Morgunblaðið - 02.07.1946, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. júlí 1946
~TT H
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík,
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands,
kr. 12.00 utanlands.
I lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók.
Fyrstu úrslitin
ATKVÆÐI hafa þegar verið talin í 15 kjörcfæmum,
og er það rúmur helmingur allra kjördæma á landinu.
Úrslitin, sem kunn eru sýna glæsilegan styrkleik
Sjálfstæðisflokksins, bæði í kaupstöðum og sveitum.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki aðeins stærsti stjórnmála-
flokkur landsins, heldur ber hann svo af öllum öðrum
flokkum, að samjöfnnuður kemur þar enginn að.
Þetta er öllum Sjálfstæðismönnum mikið fagnaðar-
efni. Alveg sjerstaklega er þetta ánægjuefni fyrir það,
að bersýnilegt er, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir fengið
viðurkenningu þjóðarinnar fyrir því, að hann hefir stefnt
1 jett. Sumir flokksmanna óttuðust, að flokkurinn myndi
bíða hnekki við samstarf við verklýðsflokkana, ekki síst
öfgaflokk kommúnista. Reynslan hefir þegar sýnt, að
þessi ótti var algerlega ástæðulaus.
Þjóðin skilur það, að samstarf flokka um stjórn
landsins er nauðsynleg í lýðræðislandi, þar sem enginn
einn flokkur hefir meirihluta. En það er engan veginn
sama hver forystuna hefir í slíku samstarfi. Hin giftu-
sama forysta Sjálfstæðisflokksins hefir náð hylli alþjóðar.
Og það er aiveg víst, að ktjórnarandstæðingar hafa að
þessu sinni fremur fylgt flokki sínum af gamalli trygð
en af sannfæringu. Úrslitin í sveitakjördæmunum, sem
kunn eru sanna þetta greinilega.
★
Úrslit kosninganna hjer í Reykjavík sýna mikinn vöxt
allra flokka frá síðustu alþingiskosningum, en þó lang-
samlega mestan vöxt hjá Sjálfstæðisflokknum.
Bæjarstjórnarkosningarnar í janúar s. 1 sýndu, að Sjálf-
stæðisflokkurinn átti gífurlegu fylgi að fagna hjer í bæn-
um. Af þeim kosningum varð þó ekki ráðið til fulls, að
hið stórkostlega aukna fylgi Sjálfstæðisflokksins væri
raunverulegt.
Viðhorfið var nokkuð sjerstakt við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar. Talið var, að æði margir kjósendur, sem ekki
höfðu fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum, vildu fyrir
engan mun láta valdið í bæjarmálunum í hendur and-
stöðuflokkanna þriggja. Menn óttuðust að af sigri þeirra
myndi hljótast stjórnleysi og upplausn, eins og raunin
varð á Akranesi.
En nú hafa alþingiskosningarnar í Reykjavík staðfest
hið mikla fylgi flokksins í bænum, sem hann hlaut í
bæjarstjórnarkosningunum. Flokkurinn heldur sem næst
óbreyttu fylgi nú við alþingiskosningarnar.
Og það er athyglisvert fyrir kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins hjer í bænum, að ekki munaði nema 70 atkv.
til þess að flokkurinn feldi þriðja manninn á lista komm-
únista. Enginn efast um,að Sjálfstæðisflokkurinn átti þessi
atkvæði til. En það vill oft við brenna, að sumir kjósendur
eru of hiroulausir á kjördegi. Þeim er gjarnt á að líta svo
á, að ekki muni um eitt atkvæði og sitja heima eða fara
brott úr bænum, án þess að greiða atkvæði.
Nú fá Sjálfstæðismenn sjeð hvaða afleiðingar geta hlot-
ist af slíku tómlæti. Með því stuðla þeir beinlínis að
kosningu andstæðings. Svo hatramlegt er þetta, að ekki
hefði þurft að bæta við nema einu einasta atkvæði í
hverju umdæmi flokksins í bænum, til þess að fimm
þingmenn hefðu verið kjörnir af lista flokksins í bænum.
Hver einasti Sjálfstæðismaður verður að festa sjer
rækilega í minni að láta þetta aldrei henda sig aftur, að
sitja heima við kosningar, á þeim haldlausu forsendum,
að ekki muni um eitt atkvæði. Kosning getur oltið á einu
atkvæði.
★
Það er of snemt að ræða um kosningarnar í heild, því
að enn er ótalið í mörgum kjördæmum.
En verði útkoman svipuð í kjördæmum þeim, sem
ótalið er í og þessum, sem kunnugt er um, þá er það sigur
fyrir ríkisstjórnina og hennar stefnu. En nú er best að
bíða með hugleiðingar um þetta, þar til heidarúrslitin
íiggja fyrir.
\Jíluerji óhripar!
tJR DAGLEGA LÍFINU
Slagurinn búinn.
ÞÁ ER KOSNINGASLAG-
URINN búinn að þessu sinni og
fer ekki hjá því, að flestum
ljetti til muna, því þótt kosn-
ingar sjeu spennandi, þá eru
þær þreytandi fyrir marga,
sem þurfa að hafa einhver af-
skifti af þeim. Ekki er enn vit-
að um úrslit kosninganna, en
allar líkur benda til að þær
breyti engu um stjórnarhætti
og stefnu í landsmálum.
Sigurvegarinn í kosningun-
um er fyrst og fremst ríkis-
stjórnin, því stuðningsmenn
hennar hafa hlotið fylgi al-
mennings.
Hjer í Reykjavík var kosn-
ingadagurinn ekki viðburðarík-
ur. Veður var yndislegt allan
daginn, en það var enginn æs-
ingur í mönnum. Allir voru ró-
legir og það jafnvel svo að
mörgum þótti nóg um og töldu
að ekki myndi verða nærri því
eins mikil þátttaka í kosning-
unum og var við bæjarstjórn-
arkosningarnar í vetur. Það
reyndist líka rjett þótt ekki
munaði miklu.
Ef að vanda lætur, munu all-
ir flokkar vera ánægðir, að
minsta kosti á prenti í flokks-
blöðunum. Allir munu telja sig
hafa unnið, en segja andstæð-
ingana á hraðri leið til fylgis-
leysis.
Vökunótt.
REYKVÍKINGAR voru marg
ir hálf rotinpúrulegir í gær-
morgun, eftir vökunótt við að
hlusta á kosningafrjettir. Fyrst
og fremst var mikill áhugi fyr-
ir atkvæðatölum í Reykjavík.
Það er venja hjer við talningu
að hægt er að sjá það nokkurn-
vegin á fyrstu atkvæðunum
hvernig fara muni. En þó
breyttist þetta nú. Samkvæmt
fyrstu tölum, sem birtar voru
hafði Sjálfstæðisflokkurinn
fjóra kjörna og Alþýðuflokks-
menn og kommúnistar sína tvo
hvor. En svo breyttist þetta
þegar kosningátölurnar komu í
annað sinn og lengi var útlit
fyrir að Sjálfstæðismenn
myndu hafa tapað dálitlu fylgi.
Svo var þó ekki, eins og kunn-
ugt er. Því ruglingurinn staf-
aði af breytingum á listanum.
En óhætt era ð fullyrða, að
sjaldan hafa atkvæðatölur ver-
ið meira spennandi hjer í
Reykjavík en 1 fyrrinótt.
•
Mikil vinna.
ÓHEMJUMIKIL VINNA ligg-
ur á bak við hverjar kosning-
ar. Vikum og mánuðum sam^
an er unnið að undirbúningi
þeirra á skrifstofum flokkanna
en á sjálfan kjördaginn skifta
þeir þúsundum, sem vinna
beinlínis við kosningarnar.
Það eru margskonar störf,
sem vinna þarf. Fyrst og fremst
eru það kjörstjórnirnar, sem
fylgjast með því að alt fari
fram eins og það á að vera og
síðan starfsmenn flokkanna,
bæði í kjördeildum, í sendi-
ferðum og við smölun.
Kosningadagurinn er eini:
dagurinn hjer í Reykjavík sem j
hægt er að reiða sig á að fá I
bíl og það sem meira er, farið
kostar ekki krónu. Menn geta
feingið sig keyrða um þveran
og endilangan bæinn fyrir ekki
neitt.
Jeg er þeirrar skoðunar, að
þessi bílaakstur sje mesta vit-
leysa. Það eigi ekki að koma
fílhraustu fólki upp á að aka
því til og frá kjörstað. Allt
öðru máli er að gegna um gam-
alt fólk og lasburða. Það er
sjálfsagt að sækja það í bílum.
Dagur strákanna.
FÁIR HAFA eins gaman af
kosningadeginum, ef dæma má
eftir svip og framkomu fólks,
eins og strákar, 10—14 ára
gamlir. Þeir eru skreyttir
flokksmerkjum bak og fyrir
eins og jólatrje, eða rússneskir
marskálkar orðum og vappa
um eins og þeir eigi allt haf-
urtaskið.
Strákar, sem venjulega fást
ekki til að skreppa í næstu búð
til að kaupa eldspýtnastokk,
nema með fortölum, eða
skömmum, þeysast eins og
skopparakringlur um bæinn í
sendiferðum. Og það er líka
ekki svipur á peyjum. Og eft-
ir nokkur ár eru þeir orðnir
háttvirtir kjósendur, en synir
þeirra teknir við hlaupastörf-
unum og merkjaskrautinu.
Æsifregnir.
MJÖG ER - ÞAÐ misjafnt
hvernig kjörstjórnirnar telja
atkvæði. Sumar hafa æsifregna
aðferðina og það er ekkert að
marka tölurnar fyr en úrslitin
koma. Aðrar kjörstjórnir reyna
að haga talningu þannig að sem
rjettast hlutfall komi fram
strax við fyrstu tölurnar.
Það eru margir á móti smá-
skamtatalningunni og eru þeirr
ar skoðunar, að ekki eigi að
vera að æsa fólk, eða halda
fyrir því vöku með smáskitsleg
um tölum. Betra væri að til-
kynt yrði fyrirfram, að á á-*
kveðnum tíma yrðu úrslit í
hverju kjördæmi birt. Geta
menn þá gengið að því vísu,
hvenær úrslit koma á hverj-
um stað.
Það mætti til dæmis ákveða
hjer í Reykjavík, að úrslitatöl-
ur yrðu birtar klukkan 7 að
morgni og ekkert fyr.
Æsifregnaaðferðin er engum
til góðs, en margir verða svefn
vana að ástæðulausu.
Skulum við svo láta útraétt
um kosningarnar að sinni. •—
Vonandi að ekki verði kosið
á ný fyr en að fjórum árum
liðnum, eða í janúar 1950, þeg-
ar bæjarstjórnarkosningar
verða. Það mun flestum þykja
nóg, að hafa tvennar stórkostn-
ar á sex mánaða fresti.
gMMBMWMMMOIOIMiBPIPni ■■■»■ n wnrm rmw ifiw
MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . j
..................... ?
ÞÁ ERU KOSNINGARNAR
afstaðnar að þessu sinni. Kjós-
endur landsins hafa sagt til um
það, hvaða flokk eða fulltrúa
þeir óska að styðja til þingsetu
næstu ár.
Eftir útlitinu að dæma, þegar
þessar línur eru ritaðar sýnist
manni að kosningaúrslitin ætli
ekki að þessu sinni að fela í
sjer neina óvænta stórviðburði.
Hjer í Reykjavík var útkom-
an ákaflega svipuð og við bæj-
arstjórnarkosningarnar í vetur,
enda þótt kjörsókn frá hendi
fylgismanna Sjálfstæðisflokks-
ins hafi verið dálítið dræmari.
Kommúnistar fengu nokkrum
atkvæðum fleira, þó samsvar-
aði sú viðbót ekki fjölguninni
á kjörskrá. Þessi fáu atkvæði
þeirra nægðu þeim til þess að
halda sömu þingmannatölu hjer
í Reykjavík og þeir höfðu áð-
ur. En ákaflega er ólíklegt, ef
þau fáu atkvæði verði til þess
að þeir fái ekki einum færri
uppbótarþingmanna.
★
Kommúnistar höfðu 4 kjör-
dæmakosna þingmenn síðasta
kjörtímabil. Þeir hafa fengið
sömu þingsæti nú. Eftir er að
Ettir kosningarnar
vita hvort atkvæðatala þeirra
nægir þeim til þess að fá aftur
6 uppbótarþingmenn, svo þing-
mannatala þeirra verði 10, eða
hvort t. d. Alþýðuflokkurinn
kann að fá einu uppbótarþing-
sæti meira vegna þess að fylgi
þess flokks hefir aukist frá Al-
þingiskosningunum 1942.
★
Framsóknarflokkurinn fjekk
lang lökustu útkomuna hjer í
Reykjavík borið saman við
kosningarnar í vetur, tapaði
um 200 atkvæðum af því litla
fylgi, sem hann hafði hjer þá.
Menn giska á, að ein megin-
ástæðan til þess sje sú, að Tím-
inn hefir verið látinn koma ó-
venjulega oft út undanfarna
mánuði, eða 5—6 sinnum í
viku, með ákaflega svipuðum
fyrirsögnum og ákaflega svip-
uðum greinum og innihaldi, og
hefir eins og kunnugur maður
sagði hjer um daginn, hvorki
verið vikublað nje dagblað.
Sennilegt er, að Framsókn-
armenn láti sjer þetta að kenn-
ingu verða og lofi Pálma Hann-
essyni framvegis að vera í friði
við störi sín.
í gærkvöldi hafði verið talið
í 15 kjördæmum. hefir fylgis-
aukning Sjálfstæðismanna orð-
ið langmest í þessum kjördæm-
um, samtals um 3700 atkvæði.
Fylgisaukning Alþýðuflokks-
ins um 1000 atkvæðum minna
en Sjálfstæðisflokksins. En
kommúnistar bætt við sig um
1500 atkvæðum. Svo vöxtur
þess flokksins samsvarar ekki
fjölgun kjósendanna í landinu.
En Framsóknarflokkurinn
hefir í þessum kjördæmum
fengið hina hraklegustu útreið.
Því hann hefir fengið um 200
atkvæðum færra en 1942, þó
kjósendum hafi fjölgað mikið.
Mun það einsdæmi í stjórn-
málasögu landsins að flokkur í
stjórnarandstöðu skuli fá aðra
eins útreið og Framsókn. nú.
MILJÓNAHER KÍNVERSKUR
LONDON: Stjörnin í Chung-
king hefir fengið samþykki þjóð
fulltrúasamkundunnar til þess
að koma upp miljónaher, og
skulu amerískir liðsforingjar
ráðnir til þess að þjálfa her
Þenna-