkvöldi.
SIDHI PASHA, forsætisráð-
herra Egyptalands, flutti út-
varpsræðu í gærkvöldi, þar sem
hann gerði grein fyrir skaða-
bótakröfum Breta á hendur
egyptsku stjórninni fyrir tjón
það, sem or'ðið hefði á eign-
um Breta í óeirðunum s. 1.
fimmtudag. Sagði forsætisráð-
herrann, að Bretar hefðu átt
upptökin að óeirðunum. Bresk-
ir hermenn hefðu í ofsaakstri
limstrað 8 Egypta og auk þess
hefðu hermenn sært allmarga
með byssuskotum. Þetta athæfi
hefði hleypt af stað mögnuðum
^ óeirðum.
Verkföllum aflýst.
| Það var opinberlega tilkynnt
í Cairo í dag, að fulltrúar
egyptska verklýðssambandsins
og fulltrúar stúdenta hefðu
fallist á það, að loknum við
ræðum við forsætisráðherra
Egyptalands, að hætta við fyr-
irhugað allsherjarverkfall, en
það átti að hefjast i dag. Verk-
fallið var ákveðið í því skyni
að flýta brottflutningi herliðs
Breta og minnast þeirra, sem
lífið hafa látið í óeirðum und-
anfarna daga. Stúdentar hafa
einnig ákveðið að fresta fyrir-
huguðu þriggja daga verkfalli
til næsta mánudags.
FLUTTIR TIL BKETLANDS.
LONDON: — Verið er nú
stöðugt að flytja þýska her-
fanga frá Ameríku til Bret-
lands. Verða þeir látnir vinna
fyrir Breta. Nýlega lögðu'*3000
þýskir fangar af stað til Bret-
lands frá Kanada í hafskipinu
Mauretannia.
Sjötugur:
Jón Sigurðsson í ASiiance
EINN hinna gömlu og merku
borgara Reykjavíkur, Jón Sig-
urðsson, skipstjóri, Hverfisgötu
75, er sjötugur í dag.
Hann hefir frá barnsaldri
starfað, heill og óskiftur, að sjó-
sókn og útgerð og verið þar liðs
maður í besta lagi.
Jón er fæddur að ívarshúsum
í Garði suður, 26. febrúar 1876.
Foreldrar hans voru Sigurður
Sigurðsson, formaður þar og
kona hans Guðríður Jónsdóttir.
Jón var 10 ára, er hann fór að
stunda sjóróðra á opnum bátum
og var í því starfi fram um
fermingaraldur. Árið 1890 flutt
ist Jón til Reykjavíkur, fjekk
hann þá far á þilskipum þeirra
manna, er fremstir voru útvegs
menn um þær mundir hjer í
bæ, þeir Geir kaupmaður Zoéga
og Th. Thorsteinsson. Rjeðst
Jón þá fyrst sem matsveinn, en
við það starf undi Jón ekki lang
dvölum og varð síðar háseti og
þá lengst af á útvegi Geirs kaup
manns, en þó um stund hjá
Helga kaupmanni Helgasyni,
sem og var þjóðkunnur maður
um þær mundir. En hugur Jóns
stefndi hærra en þetta. að verða
kokkur eða háseti og því varð
það, að haustið 1899 rjeðst hann
til náms í sjómannaskólanum,
frekar fjelítill, en þó með nægj-
anlega aura handa á milli „til
hnífs og skeiðar“, énda litlar
kröfur gerðar frá hans hendi
um það, sem nú er nefnt „lífs-
þægindi“.
Árið 1900 lauk Jón prófi frá
sjómannaskólanum, og varð þá
stýrimaður á kútteranum „Sig-
ríði“ um eins árs skeið, en árið
1901 tók hann við skipsstjórn
4 „forenaktinni Gylfa“, þá 25
ára gamall. Því næst varð hann
skipstjóri á kúteranum „ísa-
bellu“, en ljet af skipstjórn þá
um haustið 1904. Það vor keypti
hann þriðja hluta í kútteranum
„Ragnheiði“, en hina hlutina
keyptu þeir Thor Jensen og
Magnús M-’gnússon, þá stýri-
mannaskólakennari. Þessu skipi
stýrði Jón til ársloka 1906, en á
því árí var fiskiveiðahlutaíje-
lagið „Alliance“ stofnað og var
Jón einn af stofnendum þess.
Fjelagið Ijek þegar hefja bygg-
ingu botnvörpuskipsins „Jón
forseti" og var það fyrsta botn-
vörpuskipið, sem smíðað var fyr
ir íslendinga.
Botnvörpungurinn „Jón for-
seti“ tók höfn í ársbyrjun 1907,
skipstjóri var Halldór Kr. Þor-
steinsson. Jón Sigurðsson rjeðst
á skipið sem háseti og árið 1910
varð hann stýrimaður þar, en
við skipstjórn á því skipi tók
hann 17. júní 1912 til septem-
berloka 1917.
í stjórn Alliancefjelagsins
hefir Jón verið síðan árið 1921
og á þar sæti enn, þykir hann
þar sðm annarsstaðar góð-
ur liðsmaður.
Jón kvæntist árið 1908 Elínu
Olafsdóttur, hinni mestu ágætis
konu. — Svo hefir Jón sagt
mjer, að hann telji sig mikinn
gæfumann og aðallega vegna
þess að hann hafi eignast góða
konu, er var honum tryggur og
góður fjelagi meðan hennar
naut við, en hún andaðist 194l.
Það og, að hann hefði kynst svo
ágætum samferðamönnum á
sinni löngu leið að ekki væri á
betra kosið og hið þriðja, að
hann hefði hestaheilsu og að
sjer findist sínir sálarkraftar
í góðu lagi.
Jón Sigurðsson er mikill mað
ur á velli og ef hann heilsar
manni, þá er handtakið þjett
sjómannshandtak. Hann er allt
af kátur og hress í bragði, fest-
ir ekki hug sinn við skuggahlið-
ar þessa lífs og er fyrstur
manna til að taka þátt í græsku
lausu gamni, kann vel að meta
íslenska fyndni, sje hún ekki
meinfyndin eða um sköi^ fram.
Hann er karlmenni í sjón og
raun, og þó mest, ef á reynir.
Vill hvers manns vanda leysa,
ef þess er kostur, leggur gott til
allra mála — segir hug sinn við
hvern sem er undirhyggjulaust.
Það hygg jeg, að Jón eigi marga
vini og kunningja, en enga óvild
armenn, enda er hann manna
sáttfúsastur ef á rjettum grund
veli er bygt um deilumál, því
Jón er gjörhugull um alt er til
góðs samkomulags má verða,
s«mvinuþýður og hvers manns
hugljúíi.
T. Kr. Þ.
MATUR í FALLHLÍFUM.
LONDON: — Matvæli hafa
verið látin svífa í fallhlífum
niður til 500 matarlausra
manna, sem staddir eru á ey
einni í Austur-Afríku, en ófært
er til þeirra á annan hátt vegna
stórflóða í fljótinu, sem eyjan
er í.