Morgunblaðið - 30.10.1946, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.10.1946, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: Suðvcstan átt. — Lygnir með morgninum. Utvegsmenn víta vinnubrögð við byggingu S. R. á Sigiufirði UTVEGSMANNAFJELAG Eeykjavíkur hjelt fjelagsfund að Hafnarhvoli 15. okt. síðastl. Á fundinum voru tekin til um ræðu ýms nauSsynja- og á- hugamál útvegsmanna, skal hjer getið nokkurra þeirra. Eætt var um erfiðleika þá, sem útvegsmenn eru komnir í vegna tveggja síldarleysis sumra, er nú hafa komið yfir útveginn. Áleit fundurinn þar sem útgerðarkostnaðurinn er orðinn svo gífurlega hár vegna hárra kauptrygginga og vinnu Jauna, að nauðsynlegt væri að útvegurinn fengi þægilegt lán á svipuðum grundvelli og s.l. haust, til að standa straum af skuldbindingum sínum með, var skorað á LÍÚ að beita sjer fyrir þessu. Þá var rætt um verbúðapláss útvegsmanna hjer í Reykjavík, töldu fund- armenn að erfitt mundi að taka upp söltun á fiski í stór- um stíl vegna húsplássleysis, þar sem hinar nýju verðbúð- ir sköpuðu ekki möguleika til söltunar, væru aðeins aðgerð- ar og beitingarpláss, var sam- þykkt áskorun til Hafnar- stjórnar að láta útvegsmenn sitja fyrir með þau húspláss við höfnina, er hún hefur ráð á. All-miklar umræður urðu um viðgerðir á skipum og vjel um, fannst mönnum eðlilega sú kostnaðarhlið á útgerðinni vera komin fram úr öllu hófi, en þar sem þetta mál hafi verið til umræðu áður hjá fje laginu og þá gerðar samþykkt ir í því var aðeins samþykkt nú að fela stjórninni að halda þessu máli vakandi. Þá urðu miklar umræður um bygginu síldarverksmiðju ríkisins á s.l. sumri. Fundar- menn, sem margir höfðu ver- ið á Siglufirði á meðan á bygg ingu þessari stóð, og þess vegna haft góða aðstöðu til að íylgjast með þessu verki, að þar hefði fje verið eytt til sjá anlegra óþarfa í tugþúsunda- tali. Kom eftirfarandi tillaga fram í því máli og var sam- þykkt með samhljóða atkv.: Fundur haldinn í útvegs- m.annafjelagi Reykjavíkur 15. okt. 1946, vítir harðlega vinnu aðferð þá er höfð var í sumar við bygginu síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði, sem dæmi má geta þess, að eftir að fyrirsjáanlegt var að síld- veiðinni var lokið og fjöldi veiðiskipa hættur veðum, þá var unnið í eftirvinnu og næt- urvinnu svo og helgidaga- vinnu, og jafnvel þegar öll skip voru hætt veiðum var enn unnið í yfirvinnu við tankasmíði. Þegar í ágústmánuði var fyrirsjáaniegt að ekki yrði þörf fyrir þessa verksmiðju fyr en á næsta sumri, þess vegna teljum vjer að þarna hafi verið sóað óhemju fje til engra nota, en framkvæma hefoi mátt þessa vinnu í dag- vinnu aðeins, í haust og þá næsta vor. Fiðlusnillíngurinn Wandf Tworek vænSanlegrrr !ii ísíaaís í BYRJUN NÆSTA mánaðar er væntanlegur hingað til lands fiðlusnillingurinn Wandy Tworek, ungur maður sem þegar hefir getið sjer af- ar gott orð í Danmörku fyrir fiðluleik sinn. Hann er af Wandy Tworek pólskum ættum, en alinn upp og hefir hlotið mentun sína í Danmörku hjá Max Schlúter og Erling Bloch. Tworek kem- ur hingað á vegum Hljóðfæra hússins og mun halda nokkra hfjómleika í Gamla Bíó. Hjer mun Tworek leika verkefni eftir Tchaikovski, Paganini, Mozart, Bach, Kreis ler. I för með honum er píanó leikarinn Ester Vagning, sem annast undirleik á hljómleik- unum. Dönsk blöð hæla Tworek mjög og líkja honum við snill- inga eins og Fini Henriques og Peter Möller og telja hann meðal snillinga heimsins. Wandy Tworek er ungur maður, um þrítugt, en hin síð- ari ár hefir honum verið hrós- að meir í Danmörku en nokkr um öðrum fiðlusnilling, sem þar hefir komið fram. Miðvikudagur 30. október 1946 Nýfísku „flugfreyja". FLUGFJELÖG KEPPAST nú um að fá ungar stúlkur í þjónustu sína til að vera „flugfreyjur". Eru haldin námskeið fyrir blómarósirnar, því mikið þykir við þurfa, að þær kunni að haga sjer hið besta. Hjer á myndinni sjest ein, sem ekki væri dónalegt að ferðast með. Sfádea? a$ íslenskum æffuRi.- sem var svelfur ai nasisfum. HJER Á LANDI er nú stödd frú Guðrún Brunborg, íslensk kona, sem dvalið hefir 28 ár í Noregi. Sonur hennar, Olav, ung- ur stúdent, fjell fyrir frelsishugsjónum Norðmanna 1944, þá að eins 22 ára. Nasistar sveltu hann í hel. Móðir hans hefir stofnað sjóð við Oslóarháskóla til minningar um son sinn og vinnur nú að eflingu þess sjóðs, með því að halda fyrirlestra og sýna kvik- myndir frá Noregi. Fyrirlestur á fimtudag. Frú Guðrún Brunborg, hef- ir haldið nokkra fyrirlestra og sýnt kvikmyndir á Austur- og Norðurlandi í sumar. Segir hún að erindum sínum hafi verið einstaklega vel tekið á Húsavík og Siglufirði. Upphaflega var ætlun hennar að hefja þessa fyrirlestraferð hjer í Reykjavík, en þá varð hún sjúk og varð að liggja alllengi í sjúkrahúsi fárveik. Nú er hún komin hingað aft- ur til bæjarins og ætlar að halda fyrirlestur og sýna kvik- myndir frá Noregi í Tjarnar- bíó á fimtudagskvöld kl. 9. — Kvikmyndirnar voru teknar í Noregi eftir friðinn og er önn- ur þeirra af fyrsta Holmcnkoll enmótinu, sem haldið er eftir stríð. En íí fyrirlestri sínum ætlar frúin að segja frá Nor- egi á hernámsárunum, en hún avaldi þar í landi allan þann tíma og kann frá mörgu að segja úr daglega lífinu þau raunaríku ár, sem Noregur var undir oki nasismans. London í gærkveldi. FREGNIR frá Kína herma í kvölld, að stjórnarherir sæki nú af hörku að borginni Che- foo, sem er aðal-aðflutnings- borg kommúnista til herja sinna á Shantungskaganum. Hafa þarna verið háðar ein- hverjar grimmilegustu orust- ur, er háðar hafa verið síðustu mánuðina, og segja fregnirn- ar að kommúnistar sjeu nú að reyna að auka varðlið borg- arinnar með því að flytja lið yfir Chi-li flóann. Er herlið þetta flutt á allskonar skipum. Sagt. er að kommúnistar hafi meðal annars flutt liðið á tveim japönskum tundurspill- um og hafi komið til sjóbar- daga milli skipa þessara og herskipa kínversku stjórnar- innar. — Reuter. FJÁRLAGARÆÐA fjármála- ráðherra er birt á 4, 5, 6, 7 10 síðu blaðsins. „Svalf og bjarí", rifsafn Jakobs fj Tborarensen ketnur ú á morgun Á MORGUN kemur út rit- safn þjóðskáldsins Jakobs Thorarensen og verður í tveim bindum, en hefir hlotið. nafnið Svalt og Bjart. Það er Helgafell, sem gefur ritsafnið út í tilefni af 60 ára afmælij skáldsins, og er útgáfan fork- unarfögur og prýðilega úr. garði gerð í alla staði. í fyrra bindinu eru kvæðil skáldsins í fimm flokkum. Er þar uppistaðan í hinar sex kvæðabækur skáldsins, sem. svo miklum vinsældum hafa átt að fagna með þjóðinni ogj munu menn gleðjast yfir því að fá þær nú allar í einu. Þetta bindi er 454 bls. í hent- ugu broti með greinilegu efn- isyfirliti og formála eftir, skáldið. í síðara bindinu eru smá- sagnasöfn höfundar, sem ekkil hafa síður aukið á hróður hans, en kvæðin. Það bindii er 450 síður og eru þar yfir 20 smásögur, en sem bókar- auki er lausavísnasafnið Hraðkviðlingar og hugdettur. — Mun unnendum skáld- skapar Jakobs Thorarensen þykja mikið til þessarar út- gáfu koma, og það með rj ettu.: Vopnahlje samið á Java London í gærkveldi. VERIÐ er að reyna að semja vopnahlje á Java, milli evjar- skeggja annarsvegar og Hol- lendinga og breska hersins hinsvegar og eru taldar góðar horfur á því að þetta muni nú takast. Hafa verið skipaðar nefndir til þess að gera tillög- ur um það, hvernig best sje að koma vopnahljeinu á, og er talið að störf nefnda þess- ara gangi með ágætum. Lítið hefir verið um átök á eynni undanfarna viku, og er t.alið að þetta sýni vilja aðila til þess að leggja nú loksins nið- ur vopnin, en eins og kunnugt er, hafa viðureignir verið stöð ugar á eynni í meira en ár. Verið er nú að flytja breska herinn á brott frá eynni. — Reuter. Æfls ckkf að hæra vegna Palesfínu London í gærkveldi. FULLTRÚI Sýrlands á þingi hinna sameinuðu þjóða lýsti því yfir í dag, að Araba- ríkin myndu ekki krefjast þess að Gyðingalandsmálin yrðu tekin fyrir á þessu þingt sameinuðu þjóðanna. Hann var á þeirri skoðun, að friður- inn í heiminum væri mest undir stórveldunum kominn. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.