Morgunblaðið - 13.06.1946, Blaðsíða 1
16 síður
BEVIIM FIIMIMST RÚSSAR ÓSAMVIIMNUÞVÐIR
Árekstrar lýðveldis-
sinna og konungs-
sinna í Rómaborg
London í gærkveldi. {
TIL talsverðrá óeirða kom |
í Rómáborg í kvöld, þegar á-
rekstrar urðu milli flokka lýð
veldissinna og konungssinna
í borginni. Var lögregla kvödd
á vettvang fjölmenn, en hepn,
aðist ekki að skilja hina and-
Stæðu flokka að. Var þá her-
lið kvatt til-og tókst lögregl-
unni með aðstoð þess að
dreifa flokkunum og koma á
ic í borginni að mestu.
í dag höfðu orðið miklar
róstur í Neapel og Torino af
af sömu ástæðum. í Neapel
kveiktu konungssinnar í húsi
og urðu heiftarlegir bardag-
ar milli þeirra og lýðveldis-
sinna. Herlið og lögreglu tókst
að koma á kyrð,
— Reuter.
Stokkhólmur—New York.
FASTAR flugferðir milli Stokkhólms og New York hefj-
ast bráðlega og hafa þegar verið farnar reynsluferðir. A
myndinni sjest ein af hinum nýju Skymasterflugvjelum
Svía á sveimi yfir New York, koinin þangað úr reynsluför.
Sundkeppni Dana og hlendinga
Umsókn kommúnista
um upptöku í verka-
mannaflokkinn breska
kolfelld
London i gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Á ÞINGI breska verkamannaflokksins í dag var all-
verulega deilt á utanríkismálastefnu stjórnarinnar, sjer-
staklega vegna sambúðarinnar við Rússa og afstöðunnar
til Francostjórnarinnar. Bevin svaraði þessu í ítarlegxú
ræðu, þar sem hann skýrði frá aðstæðum. Sagði hann
Rússa hafa verið ákaflega óþýða í samvinnu og hefði raun
verulega verið ómögulegt að komast að neinu samkomu-
lagi við þá um fjölmörg þýðingarmikil atriði. Hann sagði,
að Stalin hefði ekki viljað framlengja vináttusamning
Breta og Rússa upp í 50 ár, ekki viljað koma á flugferð-
um milli Moskva og London o. fl.
Á þinginu var gengið til atkvæða um upptöku-
beiðni breska kommúnista í verkamannaflokkinn,
og var beiðninni hafnað með 2 og hálfri miljón at-
beiðni breskra kommúnista í verkamannaflokkiinn
kvæða gegn 486.000.
Islendingar unnu 2 sund Danir 1
íslandsmet sett í öllum
greinum, sem kept var í
Dönum fagnað ákaft.
HUNDRUÐ íslendinga fögnuðu dönsku sundmönnun-
um í Sundhöllinni í gær og glöddust yfir hinni glæsilegu
frammistöðu íslensku sundmannanna, sem unnu Danina
í tveim sundum af þremur, sem keppt var í. Fór sund-
mótið í alla staði mjög ánægjulega og virðulega fram.
Sjerstaklega var áberandi hve hlýhugurinn í garð dönsku
sundmannanna var mikill.
Ari Guðmundsson vann 100 m skriðsund á nýju
íslensku meti, 1:01,2 mín. — Sigurður Jónsson úr
Þingeyjarsýslu vann 100 m bringusund, einnig á |
nýju íslensku meti, 1,18,7. Sigurður Jónsson, KR
varð annar. Danirnir unnu 3x100 m boðsund, en
A-sveit íslendinga synti þar á nýju íslensku meti.
Loks setti Anna Ólafsdóttir nýtt íslenskt met í 200
m bringusundi kvenna.
Nýtt Evróomet í
100 metra sundi
Marseilles í gærkveldi.
ALEX JENU frá Toulouse
setti nýtt Evrópumet í 100
metra sundi, frjálsri aðferð
hjer í Marseilles í dag. Synti
hann vegalengdina á 56,7
sekúndum. Gamia metið átti
Þjóðverjinn Helmuth Fischer
og setti hann það í apríl 1936.
Var það 56,8 sek.
— Reuter.
Snarpir bardagar
byrjaSir á iava
London í gærkveldi.
EINHVERJIR hörðustu bar
clagar, sem lengi hafa verið
háðir á Java, hafa staðið í
dag við höfuðborgina, Bata-
via. Hafa Javabúar gert þar
endurteknar árásir á sveitir
Indverja og Hollendinga og
tekist að hrekja Indverja úr
stöðvum sínum á nokkru
svæði. Vegna hörkunnar í
hardögunum hefir mannfall
orðið töluvert, og hafa 5 menn
fallið í liöi Indverja og Hol-
lendinga, en yfir 20 særst. —
Ekki sjást þess merki að bar-i
ciögum þessum sje neitt að
linna.
•— Reuter.
Erlingur Pálsson, formaður
Sundráðs Reykjavíkur, setti
mótið og bauð sundmennina
velkomna. Er hann ljet þá ósk
í ljós, að þessi heimsókn mætti
verða einn liður í því að tengja
bræðraþjóðirnar sterkum vina-
böndum, — fögnuðu áhorf-
endur því ákaft. — Dönsku
sundmennirnir voru síðan hylt-
ir með húrrahrópi, en þjóð-
söngur Dana og íslendinga síð-
an leikinn. John Cristensen,
fararstjóri Dananna, þakkaði
fyrir þeirra hönd og viðstaddir
Danir hyltu íslensku sund-
mennina með húrrahrópi. Síð-
an hófst keppnin.
Var fyrst kept í 100 m. skrið-
sundi. Urslit urðu þessi:
1. Ari Guðmundsson, í, —
1:01,2 mín. (ísl. met).
2. John Cristensen, D, —
1:02,3 mín.
3. Rafn Sigurvinsson, í, —
1:06,6 mín.
Keppnin milli Ara og Chri-
Framhald á bls. 9.
Pálllsóihsonfærlof-
samlega dóma
íLondon
Einkaskevti til Mbl.
frá London.
DR. Páll ísólfsson hjelt hljóm
leika á þriðjudag í St. Bartol-
omew-kirkjunni í City í Lon-
don við ágætar undirtektir og
húsfylli. Á fimmtudag hjelt
hann síðan síðustu opinberu
hljómleika sína á vegum Organ-
tónlistafjelagsins, að viðstödd-
um mörgum helstu organleik-
urum Breta. Má geta þess að
fyrir nokkru ljek organleikari
Notre Dame kirkjunnar í París
á vegum sama fjelags í Markús-
arkirkjunni í North Audley St.
við Grosvenor Square. í þeirri
kirk'ju mun Páll einnig leika
fyrir breska útvarpið 21 þ. m.,
Tónlistaritstjóri „Times“ ver
talsverðu rúmi í umtal um
hljómleika Páls, og hafa lengri
greinar ekki birst í því blaði
um hljómlist, þótt heimsfræg-
ur snillingur hafi átt í hlut.
Lýkur hann lofsorði bæði á
orgelleik Páls og tónsmíðar
hans, einkum í ,,Chaconne“ í
dóriskri tóntegund en það verk
er samið um upphafið að Þor-
lákstíðum.
—Strand.
LONDON. Lögreglan í Ma-
drid hefir tekið höndum 18
stjórnleysingja, sem sannast
hafa á sprengingar og ýms
önnur spellvirki.
í upphafi ræðu sinnar mint-
ist Bevin á það, þegar hann
hefði boðið Stalin að framlengja
vináttusamning Breta og Rússa
upp í 50 ár, og kvað hann Stal-
in hafa látið sjer fátt um fnn-
ast, en sagt, að samningurinn
þyrfti þá breytinga við. Bevin
sagðist þá hafa sagt: „Hvað,
sem þjer óskið!“
Ekkert hafði síðan verið á
þetta minst af Rússa hálfu. Þá
sagði Bevin, að Bretar hefðu
viljað koma á föstum flugferð-
um milli London og Moskva,
en Rússar talið það algerlega
ómögulegt. Loks drap Bevin í
þessu sambandi á uppástungu
Bandaríkjastjórnar um 25 ára
afvopnun Þýskalands, sem
Rússar hefðu ekk viljað fall-
ast á og ennfremur á tregðu
Rússa í friðarsamningum.
. TTIlílrí til
eilífðar“.
„Það skal enginn fá mig til
að halda við styrjaldarástandi
hjer í Evrópu til eilífðar“, •—
sagði Bevin, og taldi algerlega
óviðunandi hversu seint gengi
með alla friðarsamninga. Hann
sagði að það væri ekki nokkur
maður í bresku stjórninni, sem
ljeti sjer detta í hug styrjöld
við Rússa, þótt ýmsir væru að
fimbulfamba um slíkt.
Um Palestínumálin sagði Be-
vin, að ástandið í því landi
væri mjög hryggilegt. Skoraði
hann á bæði Araba og Gyðinga
að hætta fjandskap sínum og
staffa saman.
Framh. á 2. síðu.