Morgunblaðið - 02.07.1946, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ
'
Þriðjudagur 2. júlí 1946
Minning Cuðm. Heigasonar
iiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
GUÐMUNDUR var íæddur
1). apríl 1864 að; Oddsqtöðum í
jlrútafirð1! og andaðist að Elli-
fteimilinu í Reykjavík 22. júní
Í946.
' Guðmundur var af myndar-
legu bændafólki kominn í báðar
ættir. Sjálfur var hann hraust-
ur og þrekmikill og greindur
vel. Bóklega mennt mun hann
litla hafa hlotið í æsku. Var
það hvorttveggja, að á hans
æskuárum var það ekki eins
vakandi fyrir alþýðu manna
Ág nú, að veita ungu fólki ment
un, ænda munu foreldrar hans
ekki hafa verið fjesterk og því
erfitt um við að veita börnunum
bóklega fræðslu. En í æsku naut
Guðmundur þess sem góð
bændaheimili hafa jafnan veitt
unglingum og síst má vanmeta,
en það var sú menning og
þroski, sem unga fólkið hlýtur
á reglusömum myndarheimil-
um við fjölbreytt heimilisstörf.
Þetta hefir mörgum verið stað-
gott veganesti þegar út í lífið
er komið. Á æskuárum Guð-
mundar var það títt að menn
úr Strandasýslu fóru til sjó-
róðra vestur að ísafjarðardjúpi.
Hann fylgdi straumnum og fór
í verið þegar hann var 18 vetra.
Það varð úr að hann ílendist
þar vestra og rjeðist til vistar
að Laugarbóli til Jóns bónda
Halldórssonar. Á því víðkunna
og framúrskarandi myndar-"
heimili var hann svo nokkur
ár. Ávalt mintist Guðm. veru
sinnar þar með mikill ánægju
og taldi að Laugarbólsheimilið
Hafi verið sjer ágætur skóli til
menningar og manndáða.
Frá Laugarbóli fór Guðm.
suður á Mýrar að Staðarhrauni
til hinna stórmerku hjóna sr.
Jónasar Guðmundssonar og
konu hans Elinborgar Kristj-
ánsdóttur. Sagðist honum svo
frá að þar hefði hann unað hag
sínuwi vel á því góðfræga heim-
li. Þar kyntist hann Halldóru
ljósmóður Loftsdóttur og feldu
þau hugi saman og giftust í
júní 1888. Á því vor hófu þau
búskap á Brúarfossi í Braun-
hreppi. Síðan fluttu þau í Snæ-
fellsnessýslu og bjuggu þar á
ýmsum stöðum, uns þau sett-
ust að í Yri-Knarartungu 1
Breiðuvíkurhreppi. Þar voru
þau hjón lengst og undu sjer
best.
Stór bú hafði Guðmundur
aldrei, en skepnur hans voru
úrvalsskepnur og hafði hann
því ágætt gagn af búi sínu,
enda stundaði hann það vel og
þótti sjerlega góður skepnuhirð
ir og dýravinur.
Þau hjónin Halldóra og Guð-
mundur eignuðust 8 börn, 3 dóu
í æsku en 5 komust til fullorð-
insára. Helgi bæjarfulltrúi og
kaupm. í Hafnarfirði. Hann dó
árið 1943.Loftveig, kona Gests
Gunnlögssonar bónda í Mel-
tungu. Ingibjörg, kona Júlíus-
ar Björnssonar raffræðings og
kaupm. í Rvík. Þórdís ógift og
Guðlaugur bóndi í Skógum í
Borgarhreppi.
l'Eftir nál. 50 ára sambúð, varð
Gum. að sjá á bak konu sinni.
Hún andaðist 10. febr. 1938. —
Fann hann mjög til einstæðings
skapar eftir missi konu sinnar,
enúa þrek og kraftar mjög farn
ir lað dvína. Kom Guðmundur
sjer nú fyrir á Elliheimilinu og
dvaldi þar það sem eftir var
æfinnar. Þar lifði hann rólegt
æfikvöld og naut ástúðar barna
og barnabarna, sem ljetu sjer
ant um að ljetta honum þunga
ellinnar, svo sem framast varð
auðið.
Vinir og vandamenn geyma
minninguna unj Guðmund
Helgason í þakklátum huga. •—
Hann reyndst ávalt vandaður
maður og drengur góður, hvar
sem hann fór.
V. B.
Minning Þóreyjar
Haildérsdóífur
I DAG er til moldar borin
merkiskonan Þórey Halldórs-
dóttir. Hún andaðist að heimili
sínu, Baldursgötu 34, 23. júní
s.l. eftir stutta legu. Vert er
að minnast þessarar mætu konu
þó að það verði nú aðeins lít-
illega gert hjer. Þó vil jeg með
þessum örfáu línum votta henni
mitt innilegasta hjartans þakk-
læti fyrir alla þá ástúð og trygð
sem hún hefir alla tíð auðsýnt
ættingjum sínum. sem og vin-
um og öllum, sem hún þekti.
Enda var hún mjög Vinsæl
kona. Þessvegna er við fráfall
hennar mikill söknuður og sorg
af eftirlifandi háöldruðum eig-
inmanni, systkinum og vinum.
Þórey heit. Halldórsdóttir
var mjög trúuð kona, enda tók
hún með hinni mestu hugprýði
og stillingu á móti dauðanum.
Góður Guð varðveiti þig á ei-
lífðarbrautinni og láti draum-
ana rætast, sem þínar hugsjónir
miðuðu ávalt að.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir alt og alt.
Guð blessi okkur minnngu
þína. A. H.
| Góð gleraugu eru fyrir
öllu.
i Afgreiðum flest gleraugna
I recept og gerum við gler-
augu.
•
§ Augun þjer hvílið
með gleraugum frá
TÝLI H. F.
i Austurstræti 20.
s
íMllllllimsllllllllllCltMMIIIllllllKIIIIIMIIItllllllllIlinim
i Bíla- og húsgagnavax. |
Bíla- og
i málningarvöruversluD i
Friðrik Bertelsen,
Hafnarhvoli.
IIIIIIIIIIIIIIMIIIIII.MIIIIMIMIIIIMMIMM.MIMMMMII
rilkynning
Frá 1. júlí þangað til öðru vísi verður ákveðið, verð i
ur leigugjald fyrir vörubíla í innanbæjarakstri sem $
hjer segir:
Dagvinna: Kr. 18.86. Með vjelsturtum 21.67.
Eftirvinna: Kr. 23.24. Með vjelsturtum 26.05.
Nætur- og helgidagav.: Kr. 27.62. M. vjelst. 30.43.
\Jöru líiaó töc)in jf^róttur
AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Unglinga
vantar til að bera blaðið til kaupenda við
Bergst.stræti
Baldursgötu
Við flytjum blöðin heim til barnanna.
Talið strax við afgreiðsluna. Sími 1600.
llakiíi
#♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦<$»<$■♦♦♦♦•
$<$$&$m>Q^>&$®$<$^<$$>&$<$&$&$<$<$<$<$&$®&$<$&$^$<$^x$<$Q>&$&$&sx$<$<gx$x$<$x$<$x$&$&$<$4x$<$x$<&$4>
STÓRSTÚKUÞINGIÐ
verður sett í Templarahúsinu föstud. 5. júlí n.k.
Templarar safnist saman í Templarahúsinu
kl. 1,30. Verður þaðan gengið í Dómkirkjuna og
hlýtt á messu hjá séra Jakob Jónsssyni. Að
messu lokinni verður þingið sett, kjörbrjef rann-
sökuð og Stórstúkustig veitt.
Kjörbrjeíum og umsóknum um stig, sje skilað
í bókabúð Æskunnar fyrir hádegi á föstudag.
UnglingareglujDÍngið
verður sett í Templarahúsinu fimmtudaginn
4. júlí kl. 10 f. h. Stórgæslumaður unglingastarfs
verður til viðtals í Templarahúsinu m-ðvikudag-
inn kl. 6—8 e. m.
Reykjavík, 2. júlí 1946.
Kristinn Stefánsson, Jóh. Ögm. Oddsson,
Hannes J. Magnússon.
iHúsnæði fyrir vinnustofurl
Stórt og bjart húsnæði fyrir vinnustofur
öskast til leigu eða kaups
nú þegar eða síðar á árinu. — Tilboð sendist
H.í. Leiftur
Tryggvagötu 28. — Sími 5379.
i