Mosfellsblaðið - 01.12.1999, Page 9
skiptir um ei
Hjónin Ámi Atlason og Eydís Lúð-
víksdóttir hafa selt veitingastaðinn
Áslák. Þau hafa rekið staðinn í 6 ár og
gert úr þessunr listamannastað Gunn-
ars Gunnarssonar listmálara, skemmti-
legan samkomustað bæjarbúa og ann-
arra sem vilja fara út úr borgarmenn-
ingunni. Þessum
frábæru gestgjöfum
er hér með send
kveðja frá bæjarbú-
um og þakkir fyrir
frumraun og aðlað-
andi samkomustað.
Hinir nýju eig-
endur Ásláks eru
Freyja Árnadóttir,
25 ára gömul ættuð
frá Húsavík, unnið
hjá ÁTVR á Eiðis-
torgi og Guðjón Örn
Ingólfsson, 33 ára
framreiðslumaður,
menntaður frá KEA
á Akureyri sem þjónn og framleiðslu-
maður, unnið á Rauða ljóninu á Sel-
tjamamesi um 10 ára skeið. - Þau eiga
þrjú böm og fluttu í Mosfellsbæ s.l.
vor.
Þau hafa breytt Ásláki, opnað nýjan
sal, endumýjað húsgögn, málað og
snyrt. Framundan er
að opna efri hæð
hússins fyrir matar-
gesti, síðan er áætlað
að stækka húsið til
austurs og tengja við
skemmuna, þar sem
haldin verða hlöðu-
böll og stórar veislur.
Fyrirhugað er að hafa
lifandi músik allar
helgar.
Freyja Arnadóttir oo
Guðjón Örii Ingólfsson,
hinir nýjit eigendur
Asláks.
F.u Sigurgeirgítarleikari, Pétur útgefandi, Birgirsöngvari, Asmundur dreifmgarstjóri, Karl trommuleik-
ari, Roiiny framleiðandi ogjóhann bassaleikari.
Ekkert lát virðist á vinsældum Gildrumezz með CCR dagskrána og nú
nýverið kom út plata með rjómanum af þessari dagskrá . Platan selst
eins og heitar lummur í orðsins fyllstu merkingu sagði Kalli trommari og sagðist
langa eina ferðina enn að þakka sveitungum sínum sem eiga svo stóran þátt í
þessu ævintýri öllu saman. - Á myndinni má sjá þá Gildrumezzfélaga fagna plöt-
unni ásamt þeim sem að framleiðslunni standa.
Góðir í boltanum. Þeirfélagar koma oft sainan á Alafossfót bcst aðfygjast mcð boltanum, f.v.
Sigurjón, Sverrir, Svanþór, Villi, Biggi,Jói og Stcini, kallaður Bergur dvergur. - A Fötunum cr
fn aðstaða til að fylgjast með iþróttaviðburðum.
Sigrím og Ólafur á itýja
matstaðnum sínuin.
Kaffistofan í Túninu heima sem hef-
ur verið rekin af Dagnýju Davíðsdótt-
ur og Gunnari Ásgeirssyni hefur skipt
um eigendur og nefnist nú Kronika,
dregið úr Innansveitarkroniku Lax-
ness. Hinir nýju eigendur þau Sigrún
Eggertsdóttir og Olafur Gunnarsson
leggja mikla áherslu á heitan mat í há-
deginu og stefnan er að senda út mat til
fyrirtækja, einnig er hægt að taka móti
hópum. Lögð er sérstök áhersla á fljóta
og góða þjónustu. Þeir sem panta mat
fyrir þrjá daga eða meira fá 10% afslátt
á súpu og rétti dagsins. - Vínveitingar
eru og opið flest kvöld í jólamánuðin-
um og eftir áramót fimmtudags- föstu-
dags- og laugardagskvöld til að byija
með.
Sigrún flutti frá Vestmannaeyjum í
Mosfellsbæ með foreldrum sínum eft-
ir gos. Hún er skólagengin frá Kenn-
araháskólanum og hefur starfað sem
flugfreyja um árabil. Ólafur hefur unn-
ið við matreiðslu s.l. 10 ár og segist
vera með landsins bestu hamborgara.
Síminn á Kroniku er 5668822.
r
Uti- og inniljósaseríur.
Perur í allar okkar seríur.
Gluggaskraut og aðventuljós.
Raftæki, verkfæri og reykskynjarar.
Þjónusta í 30 ár 1969-1999
Urðarholti 4, Mosfellsbœ
Sími 566-6355/566-7572
www.mosraf.is
Mosrcllsblaðkt