Morgunblaðið - 25.10.1946, Side 1
16 síður
S3. árgangur. 241. tbl. — Föstudagur 25. október 1946 ísafoldarprentsmiðja h.f.
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLURINN
AFHENTUR ÍSLENDINGUM í DAG
Verkfræðingafirma í Eskilstuna í Svíþjóð hefir undanfarið unnið
að framleiðslu bifreiða, sem hægt er að aka í lest líkt og járn-
brautarvögnum. Hefir nú tekist að yfirvinna alla erfiðleika við
stýra slíkri bílalest á bugðóttum vegum og er hægt að aka lest
bíla, eins og hjer sjest á myndinni, vjelarvagn með þremur
aftanívögnum og einum farangursvagni, örugglega á vegum
úti. Talið er að slíkar bílalestir eigi framtíð fyrir sjer m. a.
vegna þess að orkueyðsla vjelarvagnsins eykst ekki nema um
10% við að hafa vagnana aftan í sjer.
fjölskyldur
fluttar frá Berlíu
til Bússlands
Berlínarbúar óttaslegoir
Berlín í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
RANNSÓKN, sem látin hefur verið fara fram í Berlín í
sambandi við brottflutning þýskra iðnaðarmanna og fjöl-
skyldna þeirra til Rússlands, hefur leitt í ljós, að að minnsta
kosti 120 fjölskyldur hafa verið fluttar frá Berlín einnri. Talið
er víst, að Rússar hafa neytt verkamenn í ýmsum öðrum
borgum til að fara sömu leið og starfsbræður þeirra 1 Berlín.
Fá þesrmeS yíirs-áð yiir einum
siærsia ílugvelli heims
ÍSLENDINGUM verðui- í dag afhentur Keflavíkurflugvöllurinn til eignar og um-
ráða. Þar með eignast íslendingar einn af stærstu flugvöllum heims, sem bygðir
voru á stríðsárunum. Eins og kunnugt er voru það Bandaríkjamenn, sem flugvöll-
inn bygðu og er áætiað að hann hafi kostað um 20 miljónir dollara, eða um 130
miljónir króna.
Tveir flugvellir eru við Keflavík. Völlur fyrir stórar millilandaflugvjelar, sem
Bandaríkjamenn nefndu „Meeks“ og minni völlur, sem notaður var eingöngu fyrir
3rustuflugvjelár Bandaríkjamanna. Þann vöil nefndu Bandaríkjamenn „Patterson“.
Báðir vellirnir voru nefndir eftir Bandar íkjaflugmönnum, sem fórust hjer við land.
Voru það fyrstu flugmenn Bandaríkjanna, sem fórust hjer við land í styrjöldinni.
Jerúsaíem
Jerúsalem í gærkvöldi.
ÞRJÁR sprengingar urðu í
Jerusalem í kvöld, sem taldar
eru eiga rót sína að rekja til
tímasprengja, sem skemdar-
verkamenn af Gyðingaættum
hafi komið fyrir. Vitað er, að
að minsta kosti 11 breskir her-
menn hafa særst í sprengingum
þessum, þar af þrír hættulega.
Tveir hermanna þeirra, sem
særðust, hlutu sár sín, er
sprengju var varpað að þeim
af húsþaki.
Hermenn eru nú á verði al-
staðar í Jerúsalem, og lögregl-
an hefir varað fólk við fleiri,
tímasprengjum, sem óttast er
að komið hafi verið fyrir víðs-
vegar í borginni. — Reuter.
’ Athöfn á vellinum í dag
Utanríkisráðuneytið sendi út eftirfarandi tilkynningu til
blaðanna í gær um afhendingu vallarins:
„Eins og kunnugt er var nýlega gerður samningur við
ríkisstjórn Bandaríkjanna um niðurfelling herverndarsamn-
ingsins og afhendingu Keflavíkurflugvallarins til ríkisstjórn-
ar íslands. Samkvæmt þessum samningi verður Keflavíkur-
flugvöllurinn afhentur ríkisstjórninni með athöfn á flugvell-
inum föstudaginn 25. október, kl. 3,30 e. h. Brig. General
Mckee mun afhenda flugvöllinn fyrir hönd herstjórnar Banda-
ríkjanna, og forsætisráðherra, Ólafur Thors, mun veita honum
viðtöku fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Samtímis því verður
fáni íslands dreginn þar að hún.
Jafnframt því að afhending flugvallarins fer fram verður
fáni Bandaríkjanna dreginn niður í Camp Tripoli í Reykjavík.
Fengu engan mat.
LONDON. Flutningaverka-
menn, sem fluttu matvæli til
matarskála breska herráðsins
við Fullwell, gerðu nýlega
fjögurra daga verkfall til þess
að mótmæla verðhækkunum.
Fjekk herráðið lítinn mat á
meðan.
Attlee deilir ó
rússnesku stjórnina
Hún útilekar Rússa frá umhelminum
^Skipun nefndar.
Utar.xíkisráöuneytið hefir í
dag skipað Erling Ellingsen
flugmálastjóra, Gunnlaug
Briem fulltrúa í atvinnumála-
ráðuneytinu, Gunnlaug Briem
símaverkfræðing og Gunnlaug
Pjetursson deildarstjóra í utan-
ríkisráðuneytinu til að taka
sæti í nefnd til að semja við
fulltrúa frá ríkisstjórn Banda-
ríkja Ameríku um allar fram-
kvæmdir í sambandi við af-
hendingu og yfirtöku Kefla-
víkurflugvallarins skv. samn-
ingi við Bandaríkin dags. 7.
okt. þ. á. um niðurfelling her-
verndarsamningsins frá 1941 o.
fl.
Blöð í Berlí.’i, sem út koma á
hernámssvæði Rússa 1 borg-
inni, birta í dag fregnii um
brottflutning þýskra iðnaðar-
manna.
Fimm ára fjarvera.
• Lundúnaútvarpið skýrir frá
því, að fleiri iðnaðarmenn hafi
verið fluttir úr þýsku höfuð-
borginni í dag. Hafa borist
fregnir um, að sumir þessara
manna sjeu sendir til austustu
hjeraða Rússlands, þar sem þeir
muni verða látnir vinna um að
minnsta kosti fimm ára tíma-
bil. Menn þessir fá sjerstakan
matarskamt til ferðarinnar og
Framh. á bls. 15
Nasisfar fluttir !i!
Nurnberg
Nurnberg í gærkveldi.
MARGIR háttsettir nasistar,
sem verið hafa í haldi í Dachau
fangabúðunum, hafa nú verið
fluttir til Nuvnberg, þar sem
mál þeirra verða tekin fyrir.
Meðal manna þessara eru
ýmsir fyrverandi ráðherrar og
aðrir embættismenn, meðal
annars Walter Darre, landbún-
aðarmálaráðherra, Edward
Milch marskálkur, og póst og
símamálaráðherra Hitlers.
—Reuter.
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ATTLEE, forsætisráðherra Bretlands, flutti ræðu á bresku
verklýðsráðstefnunni í dag. Forsætisráðherrann ræddi nokkuð
sambúð Rússlands og annara ríkja og fann þar ýmislegt ábóta-
vant, en auk þess fjallaði ráðstefnan um afstöðu bresku stjórn
arinnar til Grikklands. Nokkrar deilur urðu um það mál.
Attlee lagði áherslu á rjett®1
þjóðanna til að ákveða sína
eigin stjórnarstefnu á alger-
lega frjáláum grundvelli. Taldi
hann að verklýðsfjelögin ættu
að hafa forystuna um, að svo
gæti orðið.
Forsætisráðnerra harmaði
það, að rússneska stjórnin virt
ist gera allt sem hún gæti til
að aðskilja Rússland og aðrar
þjóðir. Kvað hann blöð Ráð-
stjórnarríkjanna flytja hinar
fáránlegustu frjettir um flest
það, sem útlent væri, en þetta
hefði svo það í för með sjer,
að veggur vanþekkingar og
grunsemi væri að rísa milli
rússnesku þjóðarinnar og um-
heimsins.
Hamborg í gærkveldi.
HEINRICH HOFFMANN,
einkaljósmyndari Hitlers, hefir
verið handtekinn í Nurnberg.
Hoffmann er sakaður um að
hafa veinð nasisti, en eins og
kunnugt er, var hann því nær
eini maðurinn, sem Hitler leyfði
að taka ljósmyndir af sjer.
—Reuter.
Bjargaði tveim mönnum
LONDON. 17 ára gamall pilt
ur bjargaði nýlega tveim full-
orðnum mönnum, er vjelbáti
þeirra hvolfdi skamt undan
ströndinni. Synti hann út til
mannanna.