Morgunblaðið - 13.06.1946, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.06.1946, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLABIÐ Fimttidagur 13. júní 1946 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands, kr. 12.00 utanlands. f lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Eimskipafjelagið í NÝÚTKOMINNI skýrslu Eimskipafjelagsins fyrir árið 1945 gefur að líta hve stórkostlega þýðingu það getur haft fyrir land og lýð að stórfyrirtækjum, eins og þessu íjelagi, sje vel og viturlega stjórnað. Fjelagið hefir nú fyrir nokkru komist að samningum um byggingu fjögurra skipa af sex, sem stjórn þess afl- aði sjer heimildar til að láta smíða. Þessar skipasmíðar fjelagsins munu gerbreyta kaupsiglingum íslendinga og eru stórmyndarlegt spor inn á þá braut, að gera Islend- inga að mikilli siglingaþjóð. Þrjú hinna umsömdu skipa eru í öllum aðalatriðum eins (systurskip). Það eru flutningaskip 2600 smál. að burðarmagni hvert. Lestarrúm 150 þúsund teningsfet. Skipin hafa farþegarúm fyrir 12 farþega hvert. Öll hafa skipin dieselvjelar og ganghraði þeirra er 141/? sjómíla í venjulegri siglingu. Hvert skipanna kostar 6 milj. eða um 18 milj. kr. öll. Afhendingartími þeirra er nóv. 1946, febr. 1947 og nóvember 1947. Fjórða skipið, sem er mest, hefir 100 þúsund tenings- feta lestarrúm og farþegarúm fyrir 221 farþega. Það er dieselskip, og ganghraði þess 16(4 sjómíla í venjulegri siglingu. Verð þess er um 11 milj. ísl. króna og afhending- artími væntanlega á miðju sumri 1948. Öll hafa skip þessi lestarrúm útbúin til flutninga fyrstra vara. Borgunarskilmálar eru sjerstaklega hagkvæmir, því meginhluta kaupverðsins má greiða í sterling. Fjelagið á andvirði allra skipanna að mestu leyti fyrirliggjandi í endurnýjunarsjóði, eða rúmar 20 milj. króna í bygging- arsjóði skipa og auk þess vátryggingarupphæð E.s. Detti- foss um 5.9 milj. króna. Eimskipafjelagið hefir alla tíð notið framsýnna og dug- legra stjórnenda. Hefir þess og þurft með, því við mikla örðugleika hefir verið að etja frá upphafi. Er þar fyrst að telja fátækt fjelagsins, harða samkeppni og erfitt sigl- ingahlutverk. Með þeim stórkostlegu skipasmíðum, sem fjelagið nú hefir ákveðið og hafið, hefst nýtt tímabil hjá fjelaginu. Mun það ósk allra góðra íslendinga að það tímabil verði glæsilegt. — En á þessum tímamótum er rjett að minnast ekki aðeins vina fjelagsins, heldur einnig óvina þess. Höfuðóvinur fjelagsins hefir verið Framsóknarflokkur- inn. Hann hefir sýnt því óvild frá því er hann fyrst náði völdum hjer á landi. Rauðu hjálparkokkamir hafa og komið þar við sögu. Mest stund hefir verið á það lögð, að grafa undan fjárhag fjelagsins og koma því í þrot. Síðan átti ríkið að taka við. En Framsókn, sem hjelt sig mundu ráða stjórn landsins um alla framtíð, ætlaði þannig að ná siglingunum í sínar hendur og misnota þær til flokkshags- muna, eins og allar þær stofnanir, sem sá flokkur illu heilli hefir náð tangarhaldi á. Síðasta árásin á hendur fjelaginu var gerð, er það lagði áður umgetið fje til hliðar til endurnýjunar og aukningar skipaflota sínum. En sá gróði fjelagsins var þannig til kominn, að fjelagið leigði á stríðsárunum flutningaskip, sem voru tiltölulega ódýr í rekstri, og mikill gróði varð því á. En eigin skip fjelagsins voru öll stríðsárin rekin með halla. Það er ekki ofsagt, að fá íslensk fyrirtæki hafa varið gróða sínum forsjálegar eða til meiri þjóðnytja en Eim- skipafjelagið. Og verður það aldrei ofþakkað. En einmitt þær glæsilegu framtíðarhorfur fjelagsins, sem hin forsjá- lega fjárstjórn þess trygði, urðu orsök síðustu árása óvina þess. Þeir hjeldu því látlaust fram, að fjelagið hefði notað sjer siglinganeyð þjóðarinnar til þess að raka saman fje. Þessu hjeldu þeir fram þrátt fyrir það, að þeim var kunn- ugt, að stjórn fjelagsins Ijet ríkisstjórnina og síðan við- skiftaráð algerlega ráða siglingum skipanna og töxtum. Gremjan er vegna þess, að nú er öll von úti um það, að ná undir sig stjórn fjelagsins og að koma því fvrir kattar- nef. — Eimskipaf jelagið er orðið fjárhagslega öflugt f jelag og skilur hlutverk sitt og rís undir því. uerji ikrijar: DAGLEGA LÍFINU Hvað var í kassanum? EINKENNILEGT hve menn geta verið forvitnir. í fyrradag hitti jeg kunningja minn úr Vesturbænum. Sómamann, sem jeg hjelt að væri ekki með nef- ið ofan í hvers manns koppi. En hann var að springa af for- vitni. Ástæðan var þessi: Hann var á gangi upp Túngötu og er hann kom móts við hið nýja rúss- neska sendiráðshús, sá hann að Kristinn E. Andrjesson mag- ister, alþingismaður m. m. var að bisa við að koma kassa út úr húsinu ásamt öðrum manni. Nú er það ekkert sjaldgæft að sjá menn vera að rogast með kassa, eða eitthvað annað út úr húsum hjer í bænum. En forvitni Vesturbæingsins var vöknuð. „Hvað heldur þá að hafi ver- ið í kassanum?“ spurði hann mig. „Hefi ekki hugmynd um það og kemur það ekki við“, ansaði jeg- „Ætli það hafi verið leyni- skjöl?“ sagði Vesturbæingur- inn, íbygginn á svipinn. Aðvörunarorð. OG NÚ GAT jeg ekki staðist mátið lengur út af þessari bjeaðri forvitni Vesturbæings- ins. — Vertu ekki að hnýsast í það, sem þjer kemur ekki við, kunningi, sagði jeg. Það yrði þjer ekki nema til vandræða og leiðinda að fara að gera veður út af þessu. Ef þú færir að spyrja að því hvað ritstjóri Þjóðviljans væri að vilja með kassa frá rúss- neska sendiráðinu, þá yrðir þú stimplaður sem argasta fúl- menni, landráðamaður, þjóð- níðingur, glæpamaður, rógberi og stórlygari. „Mjer er alveg sama um það. Jeg vil fá að vita hvað var í kassanum, sem Kristinn var að bisa við. Hann var svo kindar- legur á svipinn“. Og það þýddu engar fortöl- ur. Hann hjelt áfram að nöldra um hvað myndi nú hafa verið í kassanum — þangað til jeg fór líka að hugsa. . Hvað skyldi annars hafa ver- ið í þessum árans kassa? En er fjasað um braggaútvarp. SÍÐAN að því var vikið hjer í dálkunum snemma í vor, að svo myndi komið, að útvarp úr bragga suður á Reykjanesi væri orðið allvinsælt meðal landsmanna og þá einkum unga fólksins, hefir verið mikið um það mál fjasað í blöðum og út- varpi. Bollalagt hefir verið um það fram og aftur hvort erlendur her sem hjer dvelur hafi leyfi til að setja upp útvarpsstöð í landi ríkiseinokunarinnar. Aðr ir hafa barið sjer á brjóst og hrópað um hættuna, sem staf- aði af því að Islendingar hlust- uðu á erlenda útvarpsstöð. Ný- lega tók ný braggastöð til starfa og var þá eins og olíu væri helt í eldinn. Það var á ný byrjað að kveina og kvarta um að slíkar stöðvar væru hættulegar fyrir æskulýð landsins og framtíð þjóðarinnar. Fleiri hættur. ÞEIR SÖMU MENN, sem hæst hrópuðu í þessum efnum gátu þess ekki, að hvaða miðl- ungsdýra móttökutæki, sem selt er hjer í Viðtækjaeinka- sölu ríkisins skilar ágætlega frá sjer efni, sem útvarpað er frá erlendum útvarpsstöðvum og að þúsundir manna á landinu hafa árum saman stilt tæki sín inn á útvarpsstöðvar víðsvegar í heiminum, bæði til þess að hlusta á mælt mál og hljóm- list. Ein eða tvær nýjar útvarps- stöðvar, reknar af útlending- um, sem hægt er að ná til hjer á landi, auka því hvorki eða minka þá hættu, sem íslenskri menningu, eða íslensku þjóð- erni kann að stafa af erlendum útvarpsstöðvum. • Ein bylgjulengd. ÞÝSKU NASISTARNIR kunnu ráð við þeirri hættu, sem þeir t.öldu almenningi stafa af því að hlusta á útvarp frá útlönd- um í stað þess að stilla tæki sín inn á hin þýsku „menning- artæki“. Þeir tóku hreinlega fyrir alt ,,óþarfa“ hlust á erlent útvarp og fyrirskipuðu eina bylgju- lengd í Þýskalandi. Með öðr- um orðum þýsku þjóðinni var bannað, að viðlagðri dauðarefs- ingu, að hlusta á útvarp frá öðrum en Göbbels. Ef að útiloka á Islendinga frá að hlusta á erlendar út- varpsstöðvar, þá er ekki nóg að braggastöðvarnar verði lagð ar niður, heldur þarf að koma því svo fyrir, að á íslenskum tækjum sje aðeins ein bylgju- lengd — bylgjulengd „menn- ingartækisins“ hans Jónasar. • Farfuglarnir Ieita heim. ÍSLAND ER SVO fáment land, að listamenn okkar, sem skara fram úr geta ekki — og hafa ekki efni á — að búsetja sig hjer heima. Þeir verða að leita frægðar og frama meðal hinna fjölmennari þjóða. Við, sem heima erum skiljum þetta mæta vel og okkur hlýnar um hjartaræturnar, þegar einhver íslenskur listamaður gerir garð inn frægann erlendis. Og þegar sumrar koma listamennirnir heim með farfuglunum og dvelja hjá okkur um stund og lofa okkur að njóta listar sinnar. Með svo að segja hverri ferð koma listamenn nú til Islands. Veri þeir velkomnir. imnnmiaMUimnHHniuunnniinni ! MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . I >o 5 Lánleyii undanhaldsmanna einkennir Alþýðuflokkinn Hvert ætlarðu? Sú spurning liggur á vörum manna, sem renna augum til Alþýðuflokksins um þessar mundir. Það er vitað, að mikil átök voru innan flokksins haustið 1944, er ákveða skyldi, hvort hefja skyldi samstarf í landinu um nauðsynlegar endurbætur á framleiðslu landsmanna, ell- egar eyða skyldi unnu fje í vinnustöðvanir og vitleysu, svo þjóðin stæði allslaus eftir. Það er vitað, að nokkur hluti Alþýðuflokksins var framsókn- armegin í þjóðfjelaginu — og vildi fyrir hvern mun þann kostinn að þjóðin hallaðist að úrræða- og allsleysinu. Framboðin. Manni sýnist að sömu átökin haldi áfram innan Alþýðu- flokksins. Þeir, sem hallast að Hermanni ,,sterka“ og Eysteini með innilokunina hafi þar enn mikil ítök. Og þá einkum þeir, innan Alþýðuflokksins, sem treystu sjer ekki til þess að i styðja stofnun hins íslenska lýðveldís. Samhugur íslendinga um lýðveldisstofnunina vorið 1944 vakti heimsathygli. Hann var svo eindreginn, að menn hafa ekki hirt um, að veita manni eins og Hannibal Valdimars- syni eftirtekt, þó hann tæki þá sjerkennilegu afstöðu að nota blaðskrípi sitt, til að vinna gegn þjóð sinni í lýðveldismálinu. Sama máli gegnir um mann. þann, er gekkst fyrir því hjer í Reykjavík, að safnað var und- irskriftum undir áskorun, þess efnis að sjálfstæði þjóðarinnar yrði slegið á frest. Afskiftaleysið af þessum stjórnmálamönnum hefir gefið forráðamönnum Alþýðuflokks- ins kjark til þess að grafa upp einmitt þessa menn og hafa þá í framboði til Alþingis, ásamt nokkrum fleirum, sem sýni- lega lifa enn í sæludraumum þeirra tíma, er Framsókn hafði Alþýðuflokksmenn sjer til að- stoðar við að sigla atvinnu- og fjármálum landsmanna útí hið hið mesta öngþveiti, er endaði með því, að þessir samstarfs- flokkar gáfust upp. Að vísu eru frambjóðendur innan Alþýðuflokksins, sem líta allt öðrum augum á fram- faramál þjóðarinnar, og hafa verið eindregnir bæði með stofnun lýðveldisins og ný- skipun atvinnuveganna. En þannig er framboðum Alþýðu- flokksins hagað, að enginn veit hver stefnan verður ofaná, endurnýjun á bandalaginu við Framsóknarafturhaldið, ellegar framhald á stuðningi við fram- faramálin. Unga fólkið. Lánleysi Alþýðuflokksins kom greinilegast í ljós, þegar hanrr ætlaði eða þóttist ætla, að haga framboði sínu hjer í Reykjavík eftir óskum unga fólksins, og tók Gylfa Þ. Gísla- son sem efsta mann á lista sinn. Enn hefir ekki spurst um einn einasta ungan mann hjer í Reykjavík, sem heillast hafi af þeirri „hugsjón“ Gylfa, að tefla framtíðarsjálfstæði þjóð- arinnar í fullkomna tvísýnu, með því að neita að taka við viðurkenning stórveldanna á (Gjörið svo vel að fletta á bls. 12, 5. dálki).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.