Morgunblaðið - 30.10.1946, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.10.1946, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIB Miðvikudagur 30. okt. 1946 Hiiiiiiiiiniiiiiiiiiiii!ii!iiiiiim!ii!iiiiiiMiiiniimmiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiimiHim!!M!i!iMmii!iii!iiii!ii!ii!imi!i!imiiiiii]iiiiuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiMii!imiiiiiiiiiiii| 'l BLÓÐSUGAN Cftir JoL n Cjoodwin BiiiiiiiimiimiiiiiiimmiimmiiniiummiiMiimfiiiiiiiiiiiiiii liimmiimiimimiHiimimiiiimmiiiimmiiiimmmmmiKB Að jarðarmiðju Eftir EDGAR RICE BURROGHS. 25. dagur Þau stóðu hvort andspænis öðru, þegjandi. Frú Garth skalf. — Jeg kem hingað, sagði Ducros, — bókstaflega með lífið í lúkunum. Það er ekki um að villast. Jeg er að spila hátt spil. Það er hægara en frá þurfi að segja fyrir yður að af- henda mig lögreglunni. Jeg er einn með yður hjer í húsinu og enginn fjelagi minn er hjer á næstu grösum, og mjög ólík- legt, að mjer tækist að sleppa. Og sannast að segja dytti mjer ekki í hug að reyna það, hvorki nú nje á neinu öðru stigi máls- ins. Jeg vil hafa það, sem jeg set upp, eða þá hitt, sem um >er að gera — þrælkunarvinnu. Hvort hafið þjer hugsað yður? — Málið er það einfalt, að þjer getið verið fljót að á- kvarða yður. Eftir klukkan eitt í nótt, get ekki einu sinni jeg frelsað dóttur yðar. Viljið þjer þá greiða þessa upphæð, spm er ekki annað en smámunir fyrir yður? Eða viljið þjer heldur fá hefnd yfir mig og láta líf dótt- ur yðar í staðinn? Vita dóttur yðar liðið lík um sólaruppkomu á morgun? Hendur konunnar sigu mátt- lausar niður með síðunum. — Jeg geng að skilmálum yðar, hvíslaði hún, — en flýt- ið yður þá að gefa mjer hana aftur. Jeg hjelt, að jeg þekti karlmenn, en aldrei hafði mjer dottið í hug, að jafn svívirðileg persóna og þjer væri til. Ducros hneigði sig kurteis- lega. — Jeg samgleðst yður, frú. Frá þessu augnabliki þurfið þjer ekki að óttast neitt. Jeg heimta aðeins orð yðar fyrir því, að þegar þjer hafið fengið dóttur yðar og jeg peningana, gerið þjer ekkert frekar í mál- inu fyr en þjer eruð komin hingað heim til yðar aftur. Og jeg tek orð yðar gilt. Að öðru leyti skal jeg sjálfur sjá um sjálfan mig. Jæja, við skulum þá fara. — Hvað á eg að gera? spurði hún dauflega. — Ná í leiguvagn og aka með mjer til banka yðar í Cornhill. Þjer einar hafið aðgang að hon- um um þetta leyti nætur. Þjer ein af öllum elskandi mæðrum borgarinnar, hafið við hendina ótakmarkaðan auð í seljanleg- um erlendum skuldabrjefum, sem ekki er hægt að þefa uppi eftir á. Svona mikið fje í gulli kemur ekki til mála og banka- seðlar eru mjer einskis virði. Jeg verð að hafa ríkisskulda- brjef frá Argentínu, Brasilíu eða einhverju slíku landi, og sannfæra mig um, að þau sjeu góð og gild. Berið þjer yður að ,koma með þau — á því ríður alt. En þjer þurfið ekki einu sinni að fá mjer þau fyr en dóttir yðar er komin til yðar, en það getur orðið í bankánum sjálfum, og jeg skal bíða þar hjá yður. En okkar allra þriggja vegna, bið jeg yður að flýta yður. ' Frú Garth gaf sjer ekki nema tíu sekúndna umhugsunartíma, og kallaði þá aítur á þjón smn. Vagn hafði hún engan, eins og áður er sagt, en hún tók það ráð að senda brytann með hrað- boð til vinkonu sinnar, sem bjó skamt þaðan, um að fá lánað- an hennar vagn. A meðan sat Ducros þögull við borðið, eins og ekkert væri um að vera og hlustaði á boðin, sem hún bað brytann fyrir. Meðan þau voru að bíða eftir vagninum, fór frú Garth inn í annað herbergi og Ducros ó- boðinn á eftir henni, og þegar hún hafði tekið þar stóra lykla- kippu út úr járnskáp, kom hann enn með aðvörun. — Það er rjett að taka það fram, sagði hann, — að ef þjer með nokkurri bendingu eða merki reynið til að kalla á hjálp meðan við erum saman, tek jeg eftir því og geri það sem við á. Jeg fjölyrði ekki um það frekar. Þarna heyrist mjer vagninn koma. Vagninn, sem var lokaður, kom nú að dyrunum. Frú Garth steig upp í hann, án þess að líta á samferðamann sinn. Hann snöggvast á gangstjettinni og leit á girðinguna kring um hús- ið, eins og hann væri að gá að einhverju. — Nú? sagði hann. — Vjel- hjólið mitt. Farið? Stolið? Eða .... Hann sagði ekki meira, en ypti aðeins öxlum og sagði öku- manninum að aka til bankans. Síðan steig hann upp í vagn- inn. —- Jeg vona, fyrir hönd þeirra þriggja aðila, sem í þessu máli eru, sagði hann, — að eng- inn hafi farið að skifta sjer neitt af því. Jeg vil ennþá taka það fram, að mistakist mjer. er líf dóttur yðar í veði. Hins veg- ar ef einhver er að reyna að leita að henni, getur það orðið löng leit. Við erum fullkomlega örugg hvað það snertir, frú. En svo skal jeg ekki ónáða yður frekar með samtali. Þjer vilj- ið sjálfsagt heldur þögnina, skilst mjer. Frú Garth hafði hvorki löng- un nje mátt til að tala. Hún var að reyna að koma sjer niður á því, hvort Orme væri eitthvað að hafast að í málinu, og hvort hann myndi geta gert nokkuð í því, sem dygði. Hún gat ekki annað en óskað þess af öllu hjarta, að svo væri ekki. Hún skildi vel hótanirnar hjá þess- um vingjarnlega djöfli, sem sat við hlið hennar og fann, að af- drif málsins voru eingöngu á valdi þeirra tveggja. Hann einn gat gefið henni Margaret aftur. — Það þýðir víst ekkert að spyrja yður fyrir hvern þjer hafið tekist þennan glæp á hendur? sagði hún og horfði beint fram fyrir sig. — Jeg skil yður ekki vel, svaraði Ducros blátt áfram. — Jeg er ekki sá heimskingi, að jeg leggi höfuð og háls í hættu til að auðga neinn annan en sjálfan mig. Að vísu hefi jeg aðstoðarmenn, sem fá sinn hluta, en það er líka alt og sumt. Og jeg er ekki hjer til að svara spurningum, frú. Hún sagði ekki meira. Vagn- inn staðnæmdist við Garths- banka og Ducros skipaði öku- manninum áð bíða. Frú Garth hringdi bjöllu til næturdyra- varðarins. Hann kom fram að járngrindahurðinni, tók við fyrirskipunum húsmóður sinn- ar og eftir mikið glamur í lykl- um og járni, komst hún inn í bankann. Dyravörðurinn sýndi ekki af sjer neina undrun yfir því að verða að opna fyrir hús- móður sinni á þessum tíma sól- arhringsins. Þetta hafði skeð svo oft fyr, að hann var hætt- ur að undrast. Nú tók frú Garth sína eigin lykla og fór upp í trjeþiljaða herbergið á fyrstu hæð. Hún kveikti á lömpunum, opnaði dyrnar, sem voru í hinum veggnum og lágu út í gangana þar sem járnskáparnir voru og benti Ducros að bíða þar sem hann var kominn. Ducros gerði það. I þetta skifti gerði hann enga tilraun til að elta hana. Nú var hann viss um frú Garth. Og það var honum líka ó- hætt. Jafnvel þó hún hefði í hendi sjer öll auðæfi Garths og Gordons samanlögð, þegar hún gekk gegn um þessar dyr, þá voru þau auðæfi nú ekki öflugri en brotinn reyr. Ducros hafði undirtökin meðan Mar- garet var á valdi hans. Eftir stutta stund læsti frú Garth aftur dyrunum og gekk að þeim enda langa borðsins, sem Ducros sat ekki við, og lagði þar hrúgu af slgölum og verðbrjefum. Við hliðina á skjölunum lagði hún litla skammbyssu með perluhand- fangi, hlaðna, svo nærri, að hægt var að ná til hennar. And- litssvipur hennar var rólegur og hreyfingarlaus og röddin al- gjörlega skjálftalaus. — Jeg hefi átt heima í fleiri löndum en Englandi, sagði hún, — og jeg ætla að tryggja mjer það, að þjer haldið yðar hluta af kaupunum. Verðbrjefin verða í mínum vörslum þangað til. Og ef þjer ekki skilið mjer dóttur minni drep jeg bæði sjálfa mig og yður. Ducros leit af skammbyss- unni og á andlit konunnar. — Jeg vona, að þjer farið ekki að gera af yður neinar vit- leysur með þessu hlægilega leikfangi. Þetta er bláköld verslun. Það er að vísu satt, að jeg er sjálfur vopnaður, en ef jeg færi að drepa yður, væri það að koma mjer í gálgann og svifta mig öllum ágóðanum, svo þann möguleika þurfum /ið ekki að tala um. Og ef þjer færuð að drepa mig, er það sama og að drepa dóttur yðar. Teljið þjer fyrir augum mínum þessi verðbrjef, sem þjer hafið þarna, en svo skuluð þjer fyrir alla muni geyma þau sjálf. Frú Garth flýtti sjer að leggja mislitu verðbrjefin í sex hrúgur, fleygði efsta brjefinu í hverri hrúgu til Ducros til at- hugunar og taldi svo hin fyrir augunum á honum með ótrú- legum hraða. Hann fylgdi hverri hreyfingu hennar með augunum. Brjefin varu erlend skuldabrjef; ao vísu ekki reiðu- peningar en seljanleg hvar sem var, og ekki þurfti að fram- selja þau, og því ekki hægt að rekja feril þeirra. Upphæðin stóð heima. 5. reynt að snúa jörðinni sjálfri. Jeg stakk upp á því við Perry að stöðva vjelina og reyndi svo enn við stýrið. En það hreyfðist ekki hið minnsta. Það batnaði ekki þótt við værum kyrrir. Jeg nristi höfuðið og gaf Perry bendingu um að setja vjelxna aftur af stað, og enn hjeldum við áfram ógnarför okkar niður í iður jarðar með miklum hraða. Jeg leit ekki af hitamælinum. Hann steig, en mjög hægt. En þó hitinn væri ekki nema rúm 40 stig, var hann samt því nær óþol- andi í þrönga klefanum okkar. Tólf timum efíir að við lögum af stað, eða um hádegi •næsta dag, vorum við komnir 135 km. niður í jörðina, og var hitinn þar ekki nema tæpar 50 gráður. Perry var nú vonbetri, þó mjer væri ómögulegt að skilja hvaoa ástæðu hann hefði til þess. Hann var nú farinn að syngja, og var jeg smeykur um að hann myndi vera að verða ruglaður. Við höfum ekki talast við, nema þegar jeg sagði honum frá hita og hraða og hvað við hefðum farið iangt. Jeg var sokkinn niður í daprar hugsanir. Jeg ljet hugann reika yfir liðin ár og minntist margra viðburða. Hitinn var óskaplegur. Mjer fannst jeg myndi missa með- vitundina, ef hann hækkaði enn um nokkur stig. — Jæja, hvað segja mælarnir núna?, sagði þá Perry allt í einu. — 144 km. og 51 stig, svaraði jeg. — Þá er nú úti um þá getgátu, að jarðskorpan sje ekki nema 50 km. á þykkt! hrópaði hann af mikilli kæti — Mikið held jeg að það gagni okkur, tautaði jeg. — En hvernig er það með þig, drengur minn, spurði hann Hvað segirðu um hitann. Hann hefir ekki hækkað neitt síðustu 10 kílómetrana. Hugsaðu bara um það, sonui* sæll. — Jeg er að hugsa um það, svaraði jeg. en hvaða mis- mun gerir það, þegar við erum kafnaðir, hvort hitinn er 50 stig eða 1500 stig. Við verðum nákvæmlega jafndauðir, og enginn fær þar að auki nokkru sinni að vita um mis- muninn. En jeg varð að viðurkenna, að þetta með hitann gerði mig einhvernveginn vonbetri. Þjóðverjinn kvartaði undan óvináttu þeirri, sem hann átti að mæta í Frakklandi á stríðs- árunum. — Þið verðið þó að játa það, sagði hann við Frakka nokk- urn, að við höfum um aldaraðir orðið fyrir árásum og misskiln- ingi. Við verðum að minsta kosti að verja okkur. — Satt er það, svaraði Frakk inn, en það er einkennilegt, að þið skulið altaf hafa orðið fyrir þessum árásum í ókunnum löndum. ★ Kennarinn var að tala við börnin um fuglana og sló því föstu, að sumir fuglar borðuðu ávexti. Lítil stúlka rjetti upp hend- ina. — En kennari, sagði hún, hvernig geta fuglarnir opnað dósirnar? ★ Hann var hálf feiminn, og eftir að hún hafði lagt hend- urnar um háls honum og kyst hann fyrir blómin, sem hann hafði fært henni, stóð hann upp og bjó sig til að fara. — Mjer þykir leitt, að jeg skyldi móðga þig, sagði hann. •— Ó, þú móðgaðir mig ekki, var svarið, jeg ætla að fara að kaupa fleiri blóm. ★ Hún var að skrifa syni sín- um, til að óska honum til ham- ingju með trúlofunina. — Kæri sonur, skrifaði hún. Mikið eru þetta dásamlegar frjettir Þetta hefir glatt okk- ur foreldra þína alveg óum- ræðilega mikið. Það hefir ætíð verið ósk oklrar, að þú gengir að eiga einhverja góða stúlku. Góð kona er það besta, sem einn maður getur átt. Undir þetta var ritað með karlmannlegri hendi: — Móðir þín fór að sækja frímerkin. Vertu ekki að þessu, asninn þinn. ★ — Jeg vona þú haldir mig ekki montinn, sagði hann, eftir að hafa sagt henni æfisögu sína. — Nei, nei, svaraði hún. En jeg skil ekki, hvernig þú getur látið vera með að hrópa ferfalt húrra, í hvert skipti, sem þú lítur á sjálfan þig í spegli. V — Ef þú gefur mjer krónu, sagði Nonni litli, skal jeg lofa, að vera góður. — Því ertu ekki eins og hapn faðir þinn, andvarpaði móðir- in, loforð hans eru einskis virði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.